Morgunblaðið - 17.04.1946, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.04.1946, Blaðsíða 1
16 síður 33. árgangui 89. tbl. — Miðvikudagur 17. apríl 1946 Ísaíuldmi-yicutsmiðja h.f. IÍRÖFU RÚSSA VÍSAÐ TIL SJERFRÆÐINGA Franco hyggst eyða ákæru Pólverja Býður efUriUsnefnd ai ramisaka, Ssvorf þýskar afómsföðvar s|eu á Spánl London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. SPANSKA sendisveitin í London hefir látið það boð út ganga, að spanska stjórnin muni á næstunni bjóða fulltrúum Bretlands, Bándaríkjanna, Ástralíu, Hollands, Egyptalands og Brasilíu að koma til Spánar til þess að rannsaka, hvað hæft sje í kæru þeirri, sem Pólverjar hafa sent Öryggisráðinu, þess efnis, að spanska stjórnin hafi leyft Þjóðverjum að láta atómrannsóknir fara fram á Spáni. Ekkert boð til Bandaríkjastjórnar. Byrnes, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði blaða- n.önnum svo frá í dag, að Bandaríkjastjórn hefði enn ekkert boð borist frá spönsku stjórninni um að senda til Spánar fulltrúa í ofangreindu augnamiðd. Hann gat þess, að utanríkisráðuneyti Bandar ííkjanna hefði ekki fengið neina vitneskju um það, að verksmiðjur í eign Þjóðverja hefðu unnið að atómrannsókn um á Spáni. Pólverjar rökstyðja kceru. Byrnes kvaðst gera ráð fyr ir því, að Pólv. sem borið hafa fram þessa kæru í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna myndu iá ráðinu í hendur gögn sem sönnuðu mál þeirra. Það væri svo á valdi ráðsins, hverj ar ráðstafanir skyldu gerðar. Bardapr sfjómar- hersveiia og Aserbaijanmanna Teheran í gærkveldi. í DAG kom til bardaga milli hersveita persnesku stjórnar innar og flokka Azerbaija- manna. Átokin áttu sjer stað mílli Tabriz og Teheran, en Rússar eru nýlega farnir brott með her sinn úr því hjeraði. Hermálaráðherra Persíu hef ir verið falið að gera ráðstaf- anir til að slíkiratburðir sem þessi endurtaki sig ekki. — Stjórn Persíu hefur sent full trúa til Azerbaijan til þess að ræða váð fyrirsvarsmenn íbúanna þar. Strætisvagn hvolfdi. LONDON: Stór strætisvagn fór nýlega út af sporinu nærri Leicester - járnbrautarstöðinni, og hvolfdi vagninum. 25 menn meiddust. Washington í gærkvöldi. BYRNES, utanríkismálaráð- herra Bandaríkjanna, ljet svo um mælt á blaðamannafundi í dag, að þjóðaratkvæðagreiðsla í Grikklandi um það, hvort konungurinn skyldi kvaddur heim, væri svo mikilvæg, að sjer fyndist rjettast, að henni yrði frestað, þangað til aðgerð- ar til efnahagslegrar viðreisn- ar í landinu hefðu farið fram. Hann tók það jafnframt fram, að auðvitað væri það grísku stjórnarinnar einnar að ákveða, hvenær atkvæðagreiðslan skyldi fram fara. — Byrnes skýrði ennfremur svo frá, að Iienry Grady, sendih. Banda- ríkjanna í Grikklandi hefði sagt í skýrslu um kosningarn- ar í Grikklandi, sem send hefði verið utanríkisráðuneyti Banda ríkjanna, að kosningarnar hefðu farið fram með mikilli spekt, sjerstaklega, er þess væri gætt, að kosningar hefðu ekki farið fram í landinu í 10 1 ár. —Reuter. ...-- Hoover í Aþenu. Aþena 1 gærkvöldi. HERBERT HOOVER, erind- reki Trumans Bandaríkjafor- seta, kom flugleiðis til Aþenu í dag. Constantin Tsaaldaris, utanríkisráðherra Grikklands og Rankin, sendiherra Banda- ríkjanna í Aþenu, tók á móti Hoover á flugvellinum. — Hoover hefir nú um hríð ferð- ast til allmargra Evrópulanda að fyrirlagi Trumans forseta, í því skyni að safna sem ítar- legustum gögnum um matvæla ástandið í þessum löndum. —Reuter. Framboð Sjélfstæðl! Akureyri, þriðjudag. Frá frjettaritara vorum. Á SAMEIGINLEGUM fundi Sjálfstæðisfjelaganna á Akur- eyri í gærkveldi var ákveðið, að Sigurður E. Hlíðar, yfirdýra j læknir, yrði frambjóðandi flokksins á Akureyri við í hönd farandi Alþingiskosningar. Fyrir fundinn hafði farið fram prófkosning meðal Sjálf- stæðismanna í bænum og haíði Sigurður fengið mikinn meiri- hluta greiddra atkvæða. • • I Oryggisráðið frestar atkvæðagreiðsiu Kærur Pólverja á hendur Franeosfjórninni tcknar fyrir í dag. New York í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðinna kom saman í dag til