Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 27. okt. 1960 Gestir á tékknesku vélasýningunni. Tékknesk véla- r • r || r % • syning i Heoni I GÆR var opnuð í húsa- kynnum Vélsmiðjunnar Héð- ins tékknesk vélasýning. Var þar fyrst og fremst um að ræða sýningu á járnsmíða- vélum, en Héðinn hefur und- anfarin fjögur ár haft um- boðssölu fyrir slíkar vélar. Sveinn Guðmundsson, forstj. Héðins, sagði meðal annars, að 40% af útflutningi Tékka væru vélar, en sú þjóð væri hin þriðja stærsta í heiminum um framleiðslu á járnsmíðavélum. Hann gat þess að Tékkar hefðu yfir að ráða 6 milljónum lesta af stáli árlega, en yrðu þó að flytja inn 1 milljón til viðbótar til þess að geta annað véla- framleiðslu sinni. Framleiðslan seld Framleiðsla Tékka á járn- smíðavélum er sérgrein þar í landi. Sveinn gat þess, að ein- mitt framleiðsla þessara véla væri undirstaða vélaiðnaðarins í heiminum. Hr. J. Skrivansk, forstöðu- maður vélaútflutnings og for- stöðumaður sýningarinnar í Héðni, tók fram, að Tékkar væru nú þegar búnir að selja allar þær járnsmíðavélar, er þeir hyggðust framleiða á árinu 1961. Framleiðslan yrði þreföld- uð á næstu þremur árum. Kæmi þar til að eftirspum væri mjög mikil, enda væru þær vélar, er á þessari sýningu kæmu fram, flestar þegar seldar. Iðnvarningur fyrir fisk Um viðskiptasambönd íslend- inga og Tékka sagði sýningar- stjórinn, að viðskipti við ísland væru einkar hagstæð, þar sem Tékkóslóvakía væri staðsett inni á miðju meginlandi en ís- land úti á r eginhafi. Eðlilegt væri því, að Tékkar seldu ís- lendingum iðnvarning en keyptu í staðmn sjávarútvegs- vörur. Bæði fulltrúar Tékka og Sveinn Guðmundsson lögðu áherzlu á að atvinnuþróun þjóð- anna beindist að aukinni vél- væðingu og því væri þessi sýn- ing talandi tákn um vaxandi vélvæðingu. í gær kl. 16 var hin tékk- neska vélasýning opnuð á 4. hæð Héðinshússins. Gat þar að líta 55 sýningargripi og bar þar Frumsýmng AKRANESI, 26. okt. — Leikíé- lagið hér í bænum frumsýnir í kvöld gamanleikinn „Þrír skálk- ar“ undir leikstjór* Ragnhildar Steingrímsdóttur. Með þessu leikriti hefst leikár félagsins. — Oddu:. Dagskrá Alþingis DAGSKRA Sameinaðs þings: Fyrir- spurn: Veðdeild Búnaðarbankans. — Dagskrá efri deildar: 1. Fiskveiðiland- helgi Islands, frv. 2. Framleiðslu- og atvinnuaukningarsjóður. — Dagskrá neðri deildar: 1. Bann gegn vinnu- stöðvun atvinnuflugmanna. 2. Eftir- lit með happdrættum. 3. Happdrætti háskólans. 4. Lækkun á byggingar- kostnaði. 5. Lántaka til hafnarfram- kvæmda. Nóbelsverðlaunin.... Frh. af bls. 1. ista Angioletti, sagði í Róm að hann teldi 'Saint-John Perse einn mestan núlifandi rithöfunda. — „Nóbelsverðlaunin eru réttát og verðskulduð viðurkenning á list hans og vinnu“, sagði hann. Perse er tíundi Frakkinn sem hlýtur bókmenntaverðlaun Nob- els. Franrois Mauriac, sá eini hinna níu, sem er á lífi, tók und- ir árnaðaróskirnar til Perse, sem hann sagði að væri bezta ljóð- skáld Frakka. „Það gleður mig einnig persónulega að hann skyldi fá Nobelsverðlaunin", sagði Mauriac. „Ég hef þekkt Perse frá því hann var 18 ára og var ég einn af hans fyrstu aðdáendum“. í utanríkisþjónustu Saint-John Perse, heitir réttu nafni Aléxis Léger, og er fæddur árið 1887 á kóraleyjunni Saint- Léger-les-Feuilles nálægt Guada- loupe í Vestur-Indíum. Ellefu ára gamall fluttist hann til Frakk- lands til að ljúka námi. 1914 gekk hann í utanríkisþjónustu Frakka og var sendur til Kína árið 1917. Hann var skipaður ráðuneytis- stjóri utanríkisráðuneytisins franska árið 1932 og gegndi þvi starfi þar til liann flýði land árið 1940. Verk Perse Fyrsta bók Perse, Eloges, var gefin út 1910 og var höfundur þá nefndur Saint Léger Léger. En í seinni útgáfu ,sem út kom 1925 er nafninu breytt í St.