Morgunblaðið - 05.03.1963, Síða 6

Morgunblaðið - 05.03.1963, Síða 6
MORCVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 5. marz 1963 VERKFÖLL BREIÐAST ÚT í FRAKKLANDI Samúðarverkföll boðuð í dag París, 4. marz (AP—NTB). FJÖLMENNT lögrreglulið hefur verið sent tii helztu námuhéraða Frakklands, þar sem um 240 þús- und verkamenn í kolanámum ríkisins hafa verið í verkfalli í fjóra daga. Franska stjórnin hefur fyrirskipað námumönnun- um *.V taka að nýju upp vinnu, en þeim fyrirmælum hefur ekki verið sinnt. „Við snúum ekki Erlendar fréttir í stuttu máli Bergen, 4. márz (NTB). ANDREI Gromyko utanríkis- i ráðherra Sovétríkjanna og kona hans eru nú í opinberri heimsókn í Noregi. Þaðan fara þau á fimmtudag í opinbera heimsókn til Danmerkur. í dag var utanríkisráðherrann í Bergen. —O— London, 4. marz (AP). BREZKA ríkisstjórnin til- ! kynnti í dag að breyting hafi verið ákveðin á yfirstjórn) varnarmála. Verða sérstök \ I ráðuneyti hers, flughers og l flota héreftir undir yfirstjórn varnarmálaráðherrans, þótt hvert þeirra fyrir sig fái áfram 1 að hafa sinn ráðherra og her- i ráðsforseta. Rio de Janeiro, 4. marz AP. TALSMABUR utanríkisráðu- neytisins í Braziliu tilkynnti i dag að sjóræningjarnir níu frá Venezuela, sem tóku flutn ingaskipið Anzoategui í síð- asta mánuði, hafi fengið hæli sem pólitískir flóttamenn í Brasiliu. London, 4. marz (AP). í DAG var loks endanlega gengið frá kvikmyndinni „Cleopatra." Undirbúningur að töku myndarinnar hófst fyrir fimim árum, en sjálf myndatakan tók þrjú ár. Full gerð kostar myndin um 40 milljónir dollara (um 1720 millj. kr.). Washington, 4. marz AP. GEORGE Romney ríkisstjóri í Michigan tilkynnti í dag að „ég verð alls ekki í fram- boði“ við kosningu forseta- efnis Republikana 1964. Hann hefur hingað til verið talinn einn þeirra þriggja, sem helzt' koma til greina. Hinir eru Nel son Rockefeller ríkisstjóri í New York og Barry Gold water öldungardeildarþing maður frá Arizona. aftur til vinnu fyrr en orðið hefur verið við kröfum okkar“, sagði Jean Nicolas, fulltrúi ka- þólsku verkalýðssamtakanna í dag. Komu námumenn saman í dag á aðaltorgi námuborgarinn- ar Forbach, skammt frá landa- mærum Þýzkalands, í dag til að mótmæla aðgerðum ríkisstjórnar- innar. Verkamenn í kolanámunum fá nú um 180 franka (kr. 1550,—) fyrir sex daga, 46 stunda vinnu- viku. Krefjast þeir söimu launa fyrir fimm daga, 40 stunda vinnu viku. Mörg stéttarfélög, hafa boðað til samúðarverkfalla á morgun, þeirra á meðal samtök starfs- manna járnbrautanna, eftirlits- menn fiugvallanna, starfsmenn neðanjarðarbrauta og strætis- vagna í París, blaðamenn, kenn- arar, stúdentar og starfsmenn raf orkuvera og gasstöðva. Árekstur í lofti Bordeaux, Frakklandi, 4. marz (AP—NTB). ÞRJÁR franskar sprengjuflug- vélar af gerðinni B-26 rákust saman í lofti skammt fyrir sunn- an Bordeaux í morgun og hröp- ugu niður í skóglendi. Fimm menn af áhöfnum flugvélanna létu lífið. Slysið var3 með þeim hætti að vélarnar þrjár flugu þétt saman í æfingaflugi þegar einn flug- mannanna missti stjórn á vél sinni með þeim afleiðingum, sem að ofan