Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Blaðsíða 12
HYMNI SCHOLARES - SÖNGKVER SKÁLHOLTSSVEINA Morgunblaðið/Halldór HYMNI scholares - söngkver Skálholtssveina. í opnunni er upphaf sálmsins Beata nobis gaudia. léttlyndar stúlkur í þorpinu, það gat verið þessi og það gat verið hin. Honum var svo sem sama, hver það var af þessum drósum, en honum sámaði að staðurinn hafði verið saurg- aður af þessum ódámi - og þennan stað gætu þau ekki notað aftur, hann og hún. Lengra var pilturinn ekki kominn í hug- leiðingum sínum, þegar formaðurinn tók allt í einu að hrista sig og bölva frosthörkunni, og hann sagði: - Nú væri gott að hafa úlpuræfilinn. Ég skil ekid hver andskotinn hefur orðið af henni. Ég fór með hana heim um daginn að láta konuna rimpa í hana og hún hengdi hana framí bíslag en síðan hefur hún ekki sézt. Konan segir að ég hafi farið með hana um borð og týnt henni, en það getur ekki verið, ég fínn hana hvergi hér. Ég skil ekki, að nokkur hafi farið að stela þessum ræfli; hún var svo sem einskisnýt, en mér er bara ráð- gáta, hvað af henni hefur orðið. . . Þar sem pilturinn hímdi í rórhúsinu, rufu þessi orð formannsins múrvegg draumsins og urðu fyrst að ónotakennd í maganum, sem síðan barst upp eftir honum sem eins konar kuldadoði og í huga hans tóku að snú- ast í algeru reiðileysi hvert um annað orðin: úlpa. . . pabbans. . . týnd. Hann náði ekki að beita orðin skipulagðri hugsun né draga af þeim ályktanir. Þau bara snerust í höfði hans og reyndar um hann allan og leituðu út í köldum svita. Formaðurinn og vélstjórinn og báturinn og hafið og stormurinn varð allt óraunveruleiki og enginn annar raunveru- leiki en þessi þrjú stjómlausu orð. . . Meðan þessu fór fram í rórhúsinu sátu há- setarnir þrír, sem áttu koju á landstíminu framí lúkamum. Tveir mannanna vom um það bil miðaldra og sátu þeir við lúkarborðið á hléborða, en þriðji maðurinn var innan við miðjan aldur. Hann var að reyna að hita kaffivatn í katli í kabísunni og varð að halda katlinum. Allir voru mennimir enn í sjóstökkunum, því það lak með skælettinu og víðar. Þeir vom að bíða eftir að kaffivatnið hitnaði, svo þeir gætu fengið sér sopa áður en þeir fæm í kojur. Kaffihitaranum gekk illa að halda katlin- um á kabísunni, en hún var á vindborða, og hann sagði: - Af hverju lætur báturinn svona. Er hann tvísjóa? - Ætli við séum ekki komnir inná Kögur- inn og hann sé farinn að slá fyrir úr Fjörðun- um, sagði annar mannanna við borðið. - Nei, sagði hinn, hann er svo mikið útí, að hann stendur varla neitt úr Fjörðunum. Ætli það sé ekki heldur komið sterkt norður- fall? - Maður verður kominn úr hálsliðnum áð- ur en við náum landi, ef koppurinn lætur svona alla landleiðina, sagði hitarinn. - Það gerir nú kannski ekki mikið til, ef þú bara verður búinn að hita kaffið áður, sagði annar þeirra sem sat og beið. Rétt í þeim orðum kom hitarinn fljúgandi yfir í hléborða, ketillinn á eftir honum, þá hringirnir úr kabísunni og loks glóðin úr henni. Bleyta var á lúkargólfínu og glóðin kulnaði strax en lúkarinn fýlltist af reyk. - Jæja, sagði hitarinn, þá er víst ekkert að gera nema velta sér í kojuna kaffilaus, ekki nenni ég að kveikja aftur upp. . . Þá var slegið af. - Hvað ætli sé nú að ske, sagði annar mannanna við borðið, karlinn ætlar þó ekki að fara að halda sjó. Varla getur hann verið farinn að óttast landið strax. - Hann verður nú að finna það lifandi eða dauður í kvöld, sagði hinn, það á að skíra hjá mér á morgun. - Ég þarf líka að komast í land í kvöld, konan á afmæli, og hún var búin að lofa að gefa mér útí kaffið, ef. . . Hér varð skyndilega stanz á máli manns- ins. Formaðurinn hafði slegið af vegna þess, að hann taldi sig grilla í mikið rið, sem fór að bátnum og var að byrja að hryggja sig. Hann sneri bátnum lóðbeint undan og beið þannig ferðlaus eftir ólaginu. Hann sagði þegar það náigaðist: - Andskotans hafrót er þetta að verða. . . Vélstjórinn tók undir það með honum á leiðinni niður að hyggja að vélinni. Það var því aðeins einn maður af skips- höfninni, sem