Morgunblaðið - 24.11.1957, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.11.1957, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ Suff vestan eða vestankaldi og skúrir eða slydduél. 268. tbl- — Sunnudagur 24. nóvember 1957. Reykjavíkurbréf er á bls. 13. Svartagilsmálið á nýju stigi: // ÞaÖ er bezt að brenna kofann" — segir Sveinbjörn Hjaltason bróður sinn hafa sagt í gang- inum að Svartagili RANNSÓKN í Svartagilsmálinu er nú langt komið, en þó ekki lokið. Þau tíðindi hafa gerzt að annar bræðranna Svein- björn Hjaltason, hefur breytt sínum fyrsta framburði og sagt Reyni viðhafa þau orð er Markús hafði flúið bæ sinn í bílnum er þeir bræður komu í að Svartagili, að bezt væri að kveikja í kofanum, og litlu síðar segist hann hafa séð eldsglampa inn um gluggann á Svartagili. þá út strax og sá að bílinn er þeir bræður höfðu komið í var horfinn, en hann sá bíl- inn við túnhliðið að Svarta- gili og var honum ekið á brott. Fyrsti framburður Þórður Björnsson fulltrúi saka- dómara, skýrði blaðamönnum frá gangi rannsóknarinnar í gærdag Þórður sagði frá á þessa leið: Þeir bræður, Reynir og Svein- björn Hjaltasynir voru yfirheyrð ir 25. okt., daginn eftir atburðina að Svartagili. Reynir neitaði við þá yfirheyrslu að hafa ráðizt á Markús bónda, en kveðst hafa tekið af honum byssu og fleygt henni. Síðan hafi hann haldið út úr húsinu og er hann gekk út ganginn hafi hann orðið var reykjarsvælu, en ekki athugað það frekar og haldið frá bæn um gangandi unz hann var tek- inn upp í bifreið er ók að Svarta- gili. Sveinbjörn sagði við þessa yf- irheyrslu (25. okt.) að hann myndi allt mjög óljóst, en kvaðst muna að Markús hafi viljað losna við þá bræður. Næst sagðist hann muna að hann stóð einn utan bæjarins og gekk á brott. Er honum var litið um öxl litlu siðar sá hann eldglampa og í sama mund kom bíll að honum og tók hann upp í. Báðir neituðu bræðurnir að hafa verið valdið að brunanum. Framburði breytt Nokkrum dögum síðar breytti Sveinbjörn framburði sínum og lýsir þá atburðun- um þannig, að Markús hafi gengið út úr bænum og rétt á eftir hafi hann heyrt að bif- reið var ekið á brott. Fór hann Sveinbjörn segir að Reynir hafi gengið á eftir sér fram ganginn og er Sveinbjörn horfði á bílinn fara, heyrði hann Reyni segja inni í ganginum: „Helv.... beinin, þeir hafa farið með hana burt“ (átti við stúlkuna er með honum kom í bílnum) og síðan bætti hann við: „Það er þá bezt að kveikja í helv .... kofanum“. Sveinbjörn segist þá hafa sagt án þess að líta við: Ertu brjálaður, maður eða hvað gengur að þér? Sá eldglampa 1 þessu segist Sveinbjörn hafa litið til Reynis og þá séð að hann var kominn fram á húströppurn- ar og um leið sá hann eldbjarma í glugga á fremri gangi. Kveðst hann þá hafa gengið að dyrunum og séð hvar eldur logaði í einum vegg gangsins. Hann segir Reyni hafa gengið burt og sagt um leið: „Þeir hafa tekið hana frá mér“. Sveinbjörn segist hafa séð eld- inn magnast óðfluga. Fór hann inn í ganginn og tók föt er þar voru og reyndi að kæfa eldinn með því að troða fötunum í rifur, þar sem eldurinn var mestur, en Stjórnin gaf og stjórnin tók: Stórfelld tollahækkun á fjölmörgum útgerð- arvörum Vanefnd á samkomulaginu um starfs- grundvöll útgerðarinnar l SKÝRSLU þeirri, sem stjón Landssambands íslenzkra út- vegsmanna lagði fyrir affalfund samtakanna er nú stendur yfir var m. a. frá því skýrt, aff í samningum L.l.