Morgunblaðið - 02.10.1964, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.10.1964, Blaðsíða 12
MORGU N BLAÐIÐ < 12 Frásagnir Eskimda í A-Græn- landi af norrænum víkingum efiir Svend Frederiksen, prófessor SVO sem frá var skýrt í Mbl. í gær flytur Svend Frederik- sen prófessor frá Washington fyrirlestra í Háskólanum um líf 0|g trúaráhugmyndir Eski- móa. Prófessor Frederiksen er fæddur í Grænlandi, af dönsku foreldri, en hann lærði tungu Eskimóa fyrst mála. Hann er kvæntur Eski- móakonu og eiga þau fimm dætur. í eftirfarandi grein, hinni fyrstu af þrem, sem birtast munu í Morgunblaðinu, segir hann frá munnmælas«;um Eskimóa á Austur-Grænlandi um norræna víkinga. Allt mitt líf hefur verið tengt Eskimóum. Ég fæddist í landi Eskimóa, lærði turugu þeirra fyrst allra mála, há- skólamenntun mín fjallaði um Eskimóa og ég mun eini núlifandi menntamaður, sem hefur árum saman lifað og starfað meðal Eskimóa í Alaska, Kanada og Græn- landi. Þær upplýsingar, sem ég hef aflað meðal þeirra má telja, að verði með því síð- asta, sem við getum vænzt að fá að vita um hina aldagömlu, frumstæðu menningu þeirra, sem er óðum að deyja út. Þessar upplýsingar segja frá hinni hreinu og frum- stæðu menningu Eskimóa, eins og hún var, áður en þeir komust í snertingu við „hvíta manninn". Fyrstu samskipti ,,hvíta mannsins" við Eskimóa heyra til hinna allra fyrstu samskipta Evrópu'búa við frumstæðar þjóðir annarra heimsálía. Fyrstu kynni hinna norrænu. manna af Eskimó- um fyrir um það þúsund ár- um, þegar þeir komu á fót eins konar bændalýðveldi í Suðvestur Grænlandi, munu vera fyrstu samskiþti Evrópu- búa við Vesturálfu. Þetta er mjög athyglisvert, þar sem víst er, að Evrópubúum var vel kunnugt um Vesturálfu hálfu árþúsundi áður en Columbus tók þar land — og þeir verða stöðugt fleiri, sem láta sannfærast af þeim sögu- legum heimildum, er herma, að Columbus hafi vitað um löndin vestan hafsins af norr- ænum heimildum og hann hafi kosið að sigla svo sunnar- lega sökum þess, að þessar sömu heimildir hermdu að ekki væri öllu lengur unnt að fylgja fyrri leiðarvísum um norðurleiðina vegna haf- ísa. Þeir torvelduðu mjög siglingar hinna tiltölulega veikbyggðu miðaldaskipa og komu að lokum alveg í veg fyrir þær og stuðluðu þar með að eyðingu hins evrópska sam félags í Suð-vestur Grænlandi ; í lok miðalda. Á Sænski vísindamaðurinn I Otto Pettersen vann alla sína ævi að rannsóknum á veðra- i breytingum um aldaraðir. f Hann veitti því athygli, að greina mátti kerfisbundnar breytingar á veðurfari — um það bil 1850 ára veðraskeið, er hófust með hlýviðri og lauk með kuldum. Þetta kemur vel heim og saman við þær get- gátur, að Evrópumenn hafi setzt að á Grænlandi á hlý- viðrisskeiði en vaxandi kuldar hafi bundið enda á landbúnað þeirra og orðið samfélagi þeirra og menninigu að falli. Nú á okkar tímum sjást þess merki, m.a. í Grænlandi, að við lifum í upphafi hlýviðris- skeiðs. í íslenzkum fornsögum og sagfræðiritum höfum við upplýsingar um samskipti Eskimóa og íslenzkra manna á miðöldum. í þjóðsögum Eskimóa eru einnig frásagnir af því, er þeir hittu íslend- inga frá vesturhluta Græn- lands — frá þeim tímum, er Eskimóarnir tóku að færa sig sunnar til veiða undan versnandi veðráttu. En frá Austur-Grænlandi, þar sem veðurskilyrði voru miklu verri, höfum við til þessa enigar frásagnir haft frá Eski- móum sjálfum um fundi þeirra og íslendinga. Það má því teljast til tíð- inda, að á árinu 1962 skráði ég nokkrar munnmælasögur Eskimóa í Austur-Grænlandi, er fjalla um samSkipti þeirra og evrópskra miðaldamanna. Hef ég skráð þessar munn- mælasögur einmitt á því svæði þar sem íslendingar voru vanir að taka fyrst land í Grænlandi eftir sjó- ferðina yfir Danmerkursund frá Snæfellsnesi, í nágrenni Reykjavíkur. Á þeim tímum frumstæðra