Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1967, Blaðsíða 7
40 ÁR FRÁ FL.UGI UNDBERQHS
VFIR ATLAIMTSHAFID
]VÍ aídagarnir tveir árið 1927, sá
tuttagasti og tuttugasti og fyrsti, voru
Imerkisdagar í sögu flugsins, þegar
Charles Lindibergh, tuttugu og fimm ára
igamall póstflugmaður, smeygði sér inn
í þröngan flugklefa. veikbyggðrar eins-
tmannsvélar og fiau'g henni einsamall
yfir Norður-Atlanzhaf frá New York
'til Parisar viðstöðulaust. Þetta braut-
ryðjaindaafrek vakti óhemju fögnuð hjá
almenningi í Bandaríkjunum og i®kor-
aða hrifningu hvarvetna þar sem fréttist
af för hans.
Flug Lindberghs olli stökkbreytingu í
þróun flugtækninnar, sem tók ótrúleg-
um framförum næstu fjóra áratugi jafnt
lí almennu flugi sem hennaðarlegu. Það
var sannfæring Lindberghs árið 1927,
að flugið „ætti ótakmarkaða framtíð
fyrir sér“. Hann spáði því að „flugið
inyndi olnboga sig upp frá tilrauna-
stiginu og öðlast nytsamlegt gildi“.
ÍÞetta „nytsamlega gildi“ er í dag með
jþvílíkum vöxtum, að þrýstiloftsknúnar
{farþega- og flutningavélar hafa m-eð sí-
ifelldri samþjöppun á tíma og vega-
áengdum fært áður afs'ke-kktar og ein-
Ængraðar þjóðir í allt að því alfaraleið.
S ögu „Arnarins" og flugvélar hans
ú,,Spirit of St. Louis“ ásamt með þróu-n
fbandarískra flug- og geimferðavísinda,
mun verða lýst í máli og myndum fyrir
þeim þrem millj. gesta sem búist er við
Já -alþjóðlegu flugsýninguna á Le Bourg-
et-flugvellinum í París, dagana 27. maí
Itil 4. júní í ár. Þar verður til sýnis
leftirlíking af skrúfuvél Lindberghs,
B,Spirit of St. Loui-s“, ®em hann flaug
|5800 kílómetr-a frá New York til París-
er á 33 klukkUstundum 29 minútum og
(30 sekúndum. Hin upphaflega „Spirit of
St. Louis“ er geymd í Smithsonian-stofn-
tuninni í Washington.
Eftirlíkinguna af einshreyfilsvél Lin-d-
berghs hefur Frank Tallman gert, en
!h.ann er þ-ekktur li-stflugm-aður og eig-
andi stærsta einkaflugvélasafns í heim-
-inum. Flugvélin verður flutt til Parísar
Imeð flutningavél. Þann 21. maí, en þá
;eru fjörutíu ár liðin frá lendingu Lind-
berghs á Le Bourget-flugvelli, mun
JHallman fljúga eftirlíkingu sinni niður
leftir Signu, hringsóla um Eiffel-turninn
og lenda siðan á sama blettinum og
„Spirit of St. Louis“ gerði fyrir fjórum
áratugum. Eftirlíkingin verður síðan
ihengd upp í hin risavöxnu bogagöng í
isýningarskála Bandarikjanna, sem út-
Ibúinn er „í anda Lindiberghs11. Á sýn-
ingunni verður leitazt við að gefa sem
gleggst yfirlit yfir gervallan flugvéla-
iðnað Bandaríkjanna, með samanburði
á flugi Lindberghs og samtímaflugtækni
)í Ameríku, auk þess sem sýningargiestir
tfá að gægjast ofurlítið inn í framtíðina.
Fyrir Lind-bergh sjálfan mun afmælið
fremur hafa í för m-eð sér up-prifjanir
á endurminningum en auknar vegtyllur
í veizlufagnaði. H)ann hefur hafnað öll-
u.m boðum um þátttöku í flugsýningunni
í París og heldur áfram löngu upp-
Jtieknum hætti, að forðast opinber af-
skipti og opinberar yfirlýsingar.
essa fjóra áratugi hefur Lind-
íbergh hvergi borið við að koma fram
lo-pinberlega en g-etið sér mikinn orðstír
í sambandi við þróun flugmála, einkum
íá sviði áætlunarflugs. Síðastliðin 38 ár
hefur hann starfað sem tæknilegur
ráðunautur hjá stærsta flugfélaginu,
Pan Amerioan World Airways, og setið
S stjórn þess félags frá því í maiz 1965.
f
Lindbergh átti þátt í undirbúningi
margra fynstu póstf-erða Pan American
félagsins, skipulagði hringflugleiðina til
Austu-rlanda, og hafði umsjón meði
Atlanzhafsflugleiðunum, sem Pan Am-
erican hóf flug á árið 1939. Hann að-
stoðaði við byg-gingu Clipper-vélanna
sem Pan American notaði á Atlanz-
hafs- og Kyrrahafsleiðunum í byrjun,
log sömuleiðiis Douglas og Lockheed
tflutningavélunum, s-em Pan American
byrjaði að nota í hnattferðir árið 1947.
A síðari árum hefur Lindbergh baft
hönd í bagga miað smiði hljóðhverfu
tflutningaþotunnar (SST).
Árið 1927 naut Lindbergh -ekki þeirra
tframfara sem orðið hafa í loftsigli-ngum.
á síðari árum. Sem leiðarvísa varð hann
'í einu og öllu að reiða sig á klukkuna,
áttavitann og fáein sjókor-t. Litla Ryan-
iflugvélin hafði ekkert loftskeytasam-
Iband né n-eitt af þeim fullkomnu
rafeindahjálpartækjum sem tíðkast í
)dag. Þegar hann flaug yfir Atlanzha'fið
ifyrir fjörutíu árum, hafði hann allan
jhimininn út af fyrir sig, en nú er stöð-
ug umferð nærri 200 flugtækja' yfir
Norður-Atlanz-hafi.
Þessi mynd var tekin af Lindbergh rétt áður en hann lagði af stað frá San
Diego til St. Louis. Uppi á flugvélinni er H. J. van der Linde, síðar verksmiðju-
stjóri Ryan Aeronautical Company, að helia bensíni á geymana gegnum trekt.
Lindbergh er þriðji frá hægri.
21. maí 1967
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7