Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1999, Page 17
KRISTJÁN Davíðsson: Án titils, 1960 - blönduð tækni.
GLEÐIN
eftir Þorstein frá Hamri
Gleðin er bernsk: hana brýtur
sí og æ
á sömu skerjunum,
kýs þójafnan fleytuna fremur en brú
og nær að endingu
lífhöfn, lendingu
í mannsfjöru eins og minni, um nónbilið
eins og nú.
Úr Það tnlnr í trjúnum, 1995
ASTIN
OGÞÚ
eftir Kristínu Ómarsdóttur
Myndavélin sem tekur myndir af lung-
um þínum elskar þig en þú
tekur ekki eftir ást hennar.
Eða jú. Þegar þú fórst úr bolnum og*
hörund þitt snerti í fyrsta sinn
spegilslétt stálið, þá tókstu eftir ást
hennar en gleymdir henni strax.
Konurnar á bakvið myndavélina elska
þig líka.
Og framköllunartækið.
Og ljósið sem lýsir bakvið nýju
röntgenmyndina af lungum þínum.
Fingurinn á lækninum.
Línurnai', myrkrið og þokan sem búa^
til myndina.
Þau elska þig.
En þú ert bara ekki tilbúinn enn.
Morgunblaðið/Kristinn
LIÐSMENN Lífæða: Hannes Sigurðsson sýn-
ingarstjóri, Ragnheiður Jónsdóttir myndlist-
armaður, Kristján Sverrisson, framkvæmda-
stjóri Giaxo Wellcome á íslandi, og Sjón.
Frá Landspítalanum fara Lífæðar til Akra-
ness, þar sem sýningin verður opnuð í sjúkra-
húsinu 12. febrúar. 19. mars verður sýningin
opnuð í Sjúkrahúsi ísafjarðar, 23. apríl í Heil-
brigðisstofnuninni Sauðárkróki, 22. maí í
Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar, 26. júní í
Heilbrigðisstofnuninni Húsavík, 23. júlí á
Heilsugæslustöðinni Vopnafirði, 12. ágúst í
Heilbrigðisstofnuninni Seyðisfírði, 3. septem-
ber í Heilbrigðisstofnuninni Selfossi og 8.
október í Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Síð-
asti sýningarstaðurinn er Sjúkrahús Reykja-
víkur en þar verður sýningin uppi frá 12. nóv-
ember til 12. desember.
Lífæðum fylgir litprentuð sýningarskrá
sem dreift verður ókeypis í boði Glaxo
Wellcome. I henni eru ljóðin og myndirnar
ásamt stuttri umfjöllun um listamennina.
rLISTIN ÚT
TIL FÓLKSINS
„ÞETTA er frábært. fraintak - að
fara með listina út til fólksins,"
segir Ragnheiður Jónsdóltir, einn
myndlistannannanna sem þátt
taka í sýningunni, „Kosturinn við
Hannes Sigurðsson er sá að hann
fær ekki bara góðar hugmyndir,
heldur fylgir þeiin líka fast eftir.
Hann lætur ekki sitja við orðin
tóm.“
Riignheiði þykir ekki ólíklegt að
þessi sýning geti orðið upphafið
að fleiri „óiiefðbundnum“ sýning-
um hér á landi. Fagnar hún því.
„Það sem okkur myndlistarmenn
vantar er meiri tenging við þjóðfé-
lagið, þannig að við fáum meiri at-
hygli. Því sýnilegri sem listameun
eru, þeim niun meiri líkur á því að
fólk kaupi verk þeirra og þeir geti
lifað af list sinni. Þetta er allra
hagur.“
Sjón, eitt skáldanna sem eiga
verk á sýningunni, lýkur einnig
lofsorði á framtakið. „Ljóð eru
þannig að þau koma yfirleitt út á
litlum bókuin og seljast engin lif-
andis ósköp, þó menn fari sjaldan
á hausinn við að gefa þau út. Þau
hafa hins vegar lag á því að laum-
ast liingað og þangað, um landið
og lífið, eins og þetta skenuntilega
verkefni er til vitnis uin. Það er
alltaf ánægjulegt þegar Ijóðið
keinst í kastljósið. Vonandi eiga
þessi litlu skeyti eftir að hafa upp-
h'fgandi áhrif á þessum stöðuin."
Sjón þykir við hæfi að setja
ljóðasýningu upp á sjúkrahúsum.
„Ljóðlistin og „læknislistin“ eiga
nefnilega sameiginlegar rætur í
sjálfum Merkúr, hinum róm-
verska, og Hermes, hinum gríska,
og eiga saineiginlega stafinn, með
snákunum tveimur, þannig að ég
sé ekki betur en nú séu þessir
tveir þræðir að spinnast saman
aft.ur á injög skemmtilegan hátt.“
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra er einnig lirifin af
framtakinu en hún ritar inngangs-
orð í sýningarski'á Lífæða. Segir
hún þar meðal annars: „Myndlist á
eins vel við á sjúkrahúsum og orð-
in sem Ijóðskáldin töfra fram.
Framtakið að safna rayndum og
sýna á ellefu sjúkrahúsuin og
livelja orðsins menn til að tjá sig
uin lífæðar á spftala verður upp-
fylling fyrir sjúklinga, shirfsfólk
og aðstandendur.
í framtakinu felst virðing fyrir öll-
um sem eiga þess kost að heyra og
sjá verkin.“
Úr Lokaðu augunum og hugsaðu
uni mig, 1998
GRÆ.Ð-
ARINN
eftir Gyrði Elíasson
Tíminn -
hann er
undai'legur náungi
Hann gengur um
með gi'ösin sín
í poka um öxl
og leggur við
djúp sár
Janúai'blómstur
febrúarlilju,
marsklukku,
aprílurt,
maígi'esi -
Alltafsömu jurtirnar
aftur og aftur
Og kuflinn hans
er ofínn á víxl
úr ljósum
og dökkum
þráðum
Úr Indíánasumri, 1996.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. JANÚAR 1999 1 7'