Morgunblaðið - 09.04.1954, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.04.1954, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 9. apríl 1954 Skipstjóri tregðaðist við að hlýða skipunum Greinargerð iorsijóra landhelgisgæziunnar VEGNA yfirlýsingar stjórnar h.f. Júpiters út af meintu fiskveiði- broti togarans Úranusar, PiE. 343, jiem birtist í dagblöðum bæjarins 8. þ. m., skal þess getið, að um- jræður um sekt eða sýknun sak- feornings nú eru óviðeigandi, þar sem málið bíður dóms. En þess- ar staðreyndir leyfi ég mér nú !»egar að taka fram: 1. Starfsmenn landhelgis- .gæzlunnar í flugvélinni gerðu Avær staðarákvarðanir á togar- anum með hornamælingum og jniðun. Fyrri staðurinn reyndist ~vera tæpa Vz sjómílu innan fisk- ■veiðitákmarkanna og sá síðari á 3»eim. Á milli staðsetninganna liðu 11 mínútur og togaði Úranus ðit frá landi á vestlægri stefnu allan þann tima. 2. Hvað viðvikur nákvæmni í Ætaðarákvörðunum úr flugvélum, }>á byggist hún fyrst og fremst á þeim aðferðurri, sem notaðar •eru, svo og reynslu og þekkingu jþeirra, sem með mælitækin fara, -— en ekki órökstuddum fullyrð- "íngum. 3. Undir eins og landhelgisgæzl -iinni bárust upplýsingar um að togarinn Úranus hefði verið að meintum ólöglegum veiðum við ?>næfellsnes, var það tilkynnt .sakadómaranum í Reykjavík, og varð það að samkomulagi, að hann kallaði skipið inn til Reykja víkur. Seint um kvöldið sama »dag tjáði sakadómari hins vegar landhelgisgæzlunni að tilraunir hans í þá átt hefðu ekki borið aieinn árangur, og óskaði þess að landhelgisgæzlan sæi um að .skipið kæmi sem fyrst til Reykja- víkur. Kl. 2258 talaði forstjóri land- helgisgæzlunnar við skipstjór- ann á b.v. Úranus, og honum Úáð, að þess væri óskað, að hann yrði kominn til Reykjavíkur strax næsta morgun til rann- «óknar á fyrrnefndu meintu broti. Jafnframt var skipstjóran- "um tjáð að framkvæmdastjóra skipsins væri kunnugt um þessa ósk. Frá þeim tíma og til kl. 0334 um nóttina voru svo eftirfarandi skeytaviðskipti milli skipstjóra b.v. Úranusar og landhelgisgæzl- unnar: Frá b.v. Úranus kl. 0140: Vinsamlegast frestið innköllun þar sem löndun hefur verið ákveð in tólfta apríl. Frá landhelgisgæzlunni kl. 0155: Komið strax til Reykjavíkur eins og óskað hefur verið eftir. Frá b.v. Úranus kl. 0230: Tel enga ástæðu til innkomu fyrr en tólfta. Frá landnelgisgæzlunni kl. 0245: Endurtek kröfu mína að þér komið strax til Reykjavíkur til rattnsóknar á meintu fiskveiði- broti yðar í gær. Svar óskast strax þar sem við annars neyð- umst til að gera aðrar ráðstaf- anir. Frá b.v. Úranus kl. 0300: Vantar svar frá útgerðinni til að geta komið. Frá landhelgisgæzlunni kl. 0305: Tökum svar yðar sem neitun við að hlýða fyrirmælum vorum. Frá b.v. Úranus kl. 0315: Ekki neitun, óska svars yðar og útgerðar kl. 1000 í fyrramálið. Frá landhelgisgæzlunni kl. 0320: Endurtökum síðasta skeyti vort. Frá b.v. Úranus kl. 0334: Svara ákveðið innkomu kl. 1000. Kl. 0340 var skipherrann á varðskipinu Þór, sem lá í Reykjavíkurhöfn, beðinn að kalla skipverja sína til skips sem fyrst og fara síðan út og sækja b.v. Úranus. 