Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.10.1960, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 27. okt. 1960 MORGTJNBLAÐIÐ 19 Kristileg „mið- nætursamkoma44 í Iðnó í kvöld INGVARI Kvarnström, sem iblaðið átti viðtal við nú fyrir stuttu, líkar vel að prédika yfir Reykvíkingum. — Sézt iþað bezt á því, að í kvöld, eftir að hann hefur prédikað í Fíla- delfíu kl. 8,30, ætlar hann að prédika og syngja í Iðnó kl 11 í kvöld. 'i Hann var spurður, hvort þetta sé ekki óheppilegur samkomu- tími. — Það er eftir því, hvernig á það er litið. Jesú talaði um nótt, sem koma mundi, þegar enginn gæti lengur unnið fyrir Guðsrí'ki. Getur þessi samkomu- tími ekki minnt okkur á það, hve nálægt við erum komnir þeirri nótt, sem Jesús átti við með orð- um sínum. — Haldið þér að þér fáið nokkra aðsókn svona seint? — Fiskimaðurinn veit aldrei, hvað hann hefur fengið í nótina, fyrr en hann hefur innbyrt hana. Við köstum nótinni í kvöld kl. 11 og leggjum það svo í Guðs hönd, hvað í hana kemur. — Allir eru velkomnir á þessa samkomu? Kvárnström svarar með leift- ur í augum: — Já, allir fslend- ingar eru hjartanlega velkomnir á þessa samkomu, svo fremi að húsið rúmi þá, en það hef ég ekki séð ennþá, og veit ekki hvað það er stórt. — Kongó Frh. af bls. 1. hermennirnir verið sakaðir um margskonar ofbeldisverk. • í VOPNALEIT Fulltrúi SÞ í Kongó, Indverj- inn Dayal, boðaði í dag til fundar i við sig þá Mobutu og Justi Bom- j boko, formann ráðgjafastjórnar hershöfðingjans. Ásakaðj Dayal Mobutu fyrir aðgerðir hermann- anna, en Mobutu svaraði því til að aðgerðir þessar hafi átt sér stað án leyfis yfirvaldanna. Hern um hafi verið fyrirskipað að leita vopna hjá borgarbúum, en hafi ekki verið veitt heimild til að beita valdi við leitina. Samþykkti Mobutu að draga herlið sitt út úr borginni til Leopold-herbúðanna utan borgar- innar. Hét Mobutu Dayal nánu samstarfi á öllum sviðum. Nokkru eftir fundinn með Dayal, skýrði Mobutu frá því að hann hefði ákveðið að vísa tveim bandarískum fréttamönnum Ass- ociated Press fréttastofunnar úr landi. Sagði hann að ástæðan fyr- ir brottvísuninni væri sú að þess- ir tveir fréttamenn bæru ábyrgð á grein sem birt hefði verið í Bandaríkjunum, þar sem gefið er í skyn að valdasól Mobutus sé lækkandi. — ★ — Frá höfuðborg Katangahéraðs í Kongó, Elisabethville berast frétt ir um liðssafnað Sameinuðu þjóð anna þar Þangað eru nýkomnir 250 hermenn frá Svíþjóð og Mar- okko á vegum SÞ til að efla SÞ herlið það sem fyrir var í borg- inni. Er liðsauki þessi sendur vegna hótana Tshombe forsætisráðherra um valdbeitingu til að reka Ian Berendsen, fulltrúa SÞ úr hér- aðinu. Bylting WASHINGTON, 26. okt. (NTB Reuter) — Óstaðfestar fréttir hafa borizt frá E1 Salvador, minnsta og þéttbýlasta ríki Mið- Ameríku, um að þar hafi verið gerð stjórnarbylting. Samkvæmt fréttunum hefur forseti lands- ins, Jose Maria Lemus, sem þekktur er fyrir baráttu sína gegn kommúnistum, verið hand- tekinn af byltingarmönnum „Njósnari“ að Hólogolondi! HÚSNÆÐISVANDRÆÐIN koma hart niður á handknattleiks og körfuknattleiksmönnum. Erfitt er að fá hingað lið vegna þess hve salurinn að Hálogalandi er lítill. Handknattleikur þar verður þrengri og öðru vísi en í full- stórum sal, sem allir nema ís- lendingar eru vanir. En Tékkarnir sem hingað koma í boðí Víkings, og sagt er frá á öðrum stað á síðunni, réðu snögglega bót á þessum vanda. Maður nokkur í heimaborg liðs- ins, sem hér átti nokkurt erindi í sumar, tók að sér fyrir liðið að mæla salinn í Hálogalandi og taka af honum myndir. Háloga- land verður því ekki ókunnugt gestunum. Og til þess að lenda ekki í vandræðum, sagði sá er hingað kom í sumar, mun liðið æfa á jafnstórum velli og Há- logaland er. Svona ráðgóðir eru Tékkar! SIGURGEIR SIGITRJÓNSSON hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa. Aðalstræti 8. — Sími 11043. I\fý þingskjöl FRV. um stuðning við bændur til bústofnaaukningar og véla- kaupa. Flm.: Ólafur Jóhannes- son o. fl. Frv um breytiugu á lögum um landnám, ræutun og byggingar í sveitum. Flm.:Björn Pálsson o. fl. Stjórnarfrumvarp um veitingu ríkisborgararéttar, þar sem lagt er til að tíu manns verði veittur ríkisborgararéttur, er þeir sem heita erlendum nöfnum, hafa fargað nafni sínu og fengið sér íslenzkt. Þá hefur verið útbýtt fyrirspum til land- búnaðarráðherra frá Ólafi Jó- hannessyni um framkvæmd þáltill. um ráðstafanir til að tryggja starfsgrundvöll vcðdeiid ar Búnaðarbankans og breyt- ingartillögum við vegalög fra Jóni Árnasyni' og Ásgeiri Bjarna syni. V-Þýzkaland vann N-Irland LONDON, 26. okt. (Reuter); — Vestur-Þýzkaland vann Norður írland 4:3 í landsleik, sem háður var í sambandi við undankeppni Heimsmeistarakeppninnar. Leik- urinn fór fram í Belfast og stóðu leikar 1:1 í hálfleik. VETRARGARÐLRIIMIVi Dansleikur í kvö!d ★ FLAMINGO- kvintettinn ásanit söngvaranum ★ JÓNI STEFÁNSSYNI skemmta Nauðungaruppboð sem fram átti að fara í dag á Langholtsvegi 103, hér í bænum, eign Karls L. Guðmundssonar o. fl. fellur niður. Borgarfógetinn í Beykjavík. íbúð óskast Góð 4—5 lierbergja íbúð óskast til leigu í Kópavogi eða Reykjavík í nóvember nk. Upplýsingar í síma 16757. Jörð til sölu í neðri hluta Árnessýslu. Húsakostur góður, sími, rafmagn, og vegasamband. 20 kúa f jós. Fjárhús fyrir 200 fjár. Hlóður fyrir 1400 hesta. Vel ræktað tún og miklir möguleikar til frekari ræktunar. KANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIB HRL. Laufásvegi 2 — Sími 19960. Skemmtifundur i Storkklúbbnum, í kvöld kl. 8,30 Bingó — Skemmtiþóttur — Dans. Aðgöngumiðar í Reynisbúð, Bræðraborgerstíg 43, Hlíðarkjör, Eskihlíð, Kjötbúðin Langholtsvegi 17, Kjötborg, Búðargerði 10, skrifstofu kaupmannasam- taka íslands, Laugavegi 22. Félag matvörukaupmanna Félag kjötverzlana Nauðungaruppboð sem fram átti að fara í dag á Nökkvavogi 12, hér í bæn- um, talin eign Torfa Þorbjörnssonar o. fl. fellur niður. Borgarfógetinn í Beykjavík. Þakka innilega auðsýnda vináttu, tryggð, gjafir, heim- sóknir, blóm og slreyti í tilefni af sjötíu ára afmæli mínu 13. okt. s.l. Guð blessi ykkur öll. Aldís Sveinsdóttir. Ég þakka hjartanlega öllum sem glöddu mig á 75 ára afmælinu mínu 22. þ. m. með heimsóknum, gjöfum, blóm- um og skeytum og gjörðu mér daginn ánægjulegan. Lifið heil. Þorbjörn Klemensson, Lækjargötu 10, Hafnarfirði. Faðir okkar GUÐJÓN JÓNSSON Melkoti, Leirársveit, andaðist i sjúkrahúsi Akraness 26. október. Börnin. Jarðarför móður okkar, tengdamóður, systur og mágkonu SIGUBLAUGAR G. GRÖNDAL, Miklubraut 18, fer fram n.k. föstudag 28. okt. kl. 3 frá Fossvogskirkju. Sigríður og Haukur Gröndal, Valborg og Ólafur G. Jónsson Mikkelína og Sigurður B. Gröndal, Sigrún og Eiríkur H. S. Gröndal, Jórunn og Þorvaldur B. Gröndal, Ilerdís og Ingi B. Gröndal Ólafur E. Guðinundsson Sigríður Gnðmundsdóttir og Friðrik Guðmundsson Minningarathöfn um GUÐFINN GlSLASON fyrrum bónda að Fossi í Vesturhópi, fer fram í Hallgrímskirkju föstudaginn 28. okt. kl. 1,30. Jarðarförin fer fram að Breiðabólstað í Vesturhópi laug- ardaginn 29. okt. kl. 2 eftir hádegi. Synir hins látna. Jarðarför móður okkar BÓELAR ERLENDSDÓTTU R frá Hlíðarenda, fer fram laugardagir.n 29. þ. m. og hefst með húskveðju að Bjarkalandi V-Eyjafjöllum kl. 12 á hádegi. Jarðsett verður að Hlíðarenda Fljótshlíð kl. 2,30 sama dag. Börn hinnar látnu. Alúðar þakkir ti! allra nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður og tengda- móður okkar STEFANlU STEFÁNSDÓTTUR Álfaskeiði 27, Hafnarfirði. Ágústa Einarsdóttir, Sigurbjartur Loftsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.