Morgunblaðið - 24.08.1944, Side 12
12
Jarðskjálitakippa
vari á Húsavík
Húsavík í gær.
Frá frjettaritara vorum.
í GÆRKVÖLDI milli kl.
21.30 og 21.40 varð vart
þriggja jarðskjálftakippa í
Húsavík. Varð einn þeirra all-
snarpur.
Síðar um kvöidið varð vart
minni kippa, en skemdir urðu
engar, svo vitað sje.
Bílastæði tyrir 41
bíla á Hótel ísland-
grunninum
GÖTU-LÖGREGLAN niun
nú á næstunni taka grunninn,
.sem Ilótel IslaiuL stóð á tii
fíinna þarfa. Grunninn á að
nota sem bílastæði, fyrir þá
bíla er á undanförnum árum
þafa notað Hafnarstræti og
Austurstræti sem stæði.
Ifefir grunniirinn verið
mreldur upp, með ]>etta fyrir
augum og munu 30—40 bílar
geta fengið stæði á honum.
-— Mun því umferðin hjer í
miðbænum taka miklum breyt
jngum og munu allir bæjar-
búar fagna því.
„Láns- og leigulög-
in hafa komið að
tilætluðum notum"
-Roosevelt.
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter“.
„BANDAMENN nálgast nú
stöðugt Tokio og Berlín“, seg-
ir Roosevelt Bandaríkjaforseti
í 16. skýrslu sinni um láns- og
Ieigulögin, sem hann sendi
Bandaríkjaþingi í dag.
„í undirbúningi og fram-
kvæmd hinnar miklu sóknar,
sem vjer nú heyjum ásamt
feandamönnum vorum, hafa
láns- og leigulögin fullkom-
lega náð tilgangi sxnum. í or-
ustum hvers dags koma láns-
og leigulögin hinum hraustu
bandamönnum vorum að liði“.
„Þangað til Japanir og Þjóð-
verjar gefast skilýrðislaust
upp, ættum við að framkvæma
láns- og leigulögin, svo að bol-'
magn bandamanna í barátt-
un'ni gegn óvinunum verði svo
mikið og árangursríkt, sem í
okkar. valdi stendur að gera
það. Við vitum, að stöndum
vjer saman, verður dagur sig-
ursins ekki langt undan. Við
vitum einnig,'að með því móti
einu að standa saman, getum
við trygt okkur rjettlátan og
varanlegan frið“.
„Aðstoð sú, sem við höfum
veitt bandamönnum vorum
samkvæmt láns- og leigulögun
um, nemur mánuðina maí, júní
Og júlí þessa árs um það bil
4045 miljón dollurum. Aðstoð-
in, sem við höfum veitt alls,
nemur 28270 miljón dollurum“.
Myrkvun í Tyrklandi.
LONDON: — Myrkvun hef-
ir verið fyrirskipuð í Ankara,
Istanbul og Ismir. Þung refs-
ing er lögð við brotum á
myrkvunarfyrirætlunum.
Erfitt líf er enn í Róm
Það er langt frá því að alt sje enn komið í lag í Rómaborg,
eftir loftárásirnar. sem stórskemdu vatnsleiðslur borgarinnar.
Hjcr sjást konur vera að þvo þvott sinn á götum úti í borginni.
Átti að neyða iólk
til að kaupa gallað
smjör fullu verðiS
Furðulegur verslunar-
máti ríkisstjórnarinnar
ÞESS hefir orðið vart að undanförnu, að í búðum hefir verið
sell gallað amerískt smjör, þ. e. smjörið er myglað og sett svört-
um bletlum.
Það er Mjólkursamsalan, sem hefir selt þetta smjör f. h. rík-
isstjórnarinnar.
Morgunblaðið sneri sjer til
Guðmundar Guðjónssonar, for-
manns Fjelags matvörukaup-
manna og bað hann að upplýsa
nánar um smjör þetta. — Hann
skýrði svo frá:
1 — Smjör það, sem hjer um
ræðir, mun hafa legið hjer all-
lengi. Samsalan hefir annast
drefingu smjörsins f. h. ríkis-
stjórnarinnar og eftir hennar
fyrirlagi.
