Morgunblaðið - 02.10.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.10.1964, Blaðsíða 23
Föstudagur 2. okt. 1964 MORCUNBLAÐIÐ 22 Sigríður á Flögu hálf níræð í dag í DAG verður hálfníræð hefðar- konan Sigríður á Flögu — svo að nefnd sé því nafni sínu, sem heita má landfrægt — svo mikill er sá dreifingur manna um land allt, er sjálfir hafa notið góðs af þessum einhverjum mesta og bezta gestgjafa landsins í hús- freyjustétt, — en um Suðurland allt, austur í Lón, mun nafn þetta kunnugt svo til öllu fullorðnu fólki. f Reykjavík þekkir sægur manna gestgjafa þenna af eigin raun. Einhverju sinni var það á rík- isstjóra-árum Sveins Björnsson- ar —- eða fyrstu forseta-árum — að Norræna félagið gerði hann að heiðursfélaga í glæsilegu hófi. Er menn, eftir samsætið, dreifðu sér við smærri borð, settist for- setinn ekki — nema stundarkorn hjá elztu dóttur Sigríðar og Vig- fúsar á Flögu. Við hana talaði hann um móður hennar, og ann- að ekki. Er hann stóð upp frá því borði, fór hann þegar úr hóf- inu. Sigríður á Flögu fæddist 2. október 1879 að Sandfelli í Ör- aefum. Foreldrar hennar voru síra Sveinn Eiríksson og kona hans, maddama Guðríður Páls- dóttir, prófasts Pálssonar í Hörgs dal á Síðu, — en af honum er komin hin fjölmenna og hæfi- leikaríka Hörgsdalsætt. Síra Sveinn var hins vegar af Hlíðar- sett, í Skaftártungu: sonur Eiríks Jónssonar, bónda þar, og Sigríð- ar Sveinsdóttur Pálssonar, lækn- is og náttúrufræðings, ferða- garps og mannvinar (annars tveggja mikilmenna er Skaga- fjörður sendi Skaftafellssýslu að gjöf; hinn var síra Jón Stein- grímsson). M.öo.: Bjarni Pálsson landlæknir var afi Sigríðar í Hlíð, en Skúli landfógeti lang- afi. Þjóðskörungurinn Gísli Sveinssonar var bróðir Sigríðar á Flögu; hinir bræðurnir og merkismenn, en systur hennar tvær merkiskonur. Sjálf líktist Sigríður einna mest Gísla — heima í héraði, þar sem Gísli var sýslumaður og alþingismað- ur, að sínu leyti álíka mikill skörungur og álíka mikils met- in og hann. Sigríður var með foreldrum sínum — elskuðum og dáðum af allri alþýðu — flutt að Ásum í Skaftártungu innan fermingar- aldurs, og varð, upp úr þvi, ein glæsilegasta mær gervallrar Skaftafellssýslu — með glóbjart, þykkt og hrokkið hár niður að hnjám. Það var að vonum, að það yrði hún, sem húsfreyja varð að Flögu í Skaftártungu, kona þrekmennisins glæsilega, persónuleikans sérstæða en yfir- lætislausa, Vigfúsar Gunnars- sonar á Flögu (árið 1900). Þeim varð sjö barna auðið: briggja eona og fjögurra dætra. Ólu auk þess upp tvö systurbörn Sigríð- ar . þá varð hún að neyta allrar orku við nýja uppbyggingu, rúmlega fimmtug að aldri. Flaga er þannig í hérað sett, að á fyrri búskaparárum Sigrið- ar gisti svo að segja öll sýslan, austan og sunnan Eldhrauns, hjá þeim Vigfúsi í vorlestaferðum og sláturfjárrekstrum. Voru ósjald- an tugir manna hjá þeim í gist- ingu samtímis. Þetta breyttist, er sláturhús var reist austan Hrauns og er bílarnir komu til sögunn- ar. Utanhéraðsfólk, er gisti í Skaftártungu, kaus sér flest nátt- stað að Flögu. Engin nótt var þar til enda trygg áður en sím- inn kom, 1927 eða svo. Mætti vel segja mér, að til engrar konu í öllu landinu hafi stafað meira þakklæti úr öllum áttum, af öll- um landhornum — að ekki sé til- tekið innanhéraðs — fyrir hátt- víslega og höfðinglega og hlýlega gestrisni ,en til Sigríðar á Flögu. Enn munu hlýjar hugsanir streyma að henni hvaðanæva — á 85 ára afmæli hennar, 2. októ- ber