4) Varðskipið Sæbjörg hafði engin afskipti af þessum málum. Hins vegar hefur skipstjórinn á b.v. Úranusi upplýst, að varð- skipið hafi verið í námunda við Öndverðarnes um morguninn h. 5. þ. m., en horfið burtu um Vz klst. áður en flugvélin kom, og horfið sjónum, líklegast inn á Breiðafjörð. Pétur Sigurðsson. Lifill drengur varð fyrir bíl og fékk heilahristlng ÞAÐ slys vildi til kl. 3 í gærdag, að bifreið ók á þriggja ára gamlan dreng, Garðar Valgeirsson. Hlaut drengurinn áverka á höfði og heilahristing, en er þó ekki talinn alvarlega slasaður, •eftir því sem vitað var í gærkvöldi. Nánari tildrög slyssins, voru þ»aU, að drengurinn var að leika «ér á götunni fyrir framan hús jnj'. 42 á Laugavegi, en þar búa foreldrar hans, er hann varð fyr- ir bifreiðinni, sem var ekið vest- •ur Laugaveginn. Að sögn sjónar- ■votta, stansaði ökumaðurinn bif- rciðina er slysið varð og fór út úr bílnum, en er hann sa að drengurinn reis sjálfur upp af götunni, skeytti hann því ekki •frekar og ók leiðar sinnar. FÉKK HEILAHRISTING Fólk er á þetta horfði mun Jrajfa gert foreldrum drengsins þegar aðvart. — Við rannsókn læknis kom í Ijós, að hann hafði hlotig mikla kúlu á höfuðið og ■eiAnig heilahristing. Var hann samt fluttur heim til sín, er gert Jráfði verið að meiðslunum og "valr líðan hans eftir atvikum góð í gærkvöldi. •ÓFYRIRGEFANLEG _FRAMKOMA Bifreíðarstjóri þessi hafði ekki i £ærkvöldi gefið sig fram, og skprar rannsóknarlögreglan á iiann að gera það hið allra fyrsta, svo og sjónarvotta og þá sem eitt- hvað geta upplýst í málinu. — Verður þessi framkoma bifreiðar stjórans að teljast ófyrirgefanleg, ert þess eru mörg dæmi þótt leitt sé til þess að vita, að bifreiðar- stjórar ttassa að gefa sig fram eftir að þeir Hafa valdið slýsum. Geislavirk ský yfir Kyrrahaf fil Kaiiforníu GLENDALE, Kaliforniu. — Orð- ið hefur vart geislavirkra skýja yfir Glendale, nokkra km frá Los Angeles. Telja þeir, sem rannsakað hafa skýin, að þau hafi borið yfir Kyrrahaf eftir vetnisprenginguna 1. eða 26. márz, Geislán skýja þessara var samt svo lítil, að hvorki mönnum né skepnum stafaði af þeim nein hætta, 25 ára afmæli SL Y S A V ARN ADEILDIN Fiska klettur í Hafnarfirði hefur ákveð ið að halda hátíðlega upp á 25 ára afmæli sitt laugardaginn 10. apríl n.k. kl. 8,30 s.d. — Deild þessi, sem er ein með allra fyrstu slysavarnadeildum hér á landi varð 25 ára 16. nóv. s.l. Aðstaða var ekki til að minnast afmælis- ins í það skipti, en nú verður það gert næsta laugardag í húsa- kynnum Rafha h.f., en þar eru stærstu salarkynni í Hafnarfirði. Hefur stjórn fyrirtækisins góð- fúslega sýnt deildinni þá vin- semd að ljá þeim húsnæði í þessu skyni. Fiskaklettur hefur ávallt starf- að af miklum þrótti og átt þeim forystumönnum á að skipa, er alla tíð hafa staðið mjög framar- lega í slysavarnamálunum. Fiska- klettur er í hlutfalli við fólks- fjölda langfjölmennasta karla- deildin, sem starfar hér í kaup- stað. Á vegum