Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 4

Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 4
4 7. mars 2009 LAUGARDAGUR Sigurjón Hauksson, starfsmaður handverkstæðisins Ásgarðs, var rangnefndur Sigurjón Ægir Sigurðs- son á forsíðu Fréttablaðsins í gær. Fréttablaðið biðst velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTING ATVINNUMÁL Ríkisstjórnin sam- þykkti á ríkisstjórnarfundi í gær að hrinda í framkvæmd áætlun í ellefu liðum sem ætlað er að skapa ríflega fjögur þúsund árs- verk á næstu misserum. Fyrir- ferðarmest er atvinnusköpun í byggingariðnaði og aðgerðir til að bæta stöðu nýsköpunarfyrir- tækja. Vonir standa til að fimm verkefni sem tengjast virkjunar- framkvæmdum og orkufrekum iðnaði geti skapað tvö þúsund störf til viðbótar. Vonast er til að tillögurnar verði komnar til fram- kvæmda í sumarbyrjun. Tillögurnar eru þær fyrstu sem byggðar eru á starfi stýri- hóps ríkisstjórnarinnar í atvinnu- málum, sem Össur Skarphéðins- son iðnaðarráðherra er í forsvari fyrir. Hann segir að fjögur þús- und ársverk sé varfærin tala; störfin gætu orðið nær fimm þús- und. Á það ber að líta að um áætlaða fjölgun starfa er að ræða út frá ýmsum forsendum sem óljóst er hvort ná fram að ganga, eins og skýrt kemur fram í tillögunum. Sumt hljómar þar kunnuglega, eins og 600 störf við byggingu tónlistarhúss í Reykjavík sem telst með þeim 1.700 ársverkum sem eiga að falla til í byggingar- iðnaði. Hins vegar eru stór verk- efni á teikniborðinu sem ekki eru tekin með í reikninginn, að sögn Össurar. Til þessa verks á að nýta fjár- muni sem liggja fyrir í sjóðum ráðuneyta en einnig Atvinnu- leysistryggingasjóði og hugsan- lega Íbúðalánasjóði. Um upphæð- ir í þessu sambandi fengust ekki skýr svör frá forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í gær. „Í fæst- um tilfellum er verið að leggja til beina fjármuni frá ríkinu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra. „Enda eru aðstæð- ur okkar þær að við getum ekki sett fjármuni í atvinnusköpun þó við gjarnan vildum.“ Jóha nna Sigurðardót t i r forsætisráðherra telur mikilvægt að um 1.500 af 4.000 störfum snúi að kvennastörfum sem síður hefðu fallið til ef hefðbundnum aðgerðum gegn atvinnuleysi hefði verið beitt, eins og uppbyggingu samgöngumannvirkja. „Þetta er mikilvægt innlegg til að sporna við að atvinnuleysi verði tíu pró- sent í maí, eins og í stefndi.“ Steingrímur sagði mikilvægt að einkaaðilar og sveitarfélög bregð- ist við og nýti ívilnandi kjör, til dæmis í skattamálum, og ráðist í framkvæmdir á þeim tíma sem þau bjóðast. svavar@frettabladid.is Áætlun ríkisstjórnar skapar 4.000 ársverk Áætlun ríkisstjórnar gerir ráð fyrir að um 4.000 ársverk skapist á næstunni. Flest störf snúa að byggingariðnaði og nýsköpun. Litlir fjármunir koma frá ríki. Störf í byggingariðnaði 1.700 ársverk Bætt samkeppnisstaða nýsköpunarfyrirtækja 1.000 ársverk Sérfræðingar af atvinnuleysisskrá til nýsköpunarfyrirtækja 300 ársverk Minni útflutningur óunnins fiskjar 300 ársverk Gróðursetning, grisjun og stígagerð 230 ársverk Endurgreiðslur/kvikmyndagerð 120-150 ársverk Snjóflóðavarnir 110 ársverk Orkuviðhald – orkusparnaður 50-100 ársverk Frumkvöðlasetur í Rvk. 100 ársverk Ferðaþjónusta 50 ársverk Fjölgun/listamannalaun 33 ársverk ELLEFU TILLÖGUR Í ATVINNUMÁLUM TILLÖGUR KYNNTAR Steingrímur J. Sigfússon, Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson kynntu tillögur ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FJÖLMIÐLAR Afnotadeild RÚV verður endanlega lögð niður um næstu mánaðamót. Að sögn Bjarna Péturs Magnússon- ar, deildarstjóra afnotadeildar, hefur starfsmönnum deildarinn- ar verið fækkað úr tíu í þrjá. Tveir þeirra þriggja sem enn starfa á deildinni hætta störfum um mánaðamótin næstu. Starfs- maðurinn sem eftir verður mun annast samskipti við lögfræðinga vegna óinnheimtra skulda. Afnotagjald Ríkisútvarpsins var lagt niður frá og með 1. jan- úar á þessu ári. - kg Breytingar hjá Ríkisútvarpinu: Afnotadeild lögð niður NEW YORK, AP Konum á löggjafar- þingum um allan heim hefur fjölgað um 60 prósent frá árinu 1995. Þær eru þó aðeins 18,3 pró- sent af heildarfjölda þingmanna en voru 11,3 prósent árið 1995. