Ísafold - 14.11.1906, Síða 3
ISAFOLD
299
Þórhallur Bjarnarson lektor
kvaðst aldrei hafa verið á fundi, sem
verið hefði að sér virtist jafn-gagntekinn
af kærleiks- og mannúðaranda. Hann
sagðist vona, að þá öldu legði yfir land
alt. Og oss væri það að kenna, fundar-
mönnum, ef sá andi yrði ekki búinn
að hertaka allan höfuðstaðinn eftir fáar
vikur.
Með ráði frumkvöðla fundarhaldsi ns
kvaðst hann vilja stinga upp á 12
nafngreindum mönnum ( skipulagsnefnd,
er semdi lög fyrir fótagið og kysi
væntaulega embættismenn þess úr sín-
um flokki.
Það var samþykt í einu hljóði, og
nefndin sömuleiðis kosin í einu hlj.
allir í einu lagi þessir 12 :
Ásgeir Sigurðsson kaupmaður,
Björn Jónsson ritstjóri,
Eiríkur Briem prestaskólakennari,
Guðmundur Björnsson læknir,
Guðm. Guðmundsson fátækrafulltrúi,
Guðmundur Magnússon læknir,
Hjörtur Hjartarson trésmiður,
Klemens Jónsson landritari,
Matthias Þórðarson ritstjóri,
M. Lund lyfsali,
Olafur Olafsson fríkirkjupr.
Sighvatur Bjarnason bankastjóri.
Þeir kusu eftir fundarlok formann
fyrir félagið Klemens Jónsson
landritara, eti ritara Björn Jónsson
ritstjóra, og féhirði Sighvat Bjarna-
son bankastjóra.
Því næst veru kosnir til að semja
lög fyrir fólagið þeir Guðm. Björnsson,
Björn Jóussou og Eiríkur Briem, og
til að orða ávarp til þjóðarinnar Guðm.
Björnsson, Guðm. Magnússon og síra
Ólafur Ólafsson.
Það mæltu margir fundarmenn, að
aldrei hefði þeir á futidi verið hér í
bæ með jafnmiklum einingaranda og
bróðernis. Þeim sagðist vel, sem töluðu,
og bar ekki í milli nokkurt orð eða
atriði. Auk ræðu frummælanda (G. B.)
fanst mönnum einkum til um það, sem
Einar ritstjóri Hjörleifsson talaði, svo
stutt sem það var.
Reykjavikur-annáll-
Barnadauði er hér i hæ i frekara lagi utn
þessar mundir, af magaveikindum, og eigna
sumir slæmu neyzluvatni.
Dáinn er 8. þ. m. Einar Sigvaldason, fyrr-
im útvegsbóndi, 83 ára.
Hjúskapur. Guðmundur Jónsson í Litla-
Steinsholti og yngismær Guðný Sigmunds-
dóttir, 11. nóv.
Magnús Geir Guðnason steinsmiður og
yrn. Eggertina Gnðmundsdóttir, 11. nóv.
Oddbergur Oddsson og ym. Hólmfriður
Jónsdóttir (Frakkastíg 4), 10. nóv.
Sigurgeir Olafsson og ym. Sigríður Vig-
fúsdóttir (Laugav. 17), 13. nóv.
Stefán Ingvarsson frá Kalmanstjörn og
ym. Jensína Teitsdóttir(Hverfisg.ðO), lO.nóv.
Kaupmannafélag Reykjavikur. Þar voru
kosnir i stjórn nýlega Ásgeir Sigurðsson
formaður, B. H. Bjarnason ritari, Ben. S.
Þórarinsson féhirðir. Varamenn Gunnar
Einarsson og Sveinn Sigfússon.
Samein. félag. S/s Vesta kom loks í gær-
kveldi norðan um land og vsstan, 13 dög-
um á eftir áætlun, með fátt af farþegnm.
— Skálholt ókomið enn.
Aukaskip s/s Eshjerg kom á laugardags-
kveld 10. þ. m., beint frá Khöfn, með full-
fermi af vörnm.