deildarinnar starfa vel æfð og öflug björgun- arsveit, er ávallt hefur verið reiðubúin til aðstoðar, þegar Slysavarnafélagið hefur þurft á að halda. Fyrstu stjórn deildarinnar skip Uðu þeir: Magnús Kjartansson, múrarameistari, Sigurður Finn- bogason, vélfræðingur og Finn- bogi Arndal, sýsluskrifari, en nú- verandi stjórn skipa: Ólafur Þórðarson, skipstjóri, Jón Hall- dórsson, skipstjóri og Stígur Sæ- land, lögregluþjónn, en stjórn björgunarsveitarinnar er í hönd- um þeirra: Þorbjarnar Eyjólfs- sonar og Haraldar Kristjánsson- ar. — Bezla mjólkurkýr í heiml Námskeið í bindindis fræðslu BINDINDISFÉLAG ísienzkra kennara og Stórstúka íslands hafa ákveðið að halda námskeið fyrir kennara í bindindisfræðslu á komandi vori. Námskeiðið hefst í Háskólanum fimmtudaginn 10. júní og stendur yfir í 4—5 daga. Aðalleiðbeinandinn á nám- skeiðinu verður Erling Sörli, skrifstofustjóri frá Osló. Er hann þaulvanur að standa fyrm slík- um námskeiðum í heimalandi sínu og þekktur um allan Noreg fyrir starf sitt í þágu bindindis- fræðslunnar. Auk þess munu 2—3 íslenzkir læknar flytja þarna erindi og væntanlega 2—3 kennarar. í sambandi við ngmskeiðið verður svo aðalfundur Bindindis- félags íslenzkra kennara, sem verður nánar auglýstur síðar. Þeir, sem hafa í hyggju að sækja námskeið þetta eru beðnir að til- kynna það Hannesi J. Magnús- gyni skólastjóra á Akureyri eða Brýnleifí Tobíassyni yfirkennara, Bólstaðahlíð 11, Reykjavík. Gott (ér að slíkar tilkynningar komi isem fyrst. Þessi föngulega kýr, sem sést á myndinni hér að ofan ber ilafnið María og er talin bezta mjólkurkýr í heimi. Hún hlaut 1. verðlaun á alidýrasýningu, sem haldin var í Versölum í Frakklandi í s. I. mánuði. Heimkynni hennar er í Normandie, einu blómlegastá landbúnaðarhéraði Frakklands, sem framlciðir feyki mikið af mjólk og smjöri. Hún vegur 670 kg. Á 330 dögum gaf hún af sér smjörmagn, sem að verðmæti nam 450 þús. frönkum (um 10 þús. ísl. kr.) úr 12,056 lítrum af mjólk með 53 gr. smjörmagni úr hverj- um lítra — meðallag er 40 gr. Hún hefir komizt í 104 merkur —• 52 lítra — yfir daginn. Móðir Maríu, sem kölluð var María I til aðgreiningar frá dótturinni Maríu II, var einnig framúrskarandi mjólkurkýr. Hún dó s. 1. vetur af voðaskoti veiðimanna, sem voru að veiðum í grenndinni. Háskólastúdentar kynna verk Hannesar HaCsteins SEM KUNNUGT er, hefur Stúdentaráð H^skóla íslands gengizt fyrir kynningu á verkum þeirra Einars Benediktssonar og Bjarna Thorarensens. Hafa þær þótt takast með ágætum og verið fjölsóttar. Á sunnudaginn kemur verður að tilhlutan Stúdentaráðs efnt til kynningar á verkum Hannesar Hafsteins. Hefst kynningin kl. 5 síðdegis í hátíðasal Háskólans. Formaður Stúdentaráðs, Björn j söngvari, syngja lög við ijóð þess Hermannsson stud. jur., flytur, og Steinsgerður Guðmundsdóttir, stutt ávarp. Þá syngur Karlakór leikkona, Andrés Björnsson, cand. , háskólastúdenta undir stjórn j Carls Billichs. — Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri, flytur erindi um Hannes Hafstein og