Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 20
Iðnþing Sjá grein á bls. 6. 246. tbl. — Fimmtudagur 27. október 1960 íþróttir eru á bls. 18. Drykkjarvatn er þrotið í Grímsey Hreppstjórinn í Reykjavik — vill láta bora eftir vatni AKUREYRI, 26. okt. — Stór- alvarlegt ástand er nú ríkjandi í nyrztu byggð landsins, — Gríms- ey. Þar er nú neyzluvatnsskort- ur svo alvarlegur að orðið hefur að flytja vatn út í eyna. Grímseyingar fá sitt vatn úr brunnum. Vatnsborð þeirra hef- ur farið lækkandi í haust. Menn höfðu ekki alvarlegar áhyggjur, því eyjaskeggjar töldu að senn myndi fara að rigna, a.m.k. myndi síðsumars- og haustrign- I SUMAR og haust hafa staffið yfir gatnagerffar- framkvaemdir í Nóatúni, ofan Laugavegs. Þarna var ýtt upp himinháum mold- arhraukum og gatan var alliengi lokuð og um skeiff illfær gangandi mönnum. En nú er aff verða öffru- vísi umhorfs barna. Þaff er byrjaff að malbika götuna. Til vinstri sést gufa af sjóðheitu vatni, sem gatan var skoluff meff áffur en hún var malbikuff. Ofar í brekkunni eru þrir valtar- ar og lengst til hægri sést malbikunarvélin. Ljósm.: Sv. Þorm. Víðir II með 800 tn 1 GÆRMORGUN um kl. sex kom Víðir II. úr Garði til hafnar í Sandgerði með alls um 800 tunn- ur síldar. Er báturinn þá búinn að fá alls um 2900 tunnur síldar. Nær allur þessi síldarafli er feng inn á um það bil vikutíma. Þessar 800 tunnur er mesti afli bátsins, í veiðiför, síðan hann byrjaði að veiða Suðurlandssíld í nót. Annar bátur, Eldborg frá Hafnarfirði, hafði einnig fengið mjög góðan afla í nót, alls um 700 tunnur, í fyrrinótt. Afli reknetabáta var mjög mis- jafn, — enginn hafði verið með mikinn afla, sumir fengu ekki bein úr sjó eftir nóttina .Rekneta- síldin er jafnari en herpinóta- sildin. 1128 tunnur AKRANESI, 26. okt. — Hér var landað í dag alls 1128 tunnum af síld, og voru þeir bátar með mestan afla sem veiða í nót. Var Sigurvon með 650 tunnur, Höfrungur II 248, og Sigrún 131. Reknetabátar voru með 40—60 tunnur. — Oddur. Árekstur á Keflavíkurvelli Yfirmaður varnarliðsins rak ieiguhílstjóra af vellinum LEIGUBÍLSTJORI einn hér í Keflavík, sem ekur frá úti- búi Aðalstöðvarinnar á Kefla víkurflugvelli, komst í gær í kast við Willys, yfirmann varnarliðsins á flugvellinum. Lauk viðskiptum leigubíl- stjórans og hershöfðingjans með því, að hershöfðinginn gaf sjálfur nærstöddum her- lögreglumönnum fyrirskipun um að fylgja bíl og bílstjóra út af flugvallarsvæðinu. Þetta gerðist klukkan að verða tvö í gærdag. Þá hafði verið beð- ið um að leigubíll yrði sendur að herspítalanum og ökumaður hefði hraðann á. Útibú Aðalstöðv arinnar er í tæplega eins km. fjarlægð frá sjúkrahúsinu. Leigu bíllinn var þegar sendur af stað. Bílstjórinn jók ferðina jafnt og þétt, og var að eigin sögn kominn á 50 kílómetra hraða, er her- lögreglubíll stöðvaði hann. Skömmu síðar bættust við tveir lögreglubílar til viðbótar. Hljóp umferðarhnútur á og var ákveðið að flytja bílana til. — Bílstjórinn á leigubílnum ók þá af stað á ný, og hélt