Thorefélag. S/s Tryggvi kongur lagði á
•tað hingað írá Khöfn laugard. 10. þ. m.,
réttan áætlnnardag, segir simskeyti þaðan.
Veðrátfa. Sifeldar rigningar og frost-
leysur, með nógum stormum.
Ytns tíðindi erlend.
Frá Noregi.
Vinstrimenn urðu í rífum meiri hluta
í 8tórþingÍ8kosuÍDgum í Norvegi í haust,
76 af 122, og ætluðust til helzt, að
þeir Michelaen og haua sessuuautar i
ráðuneytinu færu frá völdum í þing-
byrjun, með því að hann hafði stuðst
við sambræðing af öllum flokkum, ekki
síður hægrimenn eD viustri.
þing var Bett 22. okt., með hásætis-
ræðu, hiuni fyrstu frá hinum nýja kon-
ungi. J>au voru þar bæði við, kon-
ungshjóuin, og var því tjaldað, er til
var til viðhafnar; en einkennisbúning-
ur enginn á ráðgjöfunum. þeir og þing-
mennirnir nær allir báru 7. jÚDÍ-
medalíu, til minningar um upphaf að
sjálfstæði ríkisiua.
Hásætisræðunni skyldi svara með
trúnaðartrausts-atkvæði til stjórnarinn-
ar. f>að vildi meiri hlutinn, vinstri-
menn, láta vera bundið fylgi við stjórn-
arstefnu þeirra. En Michelson vildi
ekki ganga að því; og varð úr margra
daga rimma, er svo lauk, 31. okt., að
Michelsen vann mikinn sigur, fekk með
sér 103 atkv. af 121. f>ó var búist
við, að hann og þeir félagar yrðu ekki
við völd leDgur en fram um áramótin;
sleppi þeim þá að fyrra bragði, með
óskertri frægð ainni fyrir akilnaðar-
afrekið, en við taki einlægir meirihluta-
menn á þingi, eins og það er nú skip-
að, og stýri í þá átt, er vinstrimenD
vilja vera láta.
þinghríð þessi jók enn orðstír Mi-
chelsens fyrir frjálsmannlegan skörungs-
skap og snarræði.
Nýleg hraðfrétt gat þess, að hann
hefði skift um tvo sessunauta síua,
til geðs meiri hlutanum, vinstrimönn-
um. Annar hinna nýju ráðgjafa, Sven
Aarrestad, er og hefir lengi verið höfð-
ingi bindindisliðsins í Norvegi.
Frá Russlandi.
Keisari hefir stefnt til þings á út-
mánuðum.
Witte greifi, sá er var yfirráðgjafi
BússakeÍBara í fyrra, hefir farið svip-
ferðis á fund peningamanna í París að
leita fyrir sér um nýtt lán handa stjórn-
inni f Pétursborg.
það bar til um miðjan f. mán. á
einum stað í Perm-sýslu á Rússlandi,
að rænt var miklum birgðum af sprengi
tundri, er nota átti til járnbrautar-
lagningar. Varðmenn þeir tveir, er
tundurforðans skyldu gæta, fundust
dauðir að morgni með snöru um háls
og vopnlausir.
Ráðist var 26. okt. í Pétursborg á
vagn með mikilli pem'ngasendingu f,
sem svarar 1 milj. kr., á leið til stjórn-
arféhirzlunnar, hent á hann sprengi-
kúlu og féð hirt eins og það var. Ræu-
ingjarnir komust á burt með féð nokkr-
ir. En þeir náðust, er sárir urðu af
sprengingunni, og voru dæmdir af lífi
og hengdir 2 dögum eftir.
Um mánaðamótin síðustu var myrt-
ur lögreglustjóri í Sevastopol. Hann
hét Mikaillow. Morðinginn náðist, var
dæmdur og líflátinn að vörmu spori.
Frá Frakklandi.
