Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Blaðsíða 9
 Vegna landþrengsla leggja Hollendingar áherzlu á háhýsi, en sá hænqur er á að ekki er hægt að grafa niður á fast, takmarkast hæð húsa af því hversu djúpt er hægt að reka burðar- súlur í sendinn jarðveg Holland hefur lengi verið þétt- býlasta land í Evrópu. Landnotkun og landnýting skiptir þar svo miklu máli að menn verða bæði að byggja þétt og hátt ef eitthvað ræktarland á að verða eftir fyrir rósirnar og túlipanana. Á málverkum frá 17.öld má sjá, að þá var þéttleikinn farinn að einkenna hollenskar borgir; húsin voru - og eru enn - eins og mjó- ar sneiðar sem pakkað er þétt saman. Þessar mjóu byggingar, hlaðnar úr steini, eru jafn- an með háu risi og snúa göflum annaðhvort að umferðargötum eða sýkjum. Traust und- irstaða fékkst með því að reka á frumstæðan hátt staura niður í botnlausan sandinn. Hvort sem byggt er yfír fólk eða fyrir- tæki í Hollandi er nokkuð ljóst að það þarf fremur að vera á hæðina og er frá því sagt í nýrri bók um háhús í Hollandi: Hoogbouw in Nederland. Flest af því sem þar er sýnt er byggt undir merkjum síð-módernisma, sem segja má að einkennist af því að oftast er horfið frá strangleika sem þótti nauðsyn- legur í árdaga fúnksjónalismans og þeirrar stefnu sem síðan hefur almennt verið kennd við módernisma. Segja má að nú teljist það ekki guðlast lengur að gera eitthvað sér- staklega fyrir augað og útlitið. Form hús- anna er allavega; sum eru sívöl, önnur átt- strend eða mynda boga og mörg þeirra eru meiri um sig neðantil. Það virðist úr sög- unni að háhýsi þurfi að hafa sama form og kæliskápar eða eldspýtustokkar upp á rönd, sum þeirra með með háu risi, ekki ósvipað nýju húsunum meðfram Skúlagötunni í Reykjavík. Nokkur hollenzk háhýsi bera þó keim af hefðbundnu lagi skýjakljúfa eins og þeir hafa verið byggðir í Ameríku. Þar á meðal er Rembrandt-turninn, 35 hæðir og fjögurra hæða bflageymsla undir. Þetta er stflhrein bygging, að mestu leyti eftir nótum módern- ismans, en þó ekki alveg. Til dæmis er það frávik og getur varla talizt þjóna öðru en út- litinu að turninn er inndreginn á öllum horn- um. Sama stfleinkenni kemur íyrir í Marsh & McLennan-byggingunni sem hýsir skrif- stofur. Resident-samstæðan í Haag, skrifstofu- turnar og íbúðir, er eftir því sem fyrrgreind bók hermir að líkindum metnaðarfyllsta nýja borgarumhverfið í Hollandi sem ráðist hefur verið í uppá síðkastið. Þessi gríðarstóra sam- stæða þriggja tuma og lægri húsa, sem nú er í byggingu, er látin mynda eina, samvaxna heild. Hæst rísa Helicon-byggingin, Astalíu- turninn og Zurich-turninn. Höfundur hans, Rob Krier, hefur haldið því fram að háhýsi eigi ekki að standa eins og staurar, ein sér, heldur mynda samhangandi heild með lægri byggingum. Aðrir sem þama hafa komið við hönnunarsögu em stjörnuarkitektarnir Ces- ar Pelli og Bandaríkjamaðurinn Michael Graves, einn af forvígismönnum póst- módernismans. Hollendingar búa ekki við þau hlunnindi RESIDENS-samstæðan með Zurich-turninn, sem Cesar Pelli teiknaði, fyrir miðju. Hér er nýstárleg og metnaðarfull tilraun til þess að skapa samfelit bogarumhverfi í Haag á þann hátt að rúmlega 100 m háar turnbyggingar, hver með sínum svip, eru samtengdar með öðrum lægri. Sjá einnig mynd af Residens-samstæðunni á forsíðu. DE OLOPHANT skrifstofubyggingin í Am- sterdam er 65 m á hæð og kannski á mörk- um þess að geta talizt háhýsi. Arkitektinn, Hans van Egmond í Noodwijk, hefur teiknað húsið þannig að þrjár álmur mætast í miðju. Útlitið er nokkuð dæmigert fyrir síðari tíma módernisma, án strangleikans sem áður ríkti. Til dæmis hefði þessi þaksvipur verið óhugsandi fyrr á öldinni. Hér er fallega farið með glugga (og gluggapósta), álrammar ut- anum gluggana eru bronslitaðir en húsið er að öðru leyti klætt með rauðu graníti. að geta grafið kjallara eða tvær hæðir niður og staðið þar á fastri klöpp. Ekkert er að hafa annað en mismunandi þétt sandlög og hæð bygginga í hollenzkum borgum hefur alltaf verið háð tækninni við að reka staura sem lengst niður í þessi sandlög og láta þá mynda undirstöðu. Með tímanum hefur verið þróuð tækni til þess að reka burðarsúlur tugi metra niður í gljúp sandlögin. Án þeirra væri útilokað að byggja háhús í Hollandi. GÍSLI SIGURÐSSON SJÁ NÆSTU SÍÐU DELFTSE POORT skrifstofubyggingin í Rotterdam er hæsta hús í Hollandi, 150 m. Hér var f byggt yfir margháttaða borgarstarfsemi: Brautarstöð neðanjarðarlesta með bílageymslu, verzlanir og veitingahús, en hæst gnæfa skrifstofubyggingar tveggja stórfyrirtækja. Arkitekt- inn, A. Bonnema, virðist vera heillaður af módernismanum fyrr á öldinni eins og Gropius og Mies van der Rohe skilgreindu hann. Þessi kaldhamraði stíll þykir yfirleitt ekki mjög mann- eskjulegur og víðast hvar hefur verið horfið frá honum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. JÚLÍ 1999 9"

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.