Morgunblaðið - 28.01.1958, Qupperneq 8
8
MORGVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 28. janúar 1958
.ititMtofriifr
Utg.: H.í. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
' Aðaintstjorar: Valtýr Steiansson (ábm.)
Bjarni Benediktssors.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
i
Mtn eina von er, að ekki verði sagt:
Hann er e/liœr. Hann hefði átt að
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garð'ar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Simi 22480
Askriftargialrí kr. 30.00 á mánuði ínna.nands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
SVOR KJOSENDANNA
hœtta fyrir mörgum árum
Krónprinsinn í Japan á að
velja sér unnustu
Krónprinsinum" í Japan, Aki-
hito, hefir verið tilkynnt, að
hann eigi innan skamms að tru-
lofa sig. Hann er nú 24 ára.
Nafnalisti aðalsmeyja, sem koma
til greina, hefir verið lagður fyr-
ir hans keisaralegu hátign. Krón-
prinsinn hefir lofað að taka
ákvörðunina fyrir marzlok. Lík-
legast þykir, að 18 ára aðalsmær
verði fyrir valinu. Hún heitir
Hatsuko Kitashirakawa og er
dóttir prins nokkurs, sem nú er
látinn. Þrjár aðrar aðalsmeyjar
eru einnig taldar hafa mikla
möguleika: Yukiko Matsudaira,
frænka greifans Yasumasa
Matsudaira, sem er siðameistari
við japönsku hirðina. Ayako
Fushimi, dóttir hins látna prins
Hiroyoshi Fushimi. Hún var
Verður hún keisaraynja í
Japan.
leiksystir krónprinsins í æsku, og
hafa þau verið rinir ætíð síðan.
Yukiko og Ayako eru báðar 23
ára að aldri. Sumiko Shimzu,
se mer elzta dóttir forseta jap-
anska Rauða krossins. Hún er
19 ára.
Froshmenn finno skólngn bnðker
I* KOSNINGUNUM á sunnu-
daginn var, sögðu kjósend-
ur til um tvennt. Annars vegar
hverjir ættu að fara með stjórn
bæjar- eða sveitarfélags þeirra
næstu 4 árin. Hins vegar lýstu
þeir trausti eða vantrausti á nú-
verandi ríkisstjórn. Fyrirfram
var enginn ágreiningur um, að
úr þessu tvennu ætti að skera,
þótt það vitanlega færi eftir at-
vikum á hverjum stað á hvort
atriðið væri lögð meiri áherzla.
Svo sem vænta mátti og verða
hlýtur, urðu úrslitin ólík á mis-
munandi stöðum. í frjálsu þjóð-
félagi sýnist ætíð sitt hverjum
og hér á landi er það þekkt frá
gamalli tíð, að afstaða til manna
og málefna fer ætíð nokkuð eft-
ir byggðarlögum. Sigur Sjálf-
stæðisflokksins er þó ótvíræður.
Flokkurinn hefur ekki aðeins
unnið einn glæsilegasta kosninga
sigur í sögu þjóðarinnar í Reykja
vík, heidur sótt á víðs vegar.
★
Á Selfossi hafa andstæðingarnir
raunar svipt Sjálfstæðismenn
hreinum meirihluta fulltrúa með
því að sameinast allir. Móti því
vegur margfaldlega, að nú hafa
Sjálfstæðismenn unnið algeran
meirihluta fulltrúanna í Vest-
mannaeyjum, Keflavík, Sauðár-
króki og Stykkishólmi, en á öll-
um þessum stöðum voru þeir í
minnihluta síðast.
Þrátt fyrir erfiða aðstöðu hafa
þeir viða annars staðar unnið á,
svo sem á Akureyri. Sigur Sjálf-
stæðismanna á Ólafsfirði er og
eftirminnilegur. Þar höfðu Sjálf-
stæðismenn að vísu meirihluta
bæjarstjórnar. Nú sameinuðust
allir andstæðingarnir á móti
þeim, en þvi svöruðu Ólafsfirð-
ingar með því að fá Sjálfstæðis-
flokknum einum meirihluta at-
kvæða.