Smjörið er í ca. 60 lbs. köss-
um. Helmingur innihaldsins í
hverjum kassa er mótaður í 1
lbs. pakka og eru umbúðirnar
„ósteliseraður“ pappír; hinn
helmingurinn er ómótað srnjör.
Smjörið.r sem var pakkað,
reyndist gallaðra en forstöðu-
maður Samsölunnar bjóst við.
Smjörið var selt kaupmönnum
með því skilyrði, að það fengist
ekki að skila því aftur, þótt
gallað reyndist.
Vitanlega gátu kaupmenn
ekki sætt sig við þetta, eftir að
í ljós kom að smjörið var veru-
lega gallaað. Þeir höfðu þv^. á-
kveðið að hætta að hafa þessa
skemdu vöru á boðstólum í búð
um sínum, þar sem smjörverðið,
kr. 21.50, er miðað við nýtt og
ógallað smjör.
Nú hefir hinsvegar náðst sam-
komulag við atvinnumálaráðu-
neytið um það, að Samsalan
taki aftúr hið gallaða smjör, er
kaupmenn hafa í vörslu sinni
og endurgreiði andvirðið.
Enn fremur hefir náðst sam-
komulag um það, að hjer eft-
ir verði eingöngu sent í búð-
irnar ógallaað smjör og skal
matvælaeftirlitið sjá um, að það
verði gert.
í gærkvöldi fjell drukkinn
maður af hjóli á Skothúsvegin
um. Hlaut hann dálítil meiðsl
á höfði og var farið með hann
í læknavarðstofuna, en þar
kom í ljós, að hann myndi lík-
lega hafa fengið snert af heila
hristing. — Eftir að gert hafði
verið að sárum hans, fór hann
h‘ei mtil sín.
<9
Sykur til sultugerðar
VIÐSKIFTAMÁLARÁÐU-
NEYTIÐ tilkynnir, að veittur
verði aukaskamtur af sykri til
sultugerðar. Er hjer um að
ræða þrjú kg. á mann, sem veitt
verður gegn afhendingu-stofn-
auka nr. 6 af núgildandi mat-
vælaseðlum, og var stofnauka
þessum gefið gildi í gær, 23.
ágúst og gildir til 1. okt. n.k.
Mikilvæg efni unn-
in úr kaffi
STOKKHÓLMI: — Áður hafa
verið unnin úr kaffi ýms efni,
svo sem kaffein, fita, sútunar-
sýra o. fl. Nú hafa Stokkhólms-
blöðin skýrt frá því, að 'sænski
efnafræðingurinn Egron Möller
hafi fundið aðferð til að vinna
úr kaffi, auk þeirra efna, sem
fyrr voru nefnd, smurningsolí-
ur, vatnsefni, fenol og sjö önnur
mikilvæg efni. Vinsluaðferðin
er sögð mjög ódýr.
Nokkur undanfarin ár hefir
sendiherra Brasilíu í Stokk-
hólmi, Sebastio Sampaic, beint
athygli sænskra efnafræðinga
að kaffinu sem hráefni^il alls-
konar vinslu. Fyrir tveim árum
síðan bauð sendiherrann nokkr-
um sænskum vísindamönnum
kaffi, og þá þegar gátu þeir
framleitt úr því ágæta sápu.
Með hinni nýju vinsluaðferð
Möllers er álitið að eftirfarandi
magn af efnum sje hægt að
vinna úr 2.000 kg. af kaffi: 24
kg. kaffein, 240 kg. fitu og 40
kg. af sútunarsýru (þessi efni
fást á fyrsta stigi vinslunnar).
Á síðari stigum vinslunnar fást
um 103 kg. af acetone, 108 kg.
methyl-ethyl keton, 44 kg. met-
hylalkohol, 24 kg. fenol, 305 kg.
af smurningsolíu, 38 kg. pyridin,
amin og ammoniac og 400 til
500 rúmmetra af vatnsefni.
Þektur, sænskur iðnrekandi,
Helge Norlander, hefir lagt
fram fje til tilraunanna og kom-
ið á fót sjerstökum tilraunastof-
um. Hefir hann nú fengið einka-
leyfi á vinsluaðferðinni.