-John Perse. Anabase, sem fyrst var gefin út 1924, geymir minningar höfundar frá Kína og Gobi eyði mörkinni. Af öðrum verkum Perse má nefna Exil, sem hann ritar eftir flóttann frá Frakk- landi og út kom í Bandaríkjun- um 1942, og Vents, lengsta verk Perse. sem út kom 1946. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) mest á rennibekkjum, borvél- um og rafmótorum. Við það tækifæri ávarpaði hr. Karel Franc, sendifulltrúi Tékka hér á landi, sýningargesti, svo og Sveinn Guðmundsson, forstjóri Héðins, en Ásgeir Bjarnason, framkvæmdastjóri, lýsti sýning- unni, sem verður opin almenn- ingi frá kl. 2—7 daglega, einnig sunnudaga. Stúdentaráðskosn- ingar á laugardag STÚDENTARÁÐSKOSNIN GAR fara fram í Háskólanum á laug- ardaginn kemur. Þá verður í fyrsta sinn kosið eftir hinum nýju lögum, sem samþykkt voru seint á síðastliðnum vetri. Einstaklingskjör i deild Ekki er nú lengur um lista- framboð að ræða fyrir allan skólann í senn heldur kýs hver deild sinn fulltrúa úr hópi þeirra einstaklinga, sem fram eru boðnir innr.n deildarinnar. Alls eru um 30 stúdentar í kjöri. 9 manna ráð áfram Deildir Háskólans eru nú 5 talsins: guðfræðideild, lækna- deild, laga- og viðskiptadeild, heimspekideild og verkfræði- deild; fá þær hver um sig einn mann kjörinn í Stúdentaráð. Að auki eru svo þrjú sæti, sem skiptast á milli deildanna eftir hluttöku í kosningunum og loks skipar fráfarandi stúdentaráð einn mann í hið nýja ráð. Situr lengi Stúdentaráð það, sem nú verð ur kosið, mun sitja óvenjulega lengi — eða fram í marz-mán- uð 1962, og skulu kosningar eft- Lancíað úr Langjökli Grimsby, 26. oktöber. Einkaskeyti til Mbl. LOKIÐ er við að landa 500 lestum af frystum fiski úr ms. Vatnajökli hér í Grims- by, °S gekk löndun vel og árekstralaust. Welch mótmælir Denis Weloh, formaður félags yfirmanna á togurum i Grimsby, hafði áður lýst því yfir að tog- araskipstjórar litu þessa löndun ilium augum. Jafnvel þótt fisk- urinn hafi löngu verið keyptur, sagði Welch, hefðu seljendur átt að fresta afskipun þar til við- ræðum um fiskveiðilögsöguna lýkur. Sagði Welch að þegar full trúar fiskiðnaðarins fara næst á fund sjávarútvegsmálaráðherra, muni þeir bera fram mótmæli MenningartengSí Indlands osf Islands SUNNUDAGINN 16. október síðastliðinn var stofnað í Reykia vík félag til að koma á menn. ingartengslum milli Indands og Isiands og veita fræðslu hér á landi um indverska menningu: heimspeki, trúarbrögð, þjóðíé- lagshætti, vísindi o. fl. og leit- ast við að kynna íslenzka menn- ingu, bókmenntir og listir í Ind- landi. Rætt hafði verið um þessa félagsstofnun við indversxu sendinefndina sem kom hingað í ágústmánuði sl. á vegum ís- landsdeildar Guðspekifélagsins. Varð það að ráði, að íslands- deildin beitti sér fyrir stofnun þessa félags, og hlaut það nafnið Indía (India Society). Kjörin var 7 manna stjór.’i, og hana skipa Gunnar Dal, formað ur, Gretar