þess að ræða þá kröfu Gromykos, fulltrúa Rússa í Öryggisráðinu, að Persíumálin yrðu tekin af dagskrá ráðs- ins. Fyrir ráðinu lá löng og ítarleg greinargerð frá Trygve Lie, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, þar sem rakin eru ýms atriði, sem til greina koma við afgreiðslu málsins frá lagalegu sjónarmiði. Öryggisráðið samþykkti að vísa greinargerð þessari til nefndar sjerfræðinga, sem skila skulu áliti innan tveggja daga. Jafnframt var það sam- þykkt, að atkvæðagreiðsla um kröfu Rússa skyldi frestað, þar til álit nefndarinnar lægi fyrir. — Fundum ráðsins var þvínæst frestið til morguns, en þá verða teknar fyrir ákærur Pólverja á hendur Francostjórninni. Sfjéraarckípfum r i Frakklandl Frjettaritari Reuters í París segir, að ekki muni lengur j vera hætta á því, að á næst unni slitni upp úr stjórnar samvirínunni í Frakklandi. \egna ágreinings um stjórnar skrána. — Kaþólski flokkur inn hafði lýst því yfir og Bi dault, utanríkisráðh. Frakk lands, borð fram tillögu, þess efnis að franska þingið yrði ein deild. Hinir stjórnarflokk arnir vildu hafa tvær deildir og var tillaga Bidaults felld á ráðuneytisfundi. Þegar svo var komið málum, var við því búist, að Felix Gouin for sætisráðherra myndi verða að segja af sjer. En nú í nótt hafa farið fram viðræður inn &n stjórnarinnar, með þeim árangri, að hættan á því, að i'PP úr stjórnarsamvinnunni slitni, mun um garð gengin. Konur fara utan LONDON: — Meira en 100 eiginkonur breskra hermanna, sem eru í þjónustu á Ítalíu og Austurríki, eru nýlagðar af stað frá Englandi til manna sinna. — Reuter. sl jór nmála! e iðf oga New Dehli í gærkveldi. BRESKU RÁÐHERRARN IR ræddu í dag við Jinnah, for Éngja Múhameðstrúarmann:i í Indlandi. Viðræðurnar fóru íram í New Dehli. Á morgun munu þeir eiga viðræður við Azad, fordngja þjóðþings flokksins. Ráðherrarnir munu leggja alt kapp á það að sam ræma sjónarmið »Múhameðs trúarmanna og þjóðþings flokksins, enda er slíkt grund vallarskilyrði, til þess, að ár angur verði af för þeirra til Indlands og starfi í þá átt að leggja frumdrögin að stjórn arskrá fyrir Indland. — Reuter. Farrell hvefur til Buenos Aires í gærkveldi. FARREL, forseti Argen tínu, hefur hvatt þjóðina til þess að taka af frjálsum vilja upp matvælaskömtun, svo að Argentína gæti lagt meira af mörkurn til sveltandi ?jóða. Argentínustjórn bitri í dag skýrslu, þar sem meðal ann ars er greint frá því, að Arg entínumenn hafi það, sem af er þessu ári, flutt út um 190 þúsund smálestir af hveiti. Mestur hluti hveitisins fór til Evrópulandanna, þeirra. sem mestan matvælaskort eiga við að búa. — Reuter. Harðar umræ'ður. Allharðar umræður fóru fram um málið, áður en of- angreindar samþyktir voru gerðar. Gromyko gerði fyrst grein fyrir kröfum sínum. —• Stettinius, fulltrúi Bandaríkj- anna, andmælti þeirri staðhæf ingu Gromykos, að það færi í bága við sjálfsákvörðunarrjett Persa, að öryggisráðið hjeldi málinu á dagskrá sinni, eftir að persneska stjórnin hefði lát- ið í ljós ósk um það, að ráðið tæki málið af dagskrá. Enn- fremur sagði hann það fjar- stæðu, að slík afstaða ráðsins bryti í bága við sáttmála Persa og Rússa, því að öryggisráðið gæti ekki gengið fram hjá þeirri staðreynd, að sú breyt- ing á afstöðu Persa að vilja málið nú út af dagskrá ráðs- ins hefði orðið, meðan rúss- neskar hersveitir dveldust enn í landinu. Gromyko sagði af- stöðu Stettinius órökrjetta og kvað hann vera að draga mál- ið vísvitandi og hleypa í það illsku. Kærur Pólverja ræddar á morgun. Er umræðurnar höfðu stað- ið hjer um bil í tvær klukku- stundir, var samþykt að vísa greinargerð Trygve Lie til sjerfræðinganefndar og jafn- framt fresta atkvæðagreiðslu um kröfu Rússa. Ráð hafði ver- ið fyrir því gert, að á fundi ráðs ins í dag myndi einnig byrjað að ræða kæru Pólverja á hend ur Francostjórninni, en vegna þess, hve umræður drógust, var samþykt að fresta fundi til morguns (miðvikudags), en taka kærurnar til meðferðar. Forsetaskipti í ráðinu. Framh. á 2. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.