Morgunblaðið - 25.06.1963, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.06.1963, Blaðsíða 20
20 MORGVISBIAOIÐ Þriðjudagur 25. júní 1963 HULBIRI FOBTMER: H Æ T T (J L E G IJ R FARMIiR 19 En þá hrukkum við öll við og sperrtum eyrum. Það var barið að dyrum. — Hver er þar? spurði írú Storey. — Jepson, frú (Jepson var þjónninn í matsalnum). — Hr. Laghet sendir ykkur kveðju sína og spyr, hvort þér og ungfrú Briekley viljið fá matinn sendan hingað. • -— Nei, alls ekki. Við komum á augabragði. Við Farman sagði hún. — Þér verðið kyrr, þangað til við erum komnar burt. Það er ekki eftir að ákveða nema eitt. Hvar á frið- þægingarathöfnin að fara fram? Hérna? Farman sendi henni dálítið þokukennt bros. — Það er of mikil áhætta að brjótast hingað aftur. Gætuð þér ekki fengið hús bóndann til að koma niður að sundlauginni eftir hádegisverð? — Það væri einmitt það bezta. Þar kemur enginn maður á þeim tíma. Við skulum hitta yður þar klukkan tvö. ...með kvöldkaffinu ÞEGAR ÞÉR gistið í Kaup- mannahöfn, getið hér lesið Morgunblaðið samdægurs,. — með kvöldkaffinu í stórborg- inni. FAXAR Flugfélags íslands flytja blaðið daglega cvt l»að er komið samdægurs i blaða- söluturninn í aðaljárnbrautar- stöðinni við Ráðhústorgið — Ilovedbanegardens Aviskiosk. FÁTT er ánægjule.gra en að lesa nýtt Morgunblað, þegar verið er á ferðalagi vtra eða dvalizt þar. Það er betra í fimleikasalnum fyrir framan laugina, sagði hann. — Ungfrú Stella getur gætt dyra, svo að enginn ryðjist inn á okkur. Við renndum okkur út úr stof- unni og gengum upp stigann. Við fundum þögulan hóp við borð- ið — eingöngu karlmenn. Þeir litu út eins og þeir hefðu ekki sagt orð hver við annan síðan þeir settust niður. Adrian var ná- fölur og ekkert nema taugarnar. Hann var alltaf eins og miður sín í félagsskap karlmanna. All- ir fimm stóðu upp þegar við komum inn. Horace leit á okkur með tortryggnissvip. — Afsakið, að við komum svona seint, sagði frú Storey hressilega. Það kom okkur á ó- vart þegar kallað var til matar. Við vorum að klæða okkur. — Þetta var nú heldur ves ældarleg afsökun, þar sem við vorum í sömu fötum og þegar Horace hitti okkur síða t. Horace leit á fötin en sagði ekkert. — Guði sé að minnsta kosti lof, að þið eruð komnar, sagði Martin og tinaði undir gleraug- unum, er við settumst. — Þetta var eins og erfisdrykkja. Mér fannst þetta heldur ó- smekklega til orða tekið, eins og á stóð, en Martin var sama. Hann var nú svona. Horace lét sem hann heyrði þetta ekki. Koma okkar breytti ekki miklu. Martin sagði brandarana sína og setti upp stirðlegt bros. Horace var í vondu skapi; frú Storey tók vel eftir öllu og við hin vorum taugaóstyrk. Að sjálf- sögðu var ekki minnzt á sor,g- arleikinn kvöldinu áður. Eins og við vorum í skapi, var þessi vandaða máltíð eins og háðs- merki. Við afþökkuðum næstum allt, sem okkur var boðið og kom um okkur út á þilfar eins fljótt og við gátum. Adrian, Emil og Tanner iækn- ir læddust burt — liklega til að vita kvennanna. Martin var van- u. að doka við og skemmta okkur með fyndni sinni. Hann var sá eini, að frú Storey undantekinni, sem var ekki hræddur við Hor- ace. Horace þótti vænt um hann og þoldi honum að segja, hvað hann vildi. En Martin kunni hins vegar að sjá, hvað honum var fyrir beztu, hverju sinni. Hann sagði aldrei neitt ófyrirgefanlegt návist Horace. Úti á þilfarinu horfði Martin til sólarinnar og athugaði stefnu okkar, sem var hér um bil beint í austur. SvO bryddi hann upp á spurningunni, sem fyllti hug okk ar allra. '— Erum við á leið til Port-of-Spain, húsbóndi? — Nei, svaraði Horace stuttar- lcga. — Hvert þá? — Ef ég mætti ráða, skyldum við aldrei taka höfn, sagði Hor- ace gremjulega. — Ég fékk nóg af Willemstad. Annað svar fengum við ekki. Aftur á þilfarinu sneri Martin við okkur baki, til þess að ná sér í þægilegri stól. Frú Storey sagði í hálfum hljóðum við Horace: — Ég á dálítið erindi við þig- Losaðu þig við Martin. Aldrei þessu vant hlýddi