skáldskap hans. Þá verður flutt valið efni úr verkum skáldsins. — Karlakór háskólastúdenta og Guðmundur Jónsson, óperu- Aðaifundur AÐALFUNDUR Fél. búsáhalda- og járnvörukaupmanna í Reykja- yík var haldiHn 6. þ. m. Formaður setti fúndinn ng jhinntist tveggja látinna félags-* rnanna, þeirra SigUrjóns Jónsson- 'ar verzlurtarstjóra og Þórðar L. Jónssonar kaupmanns, sem báðir voru stofnendur félagsirts og virkir féiagar þess alia tíð. Að því loknu fóru fram venju- leg aðalfundarstörf. Var stjórnin endurkosin, en hana skipa H. Biering förmaður, Bjöm GUð- mundsson og Sigurður Kjartans- Son; til vara voru kjörnir þeir Páll Jóhannesson og Hannes Þorsteinsson. Fulltrúi félagsins i stjórn Verzl unarráðs íslands var kjörinn Páll Sæmundsson og varafulltrúi Björn Guðmundsson. Fulltrúi fé- lagsins í stjórn Sambands smá- söluverzlana var kjörinn Eggert Gíslason og varafulltrúi Jón Guð- mundsson. mag., Hjalti Guðmundsson, stud. mag. og Sveinn Skorri Höskulds- son, stud. mag. lesa upp úr kvæð- • um Hannesar. Aðgangur að kynningu þessari er ókeypis og öllum heimill með- an húsrúm leyfir. Bændur í HornafirSi að hofja fúnaávinnslu HÖFN í HORNAFIRÐI, 8. apríl. ÍjUNMUNA veðurblíða hefur verið í Hornafirði frá því í byrjun J marzmánaðar. Er allur klaki úr jörð og vegir greiðfærir o@ þurrir. Er víða farið að grænka á túnum og meðfram lækjum. E£ veður ekki breytist til muna mun þess skammt að bíða að bændur fari að vinna á túnin. Er þetta eitt bezta veðurfar seinnihluta vetrar, sem fólk man eftir hér. SÆMILEGAR GÆFTIR Sex bátár hafa gert út héðan og hefur afli þeirra verið sæmi- legur. Þeir eru að stærð frá 40— 60 tonn. Um miðjan marz-mánuð kom mikil loðnuganga hingað og var þá mokafli hjá þeim bátum, sem stunduðu linuveiðar, en um það leyti voru flestir bátanna byrjaðir netaveiðar. Síðan hefur afli verið all sæmilegur. Afla- hæsti báturinn er Helgi og hafði hann um siðustu mánaðarmót 540 skippund eftir 53 róðra. STÖÐUG FJÁRHEIT Skepnuhöld hafa? verið með afbrigðum góð í vetur. Hafa hag- ar verið snjólitlir og stöðug fjár- beit allan veturinn. Á sumúm Halle Selasie lil Titos BELGRAD, 8. apríl — Tilkynnt var í dag, að Tito einræðisherra hafi boðið Hailé Selassie Abyss- iníukeisara i opinbera heímsókn til Júgóslaviu í júlí-mánuði n.k. Samtímis kemur abyssianísk hernaðrsendinefnd til Júgóslavíu. —Reuter. jörðum hefur féð verið rekið til beitar hvern einasta dag siðan á áramótum og mjög lítið þurft að gefa því í húsum, nema hvað bændur hygla ám sínum þegar líða fer að sauðburði. — Gunnar. Samþykkf aðild að sameiginiegum vörnum LUXEMBORG, marz — Þing Luxemborgar samþykkti í dag aðild að Evrópuher með 46 atkv. gegn 4. Þingmenn kommúnista voru á móti. Áður hafa Vestur- Þýzkaland, Holland og Belgía samþykkt að gerast aðilar að sameiginlegum vörnum Evrópu. Ítalía og Frakkland eiga eftir að samþykkja þátttöku fyrir sitt leyti, en samningurinn gengur ekki í gildi fyrr en þessi 6 ríki hafa öll tjáð sig samþykk. — Reuter-NTB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.