Fells, varaformaður, Steinunn S. Briem, Guðjón B. Baldvinsson, Sigurlaugur Þor- kelsson, Jóhann M. Kristjánsson og Kristmann Guðmundssn. Þeir, sem hafa hug á að gerast félagar, geta snúið sér til ein- hvers úr stjórninni, og verða þeir taldir stofnendur, sem til- kynnt hafa þátttöku fyrir 15. nóvember. vegna löndunarinnar úr Lang- jökli. Yrði þá ráðherra tilkynnt að ef áframhald verði á lönd- unum muni tekið til athugunar hvort ekki sé rétt að nota áhrif verkalýðssamtakanna. Sanmingsrof Þetta er talið þýða að reynt muni verða að fá löndunarverka menn til að neita að vinna við fiskfarma frá íslandi. Mjög ólík- legt er að það takist, þar sem löndunarverkamenn eru starfs- menn hafnarvinnuráðsins og eiga yfir höfði sér refsingu ef þeir neita að afferma ákveðin skip og rjúfa þannig gildandi samninga. GJÖGRI, 25. okt. — Hér hefur verið ágæt tíð, hægviðri og sól, en smávegis frost um nætur. Hef ur kúm verið beict fram að þessu eins og um sumar væri, enda tún skrúðgræn ennþá! 1 nótt gránaði þó í fjöll og er hálfkalt í dag. Lóðafiskirí er mjög gott, hafa fengizt á annað hundrað pund á irleiðis fara fram £ þeim mán- uði. — Stúdentar í Háskólanum eru nú nær 800. ísland í B-ribli LEIPZIG, 26. okt: — Síðasta um- ferð Olympíuskákmótsins var tefld í kvöld. Eftirtalin lönd komast í A,- úrslitariðil: . Ur A-riðli: Júgóslavía, Búlgar- ía og Austur-Þýzkaland. Noregur varð í 4. sæti. Úr B-riðli: Rússland, Argentína og Holland. Úr-Criðli: England, Tékkósló- vakía og Svíþjóð. Úr D-riðli: Bandaríkin, Vestur- Þýzkaland. LEIPZIG, 26. okt. — ísland hefir tvo vinninga gegn einum hjá Túnis, en einni skák var ekki lokið. Freysteinn tapaði fyrir Belkadhi, Arinbjörn á vinnings- stöðu í biðskák við Lagha, Gunn ar vann Kahia og Ólafur vann Kchouk. ísland nær væntanlega 6. sæti og kemst upp í B-úrslitariðiI. Það er þó undir því komið að Bretinn Golombek tapi ekki bið skák, sem hann á, en hann kveðst tefla hana til vinnings. — Freysteinn. Samkvæmt NTB-skeyti kom- ast eftirtalin Iönd í A-úrslitarið- il: Rætt um leyfi fyrir bílasölur BÆJARRÁÐ Reykjavíkur hefur á fundum sínum undanfarið haft til meðferðar umsóknir frá ein- staklingum, sem eru að sækja um leyfi fyrir bifreiðasölum sínum. Umferðarnefnd er látin fjalla um umsóknirnar áður en þær koma til kasta bæjarráðs. Á síðasta fundi var samþykkt að verða ekki við óskum um að heimila bíasölur á þessum stöðum hér í bænum: Barónstíg 3, Ingólf- sstræti 9, Vitatorgi, Njálsgötu 40 og Klapparstíg 37. Var þessi sam þykkt gerð skv. tillögu umferð- lóð. — Regína. arnefndar. - NA 15 hnúfar / SV 50 hnúfar ¥ Snjóhomo » ÚSi \7 Skúrir K Þrumur 'W&ií KuUaM Hitaski! H HmÍ L * Lmqi Haustblíðan heldur enn á- fram, stillur og frostlaust á daginn en talsvert næturfrost. Er ástæða til að benda á, að undanfarnar nætur hefur ver ið 4—5 stigum kaldara niðri SV-land til Breiðafjarðamiða: Hæg austan og NA átt, víðast úrkomulaust. Vestfirðir til Austfjarða og miðin: Hægvirði, síðan NA kaldi, víðast úrkomulaust i við gras en í mannhæð frá nótt en dálítil snjókoma með jörðu. Þannig var lægsti gras- köflum á morgun. SA-land: Hæg NA átt, létt- skýjað. SA-mið: NA kaldi, dálítil Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi. rigning á morgun. hiti í Reykjavík 8° í fyrrinótt, en 4° í mannhæð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.