Hawkins Brellands-
meistari í millivigl
London í gærkvöldi.
HNEFALEIKARINN Hawk-
ins sigraði í kvöld Dave Mc
Cleave í úrslitakepninni um
Bretlandsmeistaratitilinn í
millivigt. Hawkins sigraði eft-
ir fjóra og hálfa lotu.
Þessi kappleikur var sá sex-
tugasti í röðinni, sem Hawkins
heyir. — Reuter.
Fá að flytjast til Þýska-
lands.
LONDON: — Frá því hefir
nýlega verið skýrt í Ziiric, að
Þjóðverjar hefðu lofað ítölsk-
um verkamönnum því, að þeir
fengju ef til vill að flytjast til
Þýskalands með alt sitt skyldu
lið, ef þeir vildu vinna í Junk-
ers-flugvjelaverksmiðjunum á
Ítalíu. Jafnframt ljetu Þjóð-
verjar þess getið, að ekki væri
víst, að þetta boð stæði lengi.
— Reuter.
Fimtudagur 24. ágúst. 194|
Sjáffstæðismenn
í Árnessýslu
halda hjeraðs-
mót um
næstu helgi
Samband Sjálfstæöisfjelag-
anna í Arnessýslu efnir til hjer
aðsmóts að Selfossi næstkonx-
andi sunnudag þ. 27. ágúst.
Mótið hefst kl. 2 e. h. í sam-
komuhúsinu. Frá miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins mæta og
halda ræður, Ólafur Thors, for
maður flokksins, Bjarni Bene-
diktsson, borgarstjóri og Eirík
ur Einarsson, alþingismáður. —
Sameiginleg kaffidrykkja verð
ur og frjáls ræðuhöld undir
borðum. Pjetur Á. Jónsson
óperusöngvari, syngur einsöng
og Skúli Halldórsson skemtir
með píanósolo. \
Aðgangur áð mótinu er frjáls
öllum Sjálfstæðismönnum og
gestum þeirra.
Er í alla staði vel til þessa
móts vandað og líklegt að það
verði fjölsótt víða að úr sýsl-
unni.
Stjórn Sambands Sjálfstæðis
fjelaganna í Ámessýslu skipa
nú: Sig. Óli Ólafsson, Selfossi,
formaður, Sigurður Kristjáns,
Eyrarbakka, gjaldkeri, Bjarni
Jónsson, Syðra-Seli, ritari og
meðstjórnendur Steinþór Gests
son á Hæli og Jón Sigurðsson
á Hjalla.
K. R. heldur nám-
skeið í frjálsum
íþróitum
í GÆRKVÖLDI hófst þriðja
námskeið Knattspyrnufjelags
Reykjavíkur í frjálsum íþrótt-
um, en eins og kunnugt er byrj
aði K. R. fyrst allra fjelaga
með námskeið í þessari grein
s.I. haust.
I vor hjelt fjelagið $vo ann-
að námskeið bæði fyrir byrj-
endur og þá, sem höfðu verið
á námskeiðinu haustið áður.
Ætlunin var að halda kepni að
því námskeiði loknu, eins og
gert hafði verið haustið áður,
en vgena þess, hve margir þátt
takendanna fóru í sveit, var
horfið frá því.
Að þessu sinni verður kent
þrisvar í viku, mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga kl. 8
e. h. Aðalkennarar námskeiðs-
ins verða Benedikt Jakobsson,
Jens Magnússon og Jón Hjart-
ar, en auk þess munu ýmsir af
helstu íþróttamönnum fjelags-
ins aðstoða við kensluna.
Þar sem áhugi fyrir frjáls-
um íþróttum er stöðugt að*auk
ast, er ekki að efa, að margir,
bæði drengir og fullorðnir,
verða til þess að nota þetta á-
gæta tækifæri og læra rjett
undirstöðuatriðin í þessum
skemtilegu og karlmannlegu
íþróttagreinum. Verður tekið á
móti nemendum á öllum aldi’i,
en síðan verður flokkað niður
eftir aldri eða getu.