Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 27. okt. 1960 MORGVNBLAÐIÐ 13 Kommúnistar gera kröfu um þriðjungs launahækkun BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi bréf, sem Alþýðusambandið Ihefur sent verkalýðsfélögunum, varðandi samþykktir, er mið- stjórnin hefur nýskeð gert um kjaramálin. Kæru félagar, t Á ráðstefnu þeirri um kjara- jnál, sem Alþýðusambandið boð- aði til í maílok í vor, var það sammæli allra, að afleiðing geng islækkunar og annara ráðstafana í efnahagsmálum væru þær, að mýju dýrtíðarflóði hefði verið steypt yfir þjóðina, kaupmáttur launastéttanna færi minnkandi og full hætta væri á samdrætti framleiðslu og minnkandi at- vinnu. Um það, hvernig mæta bæri þessari þjóðfélagsþróun, sagði orð rétt í ályktun þeirri, sem sam- þykkt var af öllum, er ráðstefn- una sátu: „RáÖstefnan álítur, að kjara- málum verkafólks sé nú svo kom ið, að óhjákvæmilegt sé fyrir verkalýðsfélögin að láta til skar ar skríða og hækka kaupgjald og hrinda þannig þeirri kjaraskerð- ingu, sem orðið hefur“. Niðurlagsorð ályktunarinnar fjölluðu um, hvernig vinnubrögð- um að undirbúningi aðgerða skyldi hagað. Þau voru á þessa leið: ,,Ráðstefnan telur því nauðsyn- legt, að hvert verkalýðsfélag hefji nú undirbúning að þeirri baráttu, sem óhjákvæmilega er framundan, og felur miðstjórn Alþýðusambandsins að samræma kröfur félaganna ag baráttu þeirra, og hafi hún um það sam- ráð við verkalýðsfélögin, eftir hverjum þeim leiðum, sem hún telur heppilegastar“. Á liðnu sumri hefur miðstjórn- in rætt það við fjölda verkalýðs- félaga, hvernig heppilegast væri að haga þeim undirbúningi og því samræmngarstarfi, sem þarna er rætt um. Til samráðs um þessi mál hélt miðstjórnin líka fund þann 17. september s.l. og boðaði hann allmarga forustumenn samtak anna. Á fundinum mættu, auk miðstjórnarmann, Hermann Guð- mundsson, formaður Hlífar í Hafnarfirði, Tryggvi Helgason, forseti Alþýðusambands Norður- iands, Herdís Ólafsdóttir, for- maður Verkakvennadeildar Akra ness, Björgvin Sigurðsson, for- maður Fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna í Árnessýslu, Björn Jóns son, formaður Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar og Ingólf- ur Jónasson frá Iðju Reykjavík. Á þessum fundi var þeim ein- dregnu tilmælum beint til mið- stjórnar, að hún semdi frumdrög og ábendingar að kröfum, sem sameiginlegar gætu orðið — og sendi hún þær síðan sambands- félögunum með ósk um, að þau tækju málin til umræðu og sendu síðan niðurstöður sínar sem fyrst til Alþýðusambandsins. Ali- ir miðstjórnarmenn greiddu því •atkvæði að verða við þessum tilmælum. Miðstjórnin kaus síðan undir- nefnd til að vinna að undirbún- ingi krafanna. Hélt hún nokkra fundi og skilaði áliti á miðstjórn- arfundi þann 19. október. Samþykkt var með 6 atkvæð- um gegn 3 að senda út til sambandsfélaganna svohljóðandi frumdrög að sameiginlegum kröf- um. Auðvitað er hér aðeins um meginþætti krafna að ræða, en félögin verða sjálf að athuga um sérkröfur, er þau kunna að vilja bera fram. 1. Kaupkröfur 15—20%. 2. Almenn stytting vinnutím- ans í 44 klst. á viku, þannig að ekki verði unnið eftir hádegi á laugardögum. Kaupið verði sama og nú er fyrir 48 stunda vinnu- viku. 3. Kaupgjaldsákvæði samninga falli úr gildi og nýjar samninga- viðræður verði teknar upp, ef verðlag hækkar um ákveðna hundraðstölu — t. d. 3%. 4. Krafa um, að fast vikukaup verði greitt alls staðar, þar sem hægt er að koma því við. — Þar sem því verður ekki viðkomið, verði tímakaupið 4% hærra. 