Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 32

Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 32
32 7. mars 2009 LAUGARDAGUR Þegar Rósa Ingólfs stóð á hátindi frægðarinnar gaf hún út ævisögu sem núverandi forsætisráð- herrafrú, Jónína Leósdóttir, skrásetti. Bókin kom út árið 1992 og Alþýðublaðið lýsti henni sem hressilegustu ævisögu ársins. Mesta athyglina vöktu sögur Rósu frá Þjóðleik- húsinu sem dagblöðin tóku upp á sína arma. DV birti þann hluta bókarinnar á heilsíðu þar sem sagt var frá uppáferðum leikara og brennivíns- drykkju þegar Fiðlarinn á þakinu var settur upp. Svo langt gengu víst ástaratlotin og framhjáhöld- in að einn leikarinn hélt við erlenda leikstjórann beint fyrir framan nefið á öllum, þar með taldri eiginkonu sinni. ÆGILEGAR ÍSLENSKAR ÆVISÖGUR Segja má að ævisagnaritun sé ein af þjóðaríþróttum Íslendinga. Ritvöllurinn getur reynst sleipur viðfangs og oftar en ekki hef- ur afraksturinn ekki síður hneykslað en skemmt. Júlía Margrét Alexandersdóttir rótaði í ævisögum á Bókamarkaði Perlunnar og dustaði rykið af nokkrum gömlum krassandi slögurum. Úti í hinum stóra heimi tíðkast að blaðamenn og sagnfræðingar gefi út ævisögur þekktra manna án þeirrar vitundar. Á Íslandi er þessi „list“ afar fátíð en Kári í Jötunmóð, um Kára Stefánsson, er undantekning á þeirri reglu. Sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson fer yfir feril Kára og sögu DeCode og þótt allir hafi verið að tala um þennan mann með sérkenni- lega hreiminn seldist bókin illa, fólk vildi ekki trúa neinu illu upp á hetjuna Kára, súperstjörnu Íslands. Kári var enda ekki sáttur við skrif Guðna og sendi frá sér yfirlýsingu sem birtist í Morgun- blaðinu 2. desember 1999. Þar gaf hann Guðna og bókinni langt nef, sagði sagnfræðinginn fara með rangt mál. Sagan hefur nú farið í hálfhring; DeCode berst í bökkum en stjarna Guðna hefur aldrei skinið jafn skært. Anna Kristine Magnúsdóttir skrifaði frásagnir fimm þekktra kvenna í Litrófi lífsins sem kom út 2001. Sigríður Geirsdóttir stal senunni þegar hún talaði opinskátt um ástarsamband sitt við Ólaf Ragnar Grímsson forseta á þeirra yngri árum. Forsetanum var lýst sem órómantískum en þó blíðum og kurteisum manni. Hann hafi verið kommúnisti og hvorki trúað á Guð né hjóna- bandið. Sigríður var fyrrum ungfrú Ísland og ferðað- ist vítt og breitt um heiminn og snæddi með frægðarfólki og auðjöfrum. Hún þurfti að þola rætnar kjaftasögur um sig og dvölina í Ameríku, meðal annars að hún hefði verið vændiskona í New York. Gróa á leiti varð að lokum til þess að Ólafur sleit sambandi sínu við hana og útskýrir Sigríður það þannig að Ólafur hafi hugað á frama í stjórnmálum. Og þá máttu menn ekki hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Ævisaga Lydiu Pálsdóttur Einarsson var hluti af miklu ævisagnaflóði árið 1992 en þá komu út 25 ævisögur fyrir jólin. Fjölmiðlakonan Guðrún Helga Johnson skrásetti ævisögu Lydiu sem var eiginkona listamannsins Guðmundar frá Miðdal. Bókin naut einhverra vinsælda enda verður seint sagt að fullkomin sátt hafi ríkt um hjónaband Guðmund- ar og Lydiu þótt fáir myndu kannski kippa sér upp við það í dag. Guðmundur var nefnilega áður kvæntur móður Lydiu. Ekki skemmdi það svo fyrir að Íslendingar fengu nasasjón af lífi og listum þjóðþekktra manna á borð við Jóhannesar Kjarval og