Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.2000, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson Á þessari mynd skín sólin og þá birtist skuggaspilið neðan við stálplöturnar sautján og myndar þráðbeina línu. SÓLALDA Á SULTAR- TANGAVIRKJUN Sultartangavirkjun er mikilfeng- legt mannvirki. Frárennslis- skurðurinn er í rauninni gljúfur sem skorið er í gegnum ótal hraun- og öskulög og vísast hér á forsíðumyndina. Frá brúnni yfír þetta manngerða gljúfur ber inntaksvegg virkjunarinnar við himin. Sjálft stöðvarhúsið er undir háum steinsteypuvegg og lætur lítið yfir sér en efst á veggnum sér vegfarandi á leið yfir brúna eitt- hvað ókennilegt; línu sem virðist ekki vera bein. Hægt er að ganga úr skugga um þetta með því að aka upp að stöðvarhúsinu þegar komið er austur yfir brúna og þá koma í ljós sautján misstórar stálplötur sem standa út úr veggnum og myndar röð þeirra ölduform eða „orkubylgju". Pað hefur verið stefna Landsvirkjunar að fá myndlistarmenn til þess að vinna listaverk á stöðvarhús virkjananna. Elzt þeirra er „Ejós- gjafinn", lágmynd sem Ásmundur Sveinsson myndhöggvari gerði á vegg Ljósafossvirkjunar árið 1937. Þar er myndefnið þekking mannsins sem skapar birtu og yl með því að beizla náttúr- una. A stöðvarhúsi BúrfeÚsvirkjunar er lág- mynd Siguijóns Ólafssonar myndhöggvara en höfundur „Sólöldu" á inntaksvegg Sultartanga- virkjunar er Sigurður Ami Sigurðsson, mynd- listarmaður frá Akureyri. Hann hefur frá því að hann lauk námi verið búsettur í Evrópu. Við upphaf framkvæmda við Sultartanga- virkjun árið 1997 var efnt til samkeppni um listaverk utan á inntaksvegginn. Farið var eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra mynd- listarmanna og haft samráð við SÍM um fram- kvæmd keppninnar. Dómnefnd var skipuð Halldóri Jónatanssyni, þáverandi forstjóra, Jó- hannesi Geir Sigurgeirssyni stjómarformanni og Hróbjarti Hróbjartssyni, arkitekti Sultar- tangavirkjunar, en með þeim voru í dómnefnd- inni listamennimir Anna Eyjólfsdóttir og Jón Axel Bjömsson, bæði skipuð af stjóm SÍM. Til aðstoðar við dómnefndina og sem trúnaðar- maður starfaði Ólafur Jónsson. Auglýst var eftir þátttakendum í samkeppn- ina og tæplega 40 listamenn sendu inn umsókn- ir þar sem fram komu upplýsingar um menntun þeirra og reynslu auk mynda af verkum þeirra. Dómnefndin valdi þau Finnboga Pétursson, Magnús Tómasson, Ólöfu Nordal, Sigurð Áma Sigurðsson og Steinunni Þórarinsdóttur til þess að leggja fram eina eða tvær hugmyndir hvert að listaverki svo og að skila líkani af til- lögunum og íyrir þetta greiddi Landsvirkjun listamönnunum. Fram komu sjö tillögur og eft- ir að dómnefnd lauk störfum var haldin sýning á þeim í Listasafni ASÍ í árslok 1997. Sigurður Ami Sigurðsson varð hlutskarpast- ur og nú er verk hans komið upp. Hann hóf feril sinn sem málari en hefur þróast í átt til þrívíðra tjáningarforma enda er málverki og högg- myndalist ekki lengur markaður jafn ákveðinn og afmarkaður bás eins og áður tíðkaðist og hafa nýmæli eins og hugmyndalist átt sinn þátt íþví. í „Sólöldu vinnur Sigurður Ámi með hug- mynd í þá veru að við hæstu sólarstöðu hvers dags falliaskuggarnir af sautján útstæðum stálplötum lóðrétt á inntaksvegginn, það er að segja ef sólin skín. Um Jónsmessubil, þegar sól er hæst í suðri, varpar hún lengstum lóðréttum skuggum sem saman mynda lárétta línu á móti bylgjuformi stálplatnanna og göt á enda hverr- ar plötu varpa kringlóttum ljóspunkti í hvem skugga. Lesbókin var á ferðinni við Sultartangavirkj- un aðeins tveimur dögum eftir Jónsmessu og þá vildi svo til að sólin skein öðm hveiju og hugmynd listamannsins naut sín vel. Áherzlan í verki Sigurðar Árna er samspil manns og nátt- úm; gangur sólar er á bak við eilífðarvélina sem knýr hringrás vatnsins og orkuframleiðsl- an byggist á. GÍSLISIGURÐSSON Efst á inntaksvegg Sultartangavirkjunar er „Sólalda", verk Sigurðar Árna myndlistarmanns. Þannig lítur verkið út þegar ekki er sólskin og þá verður heldur ekki það skuggapil sem lista- maðurinn gerir ráð fyrir og er hluti verksins. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 8. JÚLÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.