Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2009, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 07.03.2009, Qupperneq 74
R ústað, leikverk eftir Söru Kane. Leiksviðinu var rústað. Persónun- um var rústað. Allt varð ein rjúkandi rúst. Efni- viðurinn er svívirðilegur. Efnis- tökin eru líka svívirðileg. Ég leyfi mér að halda því fram að sýning verksins á sviði Borgarleikhússins sé svívirðileg móðgun við leikhús- gesti. Ef listin felst í því að hrúga saman hránöktum ofbeldisatriðum pökkuðum inn í samtvinnuð klúr- og blótsyrði þá viðurkenni ég van- mátt minn til slíkrar listskynjunar. Loksins, loksins! Magnað verk, heit kartafla sem kastað er í fang prúðbúinna leikhúsgesta, verk skrifað inn í íslenskan veruleika, ögrandi, gargandi snilld. Íslenska listaelítan hefur ekki látið sitt eftir liggja í hástemmdum umsögnum um verkið. Ef fólk spyr sig þess virkilega hvernig hægt sé að skrifa leikrit um slíkan hrylling hlýtur það að vera vísvitandi barnalegt. Við vitum jú öll að heimurinn er uppfullur af hryllingi. Ofbeldi og hryllingur hafa fylgt manninum frá upphafi. Engin skepna á jarðar- kringlunni gervallri er grimmari en maðurinn. Það þarf hvorki Söru Kane né nokkurn annan til að upp- ljúka augum okkar fyrir tilvist hins illa, helvítis á jörð. Séum við ómeðvituð um það hljótum við að vera bæði blind, heyrnarlaus og til- finningalega steindauð. Við höfum hryllinginn, ofbeldið og grimmd- ina fyrir augum og eyrum daglega heima í stofu í fréttatímum fjöl- miðlanna. Þar birtist hryllingurinn í sinni nöktustu og hráustu mynd, hann er raunverulegur, sannur. Þar er raunverulegt fólk sem þjáist raunverulega og það snertir okkur, vekur upp litróf kenndanna, til- finninganna. Leikverk Söru Kane er byggt upp af samþjöppuðu, harðsoðnu, hráu ofbeldi og hryllingi eins sví- virðilegu og verst getur orðið. Textinn er uppvafinn orðahnykill verstu og svívirðilegustu klúr- og blótsyrða sem finnast í tungu- málinu. Það er ekkert leikrænt, hvorki við efniviðinn, efnistökin né textann. Varla að votti fyrir leikrænni spennu nema ef vera kynni í upphafi verksins. Tvær persónur í lokuðu rými. Eitthvað hlýtur að gerast, eitthvert uppgjör að fara fram milli þeirra. En nei, bara runa gegndarlauss ofbeldis, grimmdar, hryllings og klúryrða í örlítið mismunandi útgáfum. Svið- setningin er flott og frammistaða leikaranna fín. Enda varla við öðru að búast. Við erum jú í atvinnuleik- húsi þar sem fólk kann til verka. En atvinnu- og fagmennska dugði ekki til að gæða verkið lífi. A.m.k. náði það ekki að hræra við mér. En það vakti mér hins vegar kenndir. Ég varð foxill út í sjálfa mig fyrir að láta leikhúsið hafa mig að fífli. Athafnir leikaranna á sviðinu sem áttu að vera ofbeldisfullar og hryllilegar fannst mér svo hallær- islegar og hreinlega gróteskar að ég fór hjá mér fyrir þeirra hönd. Persónurnar í verki Söru Kane snertu mig ekki frekar en verkið í heild sinni. Þær vöktu mér enga samúð, enga reiði, enga fyrirlitn- ingu, engan hrylling, ekkert hatur, ekkert. Þær voru holar, innantóm- ar fígúrur, jafnmiklar klisjur og ofbeldið og hryllingurinn. Hlaup- andi fólk með angistina rista í hvern andlitsdrátt sem við höfum séð á fréttamyndum úr öllum stríð- um og hörmungum heimsins vekja hins vegar sterkar tilfinningar, sterk viðbrögð; reiði, hatur, dep- urð, vonleysi, umkomuleysi gagn- vart heimsósómanum. Auðvitað er hægt að skrifa leik- rit um hryllinginn á sama hátt og ástina, hatrið og hvaðeina sem í heiminum býr. Fjölmargir lista- menn hafa frá örófi fjallað um grimmdina, oft á mjög áhrifamik- inn hátt. Hins vegar mætti spyrja í hvers konar heimi við búum sem hampar leikverki sem þessu. Leik- verki þar sem ofbeldinu og hryll- ingnum er samþjappað að því er virðist án nokkurs tilgangs annars en að sýna það sem hránaktast. Leikverki þar sem hvergi er að finna leikræna spennu né leikræna framvindu. Leikverki þar sem textinn er svo flatur og tilgangs- laus í eigin sora að maður hættir að hlusta mjög fljótlega. Leikverkið Rústað vakti engin viðbrögð einfaldlega vegna þess að það er fullkomlega náttúrulaust í öllu sínu samþjappaða ofbeldi, hryllingi, grimmd og fúkyrðum. Þegar best lætur snýst verkið upp í lágkúrulegt hallæri, gróteskan hrylling, gróteska grimmd. Grótesk grimmd LEIKLIST JÓRUNN TÓMASDÓTTIR Greinarhöfundur er ekki hrifinn af umtalaðri sviðsetningu Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi á frægu verki Söruh Kane, Rústað. MYND LR/GRÍMUR Hringdu í síma ef blaðið berst ekki „Maður getur alltaf valið hvernig maður vinnur vinnuna, jafnvel þótt maður geti ekki valið vinnuna sjálfa.“ Lykillinn er ... jákvæðni Salka –forlag með sál „Á þessari stundu eru hugsanir þínar að móta framtíð þína. Það sem þú hugsar mest um eða einbeitir þér að mun birtast þér á lífsleiðinni.“ Í tilefni sjötugsafmælis Atla Heimis Sveinssonar í september 2008 efnir Sinfóníuhljómsveit Íslands til hátíðartónleika þar sem tvö af hans merkustu hljómsveitarverkum frá fyrri tíð hljóma, Flautukonsert og Hreinn: Gallerí SÚM . Auk þess verður frumflutt glæný og spennandi sinfónía eftir þennan fjölhæfa og afkastamikla listamann, sú sjötta í röðinni. SÍUNGUR OG SÍGILDUR ATLI HEIMIR SJÖTUGUR Nánari upplýsingar um tónleika og nýjustu fréttir er ávallt að finna á www.sinfonia.is Hljómsveitarstjóri | Baldur Brönniman Einleikari | Melkorka Ólafsdóttir FIMMTUDAGUR 19. MARS | kl. 19.30 Atli Heimir Sveinsson | Hreinn Gallerí SÚM Atli Heimir Sveinsson | Flautukonsert Atli Heimir Sveinsson | Sinfónía nr. 6 (frumflutningur)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.