Þá má ekki gleyma Hafnar-
firði. í fyrsta skipti á heilum
mannsaldri fá Sjálfstæðismenn
nú fleiri atkvæði við bæjarstjórn-
arkosningar þar en Alþýðuílokk-
urinn. Mætti það vera nokkur
leiðbeining fyrir þá. sem sögðu
eftir Alþingiskosningarnar í
fyrra, að ekki væri að rnarka
fylgisaukningu Sjálfstæðismanna
vegna þess að hún hefði fyrst og
fremst verið í Reykjavík. Al-
þýðuflokksmenn í Hafnarfirði
hafa nú sýnt, að þeir sætta sig
ekki fremur en flokksbræður
þeirra í Reykjavík við undir-
lægjuháttinn við Framsókn.
★
Framsóknarflokkurinn hefur
sums staðar unnið nokkuð á í
þessum kosningum. Hann hefur
enn sannað að það var rétt, sem
fulltrúaráð Alþýðuflokksins
sagði á s. 1. sumri, að hans áhuga-
mál væri að gera samstarfsflokk-
ana litla Fulltrúaráðið gaf þessa
lýsingu að vísu á viðhorfi allra
andstöðuflokkanna í Reykjavík
til Alþýðuflokksins þar. En með
þessu er lýst réttilega þeirri
höfuðstefnu, sern Framsóknar-
flokkurinn fylgir í samstarfi við
hvern sem er.
Óvild Framsóknarmanna til
Sjálfstæðismanna sprettur fyrst
og fremst af því, að Sjálfstæðis-
menn láta ekki minnka sig i sam
starfi með þeim hætti sem Fram-
sókn keppir að. Þrátt fyrir dýr-
keypta reynslu áður fyrr, gekk
Alþýðuflokkurinn Framsókn á
hönd í Hræðslubandalaginu. Nú
hafa báðir uppskorið sín laun.
Framsóknarmenn eru vafalaust
fagnandi yfir óförum félaga
sinna, en hætt er við að sú gleði
komi þeim sjálfum í koll, áður
en langt um líður.
★
Kommúnistar, Alþýðubanda-
lagið eða hverju nafni sem menn
vilja nefna þá, hafa tapað í þess-
um kosningum. Þó ekki eins og
verðugt væri. Hér sannast það,
sem Morgunblaðið hefur æ ofan
í æ bent á eftir atburðina í Ung-
verjalandi í fyrra, að þá glötuðu
lýðræðissmnaðir stjórnarliðar
ómetanlegu tækifæri. Ef beir þá
hefðu slitið samstarfi við komm-
únista, mundi sá flokkur hafa lið-
ast sundur og styrkur lýðræðis-
sinna vaxið að sama skapi. Und-
irlægjuháttur og imynduð klók-
indi urðu þá ofan á og má Al-
þýðubandalagið vissulega muna
þeim, sem því réðu, lífgjöfina.
Hrun Þjóðvarnar er endanleg
sönnun þess, að meirihluti íslend-
inga er nú orðinn sannfærður
um, að land okkar verður að
verja, ekki síður en önnur þjóð-
lönd. Stefna Sjálfstæðisflokksins
hefur þar unnið glæsilegan sig-
ur.
Eftirminnilegastur verður þó
sigur Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. í honum felst verðug
traustsyfirlýsing fyrir stjórn hans
á bæjarmálum Rvíkur. Jafn-
framt kemur fram í honum full-
komin vantraustsyfirlýsing á nú-
verandi ríkisstjórn og stuðningur
við stefnu Sjálfstæðisflokksins í
þjóðmálum.
★
Að þessum sigri hafa margir
unnið og mörgum ber því að
þakka. En fyrst og fremst er
þetta sigur hins nafnlausa kjós-
anda. Það eru viðbrögð hvers
einstaklings, sem hér skera úr.