Fullur helmingur hins nýja ráðu-
neytis á Frakklandi eru gagnbreytinga
menn og jafnaðarmenn. Yfirráðgjafinn
nýi, Clemenceau, er einn hinn mesti
írelsisgarpur Frakka, annar en Gam-
betta forðum, hefir verið á þingi lengst
af um eða yfir 30 ár og ráðið þar
mjög miklu að jafnaði. f>að þótti
djarft ráðið, er hann gerði vin sinn
Picqart að hermálaráðgjafa, manninn,
sem barðist manna vasklegast og drengi-
legast fyrir þvf, að Dreyfas næði rétti
sínum, og var fyrir það um langa hrið
hataður og ofsóttur af þeim, sem völd-
in höfðu, og öllum þorra þjóðariunar.
Frá Þýzkalandi.
Alexander Hohenlohe fursti segist
hafa látið birta æfiþætti föður sfns
beint eftir fyrirmælum hans í lifaudi
lífi. Ráðgerð er endurskoðuð útgáfa af
þeim, þar sem burt er numið það, er
keisara er ógeðfelt.
Svo hart ganga jpjóðverjar eftir um
útrýming þjóðtungu Pólverja í þeirra
löndum, að þeir snara í fangelsi for-
eldrum barna, er svara á pólsku út
úr kverinu, en ekki á þýzbu. Pólskir
ríkisþingsfulltriiar f Berlín báru sig
upp undan þeim aðförum við kenslu-
málaráðgjafaun og kölluðu þær ríða
bág við alla siðmenning. Hann svaraði
illa og kvað einmitt þá foreldra sýna af
sér menningarfjandskap, er létu börn
sín óhlýðnast fyrirmælum ríkisins
með því að svara kennurum sínum á
pólsku!
Firðritunarumbótin.
Mikið látið með Vald. Poulsen í
Berlín og umbót haDS á þráðlausri
firðritun. Ameríkumaður bauð 1 milj.
kr. fyrir einkarétt handa Baudaríkj
um. þýzka stjórniu keypti fyrir
180,000 kr. firðritunarútbúuað með
hans lagi.
Slysfarir.
Rússneskt gufuskip frá Wladivostock
rak sig á sprengidufl þar fyrir utan
höfnina og sprakk i loft upp. þar
druknuðu 160 manns.
Frakkar mistu ueðansjávarvfgsnekkju
15. f. m. fram undan Túnis. Hún
sökk af því, að gleymst hafði að loka
þilfarinu áður en snekkjan stakk sér.
Hún hét Lutin. |>ar druknaði
margt manna. Danskir kafarar frá
Switzers bjargráðaskipi fundu hana á
mararbotni og komu um hana strengj-
um til þess að lyfta heDni upp. En
það hafði þó ekki lánast, er síðast
frettist.
Fellibylurinu mikli, sem gekk í haust
um Mið-Ameríku og Mexikoflóa, hafði
orðið 1000 maDua bani, að mælt er,
og valdið óskapatjóni öðru, á skipum
og húsum. Smáey eiu, Elliot Cey,
gjöreyddist að mönnum og mannvirkj-
um. Yfir hana gengu tvær storm
hviður. Hin fyrri sópaði burtu öllum
trjám og húsum. þá sletti í logn
allrasnöggvast. Við það skriðu oyjar-
skeggjar fram úr fylgsnum síuum, 250
að tölu. En þá brast á hio hviðan
og gekk sjór á land, voðaleg holskefla,
sem saug í sig hvert mannsbarn í
eynni og sá ekkert kvikt eftir, er hún
var um garð gengin.
Hitt og þetta.
Heldur ógirnilegt er að vera drotu
ing keisarans í Annam’í Asíu.
Hann er orðin brjálaður. Hann lét
einn góðan veðurdag í haust taka
konu sína eina og slátra henni, höggva
kroppinn í spað og sjóða í olíu, og
bera því næst á borð fyrir föruneyti
sitt. J>eir voru af lífi teknir sam-
stundis, er vildu eigi leggja sér þá
fæðu til munns. — Annað skifti gerði
keisari sér það til gamans, að hann
lét snara holdugustu kouunni sinni
fyrir tigrisdýr til þess að vita, hve
fljótt það væri að hvoma hana f sig.