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðaþingmannasambandsins. Sameinuðu þjóðirnar gerðu sér eitt sinn vonir um að hlut- fall kvenna á löggjafarþingum yrði 30 prósent árið 1995. Enn sem komið er hafa aðeins 39 löggjafarþing náð því hlutfalli, þar á meðal Alþingi. Rúanda er eina landið í heim- inum þar sem meirihluti þing- manna er konur, eða 56 prósent. - bs Konum á þingi vex ásmegin: Fjölgað um 60 prósent frá 1995 Á ÞINGI Í KÚVÆT Nuría al-Sebih og Mudhi al-Humud eru báðar ráðherrar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Verk að vinna Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður býður sjálfstæðismönnum í Reykjavík í kosningakaffi á kosningaskrifstofu sinni í Skeifunni 17, í dag kl. 14:00. Allir hjartanlega velkomnir Komdu og spjallaðu við þingmanninn, barnahornið er á sínum stað. Laugardagskaffi með Sigurði Kára Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík 13. og 14. mars. www.sigurdurkari.is VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 20° 8° 4° 6° 5° 7° 7° 3° 4° 4° 21° 13° 17° 27° 0° 10° 15° 1° 0 0 -1 -1 -2 1 0 4 1 3 -4 5 8 15 5 4 3 2 2 6 4 5 0 2 1 0 -2 Á MORGUN 10-18 m/s hvassast á Vestfjörðum og austan Vatnajökuls MÁNUDAGUR 8-13 m/s -1 -2 -2 1 3 DAGURINN Í DAG Í dag verður fremur vindasamt á Vest- fjörðum, 10-18 m/s, hvassast nyrst og vest- ast með snjókomu af og til. Annars staðar verður hæglætisveð- ur en þó hætt við skúrum eða éljum sunnan og austan til, einkum síðdegis. Hiti 0-5 stig sunnan og austan til, mildast úti við ströndina annars vægt frost. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur DÓMSMÁL Tveir fyrrverandi starfs- menn Kaupþings hafa verið ákærð- ir fyrir markaðsmisnotkun. Þeir eru grunaðir um að hafa vísvit- andi búið til falska eftirspurn eftir skuldabréfum Existu, aðaleiganda Kaupþings, og hækka með því verð- ið á bréfunum. Þetta munu þeir hafa gert til að reyna að fegra stöðu pen- ingamarkaðssjóðs sem þeir störf- uðu við. Annar mannanna, Daníel Þórð- arson, var sjóðsstjóri sjóðsins og hinn, Stefnir Agnarsson, var skuldabréfamiðlari. Ákæran á hendur þeim var þing- fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í henni er þeim gefið að sök að hafa, snemma árs 2008, sex sinnum gert kauptilboð upp á fimm millj- ónir í bréf Existu við lok markaða, sem voru verulega mikið hærri en almennt verð bréfanna á mark- aði. Segir í ákærunni að þetta hafi verið gert til að hafa áhrif á dags- lokaverð bréfanna og gefa þannig eftirspurn eftir þeim og verð þeirra misvísandi til kynna. Daníel mætti fyrir dóm og neit- aði sök í málinu en Stefnir er hins vegar staddur erlendis. Þeim var báðum sagt upp störfum hjá Kaup- þingi um leið og málið kom upp á sínum tíma. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þótti brotið afar við- vaningslegt. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja það engan hafa skaðað nema starfsmennina tvo og enginn hafi heldur hagnast á því. Refsing fyrir brot af þessu tagi getur mest numið sex ára fangelsi s- vist. - sh Fyrrverandi starfsmenn Kaupþings ákærðir fyrir markaðsmisnotkun: Reyndu að hífa upp skuldabréfaverð ÁKÆRÐUR Daníel var sjóðsstjóri hjá Kaupþingi.Hann er hættur störfum. Tíu ára skaut átta ára Átta ára gamall piltur er alvarlega særður eftir skotárás á ferðamanna- stað í Tyneside á Englandi í gærkvöldi. Lögregla segir að tíu ára piltur hafi verið handtekinn vegna málsins. BRETLAND ATVINNUMÁL „Það eru margir gamlir kunningjar á þessari verkefnaskrá. Það er líka ákaf- lega holur hljómur í áformum þessarar ríkisstjórnar um atvinnuuppbygginu. Í sömu vik- unni og þessum áformum er teflt fram talar hún gegn uppbyggingu álvers í Helguvík og úr fjármála- ráðuneytinu berast skilaboð um verulegar skattahækkanir“, segir Bjarni Benediktsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins um áætl- un ríkisstjórnarinnar í atvinnu- málum. Bjarni minnir einnig á að ríkisstjórnin hafi nýlega sett sig upp á móti sjálfbærum hval- veiðum. „Þúsund ný ársverk nýsköpunarfyrirtækja eru ágæt áform en verkefnið sem ríkis- stjórnin á að einbeita sér að er að endurreisa bankakerfið og koma blóðflæðinu til atvinnustarfsem- innar í landinu í lag. Það er jafn- framt ekkert eitt sem skiptir eins miklu máli til að bjarga störfum og að lækka vexti.“ - shá Bjarni Benediktsson: Forgangsröðin röng og fátt nýtt á dagskrá GENGIÐ 06.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 186,5852 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 112,64 113,18 160,15 160,93 142,76 143,56 19,159 19,271 15,955 16,049 12,127 12,199 1,1647 1,1715 165,56 166,54 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ALÞINGI Mörður Árnason, þing- maður Samfylkingarinnar, hefur í þrígang reynt að bera upp fyrir- spurn til sjávarútvegsráðherra um áhrif fyrirhugaðra hvalveiða á fisksölu á erlendum mörkuðum. Jafn oft hefur hann ekki komist að í óundirbúnum fyrirspurnar- tímum í þinginu. Mörður vakti máls á þessu í þinginu á fimmtudag. Steingrím- ur J. Sigfússon brást hinn besti við og bað Mörð að leggja fram skriflega fyrirspurn sem hann myndi glaður svara á næstu dögum. Mörður tók Steingrím á orðinu. - bþs Áhrif hvalveiða á fisksölu: Þarf krókaleið til að fá svör
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.