Morgunblaðið - 28.01.1958, Page 16
VEÐRIÐ
Álliivass A og SA-ált. víða skúr:r.
®r0í)íinMtó
23. tbl. — Þriðjudagur 28. janúar 1958.
Eþíópía, gjá grein á bls. 9.
Ejálfstæðisflokkurinn fékk að þessu sinni 10 bæjarfulltrúa kosna
í Reykjavík. Hefur flokkurinn aldrei fyrr fengið svo marga full-
trúa kosna í bæjarstjórn höfuðborgarinnar. — í 9. og 10. sæti Iista
Sjálfstæðisflokksins að þessu sinni voru Gísli Halldórsson
arkitekt og frú Gróa Pétursdóttir. Eru nú tvær konur meðal full-
trúa Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Reykjavíkur. — Myndin
hér að ofan er af þaim frú Gróu Pétursdóttur, sem er vinsæl og
vel metin kona í bænum og Gísla Halldórssyni arkitekt. —
Ljósm. Mbl.: ÓI. K. M.
9. og 10. á listanum
Fuchs kominn 160 km.
frú heirnskautinu
SUÐURPÓLL 27. jan. — Leið
angri dr. Vivian Fuchs frá
Suðurpólnum áleiðis til
McMurdo sunds hefur miðað
vel áfram fyrstu þrjá dagana.
Á þessum þremur dögum hef-
ur hann farið 40,56 og 64
km eða samtals um 160 kíu.
•Á Alls er vegalengdin til nafs
2000 km og hafði dr. Fuchs
reiknað það út, að ef hann
ferðaðist að meðaltali 48 km
á dag og tæki 6 daga til hvíld-
ar leiðangursmönnum og við-
gerða á vélum, þá ætti íerðin
að taka 48 daga og leiðangur-
inn að komast á ákvörðunar
stað 12. marz.
★ Nú mun dr. Fuchs álíta vara
samt að koma svo seint til
hafs. Það sé hætta á að vetrar-
stormarnir hefjist í fyrstu viku
marz-mánaðar. Virðist af
gangi síðustu daga, að liann
stefni að því að fara að jafnaði
64 km. veglengd á hverjum
degi.
Alþingi kvott
soraon 4. febr.
FORSETI ÍSLANDS hefir að til-
lögu forsætisráðherra kvatt Al-
þingi til framhaldsfundar þriðju-
daginn 4. febrúar næstkomandi.
Hafa þingmenn verið boðaðir til
þingfundar þann dag kl. 13,30.
(Frétt frá forsætisráðuneytinu)
Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan
meirihluta atkvæða í kaup-
stöðum og kauptúnum
StórfelSt tap stjórnarflokkanna
KOSNINGAURSLITIN um land allt voru stórkostlegur ósigur
tyrir vinstri stjórnina. Sérstaklega var það auðsætt að komm-
únistar og Alþýðuflokkurinn töpuðu fylgi meðal þjóðarinnar.
í Reykjavík jók Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt um 14,5%,
þegar tekið er tillit til atkvæðaaukningarinnar frá Alþingiskosn-
ingunum 1956. Alþýðuflokkurinn og Framsókn (Hræðslubanda-
lagið) hafa tapað 7,9% af fylgi sínu, reiknað á sama hátt. Þjóð-
vörn 10,5%, en kommúnistar hafa tapað 21,2% af fylgi sínu miðað
við Alþingiskosningarnar 1956. Er fylgistap þeirra hið mesta,
sem flokkur þeirra hefur beðið hér á landi. Allir vinstri flokk-
arnir hafa tapað fylgi til Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut kvæði en allir aðrir flokkar og
28130 atkvæði í kaupstöðum óháðir listar 30349 atkvæði
landsins eða 51,2%, en allir stjórn
arflokkarnir samtals 24969 at-
kvæði..
Árið 1954 fékk Sjálfstæðis-
flokkurinn 45% atkvæða í kaup-
stöðunum. Er því hér um að ræða
stórfelda atkvæðaaukningu.
í öllum kaupstöðum og kaup-
túnum þeim, sem kosið var í hlaut
Sjálfstæðisflokkurinn 30788 at-
Konan bringdi og bað
um hjálp
GJÖGRI 27 þ.m. — S. 1. föstudag
fóru menn úr Trékyllisvík með
sleða að bænum Gíslahala, sem er
milli Trékyllisvíkur og Reykjar-
fjarðar. Sóttu þeir húsfreyjuna
þar, Ásu Gísladóttur, sem orðið
hafði fyrir slysi.
Ása hringdi á fimmtudag og
bað um hjálp, þar sem hún hafði
dottið á svelli við bæjai'húsin. —
Hafði hún fallið á hnakkann og
ef til vill misst meðvitund litla
stund. Ása er kona á miðjum
aldri, og var hún ein á Gíslabala,
er óhappið vildi til. Maður hennar
fór á vertíð um áramótin, og ;aldi
Ása sig geta séð hjálparlaust um
skepnur þeirra, 18 kindur og eina
kú, unz barn þeirra kæmi úr skóla
um miðjan febrúar.
Þar sem bylur var á og nátt-
myrkur *ór í hönd, varð ekki kom
izt eftir Ásu, fyrr en á föstudag.
Hún mun hafa fengið sner't af
heilahristing, en líðan hennar er
nú eftir atvikun — Regína,
Bandarísku mæðurnar, sem
fóru að heimsækja syni sína í
kínversku fangelsi, eru nú á heim
leið.