Einars Jónssonar og slíkar kræsingar hefur þjóðin alltaf kunnað að meta. Þegar læknir í Kanada skrifar ævisögu sína eru fáir sem finna fyrir einhverri sérstakri þörf til að rjúka út í búð. En ef læknirinn heitir Björn Jónsson, er kallaður „Bjössi bomm“, ævisagan heitir Þurrt og blautt að vestan og skartar mynd af læknatólum og viskíflösku þá kveikir slíkt í mörgum. Helgi heitinn Hálfdanarson útskýrði síðan fyrir lesendum Morgunblaðsins hvaðan „bomm“- nafnið væri komið skömmu eftir útgáfu bókar- innar en Helgi og Björn voru samtíðarmenn á Sauðárkróki sem strákar. „Hann hrópaði einatt bomm þegar hann hæfði skotmark sitt með steinvölu,“ skrifaði Helgi en ævisaga Björns er uppfull af daðri við fallegar konur, drykkjuskap og frásögnum af óhefðbundnum lækningum meðal indíána. „Það sem mér finnst tvímælalaust standa upp úr eftir lestur bókarinnar […] er aðdáun á því hvernig Matthildi Jónsdóttur Campbell tókst upp á eigin spýtur að koma sér út úr þeim vítahring heróínneyslu og vændis sem hún hafði um árabil setið föst í,“ skrifar Gunnlaugur A. Jónsson, bóka- gagnrýnandi DV, um bók Hafdísar L. Pétursdóttur, Í viðjum vímu og vændis. Bókin vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 1993 enda voru hugtök á borð við „vændi“ og „heróín“ í órafjarlægð frá íslenskum veruleika. DV og Dagur birtu bókarkafla og Matthildur varð umtalaðasta manneskjan á Íslandi þau jól. Bókin seldist ekkert sérstaklega vel enda voru hvorki heróín né vændi neitt sérstaklega jólaleg og siðprúðum borgurum þótti ekki við hæfi að lesa um hórur og eiturlyf eftir jólasteikina. Margir biðu spenntir eftir bókinni Afbrigði og útúrdúrar sem kom út árið 2005 enda hafði höfundurinn, Kjartan Sveinsson, gefið fyrirmæli um að hún mætti ekki koma út fyrr en eftir árið 2000. Kjartan var skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands og kunni deili á mörgum nafntoguðum mönnum og sögur af þeim. Sigurjón Björnsson, gagnrýnandi á Morgun- blaðinu, var lítt hrifinn af þessari útgáfu í dóm sínum. Tók upp hanskann fyrir marga af þeim sem birtast ljóslifandi í bókinni og nægir þar að nefna Bjarna Sæmundsson, Sigurð Nordal og Guðmund Finnbogason en þeir voru ýmist sagðir vera smásálir, nískupúkar, drykkjumenn eða hálf- vitar. Sigurjón lýkur síðan dómi sínum með þeim orðum að kannski hefði útgefandinn mátt hugsa sig tvívegis um. En hver veit? Á dögum kláms og krimma ætti illmælgi og slúður ekki að spilla fyrir. Allt er gott ef líkur eru á að það seljist. Líka hjá Máli og menningu. Kári í Jötunmóð Rósumál Lífsganga Lydíu Björn Jónsson Í viðjum vímu og vændisLitróf Lífsins Afbrigði og útúrdúrarSvínahirðirinn „Saga dæmigerðs Íslendings sem sækir vatnið yfir lækinn,“ skrifaði Kristín Ólafs, gagn- rýnandi Morgunblaðsins um ævisögu Þórhalls Vilhjálmssonar, Svínahirðirinn. Bókin sætti nokkrum tíðindum enda góð innsýn í líf hinna frægu og ríku. Þórhallur var bryti rithöfundar- ins Daniellu Steel og hafði meðal annars það hlutverk að gæta svínsins Coco, gæludýrs frú Steel. Svínahirðirinn náði sjötta sæti vinsældalista Morgunblaðsins en á þeim tíma voru ekki komnir fram hinir íslensku auðjöfrar með allt sitt glingur. Þess verður þó vonandi ekki langt að bíða að brytar útrásarvíkinganna breyti upplifunum sínum í ævisögur á borð við Svínahirðinn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.