Morgunblaðið - 23.01.1960, Side 4
4
MORCVNItLAÐlÐ
Laugardagur 23. Jan. 1960
t dag er 23. dagur ársins.
Laugardagur 23. janúar.
Árdegisflæði kl. 0,13.
Síðdegisflæði kl. 12,43.
Slysavarðstofan er opin allan
sólarhringinn. — Læknavórður
L.R. (fyrii vitjanir), er á sama
Stað frá kl. 18—8. — Sími 15030
Vikuna 23. jan.—2#.jan. verður1
næturvarzla i Vesturbæjar-apó-
teki.
Vikuna 23. jan.—20. jan. verður
næturlæknir í Hafnarfirði, Krist
ján Jóhannesson, sími 50056.
□ MÍHIR 50601257 — 2 Atkv.
QQ3 Messur
Á MORGUN:
Dómkirkjan: — Messa kl. 11 f.
h. Séra Jón Auðuns. — Messa
kl. 5 e.h. Séra Óskar J. Þorláks-
son. — Þess er óskað að foreldr-
ar fermingarbarnanna mæti við
messuna. — Barnasamkoma í
Tjarnarbíói kl. 11 f.h. Séra Óskar
J. Þorláksson.
Hailgrímskirkja: — Messa kl.
11 f.h. Séra Magnús Runólfsson
og séra Sigurjón Árnason. Barna
guðsþjónusta kl. 1,30 e.h. Séra
Sigurjón Árnason. Messa kl. 5 e.
h. Séra Lárus Halldórsson.
Háteigsprestakall: — Messa í
Hátíðasal Sjómannaskólans kl. 2.
Barnasamkoma kl. 10,30. — Séra
Jón Þorvarðsson.
□---------------------□
LJÓÐ DAGSINS
Ur „Jesús skrifar í sandinn",
Til lausnarans þeir leiddu konu
legorðs seka og hugðu að það
nundi dæma mannsins sonur
tfóses eftir lagastað;
ið hold var breyzkt, en heill var
andinn,
hann af sinni speki veit;
%ann skrifaði hennar skuld í sandinn
dcildi enginn hvað hann reit.
Bkrifaði hann hennar skuld í sandinn:
„Skal sá kasta steini fyrst,
sá hinn hreini og siðavandi,
•r sinnti aldrei holdsins lyst;
þaðan blómin blíðu stafa,
er búa í hjarta mannsins efst,
þeim, sem elskað ærið hafa,
einnig mikið fyrirgefst“.
Grímur Thomsen.
Laugarneskirkja: — Messa kl.
2 e.h. Séra Kári Valsson prédik-
ar. Barnaguðsþjónusta kl. 10,15
f.h Séra Garðar Svavarsson.
Neskirkja. — Barnaguðsþjón-
usta kl. 10,30 og messa kl. 2 e.h.
Séra Jón Thorarensen.
Langholtsprestkall: — Messa
í Laugarneskirkju kl. 5 síðdegis.
Barnasamkoma í safnaðarheimil-
inu við Sólheima kl. 10,30 f. h.
Séra Árelíus Níelsson.
Bústaðaprestakaii: — Messa í
Háagerðisskóla kl. 5 síðd. Mess-
an er sérstáklega helguð ferm-
ingarbörnunum og aðstandend-
um þeirra. Barnasamkoma kl.
10,30 árdegis sama dag. Séra
Gunnar Árnason.
Elliheimilið: — Guðsþjónusta
kl. 10 árdegis. Árni Árnason
læknir flytur ræðuna. — Heim-
ilisprestur.
Fríkirkjan: — Messa kl. 2. —
Séra Þorsteinn Björnsson.
Bessastaðir: — Messað kl. 2.
Séra Garðar Þorsteinsson.
Grindavík: — Barnaguðsþjón-
usta kl. 2. Sóknarprestur.
Keflavíkurprestakall: — Innri-
Njarðvík, guðsþjónusta kl. 2 e.h.
Keflavíkurkirkja, guðsþjónusta
kl. 5 e.h. Séra Ólafur Skúlason.
Reynivallaprestakall: — Messa
að Saurbæ kl. 2 síðdegis. — Séra
Kristján Bjarnason.
Fíladelfía: — Guðsþjónusta kl.
8,30. Ásmundur Eiríksson.
Fíladelfía, Keflavík: — Guðs-
þjómusta JrL 4 e.h. — Haraldur
Guðjónsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: —
Messa á morgun kl. 2. — Séra
Kristinn Stefánsson.
+ Afmæli +
Áttræður er í dag Magnús
Magnússon, kaupm. frá ísafirði.
Heimili hans er að Bellusundi 7,
Reykjavík.
(g^Brúökaup
í dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Garðari Svavarssyni
ungfrú Ingibjörg Sigfúsdóttir,
Hrísateig 18 og Aðalsteinn Ing-
ólfsson, húsasmíðanemi, Laugar-
nesvegi 110.
