Morgunblaðið - 25.06.1963, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.06.1963, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 25. júní 1963 MORGU1VBLAÐ1Ð II Byggingarsðunautur Kópavogskaupstaðar er til viðtals fyrir húsbyggjendur og aðra þá er leita vilja ráða hans kl. 17—18,30 mánud., miðvikud. og föstudaga á bæjarskrifstofunum, Skjólbraut 10. Simi 17571. Uppboð Opinbert uppboð verður haldið eftir beiðni Saka- dóms Reykjavíkur að Fríkirkjuvegi 11, hér í borg, miðvikudaginn 26. júní n.k. kl. 1,30. e.h. Seldir verða alls konar óskilamunir s. s. reiðhjól fatnaður, töskur, úr, lindarpennar o. fl. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. SMEKKLEGIR OG VAND- AÐIR STÁL SKJALA- SKÁPAR frá CONSTRUC- TORS LTD. BIRMINGHAM. FYRIRLIGGJANDI. Verð á 4 skúffu skáp (foolschap) kr. 3.990.00. Gísli Jonsson & Co. hf. Skúlagötu 26. - Sími 11740. ATHUGIÐ ! að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. LJOSMYNOASXOÍ AN LOFTUR hf. Ingólísstræti 6. Pantið tima i sima 1-47-72. MOTORDÆLUR Hinar margeftirspurðu ALCON-mótordælur, eru komnar aftur. EIGUM FYRIRLIGGJANDI: 1” léttar, þægilegar dælur með Briggs & Stratton mótorum. Afköst 7000 lítrar á klukkustund. ÍW’ afkastamiklar, milli stærð, með Briggs & Stratton mótor. Afköst 22.800 lítrar á klukkustund. 2” sterkar og afkastamiklar dælur með 4 ha. Villiers mótorum. Afköst 50.000 lítrar á klukkustund. I»eir, sem hafa pantað hjá okkur dælur, eru vinsamlega beðnir að stað festa pantanir sem fyrst. Einnig útvegum við með stuttum fyrirvara allar gerðir og stærðir af miðflóttaafls og blöðkudælum. Mjög hagstætt verð. — Leitið upplýsinga. Gísli Jónsson & Co. hf. Skúlagötu 26. — Sími 11740. ORDSENDING FRÁ RAFGEISLAHITUIM H'F 3. Hér birtum við umsögn Arnbjarnar Olafssonar, læknis Keflavík 1. Mér líkar hitinn vel og betur en önnur hitun, sem ég hefi kynnzt. Helztu kostir eru að mínum dómi: Engir miðstöðvarofnar, né vatnskerfi, sem ég hefi misjafna reynslu af áður. Þægilegri hiti, heldur en af miðstöð. Hægt að stilla hitann í hverju herbergi sér- staklega á auðveldan hátt. Galla hefi ég enga orðið var við ennþá. 2. Hitinn er alltaf nægur, en æskilegra væri að ekki þyrfti að rjúfa strauminn en ekki verður sagt að það valdi verulegum truflunum. Ég haga hituninni eftir þörfum, hefi yfirleitt 18—20 stiga hita í öllum herbergjum. Hefi hitann einnig á yfir nótt ef þarf, en að sjálfsögðu fer það eftir veðurfari. Ég hefi ekki þurft að leggja í neinn kostnað enn vegna viðhalds og engar truflanir orðið, svo að mér sé kunnugt. Húsnæðið er nú fullgert, en mér er ekki kunnugt um hvað upp var gefið við pöntun, en ég hefi látið einangra húsið af fagmönnum og kostað kapps um að láta vanda allan frá- gang í því sambandi. Ég myndi ekki hika við að velja rafgeislahitun, ef ég byggði þ. e. a. s. ef ekki væri þá komið eitthvað ennþá betra, enda tel ég hiklaust, að sú hitun sé sú bezta, sem nú er völ á. Ems og ég tók fram í upphafi, hefi ég stutta reysíu af rafgeislahitun, en hefi ekki orðið neins var í sambandi við hana, sem ég er óánægður með. 5. 6. 7. Afritað 13. júní 1960. S. Ó. Með kveðju. Arnbjörn Ólafsson læknir (sign) Hafíð þetta hugfast þegar þér veljið yður hitun Rafgeislahitun hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.