Málfríður - 15.09.1997, Blaðsíða 16

Málfríður - 15.09.1997, Blaðsíða 16
Þórey Einarsdóttir og Þórhildur Lárusdóttir: Námskeið FEKÍ í Bath Dagana 10. til 18. júní síðast- liðinn var haldið námskeið fyrir enskukennara frá íslandi við há- skólann í Bath á suðvestur Eng- landi. Námskeiðið var haldið á vegum FEKÍ og Endurmenntun- arstofnunar HÍ. Gerður Guð- mundsdóttir, formaður FEKÍ, sá um allan undirbúning nám- skeiðsins í samvinnu við Ewan G Dow, sem er yfirmaður þeirrar deildar háskólans í Bath sem sér um menntun enskukennara. Námskeiðið sóttu 19 kennar- ar, bæði af grunn- og framhalds- skólastigi alls staðar að af land- inu. Dvalið var á stúdentagarði á háskólasvæðinu í Bath og var aðbúnaðar þar að allra mati til fyrirmyndar. Þátttakendur fengu sérherbergi með baði og afnot af eldhúsi. Auk þess fengu menn aðgang að bókasafni og góðum tölvukosti háskólans, íþrótta- húsi og fleiru. Heiti námskeiðsins var An Intensive Course in English Language, Teaching Methodo- logy and Culture. Markmið nám- skeiðsins var í raun tvíþætt: að kynna fólki nýjar kennsluaðferð- ir og að rifja upp og efla þekk- ingu þess á bresku samfélagi og menningu. Hverjum degi var skipt til tvenns konar vinnu. Vinnan fyrri part dagsins fór fram innandyra á háskólasvæð- inu. Síðari hluta dagsins eyddu þátttakendur í skoðunarferðir og ýmiss konar upplifun á breskri menningu og samfélagi. Fyrirlestrarnir fóru fram í húsnæði tungumáladeildar há- skólans í Bath. Þátttakendur sóttu fyrirlestra í “Language Development” þar sem þeim voru kynntar aðferðir og hug- myndir í tungumálakennslu sem tengdar voru ýmsum sviðum hins lifandi máls í bresku nú- tíma samfélagi, svo sem orðtök- um í ensku, óformlegu máli, tungumáli og fjölmiðlamenn- ingu, menningu og hjátrú, þróun málsins og umræðutækni svo eitthvað sé nefnt. Síðan vann fólk í hópum við „projectwork“ þar sem hver hópur valdi sér verkefni eftir áhugasviði og nemendahóp. Margir notuðu tækifærið og unnu námsefni upp úr breskum blöðum og tímarit- um, aðrir notfærðu sér bókasafn háskólans og einkasafn kenn- aranna við verkefnavinnu, einn hópur tók viðtöl við bresk börn og unglinga til þess að nota í kennslu, og svo framvegis. Þátt- takendur kynntu síðan verkefni sín í lok námskeiðsins og fengu margir gagnlegar hugmyndir og verkefni með sér heim til þess að vinna með í vetur. Síðari hluta dagsins var hlust- að á fyrirlestra um sögu og menningu Bath og farið með þátttakendur í skoðunarferðir um Bath og nágrenni. Fyrsta daginn var farið í heimsókn í ráðhúsið í Bath þar sem hópurinn hitti borgarstjór- ann. Síðan var farið í skoðun- arferð um rómversku böðin sem eru byggð í kringum einu heitu uppspretturnar í Bretlandi. Farið var í skoðunarferð til Lacock Abbey, sem er í umsjón National Trust, og einnig komið við í Castle Comb. Rétt við Lacock er mjög skemmtilegur, gamall bær sem er einnig í um- sjón National Trust. Þetta er gamalt enskt þorp frá 18. öld, þar sem húsin eru varðveitt í sinni upprunalegu mynd. Lacock er mjög gjarnan notað, sem sviðsmynd í kvikmyndum sem gerast eiga á þessum tíma og má nefna að sjónvarpsmynd- in Pride and Prejudice er tekin upp að hluta í Lacock. Castle Comb er annar smábær stutt frá Bath þar sem gat að líta dæmi- gert sveitasetur. Þá var farið í heimsókn til Montacute House sem er til- komumikið sveitasetur með fal- legum görðum stutt frá Bath, en fyrir áhugamenn um Jane Aust- en þá má geta þess að þar var hluti kvikmyndarinnar Sense and Sensibility tekinn. Farið var í gönguferð um Bath þar sem þátttakendur hlýddu á fyrirlestra um sögu og uppbygg- ingu borgarinnar. Einnig var farið í Jane Austen Walking Tour, heimsóttar voru slóðir Jane Austen, rifjaðir upp kaflar úr ævi hennar og skáldsögum. Að göngunni lokinni var farið í teboð í húsi því er Jane Austen bjó í í Bath, og má segja að það hafi verið hápunktur gönguferð- arinnar. Á sunnudeginum var haldið til Stourhead Gardens skammt suður af Bath, en að sögn kennara er þar að finna fal- 16

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.