5. Allir eftirvinnutaxtar verði afnumdir, og öll vinna, sem unn- in er umfram dagvinnu, verði þannig greidd með 100% álagi á dagvinnukaup. 6. Kröfur um almennt kvenna- kaup verði eigi lægri en kvenna- nefnd sú, sem kosin var á kvenna ráðstefnu A.S.Í. s.l. vor, hefur sett fram, og birtar hafa verið sambandsfélögum í bréfum dags. 20. sept. og 4. okt. s.l. Meginefni þeirra er það, að bilið milli kvennakaups og karla styttist þannig, að kvennakaupið verði ekki lægra en 90% af almennu karlmanns- kaupi og að undir karlmanns- kaup falli nokkru fleiri vinnu- flokkar en hingað til, þar á meðal öll ræstingarvinna, öll vinna í sláturhúsum, öll vinr.a við blautan saltfisk og skreið svo og við hurnar o. s. frv. Sjá bréf- in. — Þessi síðasti liður var sam þykktur með samhljóða atkvæð- um. Einn sat hjá. Jafnframt framanrituðum kröf- um var samþykkt að kjósa fjóra menn til að hefja þegar viðræð- ur við ríkisstjórnina um eftirfar- andj ráðstafanir: 1. Almenna lækkun á vöru- verði m. a. með niðurfellingu við aukasöluskatts í tolli (8.8%) — lækkun aðflutningsgjalda og ! ströngum verðlagsákvæðum. 2. Lækkun útsvara af almenn um launatekjum. 3. Almenna lækkun útláns- vaxta. 4. Afnám ákvæðis laga, sem banna að kaupgjaldssamningar séu tengdir verðlagi. 5. Aðrar ráðstafanir, sem verka lýðsfélögin kynnu að meta til jafns við beinar launahækkanir. Þessi tillaga, töluliðir 1—5, var , samþykkt með 6:3 atkvæðum. | Forsætisráðherra hefur þegar verið ritað bréf og farið fram á, ! að þessar viðræður geti hafizt sem fyrst. í nefndina voru kosn- ir: Eðvarð Sigurðsson, Eggert G. Þorsteinsson, Óskar Hallgríms- son og Snorri Jónsson. Væntum við, að félögin taki nú til óspilltra málanna við að ' gera sér grein fyrir þessum mál- um, ræða þau og gera um þau eigin tillögur. Er nauðsynlegt, að miðstjórn berist vitneskja um af stöðu félaganna sem allra fyrst. — Og höfuð nauðsyn er, að full- trúar á S'ambandsþingi hafi að baki sér mótaða félagsafstöðu til aðal atriða kjaramálanna. Við vonumst eftir ötulu starfi og ákveðnum og skjótum svör- um. Skattar 1960 Síðasti gjalddagi skatta og annarra þinggjalda í ár eru um næstu mánaðamót. Skrifstofan verður opin til kl. 7 e. h. föstudaginn 28. þ. m. til móttöku skatta. TOLLSTJÓKASKRIFSTOFAN, Arnarhvoli. Atvinna Laghentur reglumaður getur fengið atvinnu. Iðnnám gæti komið til greina. Uppl. í verksmiðjunni Þverholti 17. * Virmufatagerð Islands h.f. Vandláfir karlmenn láta okkur annast skyrtiiþvottinn. Afgreiðslustaðir: Efnalaugin Gyllir, Langholtsvegi 136 og 35. Notað og nýtt, Vesturgötu 16. Verzlunin Sif, Laugavegi 44. Búðin min, Víðimel 35. Sækjum Sendum Opel-Rekord Til sölu vegna flutnings af landi. Árgerð 1957, mjög vel með farinn. Að mestu ekið erlendis. KJARTAN RAGNAHS HRL., Bólstaðahlíð 15 sími 16740 oð 12431 (heima). Tvær mjög litið notaðar G E M Sloppapressur til sölu. Tilboð sendist fyrir 1. riov. í pósthólf 258, merkt: ,,Sloppapressur“. Sérverzlun á Suðurnesjum til sölu. Verzlunin er á góðum stað. Góður lager. Gott verð eí samið er strax. Tilboð sendist Morgun- blaðinu, merkt: Keflavík — 1753“ fyrir 31. þ. m. AtMSELL GtJIUðlÍH ANZKAR Fóðraðir að innan. Hrufóttir að utan. Góðir og mjög ódýrir. Heildsölubirgðir: STEFÍ THORfflSEN H.F. Sími 24051 — Laugavegi 16. CABOON nýkomið Stærð: Þykkt: Verð: 122x2.20 16 mm. 432.50 122x2.44 16 — 479.— 122x2.20 19 — 497.— 122x2.44 19 — 553.— 122x2,20 22 — 558.— 122x2.44 22 — 621.— — Pantanir óskast sóttar. — Kristján Siggeirsson h.f. Laugavegi 13 — Sími 13879. Blómlaukar Haustfrágangur Gróðrastöðin við Miklatorg Símar: 22-8 22 — 19-7-75.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.