getur. Ein flugvélanna hrapaði niður á skógi vaxið svæði um 200 metrum frá þorpinu Trensaeq. Þegar flugvélin kom til jarðar kom upp eldur í brak- inu og brunnú fimm hektarar skóglendis áður en slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins. Tveir menn áf áhöfn vélarinnar stuttu út í fallhlífum, en önnur þeirra opnaðist aldrei. Eitt lík fannst í brakinu. Önnur flugvélanna féll einnig niður í skóg skammt frá þorpinu. Eldur kom upp í brakinu, en fljót lega tókst að ráða niðurlögum hans. Tveir af áhöfninni fórust með vélinni. Þriðja vélin hraþ- aði til jarðar um 20 kílómetra frá Trensacq, og fannst eitt lík í henni. Hinir þríi*, sem í vélinni voru, komust lífs af. Fjárlagafrum- varp Færeyja Einkaskeyti til Mbl. frá Færeyjum 2 marz. Á ÞINGFUNDI í gær Iagði Er- lendur Patursson, fjármálaráð- herra landsstjórnar Færeyja, fram fjárlagafrumvarp fyrir 1963-64. Fjárlögin nema rúmum 200 milljónum ísl. kr. og eru tæpum 40 millj. ísl. kr. hærri en sl. ár. Stokkhólmi, 4. marz (NTB). HELANDER-málið svonefnda verður að öllum líkindum tek- ið fyrir að nýju í Lögmanna- réttinum í Stokkhólmi hinn 19. þ. m. Máli þessu hefur hvað eftir annað verið frestað af ýmsum ástæðum, og hafa allir aðilar notað tækifærið til að safna gögnum. Meðal annars hafa verið fengnir til útlendir sérfræðingar til að rannsaka fingraför á bréfum þeim, sem Helander fyrrum biskup er sakaður um að hafa sent nafn laust. AÐFARANÓTT sunnudagsins var slökkviliðið kvatt að belg- iskum togara, er lá hér í höfninni. Hafði kviknað þar í fötu og rusli í kyndiklefa í vélarúmi. Myndaðist mikill reykur. Settu slökkviliðsmenn á sig grímur og komust niður og slökktu eldinn fljótt, sem var lítill. í gær kl. 14.43 var liðið hvatt að togaranum Geir. Hafði þar kviknað í olíu í kjalsogi fyrir aftan gufuketil er verið var að kveikja upp í togaranum. Eldurinn var fljótt slökktur og skemmdir urðu litlar. Ljósmynd þessa tók Sv. Þ. er slökkviliðsmenn voru við togarann Geir. Ferðaskrifstofur stofna samtök FJÓRAR ferðaskrifstofur hér í Reykjavík hafa nýlega stofnað með sér samtök, sem nefnast Félag íslenzkra ferðaskrifstofa. Félagið er stofnað í þeim til- gangi að samhæfa sem bezt starf semi og aðstöðu ferðaskrifstof- anna. Að þessuim samtökum standa ferðaskrifstofa Geiors H. Zoega, Lönd og leiðir, Saga og Sunna, en Geir H. Zoöga var kjörinn fyrsti formaður. Markmið samtakanna eir: a) að gæta sameiginlegra hags muna félagsmanna, b) að vinna gegn hvers kon- aar óheiðarlegri samkeppni og auika samstarf og gagnkvæm- an skilning meðal félagsaðila, c) að vinna að því, að ferða- skrifstofustarfsemi í Iandinu sé rekin á traustum og heið- arlegum grundvelli, d) að vinna að því, að kom- ið verði hér á skynsamlegrl löggjöf um ferðamál, og að ríkið hætti viðskiptum á at- hafnasviði ferðaskrifstofa, og færi afskipti sín í þeim efn- um í svipað horf og tíðkast í öllum nági'annaiöndunum. , Félagasamtök eins og þau, er hér hafa nú verið stofnuð hafa um árabil verið starfandi á hin- um Norðurlöndunum svo og flest öJlum öðrum Evrópulönduom. Með auknum ferðalögum til og frá íslandi