Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 86

Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 86
46 7. mars 2009 LAUGARDAGUR Fyrstu minningar Gunnars Ólafssonar, jarls og formanns víkingafélagsins Ein- herja í Reykjavík, tengjast víkingum. Aðeins tveggja ára gamall man hann eftir því að hafa starað á styttuna af Leifi Eiríkssyni og hrifist af. „Við flutt- um síðan til Bandaríkjanna og bjugg- um þar í tuttugu ár. Við komum stund- um til Íslands í heimsókn. Þá fannst mér ég aldrei vera kominn heim í land víkinganna fyrr en ég sá styttuna af Leifi,“ segir Gunnar sem hefur alla tíð safnað öllu mögulegu sem tengist vík- ingum og lesið sér til um þessa fornu bardagamenn. Fyrir þremur árum gekk hann í vík- ingafélagið Rimmugýgi í Hafnarfirði. „Ég vissi hins vegar um marga sem höfðu mikinn áhuga á víkingum og greinilega þörf á félagi í Reykjavík,“ segir Gunnar sem ákvað eftir tvö ár í Rimmugýg að stofna annað félag í Reykjavík og það var gert í Norræna húsinu 8. mars í fyrra. Stofnfélagar víkingafélagsins Ein- herja voru 23 en félagar eru í dag um 60. „Við höfum ekki verið að auglýsa okkur heldur höfum verið að þróa fé- lagið,“ segir Gunnar en eingöngu þrjár konur eru í félaginu. Gunnar vill endi- lega fjölga þeim. „Við viljum vera fjöl- skyldufélag og tengjast þannig land- námstímanum þar sem við verðum samfélag karla, kvenna og barna,“ út- skýrir Gunnar sem ekur um á bíl með einkanúmerið Viking. Gunnar segir víkingaáhuga sinn meðfæddan. „Afi minn var sterkasti maður Íslands, Gunnar Salómonsson, kallaður Úrsus. Hann var með krafta- og víkingasýningar frá árinu 1930,“ segir Gunnar sem er engin smásmíði sjálfur og örugglega nokkuð mikilfeng- legur í fullum herklæðum. En hvað aðhafast Einherjar? „Ég hitti víkingafélaga mína nánast hvern einasta dag. En við æfum tvisvar í viku leikni í vopnaburði,“ segir Gunn- ar en víkingar Einherja læra að hand- leika ýmis vopn eins og sverð og exi. Þá er einnig lögð stund á hina íslensku glímu. Sérstakir þjálfarar eru fengnir til að kenna handbrögðin. Á þessu ári frá stofnun félagsins hafa Einherjar einnig verið duglegir við að fara í skóla og halda sýningar. „Svo fórum við á barnaspítala Hrings- ins á öskudaginn og þar eru sannar hetjur,“ segir Gunnar sem á sínum tíma æfði lyftingar með Jóni Páli heitn- um og á sögu að segja af því. „Jón Páll varð frægur fyrir setningu sína „I am a viking“, en það kemur frá þeim tíma sem við vorum að kallast á í æfinga- salnum,“ segir Gunnar kankvíslega. Hann er nú beðinn um að útskýra hvaðan nafnið Einherjar kemur. „Nafn- ið Einherjar kemur úr goðafræðinni og er heitið á her Óðins í Valhöll. Í Valhöll eru samkvæmt sögunni 540 herbergi og í hverju herbergi eru 800 stríðs- menn Óðins sem allir eru kallaðir Ein- herjar,“ segir Gunnar en hinir reyk- vísku Einherjar ætla að hittast í kvöld og halda upp á árs afmælið. Gunnar segir alltaf ríkja gleði þegar víkingar komi saman og að öllum líkindum verði kneifað öl að víkinga sið. Þeim sem vilja kynna sér starfsemi Einherja nánar er bent á vefsíðuna www.einherjar.is. solveig@frettabladid.is VÍKINGAFÉLAGIÐ EINHERJAR Í REYKJAVÍK: EINS ÁRS AFMÆLI UM HELGINA Fæddist með víkingaarfinn JARL Gunnar Ólafsson, formaður víkingafélagsins Einherja, bregður sverði á loft. Eitt ár er liðið frá stofnun Einherja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MAURICE RAVEL (1875-1937) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Eina ástarævintýrið sem ég hef átt er við tón- listina.“ Maurice Ravel var franskt tónskáld og píanóleikari. Hann er einna þekktast- ur fyrir hljómsveitarverk- ið Boléro. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ást- kærrar eiginkonu minnar, móður, tengda- móður og ömmu, Kristínar Sigurðardóttur. Sérstakar þakkir til starfsfólks R3-deildar á Grensási og líknardeildar LSH í Kópavogi fyrir einstaka umönnun. Gunnar Þór Júlíusson Júlíus Þór Gunnarsson Thelma Björk Árnadóttir Alex Már Júlíusson Birkir Óli Júlíusson Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir, barnabarn og tengdasonur, Árni Jakob Hjörleifsson Smáratúni 33, 230 Keflavík, sem lést hinn 28. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju 10. mars kl. 14.00. Geirþrúður Ó. Geirsdóttir Kristófer Örn Árnason Sigríður Árnadóttir Arna Björk Hjörleifsdóttir Högni Sturluson Ingvi Þór Hjörleifsson Aðalheiður Ó. Gunnarsdóttir Halldór H. Hjörleifsson Þuríður Halldórsdóttir Geir Þorsteinsson Linda Kristmannsdóttir Ósk Sigmundsdóttir og aðrir ástvinir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Salómonsson Núpalind 8, Kópavogi, andaðist á líknardeild Landspítalans 23. febrúar. Útförin hefur farið fram. Kærar kveðjur til allra þeirra sem studdu hann og okkur í veikindum hans, ekki síst til Kristínar fararstjóra á Kanarí. Erla Gerður Högnadóttir Sigursteinn Gunnarsson Guðjón Gunnarsson Kolbrún Ýr Jóhannsdóttir Guðrún Erla Sigursteinsdóttir. Sendum okkar alúðarþakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar sambýlis- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu, systur, mágkonu og frænku, Elínar Áróru Jónsdóttur Asparfelli 8, Reykjavík. Sendum sérstakar þakkir til allra þeirra sem komu að aðhlynningu hennar. Bjarni Guðmundur Gissurarson Jón Svavar Jónasson Kolbrún Ósk Óskarsdóttir Ásthildur Jónasdóttir Jónbjörn Björnsson Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir Sturla Már Jónasson Kristín Fjeldsted Jónas Jónasson Gabríela Medina barnabörn og barnabarnabörn. Margrét Halla Jónsdóttir Hörður Skarphéðinsson Ásthildur Jónsdóttir Svanhildur Jónsdóttir Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristínar Magnúsdóttur Fellsmúla 22, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eir. Björn Sigurður Benediktsson Margrét Kristín Finnbogadóttir Haraldur Benediktsson Brynja Halldórsdóttir og aðrir ástvinir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorvaldur Ólafsson Hæðargarði 33, Reykjavík, sem lést á Landakoti föstudaginn 27. febrúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 9. mars kl. 15.00. Siggerður Þorvaldsdóttir Baldur S. Baldursson Guðbrandur Þór Þorvaldsson Bryndís D. Björgvinsdóttir Júlíana P. Þorvaldsdóttir Guðmundur M. Björgvinsson Atli Þór Þorvaldsson Hafdís Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, Guðbjargar Pálsdóttur Dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar fyrir einstaka umönnun og kærleika. Páll Þór Jónsson Hallfríður Helgadóttir Sigríður Ragnheiður Jónsdóttir Guðrún Pálsdóttir Vilhelm Gauti Bergsveinsson Hákon Pálsson Auður Guðbjörg Pálsdóttir Hildur Briem Árni Briem Sigrún Inga Briem Gunnar Ingi Briem og barnabarnabörn. Þennan dag árið 1902 var Sögu- félagið, félag áhugamanna um sagnfræði, stofnað. Forgöngu um félagsstofnunina höfðu þrír ein- staklingar, Jón Þorkelsson lands- skjalavörður, Hannes Þorsteins- son ritstjóri og Jósafat Jónasson ættfræðingur. Meginmarkmið fé- lagsins var í upphafi að gefa út heimildir um sögu Íslands sem almenningi voru enn hulinn leyndardómur, eins og forgöngu- mennirnir komust að orði. Árið 1950 hóf Sögufélagið út- gáfu tímaritsins Sögu sem hefur æ síðan verið kjölfesta í starfi fé- lagsins. Árið 1991 eignaðist félagið eigið húsnæði, Fischersund 3. ÞETTA GERÐIST: 7. MARS 1902 Sögufélagið er stofnað GRJÓTAÞORP Sögufélagið er til húsa í Fischersundi 3.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.