Ríkisstjórnin hefur reynt að
halda sér uppi með því að þegja
um eða skrökva til um hinar
mikilvægustu staðreyndir. Því
hefur t.d. verið haldið blákalt
fram, að dýrtíðin hafi lítið sem
ekkert vaxið síðastliðið ár. Á
þessu hefur látlaust verið hamr-
að, þó að hver einasta húsmóðir í
landinu finni það daglega, hversu
miklu ver peningarnir endast nú
en áður. Það er táknrænt svar
við öllum skröksögum ríkis-
stjórnarinnar, að Reykvíkingar
skuli senda góða og gegna reyk-
víska húsmóður frú Gróu Péturs-
dóttur í bæjarstjórn úr 10. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins, og
þar með auka fulltrúatölu flokks-
ins fram úr því, sem hinir bjart-
sýnustu höfðu vonað.
Fylgisaukningin, sem gerir
Sjálfstæðismönnum mögulegt að
vinna svo frækilegan sigur, væri
óhugsandi, kjósendur vildu
ekki með því segja við ríkis-
stjórnina:
Hingað og ekki lengra, Þið haf-
ið nóg illt gert og nú vill þjóðin
sjálf segja til um hvernig málum
hennar skuli skipað.
Þingrof og nýjar kosningar er
óhjákvæmileg afleiðing kosninga
úrslitanna nú. Krafan um það er
ekki krafa Sjálfstæðismanna
einna, heldur sýna kosningarnar,
að undir þá kröfu er tekið um
allt land af ótal kjósendum, sem
áður hafa greitt öðrum flokkum
I atkvæði.
BREZKI rithöfundurinn Somer-
set Maugham varð 84 ára sl.
laugardag. Fréttamenn fjöl-
menntu því til þessa aldraða
rithöfundar í sl. viku til að vita,
hvernig lægi á honum. Ymislegt
mun hafa borið á góma í
dagstofunni í hinu hvíta, tíu
herbergja einbýlishúsi rithöfund-
arins á frönsku Riviera.
Ég- ætla að lesa mér til
skemmtunar og ferðast ofur-
lítið meira
Um 50 milljónir eintaka hafa
selzt af bókum hans. Hann hætti
að skrifa skáldsögur fyrir 11 ár-
um, en skrifar nú ritgerðir. —
„Spyrjið mig ekki, hvernig þess-
ar nýju ritgerðir verða........
Mín eina von er, að ekki verði
sagt: Hann er elliær. Hann hefði
átt að hætta fyrir mörgum árum.
En ég hlakka til að hætta. Ég
verð orðinn 85 ára, þegar bókin
kemur út. Mér mun finnast ég
vera frjálsari. Sjáið þið til, ég
les töluvert, áður en ég skrifa.
Nú ætla ég að lesa mér til
skemmtunar og ferðast dálítið
meira“.
Sjö klst. á dag við skrifborðið
Að jafnaði situr Maugham um
sjö klukkustundir á dag við skrif-
borð sitt. Hann övelst þó ætíð
góða stund úti í garðinum og
ver alltaf nokkrum hluta dags-
ins í að spjalla við vini sina.
Nágranni hans, rithöfundurinn
Jean Cocteau, er tíður gestur.
„Hann er framúrskarandi snjall
og skemmtilegur í viðræðum,'*
segir Maugham og bætir við. „Ég
mundi gjarna vilja hitta Picasso,
en mér þykir ósennilegt, að ég
fari til Cannes til að hitta hann.“
Maugham segist hafa kynnt sér
nútímabókmenntir lítið. Blaða-
menn sögðu, að hann hefði samt
sýnt mikinn áhuga á brezku rit-
höfundunum, sem kallaðir hafa
verið „reiðu, ungu mennirnir" og
er átt við Kingsley Amis, John
Osborne o. fl. Einnig sagðist
Maugham sjá eftir að hafa ekki
fylgzt betur með nútíma banda-
rískum bókmenntum. Maugham
telur Ernest Hemingway lang-
fremstan meðal bandarískra höf-
unda, en lét þau orð falla um
frönsku skáldkonuna Francoise
Sagan, að bækur hennar segðu
ekki „nógu mikla sögu“.
