Morgunblaðið - 06.12.1961, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.12.1961, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 6. des. 1961 MORGVNBLAÐIÐ Minnzt 100 ára af- mælis Útskálakirkju Austurbæjarbíó hefur nú sýnt amerískú stórmyndina „Risinn“ í 3 vikur og hefur hún hlotið mikljir vinsældir og er nú þegar orðin ein bezt sótta myndin, sem bíóið hefur sýnt. Er það almennt skoðun manna að vart hafi ánægju- legri mynd verið sýnd hér um árabil. Þess má geta að hinir íslenzku skýringartext- ar, sem settir hafa verið í myndina, gera öllum kleyft, jafnt ungum sem gömlum, að fylgjast til fullnustu með efni myndarinnar. Myndia hér að ofan er af Rock Hudscai, Elizabeth Taylor og James Dean, en þau fara með aðalhlutverkin í myndinni. íslenzk nútímaverk flutt á Hótel Borg SÖFNUÐUR Utskálasóknar minntist 100 ára afmælis kirkju sinnar 12. nóv. s.l. Hátíðahöld hófust í kirkjunni kl. 2 e.h. með guðsþjónustu. Biskup íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson, prédikaði ásamt sóknarprestinum, séra Guð mundi Guðmundssyni. Kirkjukór Ú.tskálakirkju söng með undir- leik Auðar Tryggvadóttur organ- ista. en Jón Xsleifsson, form. kirkjukórasamb. íslands hafði ®eft kórinn fyrir guðsþjónustuna. Margt mætra gesta var viðstatt: biskup íslands og frú, prófastur- inn í Kjalarnesprófastsdæmi, sr. Garðar Þorsteinsson og frú, sr. Björn Jónsson og frú, Keflavík, sr. Jón Árni Sigurðsson og frú, Grindavík, sr. Kristján Bjarna- son og frú, Reynivöllum. og bisk upsritari, sr. Ingólfur Ástmarsson Einnig voru viðstaddir safnaðar- fulltrúar og formenn sóknar- nefnda frá Hvalsnes-, Keflavík- ur- og Njarðvíkursóknum. Kirkjunni bárust margir fagr- ir gripir að gjöf, m.a. 50 silfur- ibikarar frá kvenfélaginu Gefn í Garði silfurkaleikur frá prests- hjónunum að Útskálum, frú Steinvöru Kristófersdóttur og sr. Guðmundi Guðmundssyni og mjög vandaður hökull frá hjónun um frú Helgu Þorsteinsdóttur og Jóhannesi Jónssyni, Gauksstöð- um í Garði, til minningar um for- eldra þeirra hjóna. Keflavíkur- söfnuður gaf fjórar fagrar ljósa stikur á altari kirkjunnar og af- benti jafnframt skrautritað á- varp, en Útskálakirkja var sókn- arktrkja Keflvíkinga allt til árs- ins 1915. Gömul fermingarsyst- kin gáfu 2 kristalsvasa. Fjárupp hæðir bárust frá Hvalsnesi og Njarðvíkursöfnuðum kirkjukór Útskálakirkju og frá einstakling um innan safnaðarins og brott- fluttu safnaðarfólki. Síðar verður gerð nánari grein fyrir þessum gjöfum, en alls bárust kirkjunni um 100 þús kr. Einnig barst fjöldi heillaskeyta. Eftir guðsþjónustuna hófst sam sæti í samkomuhúsinu að Gerð- um. Formaður sóknamefndar Út skálasóknar, Sigurbergur H. Þor- leifsson, bauð gesti velkomna og stjórnaði samsætinu. Flutti hann einnig erindi og rakti sögu Út- skálakirkju s.l. 100 ár. Þorlákur Benediktsson. safnaðarfulltrúi, flutti erindi og minntist þar presta, er þjónað hafa á Útskál- um, söngfólks og annarra, sem mest hafa starfað fyrir kirkjuna á undanförnum árum. Einnig fluttu ræður undir borðum. bisk up, prófastur, sóknarprestur, sr. Björn Jónsson Keflavík, sóknar nefndarmenn og safnaðarfulltrú- ar frá Keflavík og Njarðvíkum og fleiri. í samsætinu var mikill og almennur söngur, m.a. söng kirkjukór Útskálakirkju lag eft- ir Ásdísi Káradóttur við vers eft ir Dagbjörtu Jónsdóttur. Formað ur sóknarnefndar flutti ávarp frá sr. Eiríki Brynjólfssyni. Hann var sóknarprestur í tæpan aldarfjórð ung á Útskálum, en dvelst nú vestan hafs. Var sr. Eríks minnzt með þakklæti og hlýhug og hon um og fjölskyldu hans sendar kveðjur og árnaðaróskir. Afmæl- ishátíðin fór mjög virðulega fram og lauk kl. 8 um kvöldið. Veitingar önnuðust konur úr kvenfélaginu