siglingahátta forð uðust menn eftir mætti að sigla yfir úthöfin, án þess að hafa eitthvers staðar land- sýn til viðmiðunar. Þar af leiðandi herma sögulegar heimildir, að hinir fyrstu Svend Fredriksen. evrópsku innflytjendur til Grænlands hafi fylgt hinni norðlægu leið um Danmerk- ursund, þar sem stytzt var milli landa á íslandi og Græn- landi, — og síðan hafi þeir fylgt ströndinni til áfanga- staða. Síðar meir, er fregnir bárust af vaxandi ísreki var tekið að fara syðri leið — en iSvo fór að lokum, að jafnvel sú var niður lögð. Þéim, sem orðið hafa sjón- arvottar að hinum gífurlega fjölda hafísjaka undan strönd Austur-Grænlands — hafís jaka, sem eru stærri en stærstu herskip — og það að- eins sá hluti þeirra, sem ofan- sjávar er (neðansjávar eru þeir níu sinnum stærri —) virðist það gjörsamlega óhugs andi að hin veikbygðu vík- ingaskip hefðu getað komizt gegnum hin þéttu víðáttu- miklu ísbelti, — þau hefðu liðazt sundur og farizt með allri áhöfn. Þetta bendir til þess, að veðurfar hafi verið miklu mildara, þegar ferðir íslendinga til Grænlands voru tíðastar. Skiljanlegt er, að það varð samfélagi norrænna manna á Grænlandi, sem höfðu svo náin tengsl við Evrópu, geysi- mikið áfall, þegar hafísar tóku fyrir allar siglingar til Aust- ur-Grænlands og syðri hluta Vestur-Grænlands. f Angmagsalik, þar sem ég hef unnið að áðurnefndum rannsóknum, hefur ljóslega verið vettvangur fyrstu sam- skipta norrænna manna og Eskimóa. En eftir að ísinn hafði lokað af Austur-Græn- land voru samskipti þeirra ekki endurnýjuð fyrr en á síð- ustu öld. Frásögnin af íslendingnum Kajuse, sem hér á eftir verð- ur fjallað um, er ljóslega um margt svipað frásögninni af Þorgils Örraibeinsstjúpa, sem frá segir í Flóamanna- sögu. Báðum frásögnunum ber saman í mikilvægum atriðum. Atburði þá, sem íslenzka sagan greinir frá má tímasetja um það bil, er Eiríkur rauði settist að á Grænlandi — hún lýsir með öðrum orðum atburðum, sem- frá segir í um' það bil þúsund ára gömlum sögum. Þetta er ekki svo lítill aldur frásagnar, sem einnig kemur fram hjá Eskimóum. Af ýmsum ástæðum, sem ekki er þörf að rekja hér, eru helgi- og þjóðsagnir og þjóð- hættir Eskimóa miklu miklu eldri — óendanlega miklu eldri. En það, sem er svo athyglisvert er, að við höfum í íslendingasöganum ná- kvæmar tímasetningar ýmissa atburða og þeir, sem töldust til mannlegra harmasagna, hljóta að hafa haft sín áhrif á báðar þjóðirnar, annars- vegar hina evrópsku miðalda- menn, fslendingana eða hina norrænu eins og þeir voru einnig kallaðir — og hinsveg- ar Eskimóa. Ekki getur hjá því farið, að þessar frásagnir gefi mönnum þá hugmynd, að samskipti þessa ólíka fólks hafi verið meiri en siöku fundir. Vert er að veita því athygli, að stundum hljóta kringumstæðurnar að hafa neytt það til samskipta — að Eskimóarnir, sem annars lifðu algerlega einangraðir í hinum fjarlægu strandhéruð- um, komust ekki hjá því, að einangrun þeirra væri rofin. Við verðum að gera okkur grein fyrir því, að Eskimóar, sem annars eru mjög vinsam- Iegir, taka ekki einu sinni við Eskimóum annarra byggð- arlaga í samfélag sitt, án þess að fara þar að með gát Menntamenn telja söguna um Þorgils Örrabeinsstjúpa mjög sennilega. Við stöndum því 'bæði í frásögn Eskimóa og hinni íslenzku frammi fyrir lýsingum á raunveruleg- um sögulegum atburðum, sem ættu að vekja forvitni okkar um fyrstu samskipti Evrópu- manna við frumstæðar þjóðír ' Vesturálfu. Eskimóinn, sem sagði mér söguna, var Áko sonur Sha- man Pisue. Það er rétt, að ég taki fram, að hann var ólæs, eins og margir þeir, sem veittu mér upplýsingar um hina fornu menningu Eski- móa og hefði því hvergi getað lesið um norræna menn. Frá- sögn hans var þannig: Áður en dönsku landkönnuðurnir komu (hann á við Gustav Holm og Garde og túlkinn Johan