í þessari andrá lét ekki uppi með orðum eða athöfn hvað honum var í hug. Það var pilturinn. Báturinn náði ekki að lyfta sér upp á öld- una, lenti í holinu á henni, þegar braut úr henni, og hún færði hann á kaf um leið og hún endastakk honum og hvolfdi honum framyfir sig. Ásgeir Jakobsson ritböfundur hefði orðið óttræður í dog og af því tilefni er sagan birt. Hymni scholares - söng- kver Skálholtssveina er eitt hinna gömlu íslensku tón- listarhandrita sem verið er að draga fram í dagsljósið á vegum Collegium Music- um. HRAFN SVEIN- BJARNARSQN segir frá þessu merka handriti, sem er hið eina sem varðveitt er hér landi en auk þess er eitt handrit varðveilt í Dan- mörku og annað á Englandi. EFTIR siðskiptastríðið á íslandi voru þau menntasetur, sem klaustrin höfðu verið, rænd og aflögð og skólahald á biskupsstólunum niður fallið. Til þess að festa lúterska kenningu í sessi voru skólar nauðsynlegir. Kristján konungur III setti því ákvæði um stofnun latínuskóla í Skál- holti og á Hólum í erindisbréf Páls Hvítfelds höfuðsmanns 13. mars 1552. Páll hafði æðsta stjómvald á Islandi. Erfiðlega gekk að fjár- magna skólana í fyrstu og seinkaði það stofn- un þeirra nokkuð. Erindisbréf Páls Hvítfelds er elsta varð- veitta skjal sem sérstaklega fjallar um ís- lenska skóla og kveður á um tónlistarflutn- ing þar. Daglega skyldi sungið „eftir því sem til forna gjörðist og sungið var hér hjá dóm- kirkjunni de tempore...“ Lítið er vitað um hvað var sungið í latínuskólunum fyrstu ára- tugina eftir siðskipti. Þó er ljóst að fylgt hef- ur verið kirkjuskipan Kristjáns III sem út kom fyrst 1537. Skólapiltar hafa þá sungið morgun- og kvöldsöng í dómkirkjunum, og eftir hádegisverð hafa þeir verið æfðir í söng í skólanum. I latínuskólunum var einn frí- dagur í viku á 16. og 17. öld, miðvikudagur, og áttu skólapiltar þó að sækja morgun- og kvöldsöng þann dag. Samkvæmt skólareglum frá 1604 áttu skólapiltar að safnast saman á sunnudögum og öðrum helgidögum í skólanum og ganga til kirkju í tvöfaldri röð. Þeir áttu að koma sér fyrir á sínum stað í kómum án þess að segja orð eða troðast. Þegar lesið var úr heil- agri ritningu skyldu þeir hlusta og horfa á altarið og við prédikunina bar þeim að taka ofan og beygja hnén þegar Jesú nafn var nefnt. Eldri skólapiltarnir áttu auk þess að leggja prédikunina á minnið og punkta hjá sér innihald hennar til þess að geta gert grein fyrir henni í skólanum að lokinni guðs- þjónustu. Þessar reglur virðast benda til þess að skólapiltar hafi borið húfur innan húss sem utan. I Danaveldi, Svíþjóð og Þýskalandi höfðu skólapiltar tekjur af því að syngja við húsdyr hjá fólki á hátíðisdögum. Danakonungur setti oftar en einu sinni bann við þessum betlisöng í skólareglugerðir á 18. öld. Við suma skóla í Norður-Evrópu voru í gildi reglur um hegðun við þennan söng og hvern- ig skipta skyldi tekjum af honum meðal þátt- takenda. Engar heimildir eru um söng af þessu tagi á Islandi fyrr á tímum, enda ekk- ert þéttbýli og vegalengdir miklar milli bæja. Hugsanlega eru þó frásagnimar um íslensku jólasveinana tengdar einhverjum slíkum sið. GOMBUSVEITIN CONCORDIA FRA BRETLANDI LEIKUR BAROKKTÓNLIST í SKÁLHOLTI „FAGNANDI SIGUR ANDANS YFIR DAUÐANUM" Breska gömbusveitin Concordia flytur kammerverk frá barokktímanum á Sumartónleikum í Skál- holti um helgina. MARGRET SVEINBJÖRNSDÓTTIR ræddi við stjórnand- ann, Mark Levy, sem leikur á upprunalega barokkgömbu frá ár- inu 1675. Morgunblaðlð/Jim Smart GÖMBUSVEITIN Concordia ásamt einsöngvaranum Robin Blaze í miðið og eiginkonu hans, söng- konunni Lisa Beckley, sem tekur raunar ekki þátt í tónleikunum. Lengst til vinstri er stjórnandi hóps- ins, gömbuleikarinn Mark Levy, lengst til vinstri er Joanna Levine, einnig gömbuleikari, og við hiið hennar Robert Howarth, sem leikur á orgel og sembal. Þriðji gömbuleikari sveitarinnar, Emilia Benjamin, var ókominn til landsins þegar myndin var tekin. 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. JÚLÍ 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.