Hor- ace henni fúslega. Hann vildi ekki einu sinni láta Martin verða vitni að auðmýkingu sinni. Hann sendi því ritarann upp í loft- skeytaklefann, með ítarlegum fyrirskipunum um skeyti við- víkjandi einhverjum fjármálum. Þegar hann var horfinn sjón- um, fórum við þrjú niður stig- ann og fram hjá A-þilfarinu, þar sem allar káeturnar voru, B-þil- farið þar sem vinnan að skipinu var framkvæmd og þjónaliðið svaf, og alla leið niður á C-þil- far, sem var næstum niðri í botni skipsins. Stiginn endaði við fallega, marmaraklædda sund- laug. — Hvernig getur Farman kom izt hingað? sagði Horace. — Það sér hann sjáifur um, svaraði hún. Við héldum áfram inn í fim- leikasalinn. Rétt hjá okkur vagg- aði vatnið í lauginni sér letilega, eftir því sem skipið ruggaði. Fim leikasalurinn var lítil stofa með rafmagns-úlfalda, hesti, róðrar- vél og öðrum áhöldum. Stofan var þiljuð eik og fram úr henni lágu dyr. Við skildum dyrnar út að lauginni opnar og ég stóð þar til þess að gæta að manna- ferðum. Meðan þau biðu í fim- leikasalnum og Horace reyndi að setja upp háðsglott, kom Les Far- man inn og varð að beygja sig í dyrunum. Ég held ekki Horace hafi tekið eftir þessum dyrum, því að augun ætluðu út úr hon- um við þessa óvæntu komu Far- mans. — Hvað er hinumegin við þessa hurð? spurði hann hvasst. — Stálþil og vatnsiAld hurð, svaraði Les. Lest númer eitt er þar fyrir framan. Það er kailað sjúkrahúsið. Þar er geymdur mat ur. — Hm! sagði Horace, en svip- urinn á honum sagði: — Hvern fjandann ert þú að gera í matar- geynxslunni? Frú Storey sá fram á, að það varð að hrista þessa athöfn af, annars færi allt í háaloft. — Jæja, þá erum við öll mætt, sagði hún, eins og ekkert væri um að vera, og til þess að gera þeim léttara fyrir. — Takizt þið nú hendur! Þeir nálguðust hvor annan eins og ókunnugir hundar. Þetta voru glæsilegir menn. Horace eins dökkur yfirlitum og Tæs var ljós. En munurinn á þeim var sá, að Les kunni að stiila sig, en það kunni Horace ekki. Horace þótt- ist auðmýktur og það var næst- um meira en sjálfselska hans gat þolað. Augun leiftruðu. Maður- inn var í því helvíti, sem hann hafði sjálfur kynt. Hann tók útrétta höndina á Les, en sleppti henni fljótt. — Mér þykir leitt þetta, sem gerðist í morgun, tautaði hann. — Það er allt í lagi, sagði Les. — Komum þá, sagði frú Stor- ey. Hún lét Horace fara fyrstan út um dyrnar, sem vissu út að sund lauginni. Hún leit við og sagði lágt við Les: — Þér skuluð mæta á þessu stefnumóti fyrir utan gluggann á geymslunni klukkan hálfsjö. — Ef þér óskið þess, sagði Les. — Annaðhvort væri! Og þegar þér hafið heyrt það, sem maður- inn hefur að segja, þá gefið hon- um andartak til að komast burt, en komið svo í setustofuna mína og gefið skýrslu. Það gerir ekk- ert til þó að þér sjáizt, því að þá verðum við að vera tilbúin að láta til skarar skríða. — Þér vilduð víst ekki lána mér hundinn yðar augnablik? Allt í lagi, sagði Les og brosti til hennar. XV. kafli. Klukkan hálfsjö sátum við frú Storey, ásamt Horace í setustof- unni okkar, í miklum spenningi. Horace hafði verið sagt frá því, að gildran væri þegar lögð. En síðan hafði hvesst og skipið hjó talsvert. Bæði vegna þess og svo af æsingnum, leið mér fjanda- lega. Horace leit á úrið sitt á fárra sekúndna fresti. — Ef við hefð- um dyrnar opnar, gætum við séð hvern, sem gengi eftir ganginum sagði hann. — Vissulega, svaraði frú Stor- ey. — Og hann mundi sjá okkur, og þá heyrðum við ekkert nán- ara um samsærið. Hún gekk fram og aftur um gólfið og var óróleg. En allt í einu laut hún höfði og hlustaði við hurðina. Nú er einhver að fara framhjá, sagði hún með hörkulegu brosi. — Og læðist á tánum. Horace þaut þegar upp, en hún benti honum að vera kyrrum. Við gáfum svo samsærismann- inum — eða hver það nú var — nægt tóm til að komast inn í geymsluna, en þá gaf frú Storey merki til að hreyfa sig. — kann- ske hefur hann ekki nema stutta sögu að segja, sagði hún. — Við verðum að vera viðbúin