Enn lét hann eitt skifti binda ungar
stúlkur við staura og skipaði bog-
mönnum sfnum að gera að þeim
örvadrífu svo þétta, að hvergi sæi í
auðan blett á Ifkama þeirra.
J>að bar til í haust á eiuum stað í
Suður-Karólínu f Bandarfkjum, að
Svertingjar brendu til ösku þorp
með 1500 fbúum f hefnd fyrir ofsókn-
ir þær, er þeir eru látnir sæta.
Kvenfrelsis-kvennaliðið á Englandi
þykir fara allgeyst. f>að þyrptist inu
á áheyrendapalla f þinginu í Luudúu-
um þiugsetniugardaginn 23. f. mán.,
hvað sem lögreglan sagði, og æpti í
sífellu: Vér viljum hafa kosDÍngar-
rétt! Vér erurn ekki hræddar við
það, þótt oss sé varpað í fangelsil
Karlmennirnir þora ekki að láta oss
fá rétt vorn!
Loks fjölmenti lögregluliðið og snar-
aði þeim út. J>ær veittu viðnám með
hnúum og hnefum, héldu sér hvar
sem gátu og létu rífa af sér fötin.
Loks var þvagan öli flutt í varðhald
og dregin fyrir dóm daginn eftir. J>ar
voru forsprakkarnir tíu dæmdar í 90
kr. sekt eða 2 mánaða fangelsi. þá
létu þær hálfu ver en áður. Kváðust
ekki kannast við, að dómarar hefðu
neitt vald yfir sér. Vér viljum hafa
kosningarrétt! æptu þær enn sem
fyr. Lögreglan varð að beita við
þær handalögmáli. J>ær afsögðu að
gjalda sektina og var þvf varpað í
fangelsi.
Hlutafélag er komið á laggir í New-
York með 20 milj, kr. höfuðstól og
ætlar sér að grafa járnbrautargöng
undir Behriugssund milli Am6-
ríku og Asíu. J>að er 13 mílur á
breidd.
Slysför til bana.
Skrifað er ísafold úr Skagafirði 20. þ.
m.: Sorglegt slys vildi til hér fyrir
skömmu. Maður datt af baki og rot-
aðist til dauðs. Slitnað hafði móttak í
hnakknum, og alt snarast af, en maður-
inn lent á grjóti með höfuðið. Slys
þetta vildi til á harða spretti; maðurinn
var að ná í samfylgdarmann, er -á und-
an var kominn. Maður þessi hét
Magnús Sigurðsson og var frá
Stóru-Gröf, atorku- og dugnaðarmaður.
Biðjið kaupmaiin yðar
um
ionreTirxirrTTrrn
r]j *np tö~p... i
og önnur algeng nöfn á vindlum vor-
um, cigarettum og tóbakstegundum
og verið vissir um, að þér fáið jafnan
vörur af beztu tegund.
Karl Petersen & Co.
Köbenhavn.
Aukafundur
verður haldinn í hlutafélaginu Högni
mánudaginn 19. þ. m. kl. 7 e. m. í
Iðnaðarmannahúsinu. Fundarefni er
álit nefndarinnar er kosin var á sfð-
asta fundi.
Reykjavík 13. nóv. 1906.
Stjórnin.
Nýlegt íbiíðarhús
til sölu i Keflavlk 12X10 álna stórt, með
kjallara, að nokkru leyti útbúnum til íbúð-
ar; húsið vandað og að öllu leyti eftir
nýjustu tízku. Borgunarskilmál&r góðir.
Ninari upplýsingar hjá ritstj. ísafoldar.
Nýtt rúm vandað til sölu i Lindar-
götu 34.
TJndirrltuft tekur að sér að kenna
stúlkum og stúlkubörnum hannyrftir.
Lysthafendur gefi sig fram sem fyrst,
Anna Einarsson, Lindarg. 34.