til stöðvar- innar, til að bíða þar ísl. lögregl- unnar. Hann hafði skammt farið er herlögreglan stöðvaði hann á ný. — Og nú var kominn á vett- vang yfirmaður varnarliðsins, og stöðvaði bifreiðina, skipaði síð- an herlögreglumiönnum sínum að fylgja leigubílnum tafarlaust út af vallarsvæðinu. f lögreglustöðinni við flugvall- arhliðið hófst rannsókn þessa at- burðar. Þá hafði strax komið fram að margt bar á milli í frá- sögn herlögreglumanna sem héldu því fram, að leigutoílnum hefði verið ekið á 80—90 km. hraða Þessu neitaði leigubílstjór inn og kvaðst standa við 50 km. hraða, — en hámarkshraði víð- ast hvar á vellinum er 35 km. Árangurslaust hafði verið reynt að sannprófa 80—90 km. hraða í gær en rannsókn málsins verður haldið áfram í dag. Lögreglu- stjórinn á flugvellinum hefur, að því er bílstjórinn segir, leyft hon um að fara ferða sinna um flug- vallarsvæðið að óbreyttu. Yfirmaður sagður hafa Reykjavíkur máli. varnarliðsins var fanð flugleiðis til í dag út af þessu Þess skal að lokum getið, að þó leigubíllinn kæmist ekki til að sækja farþegann í sjúkiahús- inu, barst stöðinni engin ítrekun á pöntuninni, sagði Helgi S. Jónsson fréttaritari Mbl. í Kefla vík sem símaði frétt þessa í gær kvöldi. Fyrsti heiðursborgari ísafiarðarbœjar kjörinn ísfirðingar heiðra Jónas Tómasson Kristjánsson sóknarprestur, Elías Pálsson kaupmaður og Bjarni Guðbjörnsson varaforseti bæjar- stjórnar. í nafni ísafjarffarbæjar afhenti hantn Jónasi heiffursborg- arabréf ísafjarffarbæjar. Er þaff í fyrsta skipti sem borgara hér í bæ er slíkur sómi sýndur. Sunnukórinn söng lög eftir Jónas Tómasson undir stjóm Ragnars H. Ragnar. En sem kunn ugt er hefur Jónas verið aðal- driffjöðrin í söngmálum ísafjarð ar úr hálfrar aldar skeið og hann stofnaði Sunnukórinn árið 1934. Einnig var hann hvatamaður að stofnun Karlakórs ísafjarðar. ISAFIRÐI, 26. okt. — Nýverið átti Jónas Tómasson tónskáld 50 ára afmæli ,sem orgelleikari við ísafjarðarkirkju. Hann gerðist kirkjuorgelleikari 1. okt. 1910 og hefur verið það óslitið síðan. — Mun það vera eins dæmi að geta minnst siíks afmælis. í tilefni af því gekkst Sunnu- kórinn og sóknarnefnd Isafjarðar fyrir samsæti til heiðurs Jónasi. Samsætið fór fram í gær að Upp- sölum. Formaður sóknarnefndar, Einar B. Ingvarsson, stjórnaði því. Ræður fluttu séra Sigurður Rafstrengur iagður tíl Eyja aft sumri A FUNDI sameinaðs þings í gær var tekin til umræðu fyrirspurn frá Karli Guð- jónssyni, þess efnis hvað liði framkvæmdum við lagningu rafveitulínu frá Hvolsvelli til Vestmannaeyja. Ingólfur Jónsson, raforkumála ráðherra, svaraði fyrirspurninni. Kvað hann mál þetta hafa þurft mikinn tæknilegan undirbúning og rakti gang þess í stuttu máli. Las ráðherra bréf, sem hann hafði ritað raforkumálastjóra í marz sl., þar sem honum var falið að gera ráðstafanir til kaupa á efni til veitunnar og annað til undirbúnings fram- kvæmdum. Þá las ráðherra annað bréf frá raforkumála- stjóra, dagsett í gær, þar sem skýrt var frá því, að tæknileg- um