Morgunblaðið - 06.12.1961, Page 8

Morgunblaðið - 06.12.1961, Page 8
8 MORCIJTS BL AÐIÐ Miðvikudagur 6. des. 1961 Háskdlinn byggir raunvísindastofn- un í áföngum Skýrt frci hinum veglegu gjöfum, er skól- inn fékk d 50 dra afmæli sínu FYRIR skömmu bauð rektor Há- skóla íslands, Ármann Snævarr, að skoða hluta hinna veglegu gjafa, er Háskólanum voru færð- *r á 50 ára afmæli hans s.l. haust. Fyrst var fréttamönnum boð- ið til kaffidrykkju í hinni vist- legu kaffistofu stúdenta í suður- álmu skólans. Sjá mátti, að hún er vel sótt af stúdentum, og einn ig bregða prófessorar sér gjarn- an þangað inn til að fá sér kaffisopa. Einnig vár fréttamönnum sýnd bóksala stúdenta, sem hefur hús næði við hlið kaffistofunnar, en þar geta stúdentar fengið keypt- ar þær bækur. er þeir barfnast við nám sitt. Norðmannsgjöf og Raun- vísindastofnun Munir þeir og ávörp, er Há- skólanum bárust í tilefni afmæl- isins eru nú á borði í skrifstofu rektors, en gert er ráð fyrir, að smíðaður verði sérstakur skáp- ur, þar sem það verður geymt í framtíðinni. Rektor skýrði fréttamönnum frá gjöfunum og nefndi fyrst peningagjöf að upphæð 2 millj. ísl. króna frá Norðmanni, sem ekki vill láta nafn síns getið. Af fé þessu hefur verið stofnaður sjóðurinn Norðmannsgjöf til stuðnings málvísindum, sagn- fræði og handritaútgáfum og handritafræðum og verður fyrst úthlutað úr honum á næsta ári. Einnig barst Háskólanum pen- ingagjöf frá Bandaríkjastjórn að upphæð 5 millj. ísl. króna, og skal henni varið til aðstoðar við að koma á fót rannsóknarstofum í eðlisfræði, efnafræði, stærð- fræði og jarðeðlisfræði samkv. áætlunum, sém samdar hafa ver ið af Háskólans hálfu, til efling- ar raunvísindarannsóknum við Háskólann. í vor skipaði Há- skólinn nefnd, sem gera skyldi tillögur um eflingu raunvísinda- rannsókna og raunvísinda- kennslu við Háskólann. Var nefndin skipuð 4 prófessorum við verkfræðideild, beim Leifi Ásgeirssyni, Trausta Einarssyni, Þorbirni Sigurgeirssyni og Magnúsi Magnússyni. Enn frem- ur prófessor Steingrími Baldurs- syni, sem kennir efnafræði við Læknadeild og einum manni ut- an Háskólans, dr. Gunnari Böðv- arssyni. Lögðu þeir það til, að sett yrði á stofn raunvísinda- stofnun jvið Háskóla íslands. f tillögunni var gert grein fyrir því, hver stofnkostnaður og rekst urskostnaður slíkrar stofnunar yrði. Var áætlaður stofnkostn- aður 15 millj. króna, en gert er ráð fyrir að gjöfinni frá Banda- rikjunum verði varið til að hefja byggingu slíkrar stofnun- ar, sem verði þá byggð í áföng- um. Er gert ráð fyrir, að ekki líði á löngu, þar til hafizt verð- ur handa um bygginguna. Á afmælishátíðinni 6. okt. af- henti vestur-þýzka ríkisstjómin tæki til að frystiþurrka blóðefni. Hefur tækið verið afhent til- raunastöðinni á Keldum. Einnig barst Háskólanum mikil bóka- gjöf frá Deutsche Forschungsge- meinschaft 17. júní s.l. Rektorsskikkja Að morgni 6. okt. færðu rekt- orar háskólanna í Osló, Björg- vin og Þrándheimi Háskóla fs- lands rektorsskikkju að gjöf frá háskólum sínum. Er það venja flestra háskóla á Norðurlöndum, að rektorar skrýðist skikkjum við hátíðleg tækifæri Er Kaup- mannahafnarháskóli nú sá eini, I |g§ amCHT VCWCSÖ&tSK CSA«t vrtsxt); Yíl,- rfí* gHkikK »»S fcw X&. &&&&&KQHÍr' iJíp UAfí «ff vf»V»' <«**> Vfrt <>« tte >«. f-ixw. tiftíxvJtyot- tritf -Wfí WS&«fW ÁVS {^ÍÍÍWÍ. Ste* Si>v>ft- fn» fwtowwr' ite CwkH* >*< *vo<< >.