Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 17

Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 17
Jón Kristjánsson á í fórum sínum undrasögu af íslensku dýrafóðri sem umboðsmaður neytenda fjallaði um fyrir stuttu: „Hundurinn minn var alltaf með stöðugt hárlos, fór ekki úr hárum á eðlilegan hátt. Ég prófaði margar gerðir af plastfóðri frá útlöndum, vítamín og ég veit ekki hvað, en ekkert gekk. Síðastliðið haust prófaði ég Iceland pet frá Ifex og aðeins tveimur vikum síðar hætti hárlosið alveg og hefur ekki komið síðan. Það sést mjög vel og maður finnur á lyktinni að þetta er alvöru. Ég fóðra ekki á þurrfóðri eingöngu því afgangar heimilisins fara í hundinn. Hann er eins og við, vill ekki fá það sama dag eftir dag. Frábært fóður og ekki skemmir verðið fyrir.“ Takk fyrir það, Jón. En staðgengill umboðsmanns neytenda hljóp á sig í gær, þar sem talað var um smátt letur hjá leiga. is. Jóhann hjá leiga.is hafði samband og benti réttilega á að á síðunni sé ekkert smátt letur að finna, einfaldlega vegna þess að það hafi verið fjarlægt stuttu eftir áramótin. Þá hafi leiga.is ákveðið að bjóða upp á algjörlega fría skráningu vegna efnahagsástandsins. Núna sé þjónustuleið 4 hjá fyrirtækinu sannarlega frí í allt að þrjátíu daga, en að þeim tíma liðnum sé eignin tekin af skrá ef ekki er samið um aðrar þjónustuleiðir. Leiga.is hefur einnig ákveðið að láta gott af sér leiða með því að styrkja Mæðrastyrksnefnd um eina krónu fyrir hvern þann sem notar síðuna. Gott framtak það, og staðgengill umboðsmanns biðst afsökunar á mistökunum. NEYTENDUR: Íslenskt dýrafóður vekur mikla lukku Íslenskt fóður hamlar hárlosi ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is KJARTAN GUÐMUNDS- SON staðgengill umboðsmanns neytenda DÓMSMÁL Ríflega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, vopna-, áfengis- og hættulögum. Maðurinn er sakaður um að hafa hótað lögreglumönnum líf- láti á Akureyri júnínótt eina í fyrra og ógnað þeim með gler- flösku. Daginn eftir hafi hann verið með óspektir á hafnarsvæð- inu í Grímsey, gengið um ölvaður og vopnaður ýmist hníf, sleggju eða grjóti, verið með háreysti og hótað viðstöddum. Þá hafi hann á ógnandi hátt sviflað hníf í átt að manni og kastað síðan sleggju á eftir honum og þannig stofnað lífi hans í hættu. - sh Ungur maður ákærður: Sleggjukastari hótaði lögreglu Ármúla 30 | 108 Reykjavík | Sími 560 1600 | www.borgun.is Borgun er eina fyrirtækið á landinu sem býður heildarlausn í færsluhirðingu. Fyrirtæki sem eru með öll kortaviðskipti hjá Borgun njóta betri kjara og fá betri yfi rsýn yfi r tekjur með einu uppgjöri fyrir öll kortaviðskipti. Með Borgun tekur þú við öllum kortum. AUÐVELDAR VIÐSKIPTI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.