í dag verða gefin saman í hjóna
D--------□
l>UM ALÍNA
band af séra Þorsteini Björnssyni
ungfrú Svala Gísladóttir, Lauga-
vegi 65 og Geir Hjartarson, raf-
virki, Rauðagerði 23. — Heimili
ungu hjónanna verður að Álf-
heimum 54.
Gefin verða saman í hjóna-
band í dag af séra Jóni Auðuns
ungfrú Lóa Guðjónsdóttir og Da-
víð Kristján Guðmundsson, hús-
gagnabólstrari. Heimili þeirra
verður að Grundarstíg 15-B.
BBI Skipin
Eimskipafélag íslands h.f.: —
Dettifoss fer frá Gdynia í dag til
Abo. Fjallfoss fór frá Rotterdam
22. þ.m. til Antwerpen. Goðafoss
fór frá ísafirði 21. þ.m. til Akur-
eyrar. Gullfoss er í Kaupmanna-
höfn. Lagarfoss er í New York.
Reykjafoss fór frá Rotterdam 21.
þ. m. til Hamborgar og Rvikur.
Selfoss fór frá Hafnarfirði 22. þ.
m. til Esbjerg. Tröllafoss er í
Reykjavík. Tungufoss fór frá
Akureyri 22. þ.m. til Siglufjarð-
ar.
Skipadeild S.f.S .: — Hvassafell
fór frá Hafnarfirði 19. þ.m. áleið
is til Rostock. Arnarfell er í
Rvík. Jökulfell væntanlegt til
Kaupmannahafnar í dag. Dísar-
fell er í Malmö, fer þaðan í dag
til Stettin. Litlafell losar á
Breiðafjarðarhöfnum. Helgafell
fór 18. þ.m. frá Ibiza áleiðis til
Vestmannaeyja og Faxaflóa-
hafna. Hamrafell fór frá Batumi
12. þ.m. áleiðis til Rvíkur.
H.f. Jöklar: — Drangajökull er
í Reykjavík. Langjökull kom til
Warnemúnde í fyrrakvöld. —
Vatnajökull fór frá Vestmanna-
eyjum 19. þ.m. á leið til Grimsby.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla
fer frá Akureyri í dag á vestur-
leið. Esja er í Reykjavík. Herðu-
breið er á Austfjörðum á suður-
leið. Skjaldbreið er á Húnaiflóa
á leið til Akureyrar. Þyrill fór
frá Fredrikstad í gær á leið til
Austfjarða. Herjólfur fer frá
Hornafirði í dag til Vestmaana-
eyja og Reykjavíkur.
Eimskipafélag Rvíkur h.f.: —
Katla er í Ventspils. — Askja er
í Havana.
Hafskip: — Laxá er í Stettin.
Flugvélar
Flugfélag íslands h.f.: — Hrím
faxi fer til Oslóar, Kaupmanna-
Og munið svo, að ef þið takið
þessa íbúð á leigu, eruð þið ekki
tvær mínútur tii flugvallarins.
★
f kertaljósum á jólunum setti
hann hring á fingur henni og
hvíslaði: — Þegar ég fann að
ég átti þig í raun og veru, féll
steinn af hjarta mínu.
Hm, svaraði hún. — Hversu
margra karata?
★
1 amerískum söfnuði var ver-
ið að safna fyrir nýrri kirkju,
en einn safnaðarmanna, sem var
listmálari sagði: — Peninga á ég
ekki, en ég skal gefa nýja mynd,
sem er 200 dollara virði.
Nokkru síðar var haldinn ann-
ar söfnunarfundur og listmálar-
inn sagði: — Já, prestur minn,
enn á ég ekki peninga, en við
skulum hækka myndina mína
upp í 300 dollara.
hafnar og Hamborgar kl. 08:30 í
dag. Væntanleg aftur til Rvíkur
kl. 15:40 á morgun. — Innanlands
flug: í dag er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Blönduóss, Egils-
staða, ísafjarðar, Sauðárkróks og
Vestmannaeyja. — Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar,
Húsavíkur og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Saga er vænt
anleg kl. 7:15 frá New York. —
Fer til Glasgow og Amsterdam
kl. 8:45. — Hekla er væntanleg
kl. 19:00 frá Kaupmannahöfn og
Osló. Fer til New York kl. 20:30.
BjQ Ymislegt
Orð lífsins: — Lofaður sé Drott
inn, því að hann hefur heyrt grát
beiðni mína. Drottinn er vígi
mitt og skjöldur, honum treysti
hjarta mitt, og ég hlaut hjálp,
því fagnar hjarta mitt og með
ljóðum mínum lofa ég hann. ..
Hjálpa lýð þínum og blessa eign
þína, gæt þeirra og ber þá að
eilífu. (Sálmur 28).
Viðtalstími minn í Hallgríms-
kirkju verður framvegis kl. 4—5
síðdegis. Séra Lárus Halldórsson.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur á
25 ára afmæli á mánudaginn, 25.
janúar. Þess verður minnzt með
borðhaldi og skemmtun í Þjóð-
leikhúskjallaranum á mánudags-
kvöld. — Konur, fjölmennið.
Föðurnafn Jóns sjúkrahúss-
læknis í Keflavík, misritaðist í
Mbl. í gær. Hann er Jóhannsson,
en ekki Jóhannesson. Leiðréttist
þessi mistök þar með.
