Alþýðublaðið - 15.11.1994, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Ráðherra segir af sér
Þýski heimspekingurinn Hegel lét
eitt sinn svo ummælt að þegar rökk-
va tæki og rykið settist á vígvellinum
hæfi uglan Minerva sig á loft og
kvæði upp dóma sína. Minerva er
tákn viskunnar og fellir ekki dóma
sína í hita leiksins. í þessu er mikill
sannleikskjami. Dómur sögunnar er
vonarljós þeirra sem telja sig rang-
læti beitta í hita leiksins.
Þetta breytir þó ekki þeirri stað-
reynd, að undan ákvörðunum hvers
konar verður ekki vikist. Gildisdóm-
ar og siðferðislegar staðhæfingar um
athafnir okkar og afleiðingar þeirra
liggja mannlegu samfélagi til grund-
vallar. Sjaldnast eru þessir gildis-
dómar úr lausu loft gripnir eða
Pallborðið
Birgir
Hermannsson
skrifar
byggjast á einstaklingsbundnum
duttlungum. f siðferðisefnum höfum
við einfaldlega ekki sjálfdæmi um þá
mælikvarða sem athafnir okkar eru
metnar eftir. Löng reynsla og rök-
ræður liggja slíkum mælikvörðum til
grundvallar. Hinn siðferðislegi vandi
varðar oft og tíðuni tengslin milh
hins almenna og hins sértæka; á milli
mælikvarðanna og einstakra athafna
okkar.
Tengsl stjómmála og siðferðis em
margslungin og umdeilanleg. Verk-
efni stjómmálanna er að marka
stefnu; taka ákvarðanir um ákveðnar
athafnir frekar en aðrar. Fáir hafa
skilið þetta eðli stjómmálanna jafn
vel og bandaríski alþýðumaðurinn
Harry Trumann, sem varð óvænt
valdamesti maður heims á mikJum
umbrotatímum. Hans viðhorf til
hlutverks síns var einfalt: Mér ber að
taka ákvarðanir og betra er að taka
rangar ákvarðanir en engar ákvarð-
anir. Þetta lýsir mjög vel þeirri stöðu
sem valdhafar eru í. Þeirn ber að taka
ákvarðanir og byggja þær á dóm-
greind sinni og þekkingu. 1 samfé-
lagi þar sem valdhafar taka slíkar
ákvarðanir í umboði almennings er
eðlilegt að þeir standi og falli með
þeim.
Almennar kosningar em auðvitað
mikilvægasti dómurinn um ákvarð-
anir stjómmálamanna almennt, en
geta eðli málsins samkvæmt ekki
verið mælikvarði á einstakar ákvarð-
anir. Það er því rangt sem oft heyrist
að kosningar séu það eina sem máli
skiptir og hinn endanlegi dómur.
Miklu skiptir að ákvarðanir séu tekn-
ar fyrir eins opnum tjöldum og
mögulegt er og rökræddar. Opið
stjómkerfi og frjálsir fjölmiðlar em í
raun forsenda þess að lýðræðisleg
stjómmál fái þrifist. Einstakar
ákvarðanir geta brotið í bága við lög,
borið vott um dómgreindarbrest eða
jafnvel hreint siðleysi. Það er því
engin tilviljun að við Bandaríkjaþing
- og flest ríkisþingin raunar einnig -
em starfandi siðanefndir sem geta
hrakið menn af þingi hvað sem kjós-
endur svo sem segja.
Eins og Tmmann skildi svo vel
verða stjómmálamenn að bera
ábyrgð á verkum sínum; standa og
falla með þeim. Hér á fslandi hefur
þetta verið túlkað svo að standa með
verkum sínum þýddi að sitja í emb-
ætti meðan sætt væri - á hverju sem
á dyndi. í nágrannalöndum okkar
hefur þetta verið túlkað á annan veg;
afsögn ráðherra er þar eðlilegur hlut-
ur njóti hann ekki trausts til starfsins
og áframhaldandi seta skaði embætt-
isfærslur, málefni, ríkisstjóm og
flokk.