Ú. viff ríkisstjórnina um síffustu áramót hefffi veriff samið um þaff, að á þessu ári skyldu engar nýjar álögur lagðar á nauð- synjar útvegsins. Á affalfundinum var upplýst í skýrslu stjórnar L. f. Ú aff vélar og varahlutir í vélbáta, ásamt fjölda annarra nauð- synja útgerffarinnar hefffu hækkaff vegna nýrra tolla frá 7% og upp í 38%. Hefffi þetta m. a. gert þann starfsgrund- völl, sem samiff hefffi veriff um fyrir útgerðina miklu lélegri en ráff var fyrir gert. Hinar nýju álögur, sem verja átti til þess aff skapa út- gerffinni rekstrarskiiyrffi hafa þannig veriff lagðar á hana sjálfa í stórum stíl. Verffur ekki ofsögum sagt af snjallræð- um Lúðvíks og skilningi hans á þörfum útvegsins!! En þannig er „verffstöffvunarstefna“ vinstri stjórnarinnar í framkvæmd. jafnharðan segir hann eldinn hafa brotizt út um aðrar rifur. Neitaffi aff svara. Þegar þessi framburður Svein- bjarnar var borinn undir Reyni, neitaði hann að svara, hvort rétt væri frá sagt hjá Sveinbirni. — Hélt hann fast við þá neitun sína nokkurn tíma. Síðar kvaðst hann vilja svara spurningum og segist ekki vilja halda fram að framburður Svein- bjarnar sé rangur. En þó hann hafi mikið hugsað um málið, kveðst hann ekki geta munað orðaskil er urðu milli þeirra bræðra er þeir sáu bílinn fara. Hann kveðst muna að hafa ver- ið ofsareiður er unnusta sín var farin og hélt að henni mundi verða mein gert. Hann kveðst ekki muna hvað þar næst gerðist og ekki segist hann heldur muna hvort hann hafi kveikt á eldspýtu eða lagt eld nokkurs staðar að húsina. En hann segist minnast reykjar- lyktar en ekki hafa athugað það frekar. Kveðst hafa verið með eldfæri og vindlinga í vasa sín- um, en hugsun öll hafi snúizt um stúlkuna. Rengir ekki bróffur sinn Reynir segir ennfremur aff hann trúi ekki aff Sveinbjörn segi annaff en það sem honum sjálfum finnist rétt og kveffst ekki hafa ástæðu til aff rengja bróffur sinn. Sveinbjörn segist ekki hafa viljaff segja strax frá sann- leikanum, því hann hafi ætlaff bróður sínum að segja satt frá. En þegar Reynir gerffi þaff ekki, ákvað Sveinbjörn aff gera þaff til aff liggja ekki saklaus undir grun um brun ann, þó sárt sé aff bera slíkt upp á bróður sinn. ★ Þannig stendur málið í dag, sagði Þórður. Rannsókn er enn ekki fyllilega lokið m. a. eru eftir yfirheyrslur í Arnessýslu og væntanlega verður sú rannsókn borin undir hina ákærðu. Þá hefur verið felldur úr- skurður um að heilbrigðisþroska og sakhæfnirannsókn fari fram á Reyni Hjaltasyni. Þórður kvað hana geta tekið 1—2 mánuði, og síðan yrði málið væntanlega sent dómsmálaráðuneytinu til ákvörð- unar um frekari gang þess. Aðalfundur Hins ísl. biblíufélags í DAG fer fram aðalfundur Hins íslenzka biblíufélags í Dóm- kirkjunni. Fundurinn . verður haldinn að lokinni messu, sem séra Óskar J. Þorláksson flytur. 1 messunni syngur Guðmundur Jónsson, óperusöngvari, einsöng með undirleik Sigurðar ísólfs- sonar. Dauðaslys í gœr í GÆRKVÖLDI lézt í Landakots spítala af afleiðingum umferðar- slyss Haraldur Hamar Thorstein- son, vistmaður í Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund, 65 ára að aldri. í gærmorgun laust fyrir kl. 8, varð Haraldur fyrir bíl á Hring- brautinni, eigi allfjarri Grund. Var hann að fara yfir syðri akbrautina, er hann varð fyrir bíl sem var á leið vestur. Fékk Har- aldur högg mikið, féll í götuna og var fluttur meðvitunarlaus í slysavarðstofuna. Hann komst þó brátt til meðvitunar á ný, var fluttur í Landakot, en þar lézt hann í gærkvöldi, sem fyrr segir. Haraldur Hamar Thorsteinson var fæddur hér í Reykjavík, son- ur Steingríms skálds Thorstein- sonar. Bílstjórinn á bílnum sagði lög- reglunni, að hann hefði ekki séð til ferða Haraldar, fyrr en í sama mund og bíllinn rakst á hann. Rannsóknarlögreglan biður þá, er nærstaddir voru, er slysið varð, að gefa sér upplýsingar, en nokk- uð af fólki beið eftir strætisvagni spölkorn frá slysstaðnum. Friðrik og Alster biðskák Donner, Uhlmann, Larsen og Trifunovic unnu í 15. umf. í 15. UMFERÐ á skákmótinu varff biðskák hjá Friffriki Ólafssyni og Alster frá Tékkóslóvakíu. Affrar skákir fóru þannig: Stáhlberg og Trojanescu biff. Ivkov og Teschner jafntefli. Trifunovie vann Hanninen. Larsen vann Dúckstein. Niephaus og Szabo jafntefli. Donner vann Kolarov. Uhlmann vann Lindblom. Clarke — Orbaan biðskák. Eftir þessa umferð standa vinn ingar þannig: (Friðrik og Dúck- stein hafa teflt einni skák meira en allir aðrir). 