n.k. Egilsstaðakauptúni, 29. september 1964. Björn O. Björnsson. - UTVARPIÐ Framhald af bls. 6 Constandúros, en_ það var flutt í þremur köflum. Ég náði því ekki öllu, en heyri því hrósað. Sama kvöld var kynnt rússnesk ljóð- list. Flutti Árni Bergmann for- spjall. Hann sagði m. a., að á 19. öld hefðu rússneskir andans menn neyðzt til að gefa sig við skáldskap, því áð keisarastjórn- in hefði gert þeim torveld öll afskipti af stjórnmálum. Ekki talaði Árni gizka- vel um Stalín sáluga og taldi hann hafa verið lítinn velgerðarmann rússnesk- um skáldum. Líklega stendur þetta allt til bóta hjá Krúsjeff keisara fyrsta. Bara að hann fari þá ekki að ofhlaða skáldin stjórn arstörfum, eins og Kínverjar fóru með Mao. Það er skammt öfgana á milli. Sveinn Kristinsson. Blfreiðaeigendur Framkvæmum hjóla- og mótorstillingar á öllum stærðum ug gerðum bifreiða. Bílastillingín Hafnarbraut 2, Kópavogi. — Sími 40-520.. Til sölu glæsileg 6 herb. íbúð í sambýlishúsi í borginni. Ólafur Þorgrímsson hæstaréttarlögmaður. Austurstræti 14. — Sími 21785. Hæð »g ris til $é!u Efri hæð og ris við Nýbýlaveg, Kópavogi er til sölu. Á hæðinni eru 3 herb., eldhús, WC, skáli. í risinu eru 3 herb. og bað. Stórar svalir. — í risinu er lagt fyrir eldhúsi í 1 herb. Tilvalið fyrir fólk, sem vantar 2 íbúðir í sama húsi. Teppi á gólfum fylgja. Sér hiti. Búskapur þeirra Vigfúsar gtóð alla tíð með miklum blóma, þá rúmlega hálfu öld, sem þau sátu Flögu saman — enda þótt Kötlu-gosið, 1918, rændi þau mesta engi sveitarinnar, utan ennarra búsifja og elding brenndi upp bæ þeirra 1930, svo að mann- björg varð með naumindum og ells engu fémæti bjargað. Börn þeirra hjóna hafa reynzt beztu drengir og dugnaðarfólk —- barnabörn mörg og mannvæn- leg, öll elsk að ömmu og afa á Flögu — hann lézt sl. vetur, á tíræðisaldri; og barnabarnabörn vita vel um langömmu á Flögu — þeim þótti líka vænt um lang- efa. Sigríður á Flögu hefur farsæl verið og er, fyrir Guðs náð, enn. En harma hefur hún haft, að sama skapi stóra, í mannslátum. Þá huggaðist hún, af fráfalli son- er og fóstursonar, er allt brann á Flögu er brunnið gat, því að Hæð og ris í Hlíðunum Höfum til sölu efri hæð og ris við Mávahlíð. Á hæð- inni, sem er 130 ferm. eru 4 herb. eldhús^ bað og skáli. — í risinu 4 herb. WC og geymslur. — Sér geymsla í kjallara auk sameignar í þvottahúsi. — Bílskúrsréttindi. 2 herb. íbúð Til sölu óvenju skemmtileg og rúmgóð 2ja herb. íbúð við Kvisthaga. Góður stigauppgangur. Kvistir. Teppi fylgja. Skipa- og fasieignasálan pmimiiiiimiiiHmiimtimittmiiiiiiiimimmmtiiimimtmmimiuinmimmiimtmmmimtmmitimmiimffl Handsetjara Okkur vantar röskan handsetjara j | nú þegar. M | Prentsmiðjan niiiiiiiiiimimiiiimiiiiiiiiiiiiiimmimmimimiimimiiiiiimmmmmmiimiiiimmiiimmiiiimiiiiiimiiiiiimf Laghentur maður óskast til samsetninga og viðgerða á reið- hjólum. — Gott kaup. Upplýsingar eftir kl. 19 í síma 35512 Sveinaifélag pípulagningamanna Ákveðið hefur verið að hafa allsherjaratkvæða- greiðslu við kosningu fulltrúa félagsins á þing Al- þýðusambands íslands. Framboðslistum skal skilað á skrifstofu sveinafélagsins fyrir kl. 20,00 5. þ.m. STJÓRNIN. S.G.T. Félagsvist í GT-húsinu í kvöld kl. 9. — Góð spilaverðlaun. Dansinn het'st um kl. 10,30. Dansstjóri: Gunnlaugur Guðmundsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8,30. — Sími 13355. NÝKOMNIR ÞÝZKIR KVEN KULDASKÓR SKÓSALAN LAUGAVEGI 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.