Afsögn Guðmundar Áma Stefáns-
sonar er í samræmi við þessar er-
lendu hefðir. Ráðherrann fyrrverandi
telur sig greinilega nokkmm órétti
beittan í samanburði við fyrirrennara
sína. Eflaust hefur rykið ekki sest
nægjanlega á vígvellinum til að meta
„Mín skoðun er þó sú að þegar Minerva hefur sig á loft muni
Guðmundur Árni ekki verða veginn og metinn í ljósi þess for-
dæmis sem fyrirrennarar hans gáfu, heldur að þeir verði endur-
metnir með hliðsjón af þeirri ákvörðun Guðmundar að segja af
sér. Mestu skiptir þó framtíðin. Afsögn Guðmundar felur í sér
tímamót.“
það á hlutlægan hátt. Þó vil ég benda
á að Guðmundur Ami er ekki fyrsti
ráðherrann til að hundsa álit ríkislög-
manns, enda er álit hans engu merk-
ara en álit annarra lögmanna. Þannig
hundsaði Halldór Blöndal álit ríkis-
lögmanns þegar innflutningur Hag-
kaups á skinku var bannaður á síð-
asta ári. Hæstiréttur dæmdi slíkt
bann síðan ólögmætt. Mín skoðun er
þó sú að þegar Minerva hefur sig á
loft muni Guðmundur Ámi ekki
verða veginn og metinn í ljósi þess
fordæmis sem fyrirrennarar hans
gáfu, heldur að þeir verði endur-
metnir með hliðsjón af þeirri ákvörð-
un Guðmundar að segja af sér.
Mestu skiptir þó framtíðin. Afsögn
Guðmundar felur í sér tímamót.
Höfundur er aðstoöarmaður
umhverfisráðherra
Heimsmynd
dagsins
Var einhver að segja að veröld-
in væri að farast? Hann hafði
rétt fyrir sér. Við veljum topp
tíu fyrirsagnir úr Vikublaðinu,
hinu virta málgagni Alþýðu-
bandalagsins, þessu til sönnun-
ar:
1. Efnafólk vill fela tekjurnar
með ritskoðun á fjölmiðla
2. Verðum að afstýra gjaldþroti
heimilanna
3. Miðstöð atvinnulausra lokað
4. Framsókn til hægri og missir
fólk
5. ASÍ: Stjórnvöld hafa brugðist
6. Brandaraviðtal við félags-
málaráðherra
7. Angist Ásgrímsson
8. Davið ýmist með eða á móti
gömlu fólki
9. íslensk heimili eru í neyð og
kalla eftir skýrri stefnu
10. Dritur á hvítflibba Davíðs
Tslenskir kvikmyndagerð-
iarmenn em alltaf að vinna
dálitla sigra á erlendri
gmnd. Nú síðast heyrum
við að ný bamamynd sjón-
varpsins, sem Sigurbjörn
Aðalsteinsson gerði í sum-
ar, hafi slegið í gegn hjá
fulltrúum á fundi EBU,
Samtaka evrópskra sjón-
varpsstöðva. Á fundinum
vom fulltrúar tólf landa, og
allir ákváðu þeir að kaupa
myndina til sýninga í sínu
heimalandi. Þá er og talið
líklegt að myndin, sem ber
heitiðÁí/, verði tekin til
sýninga í Bandaríkjunum...
Ekki var neinn ótvíræður
samhugur á landsfundi
Kvennalistans um helgina,
enda kom uppá yfirborðið
talsverður ágreiningur í
mikilsverðum málaflokk-
um. Mörgum yngri konum
af suðvesturhomi landsins
fannst nóg um landsbyggð-
aráherslumar í stefnumótun.
Þetta á ekki síst við í ESB-
málum en vitað er að ýnisar
kvennalistakonur vilja alls
ekki útiloka neitt í þeim efn-
um. Það var hinsvegar
Krístín Einarsdóttir sem
var sterka konan í þessu
máli og allar mótmælaradd-
ir vom „mjúklega" kveðnar
íkútinn...
I'nýju tölublaði Flokks-
frélta Sjálfstæðisflokksins
er viðtal við Davíð Odds-
son á forsíðu, einsog vera
ber, þarsem hann tjáir sig
unt kjördæmamál og kröfur
um jöfnun atkvæðaréttar.
Davíð er náttúrlega í þeirri
stöðu að vera í senn formað-
ur Sjálfstæðisflokksins og
fyrsti þingmaður Reykvík-
inga, og reynir því að sigla
millum skers og bám. Hann
segir það mjög viðunandi ef
hægt sé að ná þeirri niður-
stöðu að misvægi verði ekki
meira en l á móti 2 1/2. Nú
er misvægið I á móti 3, svo
breytingin er nú ekki ýkja
mikil...