1. Szabo 12V2 vinning 2. Friðrik 11% og biðskák. 3. Larsen 11 vinninga. 4. Donner 10 % vinning. 5. —6. Uhlmann og Trifunovic 10 vinninga. 7. Stáhlberg 9 % v. og biðskák. 8. Teschner 8 vinninga. 9. Ivkov 7 viiininga. 10. Trojanescu 6 v. og biðskák. 11.—13. Dúckstein, Kolarov og Niephaus 6 v. hver. 14. Alster 5Vá v. og biðskák. 15. Clarke 5 v. og biðskák. 16. Hanninen 3V2 vinning. 17. Orbaan 2V2 v. og biðskák. 18. Lindblom 2Vz vinning. Nær 40 þús. manns á kjörskrá í Rvík STARFSMENN Manntalsskrif- stofunnar hafa síðasta mánuð veriff önnum kafnir viff aff út- búa kjörskrána fyrir næstu bæj- arstjórnarkosningar hér í Reykja vík. Samkvæmt upplýsingum frá Manntalsskrifstofunni eru nú á kjörskrá um 39.600 manns, eftir því sem næst verffur komizt — Eitthvaff kann þessi tala lítils háttar aff breytast. Borgaraiundur um afnám vínveitinga í veizlum ríkisins Á mánudagskvöld kl. 8,30 efna Stórstúka íslands og Þingstúka Reykjavíkur til borgarafundar í Góðtemplarahúsinu. Umræðuefni er, um afnám á- fengisveitinga í veizlum ríkisins og ríkisstofnana, en ályktunar- tillaga þess efnis, liggur nú fyrir Alþingi, svo sem kunnugt er. — Flutningsmenn þessarar þings- ályktunartillögu eru þeir Alfreð Gíslason, Pétur Ottesen og Sig- urvin Einarsson, og verða þeir allir meðal frummælenda á fund- inum, auka Benedikts Bjarklinds stórtemplars. Að ræðum frummælenda lokn- um verða frjálsar umræður. Ekki leikur það á tveim tung- um að áfengisneyzlan er eitt mesta vandamál þjóðarinnar í dag. Allar aðgerðir, sem ganga í þá átt að skapa fordæmi um aukna bindindisstarfsemi, eiga því meira en rétt á sér, þær eru sjálfsagðar, og ekkert sjálfsagð- ara en ríkið gangi á undan með góðu eftirdæmi. Samþykkt téðr- ar þingsályktunartillögu er einn liður í slíku góðu fordæmi ríkis- valdsins. (Frá I.O.G.T.) Orðabók Bjönu í Sauðlauksdal ’leciin á 2000 kr SIGURÐUR Benediktsson hélt bókauppboð á föstudag. Selt var m. a.: Orðabók Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal (Lexicon Island- ico—Latino—Danicum, Kaup- mannahöfn 1814) kr. 2,000,00. Nokkrar sögur (sérprentun úr Morgunblaðinu á nokkrum smá- sögum Halldórs Kiljans Laxness, Reykjavík 1923) kr. 1.310,00. Tímarit Jóns Péturssonar, útg. 1869—1873, kr. 1,070,00. Málsháttasafn Hallgríms Schev ings (boðsrit Bessastaðaskóla 1843 og 1847) kr. 1.000,00. Bréf til Láru (frumútg., áritað eintak) kr. 700,00. Nokkur gamankvæði (Kaup- mannahöfn 1832) kr. 600.00. Kyssti mig sól, ljóðabók eftir Guðmund Böðvarsson, útg. 1936, kr. 350.00. Skipstjórinn vnr dæmdur í gær I GÆR gekk dómur í máli skip- stjórans á Hull-togaranum Loch Seafort, sem flugbátur Land- helgisgæzlunnar kom að þar sem hann var að veiðum í landhelgi seint á fimmtudagskvöld. Skipstjórinn, sem heitir Ernest Johnson, var dæmdur í 74,000 kr. sekt til landhelgissjóðs og afli skipsins og veiðarfæri gerð upp- tæk. Á föstudaginn athuguðu dóm- kvaddir menn radar flugbátsins og fóru þeir í leiðangur með bátnum til þess að fullvissa sig um að radartækin væru í lagi, og kom ekkert athugavert við radar togarans í ljós. Landgæzlumenn á flugbátnum. sem í þessum leiðangri voru, staðfestu skýrslu sína fyrir rétt- inum með eiði. Skipstjórinn viðurkenndi ekki brot sitt sem kunnugt er og áfrýj- aði hann dómi þessum til Hæsta- réttar. Skipstjórinn taldi sig hafa verið um 7 mílur fyrir utan frið- unarlínuna, að veiðum, er hann var tekinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.