undanfarin ár, hef- ur starfsemi íslenzkra ferðaskrif- stofa sífellt farið vaxandi. Mun hún vafalaust enn eiga eftir að aukast, þegar ný og heilbrigð löggjöf verður sett um ferðamtái hér á landi. Með tilliti til þessa m.a. ákváðu fyrrgreindar fjórar ferðas'krifstofur að stofna með sér samtök, sem stefna að þv| að veita bæði innlendum og er- lendum viðskiptavinum sínuina sem bezta þjónustu. • MEÐ BARN f FANGINU VI» STÝRIÐ. Kona hringdi til Velvak- anda fyrir skemmstu og hafði orð á því hvort ekki væri á- stæða til að vara við að konur ækju með ungbörn í keltu sinni undir stýri bifreiðarinnar. Hún sagðist hafa þann sama dag séð unga móður fara með barnið sitt upp í bifreið sína og setjast und- ir stýrið með barnið í fanginu og aka af stað. Ekki sagði kon- an það óeðlilegt að ungar hús- mæður nú á dögum ættu sinnbíl og ækju honum með börn sín, en hún spurði hvort ekki væru barnasæti eða stólar, sem hægt væri að setja í bílinn, svo öku- konan þyrfti ekki að halda á barninu. Það hlyti að vera hættulegt fyrir öryggi bæði. hennar og barnsins svo og ann- arra vegfarenda. Það fer ekki á milli mála að þetta athæfi ungu konunnar er bæði óheimilt og hættulegt og er vonandi að fólk athugi þetta gaumgæfilega, því það hefir oft komið fyrir að hlotizt hafa slys af því er börn hafa verið öryggis laus í framsæti bifreiðar og öku maður eða kona hafa ætlað að grípa þau á augnabliki, sem hætta var á ferðum, en um leið hætt að hugsa uxn stjórn bifreið arinnar. • BETRA ER SVART NEFTÓBAK. Neftóbaksunnandi skrifar: „Néftóbaksnotandi beinir þeirri fyrirspurn til Tóbakseinkasölu ríkisins, hvort ekki sé hægt að fá á markaðinn neftóbakið með svarta litnum, sem er miklu • betra en það með brúna litnum. Tóbaksmaður". • UM LOKUNARTÍMA LÍDÓ. J. Ó. skrifar eftirfarandi bréf: „Velvakandi! Lídó, hefir tekið upp þá lofs- verðu nýbreyfni, að breyta rekstri hótelsins í danssal fyrir unglinga með vínlausum veit- ingum. Það má þakka, að gefa ungmennum þannig færi á, að dansa og koma saman án vín* á borðum og við bar. Vonandi verður haft eftirlit með, að eng um líðist að hafa vín um hönd, til að setja ómenningarbrag á samkomuna. Margir aðstandendur ungl- inga er sækja þennan stað, em óánægðir með þá tilhugsun að láta dansa til kl. 02.00 á sunnu dagsnótt. Þegar dansl er hætt, standa velflestir ungmennanna vegalausir á götunni, allir stræl isvagnar hafa hætt akstri fyric stundu. Þeir, sem tök hafa á sækja sína, hinir verða ýmist að kaupa sér bíl eða ganga heirn. Það sjá allir sanngjarnir menn, að svona má þetta ekki vera. Dansinum verður að ljúka þaS snemma, að hægt verði að not* strætisvagnana fyrir þá, er þes* óska. Húsið er opnað kl. 20.00, því ætti að vera lokað kl. 24.00 eins og á sunnudagskvöldum, Þá hafa engir afsökun, að þeir hafi ekki náð í strætisvagn. ÞaS virðist vera sæmilegur sprettur að dansa frá kl. 20.00 til kl. 24.00 það er meira en hálft dagsverkf Vel væri, ef forráðamenw Lídó vildu hugleiða þessa ábend ingu, hún er áreiðanlega til bóta og margur unglingurinn koma fyrr heim. J.Ó."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.