Málfríður - 15.09.1997, Page 9

Málfríður - 15.09.1997, Page 9
Þórhildur Oddsdóttir og Ósa Knútsdóttir: „Den der skal selv skal lære arbejde“ Námskeiðið Ábyrgð nemenda (Medansvar for egen læring) var haldið í Tæknigarði 4.-6. júní. Fyrirlesari var Jytte Birke- bæk, sem kennir við Kennara- háskólann í Kaupmannahöfn og er jafnframt svæðisráðgjafi á Sjálandi. Námskeiðið sóttu Iið- lega 30 málakennarar víðsvegar að af Iandinu. Eins og nafn námskeiðs gefur til kynna fjallaði Jytte Birkebæk um á hvern hátt hægt væri að auka áhuga nemenda á námi með því að gera þá í æ ríkari mæli ábyrga fyrir námi sínu. Þetta kallar á nýjan skilning á hlutverki nemenda og kennara og breyttar kennsluaðferðir. Til þess að þetta geti orðið þarf hlutverk kennarans að breytast frá því að „stjórna frá púltinu" í að vera „leiðbeinandi og ráðgefandi". Taka verður tillit til þess hversu ólíkir nemendur eru, bakgrunnur mismunandi sem og námsgeta/ - hraði. Nemendur fá líka nýtt hlut- verk, þeir vinna meira sjálfstætt og eru gerðir ábyrgir fyrir því sem þeir eru að læra. Nemendur vinna ekki lengur sömu verkefni á sama tíma og með sama hraða. í kennslu sinni gengur Jytte Birkebæk út frá því að einstaklingsmiðað náms- ferli (*undervisningsdifferenti- ering) sé forsenda þess að gefa nemendum tækifæri til að: - bera ábyrgð á eigin námi, - vera meðábyrgir í námi bekkjarins, - vera virkir þátttakendur í kennslunni, - að setja markmið og meta framlag sitt (indsats), - að byggja upp og varð- veita sjálfstraust. Jytte Birkebæk telur mikil- vægt að nemendur setji sér markmið í samvinnu við kenn- arann, annars vegar fyrir bekkinn í heild, (t. d. hvaða efni/orðaforða viljum við vinna með) og hins vegar að hver ein- stakíingur setji sér markmið óháð öðrum í hópnum/bekkn- um. Nemendur skipast í hópa eftir því hvaða færniþætti þeir vilja þjálfa hverju sinni. Þeir ræða um á hvern hátt þeir geta best náð markmiðum sínum og hvers konar efni sé hentugast. Hópur- inn finnur síðan námsefni í sam- vinnu við kennarann og ákveður hvernig hann vill í lok tímabils eða vinnuferlis sýna fram á að settum markmiðum hafi verið náð. Námsferlið er þá aðalatrið- ið en ekki hvort eftir liggur full- klárað verkefni eða hvort samin hefur verið skýrsla um vinnuna og inntak hennar. Mikilvægt er að tímamörk séu skýr og að hver hópur geri grein fyrir því að hverju hann ætlar að stefna og á hvaða hátt, þ.e. hvaða væntingar menn hafa til vinn- unnar (proces) og útkomunnar (projekt). Ætlunin er að gera nemendur meðvitaða um samspilið milli þeirra markmiða sem þeir setja sér og þeirra námsgagna sem þeir hafa úr að velja og einnig að þeir geri sér í æ ríkari mæli grein fyrir því hvernig nám fer fram. Upplagt er að útbúa eyðublað (sýnishorn 1) þar sem hver nemandi/par/hópur setur sér markmið - velur efni og úr- vinnsluform (proces) og síðan annað eyðublað (sýnishorn 2) þar sem sömu aðilar setja sér markmið um birtingarform vinnunnar (projekt). í lok tíma- bils (lengd þess fer eftir við- fangsefni hverju sinni) fer fram allsherjar mat (sýnishorn 3) nemenda á því að hve miklum hluta markmið náðust, hverju það er að þakka/kenna að árang- urinn varð svo góður/slakur. Sýnishorn þau af eyðublöðum, sem hér fylgja, eru fengin frá Jytte Birkebæk, og hún notar þau við enskukennslu í 6. bekk (= 7. bekk á íslandi). Aðstæður ráða hvort nemendur fylla blöð- in út á móðurmáli eða því tungu- máli sem verið er að læra. Til þess að auðvelda nemend- um að gera sér grein fyrir fram- gangi námsins til lengri tíma Iitið, svo og að meta útkomuna, eru þeir látnir halda dagbók, þar sem þeir skrifa í stuttu máli í lok hvers tíma, hvað þeir hafa gert. Tilgangurinn með þessu er tvíþættur: 1. Nemendur glöggva sig á því sem þeir hafa verið að gera og hversu mikið/lítið þeir hafi haft út úr því - sem sagt enn frekari tilraun til þess að gera þá meðvitaða um nám sitt. 2. Reynt er að gera nemendum ljóst, að árangurinn í náminu er undir þeim sjálfum kominn. 9

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.