Petersen frumherja nýlendunnar frá lokum síð- ustu aldar) var þessi saga víða sögð meðal forfeðranna. Fyrir löngu löngu var Kajuse hér, hann hafði hér vetursetu. Við höfum ekki heyrt um neinn honum iíkan eða honum frægari". Vissulega hlýtur Þorbjörn Orrabeinsfóstri, sem Eskimóar kalla Kajuse, að hafa haft mikil áhrif á hina fornu íslendinga, engu síður j en Eskimóa. En hér heldur áfram frásögunni: „Hinn norræni Kajuse hafði vetur- setu í Kulus-uk. Hann átti sér konu og barn og hélt auk þess þræla. Þegar leið að hreindýraveiðitímanum, um haustið, yfirgaf hann fólk sitt í fylgd þræls eins. Þeir voru í burtu meðan hin góða hrein- dýraveiði hélzt. En þegar þeir komu' aftur heim fann hann konu sína dauða af sári. Þrælar hans voru þar hvergi, þeir voru allir á brott. En barnið hans litla var ómeitt. Nú hafði hann ekkert til að gefa litla anganum. Þá skar hann af sjálfum sér geirvört- una. Út kom blóð — síðan mjólk. Eftir það gaf hann barninu brjóst. Síðan lagði hann upp í ferð með þræl sínum, þeim eina, er hann nú átti. — Hann lagði þó ekki frá landi fyrr en frostatím- inn var hjá liðinn en þá sett- ist hann undir árar. Meðan þræll hans stóð við stýrið sat hann og reri og reri, jafn- framt því sem hann gaf barni sínu brjóst. í Kilane hittu þeir fyrir alla þrælana. Hann fór vel með þá eins og hann var vanur. Hann minntist ekki einu orði á dauða konu sinnar. Það var ekki fyrr en hann kom til byggða nprr- ænna manna, að hann safnaði þrælunum saman til yfir- heyrslu — þá sagði hann: „Hver drap konu mína?“ Eng inn þrælanna vildi játa. En loks sagði einn þeirra: „Þessi drap hana“. Og þá refsaði Kajuse þeim seka“. Johnson hyggur á Evrópuferð í ár Rússar aöstoða Kýpurstjórn Washington, 30. sept. — (AP) — JOHNSON forseti hefur hug á því, verði hann kosinn í nóvem- ber, að fara til Evrópu síðar í þeim mánuði eða í desember, til viðræðna við leiðtoga ýmissa landa þar og fulltrúa Atlants- hafsbandalagslandanna. Johnson segist einnig mjög gjarnan vilja hitta að máli Krúsjeff, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, ef hann sé því fylgjandi, en telur að varla verði af fundum beirra fyrr en næsta ár. Mun forsetinn gera ráð fyrir að koma til Evrópu að vera við- staddur þingmannafund' Atlants- hafsbandalagsins, sem haldinn verður í nóvember eða fund fasta ráðs bandalagsins í des., sem báðir verða í París. Ekki er talið að Johnson vilji gera meira úr þessu en til standi og ekki stefna saman í París æðstu mönnum landanna, heldur muni hann einungis vilja ávarpa saman- komna fulltrúa þjóðanna og ræða við þá einslega. Þó telji menn allar líkur á að Johnson muni reyna að hitta að máli einhverja ráðamenn, hvenær sem hann haldi austur yfir haf. Mestan hug er forset- inn sagður hafa á því að hitta þá Charles de Gaulle, Frakklands- forseta, Ludwig Erhard, kanzlara Vestur-Þýzkalands og brezka forsætisráðherrann. Moskvu og Nicosíu, sept. — (NTB-AP) — í VEIZLU, sem haldin var til heiðurs Sukarno, Indónesíufor- seta, sem er nú í heimsókn í Moskvu, var skýrt frá því, að undirritaður hefði verið samning- ur um aðstoð Sovtéríkjanna við Kýpur. Ekki var neitt látið uppi um samningsatriði, en Rússar veita Kýpur bæði hernaðarlega aðstoð og efnahagslega. Utanrík- isráðherra Kýpur, Spyros Kypria nou, kom til Moskvu til þess að undirrita samninginn og var hann í veizlunni, cn landar hans tveir, Araouz, viðskiptamálaráðherra Kýpur og Ashiotis, hafa verið í Moskvu í rúmar tvær vikur til viðræðna við sovézka ráðamenn. Kýpurstjórn ráðgerir að eyða fast að 400 milljónum króna til varnarmála í ár, að því er skýrt var frá í Nicosíu í dag. Tæpum þriðjungi þessarar upphæðar verður varið til þess að halda uppi her Kýpur-Grikkja á eynni, en hann telur um 40,000 manna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.