Sjálfstæðisflokurinn hefur
því hlotið hreinan meirihluta
greiddra atkvæða í þeim kosn-
ingum, sem fram fóru s.l.
sunnudag í kaupstööum og
kauptúnum landsins. Flokkar
vinstri stjórnarinnar hafa stór
tapað fylgi en Sjálfstæðismenn
hafa unnið á.
Fékk 54 bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
fengið 54 bæjarfulltrúa í hinum
14 kaupstöðum en hafði 47
Vann hann tvö sæti í Reykjavík,
eitt í Vestmannaeyjum, eitt í
Keflavík, eitt á Sauðárkróki og
eitt á Akureyri. Á Seyðisfirði tap
aði hann hins vegar einu sæti.
Kosningar fóru ekki fram í Kópa
vogi árið 1954.
Alþýðuflokkurinn fær nú 13
sæti en hafði áður 27.
Kommúnistar fá nú 19 sæti en
höfðu áður 20.
Framsókn fær nú 14 fulltrúa
en hafði áður 20.
í þessum tölum eru ekki reikn-
aðir með 24 bæjarfulltrúar, sem
voru á sameiginlegum og „óháð-
um“ listum.
Þjóðvarnarflokkurinn fær nú
hvergi bæjarfulltrúa en hafði að-
ur bæjarfulltrúa í Reykjavík, á
Akureyri og 1 .Vestmannaeyjum.
Sjálfstæðisflokkurinn bauð
fram í öllum kaupstöðum. Al-
þýðubandalagið í 8 kaupstöðum,
Framsókn í 10 og Alþýðuilokkur
inn í 9 kaupstöðum.
Á Akranesi, ísafirði og Ólafs-
firði buðu kommúnistar, Fram-
sókn og Alþýðuflokkur fram
sameiginlegan lista. Ennfremur í
nokkrum kauptúnum.
! Marteinn Einarssonl
kaupmaöur
SL. föstudag andaðist að heimili
sínu hér í bæ Marteinn Einarsson
kaupmaður, 67 ára að aldri. —
Marteinn var einn af þekktari
kaupsýslumönnum í bænum og
vel látinn borgari.
íslendingur vinnur náms-
afrek í Bandaríkjunum
•M
.Tens Pálsson
JENS PÁLSSON, sem stundar
nám í mannfræði við Kaliforníu-
háskóla í Berkeley var nýlega
kjörinn félagi í félagsskapnum
Phi Beta Kappa, en sá heiður er
aðeins sýndur stúdentum, sem
hafa unnið framúrskarandi náms
afrek og eru taldir efnilegir vis-
indamenn.
Jens hefur stundað nám í grein
sinni í Svíþjóð og síðustu tvö
árin við Kaliforníuháskóla. Jafn-
framt náminu vinnur hann að
rannsóknum við mannfræðideild
háskólans.
Jens er sonur Páls Ólafssonar
fyrrv. ræðismanns í Færeyjum,
og konu hans, Hildar Stefáns-
dóttur.
Formenn stjórnarflokkanna vildu
ekki tala um kosningaúrslitin í
útvarpið í gærkvöldi
Káðgert hafði verið, að for-
menn allra stjórnmálaflokk-
anna segðu stuttlega frá skoð
unum sínuni á úrslitum kosn
inganna í útvarpið í gær-
kveldi. Frá þessu skýrði út
varpsstjóri í erindi um dag-
inn og veginn og lét þess jafn
framt getið, að um þctta hefði
verið rætt við flokkana fyrir
kosningar.
Síðan sagði útvarpsstjóri:
„Formaður Sjálfstæðisflokks-
ins og formaður Þjóðvarnar-
flokksins hafa þegar komið
með sín álit og formenn
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks tilkynntu, að þeir hefðu
sin tilbúin. En félagsmálaráð-
herra, Hannibal Valdimars-
son, óskaði ekki að taka þátt
í þessuin yfirlýsingum í kvöld,
þar sem kosningum væri eklti
lokið á Skagaströnd, og ósk-
uðu þá formenn Framsóknar-
flokks og Alþýðuflokks að
flytja ekki heldur sín ávörp
fyrr en á morgun'*.
Sú afsökun Hannibals, að
kosningum væri ekki lokið á
Skagaströnd, er að sjálf-
sögðu aðeins skcplegt yfir-
varp. Virðast forystumenn
stjórnarflokkanna í miklum
vafa um, hvernig þeir eigi að
snúast við úrslitum kosning-
anna á sunnudaginn, og vilja
taka sér frest til að hugsa ráð
sitt. Kemur það engum á
óvart.
Þakkir til
Reykvíkinga
ÞAÐ traust, sem þið Reykvíkingar hafið sýnt Sjálfstæð- [
ismönnum er okkur dýrmæt viðurkenning fyrir unnin storf
og ómetanleg hvatning, til nýrrra framkvæmda og áfram-
haldandi umbóta fyrir fólkið í bænum.
Úrslit kosninganna sýna og sanna að almenningur vill
hafa frjálsar hendur en ekki fjötur um fót. Um leið og
ég þakka það traust, sem bæjarbúar liafa sýnt þeirri bæj-
arstjórn, sem nú hefur látið af störfum fögnum við þeirri
trú á frelsið, sem fram kemur í þessum kosningum.
Hinn nýkjörni bæjarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna
þakkar hinum mikla fjölda Reykvíkinga, sem lögði grund-
völl að sigri D-listans s.I. sunnudag. Við munum nota
hann til þess að vinna að bættum hag bæjarbúa og bæta
og fegra Reykjavík.
Við þökkum ykkur Reykvíkingar.
Gunnar Thoroddsen.