Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 94

Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 94
54 7. mars 2009 LAUGARDAGUR > STRESSANDI LEIKKONA Meryl Streep segir að mótleikarar sínir verði oft stressaðir að vinna með sér, en verði svo steinhissa þegar hún gleymir sjálf textanum sínum. Leikkonan tjáði sig um það í viðtali við tímaritið Psychologies og viðurkennir að hún sé mjög stolt af því að hafa verið tilnefnd til Óskars- verðlauna 15 sinnum, en hún hefur tvisvar sinnum hreppt verðlaunin. folk@frettabladid.is Amy Winehouse hefur verið ákærð fyrir líkamsárás eftir að hafa slegið aðdáanda sinn á góðgerðardansleik. Söngkon- unni hefur verið gert að mæta fyrir rétt 17. mars næstkomandi. Aðdáandinn, hin þrítuga Sherene Flash, hafði unnið sér það eitt til saka að biðja stjörnuna um eigin- handaráritun. Amy er sögð hafa kýlt Flash í handlegg og andlit. Amy Winehouse hefur ítrek- að komist í kast við lögin undan- farin misseri. Hún hefur marg- sinnis verið handtekin í tengslum við eiturlyfjaneyslu sína auk þess að hafa áður verið sökuð um líkamsárásir. Amy ákærð fyrir árás RUDDI Amy Winehouse kýldi aðdáanda sem bað um eiginhandaráritun hennar. NORDICPHOTOS/GETTY Orðrómur er á kreiki um að rokk- sveitin Guns N´ Roses sé á leið í tónleikaferðalag um heiminn til að kynna nýju plötu sveitarinnar, Chinese Democracy. Söngvar- inn Axl Rose lýsti því nýlega yfir að útilokað væri að upprunalegu meðlimir Guns kæmu saman aftur og kallaði gítarleikarann Slash „krabbamein“. Hins vegar gæti verið að Axl legði upp í langferð með núver- andi meðlimum. Umboðsmaður Guns sagði við Rolling Stone að þetta gæti verið í spilunum og lýsti Axl Rose, sem tók 15 ár í að gera Chinese Demo- cracy, sem vinnudýri: „Hann er fagmaður og hefur unnið stíft að því að byggja upp og viðhalda metnaðinum í bandinu.“ Axl á leið í tónleikaferð TÚRAR UM HEIMINN Axl Rose ætlar að kynna nýjustu plötu Guns N´ Roses. Þau eru hvert af öðru tröll- in að mynstra sig til keppni í kraftlyftingamóti Metals – þeirra á meðal Big Ben sem er gamall í hettunni og ætlar að sýna Borgarnes- bollunni hvernig á að taka á því. „Menn hafa aldrei séð annað eins skrímsli. Ég varð ægilega hrifinn þegar ég fór og heimsótti hann. Sjötíu sentimetra upphandlegg- ir. Hann er 1,72 á hæð og 3,4 á breidd. Ég er ekki að djóka,“ segir Ingvar Jóel – Ringó – hjá kraft- lyftingasamtökunum Metall. Ringó er að tala um Jón Ben- óný Reynisson sem boðað hefur þátttöku sína í Íslandsmóti Metals í kraftlyftingum sem verður í húsakynnum Mótorm- ax á Kletthálsi 13 hinn 4. apríl. Jón, sem ýmist er kallaður Benni breiðsíða eða Big Ben, er 47 ára gamall. Hann hefur ekki keppt lengi en var fyrstur Íslendinga til að taka yfir 400 kíló í hné- beygju. „Big Ben ætlar að kenna ungu strákunum hvernig á að lyfta. Og ætlar að taka Bolluna í nefið,“ segir Ringó og er þá að vísa til helstu vonarstjörnu kraft- lyftingamanna, Borgarnesboll- unnar sem heitir víst Þorvaldur Kristbergsson. Ringó lýsir því fjálglega hvern- ig Big Ben flutti upp á Kjalar- nes fyrir fimm árum. Keypti sér þar hús og bílskúr þar sem hann hefur verið eins og tröllin í fjöll- unum. „Þarna hefur hann verið að æfa eins og óður í bílskúrn- um. Ekki arða af fitu. Og mætir tvíefldur til leiks,“ segir Ringó. Þegar blaðamaður spyr hvort Benni breiðsíða verði ekki örugg- lega hafður í keðjum svo vænt- anlegum áhorfendum stafi ekki hætta af skrímslinu úr fjöllun- um kveður við annan tón í Ringó: „Hann gerir ekki flugu mein. Jákvæður og skemmtilegur. Yndislegur maður. Það streymir bara gott frá honum, svo mjög að hann ætti að hanga í skinnbandi á hverju heimili,“ segir Ringó sem sér fram á alveg hreint magnað mót. jakob@frettabladid.is BENNI BREIÐSÍÐA KEMUR Í BÆINN BIG BEN Þeir verða vart hrikalegri en Benni breiðsíða, sem er 1,72 á hæð en 3,4 á breiddina. Hann hefur dvalið á Kjalarnesi eins og tröllin í fjöllunum, æft eins og brjálaður í bílskúr sínum og mætir nú í bæinn til að kenna þeim sem yngri eru hvernig á að gera þetta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hvað er að frétta? Allt ágætt. Það er margt skemmti- legt að gerast núna og auðvelt að halda sér við efnið en það er líka erfitt að halda utan um þetta allt saman. Augnlitur: Blár. Starf: Nemi. Fjölskylduhagir: Bý með foreldrum og systur og er einhleypur. Hvaðan ertu? Reykjavík, Íslandi. Ertu hjátrúarfullur? Nei, ég trúi ekki á drauga eða neina hjátrú og er líka trúleysingi. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Dexter. Þeir þættir eru frábærir. Uppáhaldsmaturinn: Pitsan hennar mömmu, hún er langbest. Fallegasti staðurinn: Jökulsárlón á björtum sumar- degi. iPod eða geislaspilari: Klárlega iPod. Hvað er skemmtilegast? Að spila á tónleikum þar sem fólk er greinilega að skemmta sér. Hvað er leiðinlegast? Að vera ekki viss um næsta skref í því sem maður tekur sér fyrir hendur. Helsti veikleiki: Óskipulag. Helsti kostur: Ég er mjög ábyrgðar-fullur. Helsta afrek: Að lifa af eitt sumar sem verksmiðju- starfsmaður, það er ömurlegt. Mestu vonbrigðin? Launin fyrir verksmiðjustarfið. Hver er draumurinn? Frægð og frami sem tónlistarmaður. Hver er fyndnastur/fyndnust? Keli í Agent Fresco. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar fólk hættir við sögur. Til dæmis; Hei! veistu … Æ sleppum því bara. Hvað er mikilvægast? Að fylgja sínum eigin sannfæringar-krafti. HIN HLIÐIN BORGÞÓR JÓNSSON BASSALEIKARI AGENT FRESCO Finnst pitsan hennar mömmu langbest 24.08. 1989
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.