Gefn og slysavarn- ardeild kvenna. Á fslendingaslóð- um í Kaupmanna- höfn KOMIN er út ný bók eftir Björn Th. Björnsson, ,,Á Islendingaslóð- um í Kaupmannahöfn“. Bókin hefst á inngangi um myndun Hafnar og þróun fram til ársins 1443. Þá er bókinni skipt í tíu kafla og eru heiti þeirra: Á Gamlatorgi, Við Frúartorg, f Kanúkastræti, Kjötmangarinn og Strikið, Á Slotshólmanum, Brim arhólmur og Kóngsins Nýjatorg, Ofan á Tollbúð, Vestur með bæj- arvegg, Norður strönd og Úr Kristjánshöfn og Amákur. Bókin er prýdd fjölda mynda, sem Birgitte Jordhan hefur tek- ið. Hún er 230 blsf að stærð og frágangur smekklegur. Útgefandi er Heimskringla. Myndlistarmenn hjósa í stjórn AÐALFUNDUR félags ísl. mynd- listarmanna var nýlega haldinn. í stjórn voru kosnir Sigurður Sigurðsson formaður, Hörður Ágústsson ritari, og Valtýr Pét- ursson gjaldkeri. f sýningarnefnd félagsins voru þessir menn kjömir: Eiríkur Smith, Jóhannes Jóhannesson, Sigurður Sigurðsson, Steinþór Sigurðssön og Svavar Guðnason, allir fyrir málarana, og Guð- mundur Benediktsson, Magnús A. Árnason og Sigurjón Ólafs- son fyrir myndhöggvara. Fulltrúar á þing Bandalags ísl. listamanna: Hörður Ágústs- son, Jóhannes Jóhannesson, Karl Kvaran. Kjartan Guðjónsson og Sigurður Sigurðsson. MUSICA NOVA heldur fyrstu tónleika sína á þessu starfsári í kvöld kl. 21.00 að Hótel Borg. Á efnisskránni er eingöngu ís- lenzk nútímatónlist, þar af tvö electrónísk verk. Efnisskráin er sem hér segir: 15 tóndæmi fyrir flautu, obó, klarinettu og fagott eftir Magnús Blöndal Jóhannsson, Leikar, electrónískt verk eftir Þorkel Sig urbjörnsson, Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Jón S. Jónsson, Sam- stirni, electrónískt verk eftir Magnús Blöndal Jóhannsson og að lökum Kvintett Op. 50 fyrlr flautu, klarinettu, fagott, lág- fiðlu og cello eftir Jón Leifs. Verkin eru öll frumflutt hér að undanteknum electrónísku verkunum, sem bæði hafa verið flutt erlendis. Flytjendur á þessum tónleik- um eru: Einar Sveinbjörnsson, Einar Vigfússon, Gunnar Egils; son, Jón Sen, Karel Paukert, Sig urður Markússon, Þorkell Sigur- björnsson, Jósef Magnússon. Áuk þess koma fram í öðru electrón- iska verkinu: Kristín Anna Þór- arinsdóttir og Þuríður Pálsdóttir. Ég undirritaður óska að gerast félagi í Almenna bókfélag- inu Ég greiði engin árgjold til félagsins, fæ Félagsbréfin ókeypis og bækur félagsíns eftir eigin vali 20% ódýrari en utanfélagsmenn. Ég lofa að kaupa minnst fjórar AB-bækur á ári meðan ég er í félaginu. Nafn ............................................. Heimili .......................................... Kaupstaður ....................................... Bfreppur ......................................... Sýsla ............................................ ALMENNA BÖKAFÉLAGIÐ Tjarnargclu 16 — Reykjavík. Uannes Hafsteín ævisaga effir Kristján Albertsson I tilefni af 100 ára afmæli Hannesar Hafstein gefur AB út þessa stórmerku bók. Þetta er fyrra bindi ævisögu Hannesar. Bókin fjallar um bernsku hans og skólaár, skáldsakp hans embættisár í Reykjavík og ísa- firði og stjórnmálaferil hans fram til 1904 er hann varð ráðherra. Gerð er rækileg grein fyrir sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar frá láti Jóns Sigurðssonar til heimastjórnar, en sá þáttur sögunnar hefur aldrei verið rækilega kannaður í heild hingað til Kemur hér fram ótalmargt nýtt, sem breyta mun skoðunum manna á ýmsum atriðum. Bókin er prýdd mörgum myndum, m. a. litprentun af málverki eftir Hannes Hafstein. Bókin kostar 245.00 auk söluskatts. Félagsmenn AB fá 20% afslátt. Afgreiðsla AB-bóka til félagsmanna AB er í Austurstræti 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.