að grípa hann þegar hann kemur út. Við læddumst hægt fram eftir Og ganginn á enda. Stálhurðin, sem vissi út á þilfarið, var aftur. Við stóðum og snerum bökum að henni. Ef maðurinn, sem um vr.i að ræða skyldi opna hana ofurlítið til að gá að mannaferð- um, gat hann ekki séð okkur bak við hurðina. Dyrnar að vistar- verum Tanners læknis var til hægri við okkur, en geymsludyrn ar til vinstri. Nokkrar mínútur liðu. Horace andaði snörlandi, rétt við eyrað á mér. Þessi spenningur fór að verða óþolandi. Á hurðinni að baki mér var gægjugat og ég leit út. Ef ég hallaði höfðinu, gat ég séð ljósa hárið á Les Farman, þar sem hann stóð á þilfarinu við næsta glugga. Sólin var sig- in, en þó ekki orðið dimmt.'Eftir stellingunni á höfðinu á Les að dæma, hlustaði hann með at- KALLI KÚREKI ”oi!-timer/ drop that RIFLE, ORTH’NEXT ONE BUSTS YOUR ARM! - * Teiknari; Fred Harman [X COME T TELL YOU WHAT 1AFOOLYOU AEEFOR | RUNWIW’ AWAY--AN' T’FETCH YOU BACKf Fleygðu frá þér þessari byssu, gamli minn, eða næsta skot fer gegn- um handlegginn á þér. — Kalii, skjóttu ekki, ég er að koma til þín. — Hvað ertu að gera hérna. Ég hélt að þú værir lögreglan eða eitt- hvað álíka. — Ég kom til að segja þér hvers konar kjáni þú ert að hlaupast á brott. Og ég ætlaði að ná í þig aftur. hygli. Hann gat ekki séð mig. — Ég hvíslaði að frú Storey og sagði henni frá þessu. — Það er gott, sem komið er, sagði hún brosandi. Ég horfði á Les þangað til hann gekk burt yfir þilfarið. — Les er farinn, sagði ég og við störðum öll á dyrnar fyrir framan okkur, eins og köttur horfir á músarholu. Ég sá hurðarsnerilinn snúast hægt, og fékk ákafan hjartslátt. Dyrnar opnuðust ofurlítið en svo ekki meira — líklega hefur það verið til þess að gefa okkur tæki færi á að sjá eftir ganginum. En þar var enginn maður. Þá kom hönd í lj’ós hinumegin við hurð- ina, þreifaði eftir skráargatinu og stakk í það lykli. Svo opnaðist hurðin meira og maður læddist út. Þetta var einn þjónninn í hvít- um vinnufötum og með derhúfu. í fyrstunni gat ég ekki séð fram- an í hann. Hann horfð; enn eftir ganginum, læsti dyrunum á eftir sér og dró út lykilinn, án þesj að líta á hann. Horace sagði ró- lega: — Hvern fjandann ert þú að gera hér? sflútvarpiö Þriðjudag“ur 25. júní: 8:00 Morgunútvarp. 12:00 Hádegisútvarp. 13:00 „Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Síðdegisútvarp. 18:30 Þjóðlög frá ýmsum löndum. 18:50 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr. 19:30 Fréttir. 20:00 Einsöngur, Grace Bumbry syngur franskar óperuaríur. 20:20 Frá Mexikó; II. erindi: Innráa Spánverja, nýlendutímabilið og baráttan fyrir sjálfstæðinu. (Magnús Á. Árnason). 20:45 Tónleikar: Píanókonsert í Es« dúr (K449) eftir Mozart. 21:10 Upplestur: Guðmundur Frímana les frumsamda smásögu. 21:45 Tónleikar: Laurindo Almeida gítarleikari og fleiri flytja létt lög. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Lög unga fólksins (Bergur Guðnason). 23:00 Dagskrárlok. Miðvikudagur 26. júní: 8:00 Morgunútvarp. 12:00 Hádegisútvarp. 13:00 „Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Síðdegisútvarp. 18:30 Lög úr söngleikjum — 18:50 Ti|« kynningar —» 19:20 Veðurfr. 19:30 Fréttir 20:00 Varnaðarorð: Sigurður M. Þor- steinsson, varðstjóri, talar um umferðarmál. 20:05 íslenzk tónlist: Lög eftir Friðrik Bjarnason. 20:26 Brautryðjendur íslenzkrar s>und« menntar; III. erindi: Björn Lúð- víksson Blöndal (Guðlaugur Jónm son, lögreglumaður). 20:50 Tónleikar. 21:10 Erindi: Verferðir og veiðistöðvar við ísafjarðardjúp (JóhanA Hjaltason, kennari). 21:40 Tónleikar í útvarpssal: „Andstæður** fyrir fiðiu, klarl« nettu og píanó. eftir Béla Bar- tók (Ingvar Jóna<sson, Gunnar Egilsson og Þorkell Sigurbjörne- son leika). 22:00 Veðurfregnir. 22:10 Kvöldsagan: „Keisarinn 1 Ai« aska“ eftir Feter Groma; IV. (Hersteinn Pálsson). :30 Næturhljómleikar: Sinfónáa nr, 4 op. 47 eftir Prokofjefí. 23:10 Dagsknárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.