<*&■ K<\>. v<« j£»*>j>>íf<<f w>f Sf»< Y.'fh ffío <<o ífcáiifci oiojf.cAov.' f»\év" ««<v^þpl A<lf $>'; Kofjþ- ^ rf'í.íop. ff«<<« WSí>; víxu tfof»> ÍaW Uuföp, A-W <ÍA<ttf> áÍ< x<x»S W <»« VuíK«<> rfxh Í<W*h«W*« «ft W f þýzka vikublaðinu „Stern“ frá 3. desember er grein um Suður Atlantshafseyjuna Tristan da Cunha, sem íbúarnir urðu að yfirgefa vegna eldgosa. Segir blaðið ítarlega frá afdrifum íbúanna, sent. nú eru flestir komnir til Englands. Með greininni er fjöldi ljósmynda og birtist hér mynd af upphafi greinarinnar. Ýmsir lesendur Mbi. munu kannast við mynd- ina neðst til vinstri, sem á að vera frá Tristan da Cunha, en er í rauninni af Öskju, tekin 27. okt. s.l., þegar gosið var sem mest. sem ekki hefur þetta fyrirkomu- lag. Frá Háskólanum í Björgvin barst einnig eftirmynd af frægri tréskurðarmynd frá miðöldum. Frá Tækniháskóla Danmerkur barst bréf, þar sem skýrt var frá, að stofnað hefði verið til styrks, að fjárhæð d. kr. 500. er veita skyldi íslenzkum stúdent, er stundaði nám við skólann þetta háskólaér. Að tillögu Há- skóla íslands var styrkurinn veittur stud. polyt. Sigurjóni Helgasyni. Frá Háskólanum i Greifswald barst ágæt bókagjöf, mes>megnis um stærðfræði, eðlifræði og efnafræði. Forlag háskólanna í Björgvin og Osló afhenti Háskóla íslands eitt eintak af öllum bókum, sem komið hafa út á vegum þess hingað til. Jafnframt var því lýst í gjafabréfi, að forlagið myndi gefa Háskólanum eintök af öllum bókum er það gæfi út fram til ársins 1970. Tveir kristalsvasar bárust, annar frá Tæknilháskólanum í 1 Prag, og er í hann greypt inn- I sigli Háskóla fslands. Hinn vas- inn er frá Sambandi finnskra stúdentafélaga Þá afhentu há- skólarnir í Uppsölum, Lundi, Gautaborg og Stokkhólmi silf- urbikar, sem á er greypt inn- sigli Háskóia fslands og þessar lióðlinur Jónasar Hallgrímsson- ar: „Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar. Himininn heiður og blár, hafið var skínandi bjart“. Bækur bárust frá háskólanum í Wales og silfurpeningur frá Lyfjafræðingaskóla Danmerkur. Handritastofnun og úrlausn í lóðamálum Háskóli íslands hafði borið fram, sem afmælisósk til ríkis- stjórnarinnar, að handritastofn» un yrði komið á fót. Er það mikið áhugamál Háskólans, að slík stofnun rísi, og á afmælis- hátíðinni skýrði menntamálaráð- herra frá þeirri ékvörðun ríkis- stjórnarinnar að beita sér fyrir því nauðsynjamáli. Einnig hef- ur nú verið tekin í fjárlava- frumvarp nokkur fjárveiting til bókasafns Háskólans, en sioati 1920 hefur bókasafrjið ekki feng ið neitt af ríkisfé til bóka- Frh. á bls. 23 1. vélstjóra vantar á 250 tonna mótorskip. — Umsókn- ir sendist afgr. Mbl. fyrir 8. þ.m. merkt: „194“. SCANBRIT efnir til 3ja mánaða námskeiða í enskum skólum næsta sumar, og verða allar lerðir til og frá Reykjavík ásamt fæði og húsnæði á enskum heimilum innifalið í verðinu. Forstöðukona Scanbrit Miss T. Vane — Tempest er stödd hér á landi og verður til viðtals á Hótel Borg í dag og á morgun 6. og 7. des. kl. 4—6 e.h. Frekari upp- lýsingar gefur Sölvi Eysteinsson sími 14029.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.