0-^-0
Að lokum drap Maugham á
efni, sem löngum hefir verið
honum mjög hugstætt: „Ég hefi
trú á því, að skáldsagnahöfund-
ar eigi ekki að taka þátt í stjórn-
málum og deilumálum líðandi
stundar .... Ég hefi aldrei þótzt
vera fær um annað og meira
en að segja sögur. Það, sem hin-
ir svokölluðu engagé höfundar
segja um dægurmálin, gleymist
um leið og málm taka nýja
stefnu.“
Froskmennirnir, sem kafa við
Miðjarðarhafsströnd Frakklands,
ganga nú undir nafninu „forn-
minjafiskimenn“, því að í hvert
skipti, sem þeir kafa niður á
hafsbotn finna þeir einhverjar
fornminjar. Um þúsundir ára
hafa skip siglt að ströndinni, en
aðeins er áratugur eða svo síðan
tekið var að rannsaka nákvæm-
lega hafsbotninn og safna sam-
an þeim hlutum, sem glatazt
hafa í sjóinn á liðnum öldum.
Unnið er að því að endur-
byggja forn-rómverskt tréskip,
og stjórnar bandarískur forn-
minjafræðingur því verki. Búizt
er við, að ferðamenn, sem leggja
leið sína til Miðjarðarhafsstrand-
arinnar í Frakklandi, muni sækj-
ast mjög eftir að sjá þetta skip.
O—•—O
Nýlega gerðist dr. Perrimond-
Nefnd skipuð til að
rannsaka jarð-
skjálftatjónið
PEKING 24. jan. — Sendiráð
Ytri-Mongólíu í Peking upplýsir,
að ríkisstjórn landsins hafi nú
skpað sérstaka nefnd til þess að
rannsaka í heild manndauða og
eignatjón í sambandi við hina
miklu' jarðskjálfta, sem urðu í
Ytri-Mongólíu 4. desember sl.
Fregnir af þessum jarðskjálft-
um hafa fyrst borizt út núna.
Trouchet, einn af lyfjafræðingum
franska flotans, froskmaður og
kafaði niður á sjávarbotn í
grennd við Toulon. Þar kom hann
auga á einkennilega lagaðan
stein, sem stóð upp úr sandinum.
Ásamt froskmönnum af rann-
sóknarskipi flotans, Elie-Monier,
vann hann að því að losa stein-
inn, sem síðan var fluttur á land.
Er skeldýrin höfðu verið hreins-
uð af steininum, kom í ljós, að
þetta var skólaga baðker, að öll-
um líkindum mörg þúsund ára
gamalt.
Nú hefir kerið verið sett á
safn í París, en áður en svo var
gert, tókst hinni laglegu dóttur
Perrimonds, Brigitte, sem er 16
ára, að reyna baðkerið. Ef til
vill hefir einhvei samtímakona
Kleópötru setið í baðkerinu næst
á undan Brigitte.
Jarðskjálftarnir áttu upptök sín
í Altai-fjöllum og varð þeiira
aðallega vart í hringmynduðu
svæði sem er um 2200 kílómetrar
í þvermál.
Jarðskjálftakippirnir voru m.a.
mjög harðir í höfuðborginni Ulan
Bator, sem er um 700 km frá upp-
tökustað jarðskjálftans. Hafa
mörg hús hrunið og skemmzt í
borginni.
Að lokum segir í tilkynningu
sendiráðsins að aðstoð vegna jarð
skjálftanna hafi borizt m. a. frá
Rússlandi, Kína og Tékkóslóvak-
íu. Hvergi er þó vitað til að
skýrt hafi verið opinberlega frá
jarðskjálftatjóninu fyrr en nú.
Brigitte í baðkerinu þrönga. Það er 90 cm á lengd og 36 cm
breitt