undirbúningi væri lokið, en eftir að ganga frá kaupum á efni og gera orkusölusamning við Rafveitu Vestmannaeyja. — Sagði í bréfinu, að ekki væri ástæða til að ætla annað en unnt yrði að leggja sæstreng- inn í júlílok næsta sumar, og yrði þá veitunni lokið næsta haust. Ráðherra gat þess enn- fremur, að efni til veitunnar yrði sennilega keypt hjá dönsku fyrirtæki, en athugun um hvar efniskaup væru hagkvæmust væri lokið. Sæti hefur hann átt í sóknar- nefnd ísafjarðar um langt árabil og verið frömuður í bindindis- málum. Jónas er nú á áttugasta aldurs- ári, en þrátt fyrir háan aldur er hann enn léttur í spori og ungur í anda og vinur af kappi að á- hugamálum sínum. ísfirðingar þakka Jónasi hans miklu störf á undanförnum ára- tugum. — G. K. VíkmsTir, F. U. S. á Sauðárkróki VÍKINGUR, félag ungra Sjálf- stæffismanna á Sauðárkroki er aff hefja vetrarstarfsemi sína aff þessu sinni. Nk. föstudagskvöid verffur haldinn skemmtifundur í samkomuhúsinu Bifröst, sem hefst kl. 20.30. ingar bæta upp vatnstapið úr brunnum, eftir hina langvarandi þurrka í sumar. En þetta brást. Varla hefur komið dropi úr lofti í Gímsey síðan um miðjan júlí- mánuð s.l. Uppi á eynni eru tjarnir, en vatn frá þeim hefur verið notað handa búpeningi á eynni og er ekki talið hæft tii drykkjar eða matargerðar. f síðustu ferð Drangs héðan frá Akureyri, flutti hann í geym um sínum 10.000 lítra af vatni handa Grímiseyingum. Þar var vatnið sett á tunnur og fóru und- ir vatnið rúmlega 70 tunnur. Gamalkunnur skipstjóri hér á Akureyri, Eiður Benediktsson, sagði mér í dag, að slíkt ástand sem nú hefði verið í Grímsey fyrir 40 árum og þá hafði vatn einnig verið flutt fram héðan frá Akureyri. — St. E. Sig. Hér í Reykjavík er nú Magnús Símonarson hreppstjóri í Gríms- ey. Mun hann reka hér ýms er- indj fyrir byggffina. — Já vissu- lega mun ég ræffa þetta alvar- lega máll viff ráffamenn hér í Reykjavík. Viff teljum aff nægi- legt vatn sé í eynni og sem dæmi má nefna aff í Básavík, rennsir út úr berginu, 30—40 m fyrir neff- an bergbrúnina tært vatn. Er rennsliff svo stöffugt að þaff frýs ekki á vetrum. Af þessum sökum mun ég leggja til aff reynt verði aff bora eftir neyzluvatni. En hugsast gæti líka að búa til safn þrær. Hallg rímsmessa í kvöldl í KVÖLD verður hát’ðamessu i Hallgrímskirkju til minningar um Hallgrím Pétursson, en ártíð hans er 27. október, ?em kunn. ugt er. Ártíðarmessur séra Hallgríms hafa lengi verið sung-.iar í llall- grímskirkju í Reykjavík, en tvö síðustu árin hafa þær fallið nið- ur vegna forfalla sókr.arpresta, Þessar messur eru nær með sama sniði og messur voru á dög um séra Hallgríms og er m. a, gregorianskt tón. Séra Jakob Jónsson þjónar fyrir altari fyrir predikun og predikar, en Sigurbjörn Einars- son, biskup, þjónar fynr, altari að predikun lokinni Messan hefst kl. 8.15 í kvöld. Tekið verður á móti gjöfurn til kirkjunnar og venja er að Kvenfélag Hallgrímski-kju hafi merkjasölu þennan dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.