Læknar íjarveiandi
Kristján Sveinsson, augnlæknir verð
ur fjarverandi 1 til 2 mánuði. Stað-
gengill: Sveinn Pétursson, Hverfisg. 50.
Viðtalstími 10—12 og 5.30—6.30, nema
laugardaga kl. 10—12.
Ofeigur J. Ofeigsson. læknir verður
fjarverandi frá 7. jan. í tvær til þrjár
vikur. — Staðgengill: Gunnar Benja-
mínsson.
BÆJARBÓKASAFN REYKJAVlKUR
Sími 1-23-08.
Aðalsafnið. Þinghoitsstræti 29A: —
Útlánadeild: Alla virka daga kl. 14—22,
nema laugard. kl. 14—19. Sunnud. kL
17—19. — Lestrarsalur fyrir fullorðna:
Alla virka daga kl. 10—12 og 13—22.
nema laugard. kl. 10—12 og 13—19, og
sunnudaga kl. 17—19.
Útibúið Hólmgarði 34: — Útlánadeild
fyrir fullorðna: Mánudaga kl. 17—21,
aðra virka daga nema laugard. kl. 1«—
19. Lesstofa og útlánsdeild fyrir börn:
•pf e3epje3nei euiau e3ep csijia ejiv
kl. 17—19.
Ævintýri eftir H. C. Andersen
Útibúið Hofsvailagötu 16: — Útláns-
deild fyrir börn og fullorðna: AUa
virka daga. nema laugardaga, kL
17.30—19.30.
En svalan flaug enn lengra,
og alltaf varð umhverfið fal-
legra og fallegra. Undir græn-
um trjám við blátt vatn stóð
skínandi hvít marmarahöll
frá fornum tíma, og vínvið-
urinn vafðist um háar súl-
urnar. Efst uppi á þeim voru
mörg svöluhreiður, og eitt
þeirra átti svalan, sem bar
Þumalínu.
— Hérna er húsið mitt,
sagði svalan. — En nú skaltu
sjcflf velja þér eitthvert af
þessum fögru blómum, sem
vaxa þarna niðri. Þá skal ég
setja þig þar, og svo geturðu
látið fara eins vel um þig og
þú óskar.
— Það er yndislegt, sagði
Þumalína og klappaði saman
litlu höndunum sínum. Á
jörðinni lá stór, hvít marm-
arasúla. Hún var brotin í
þrennt, en milli brotanna uxu
dásamlega fögur stór og hvít
blóm.
Útibúið Efstasundi 26: — Útlánsdeild
fyrir börn og fullorðna: Mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 17—19.
Tæknibókasafn IMSÍ
(Nýja Iðnskólahúsinu)
Útlánstími: K1 4,30—7 e.h. þriðjud„
fimmtud., föstudaga og laugardaga. —
Kl. 4,30—9 e.h. mánudaga og mið-
vikudaga. — Lesstofa safnsins er opin
á vanalegum skrifstofutíma og út-
lánstíma.
Listasafn ríkisins er opið þriðjudaga.
fimmtudaga og laugardaga kl. 1--3,
sunnudga kl. 1—4 síðd.
Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudaga
kl. 1—4. þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga kl. 1—3.
Náttúrugripasafnið: — Opið á sunnu-
dögum kl. 13:30—15, og þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 14—15.
Bókasafn Lestrarfélags kvenna, —
Grundarstíg 10. er opið til útlána
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 4—6 og 8—9.
Bókasafn Hafnarfjarðar
Oplð alla virka daga ki 2—7. Mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga einnig
kl 8—10 síðd. Laugardaga kl. 2—5. —
Lesstofan er opin 4 sams tíma. —
Sími safnsins er 50790
Minjasafn Reykjavíkur: — Safndeild
in Skúlatúni 2 er opin alla daga nema
mánudaga kl. 2—4. Arbæjarsafn e*
lokað. Gæzlumaður sími 24073.
Bæjarbókasafn Keflavíkur
Utlán eru á mánudögum, miðviku-
dögum og fostudögum kl. 4—7 og 8—10
ennfremur á fimmtudögum kl. 4—7.
Lestrarsalurinn opinn mánud., mið-
vikud., fimmtud., og föstud. kl. 4—7
• Gengið •
Solugengi:
1 Sterlingspund .......... kr. 45.70
1 Bandaríkjadollar ....... — 16,32
1 Kanadadollar ........... — 17,11
100 Danskar krónur — 236,30
100 Norskar krónur ................ — 228,50
100 Sænskar krónur ......... — 315,50
100 Finnsk mörk ............ — 5,10
1000 Franskir frankar ............ — 33,06
100 Belgískir frankar — 32,90
100 Svissneskir frankar — 376.00
100 Gyllini ..................— 432,40
100 Tékkneskar krónur — 226,67
100 Vestur-þýzk mörk ........ — 391,30
1000 Lírur .................. — 26.02
100 Austurrískir schillingar — 62.7b
100 Pesetar ------------------— 27.^