Þá vakti það athygli á
landsfundinum að ýmsar
konur vildu endurskoða út-
afskiptaregluna, enda þurfa
bæði Kristín Einarsdóttir
og Anna Olafsdóttir
Björnsson að víkja af þingi
hennar vegna. Fremst í
þessum flokki fór þingkon-
an að vestan, Jóna Val-
gerður Kristjánsdóttir.
Það var hinsvegar Anna Ól-
afsdóttir sem kvað uppúr
með það, að ekki ætti að
breytareglunni. Sannarlega
sjaldgæft viðhorf hjá þing-
manni...
Hinumegin
Og ÞÚ! Hvað hefur þú að segja...? Ef þú ert ekki uppreisnar-
maður, hvað í fjandanum ertu þá?
Viti menn
Díana prinsessa hefur fengið
því framgengt að konan sem
gætir prinsanna, sona hennar,
meðan þeir eru hjá Karli föð-
ur sínum, má ekki eiga sam-
neyti við karla á meðan hún
gegnir þessu starfí.
DV í gær.
Mislukkuð bók þarsem stíl og
persónusköpun er sérlega
ábótavant. Höfundur hafði
ágætt efni í höndum en af-
greiðslan er langt frá því að
vera fullnægjandi.
Kolbrún Bergþórsdóttir, umsögn um
Vesturfarann.nýja skáldsögu Páls Páls-
sonar. Morgunpósturinn í gær.
f leik við knattspyrnulið á
heimsmælikvarða, einsog
svissneska liðið er, gætu úrslit-
in orðið 10-0.
Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugs-
synir spá í spilin fyrir landsleik (slands
og Sviss í Evrópukeppninni.
Eg man sokkaverksmiðjuna
Evu á Akranesi.
Þórarinn Eldjárn skáld i nýrri bók sem
heitir Ég man, þarsem hann minnist
alls 480 manna, hluta og fyrirbæra.
Ef Mogginn er gott blað þá er
hann gott blað í einhverju
ímynduðu þjóðfélagi þarsem
einstaklingurinn hefur verið
þurrkaður út. Hann er blað
stóra bróður.
Fjölmiðlapistill Morgunpóstsins í gær.
Sem sellóleikari fínnst mörg-
um karlmönnum þú sexí.
Verðurðu stundum fyrir kyn-
ferðislegri áreitni?
Jónas Sen að spyrja Bryndís Höllu
Gylfadóttur sellósení spjörunum úr í
Morgunpóstinum í gær.
Nei! Um daginn hringdi að
vísu í mig einhver gamall og
fullur karl sem var að springa
úr aðdáun á mér. En ég er
náttúrlega meira fyrir yngri
menn.
Svar Bryndísar Höllu.
Lesa fornbókmenntir
okkar svona einsog fjandinn
biblíuna.
Heimir Pálsson um áhuga
nýnasista á íslenskum fornsögum.
Tíminn á laugardaginn.
Fimm á förnum vegi Hvað finnst þér um afsögn Guðmundar Árna?
Vigdís Sigurðardóttir, af-
greiðslumaður; Ætli þetta hafi
ekki verið rétl ákvörðun, miðað við
aðstæður.
Kolbrún Sæmundsdóttir,
sjúkraliði: Hann gerði það eina
rétta, en átti að vera búinn að því
fyrr.
Vala Björg Kröyer, húsmóðir:
Afsögnin er ekki réttlætanleg, vegna
þess að það eru fleiri sem eru í miklu
dýpri skít en hann.
Sesselja Henningsdóttir, hús-
móðir: Mér fannst þetta gott hjá
honum, og vona að fleiri fylgi í kjöl-
farið.
Brottför Guðmundar Árna er
hugsuð til þess að þeir sem eft-
ir eru geti barið sér á brjóst og
talið siðferðið vera í lagi hjá
þeim sem eftir eru.
Leiöari Timans á laugardag.
Inga Stefánsdóttir, sálfræðing-
ur: Mér finnst þetta sorglegt - öll
stjómin ætti að fara með honum.
Athafnamenn á borð við Arn-
grím Jóhannsson láta einfald-
lega ekki bjóða sér lengur þær
takmarkanir á athafnafrelsi
þeirra, sem verkalýðshreyf-
ingin virðist halda að hún geti
fylgt fram. Þjóðin þarf hins-
vegar á öðru að halda um
þessar mundir en verkalýðs-
hreyfíngu, sem þekkir ekki
sinn vitjunartíma.
Leiöari Moggans á sunnudag
um málefni Atlanta hf.