Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1999, Blaðsíða 20
«■
IKJALNESINGA SÖGU segir frá því
að Búi Andríðsson, sem er skírður mað-
ur í heiðnu samfélagi, vegur son höfð-
ingjans og brennir hof heiðinna manna.
í leikritinu Búa sögu eftir Þór Rögn-
valdsson heimspeking, sem Leikfélag
Reykjavíkur frumsýnir á litla sviði
Borgarleikhússins í kvöld, segir frá því
að Búi Andríðsson, sem er uppreisnargjarn
nýútskrifaður stúdent árið 1969, vegur son
eins af „máttarstólpum samfélagsins" og
brennir hof auðvaldsins, sjálfstæðishöllina -
sem birtist reyndar í líki Morgunblaðshússins
á sviðinu.
Með þessu hefst mikið hugmyndalegt upp-
gjör þar sem andstæðir pólar hugsjónar og
raunsæis takast á, eða skapandi hugsjónar og
viðtekinnar venju. Að ráði Esju, móður sinnar
og verndarvættar, flýr Búi til Noregs þar sem
hann kvænist Fríði, dóttur kunns heimspeki-
prófessors. í átakamikilli samræðu við pró-
fessorinn um grundvallarandstæður mann-
legs lífs, annars vegar hina góðu samvisku eða
^framkvæmdakraftinn og hins vegar skyldu-
ræknina eða dómhörkuna, öðlast Búi nýja,
dýprí og almennari lífssýn, hann ákveður að
hverfa frá dómhörku hugsjónabaráttunnar og
tileinka sér starfsgleði hins raunsæja. Þegar
Búi hverfur aftur til Islands gerist hann því
héraðshöfðingi, heildsali, þingmaður og ráð-
herra - hann gengur með öðrum orðum til liðs
við sína fyrrum fjandmenn.
Hugsjónamaðurinn er
líka raunsæismaður
Þór byggir leikrit sitt að hluta á Kjalnes-
inga sögu en verkið hefur um leið sterka
skírskotun til Antígónu Sófóklesar og ekki
síður til verka Halldórs Laxness og þýsku
heimspekinganna Nietzsches og Hegels. Eins
og höfundur rekur í ítarlegri grein um verkið
-rií leikskrá eiga Kjalnesinga saga og Antígóna
ýmislegt sameiginlegt, bæði verkin lýsa eilífu
andófí einstaklingsvitundarinnar við opinber-
um boðum og bönnum valdhafans. „Antígóna
og Búi Andríðsson eru bæði hugsjóna- og
uppreisnannenn sem hika ekki við að virða
viðteknar venjur og lög samféiagsins að
vettugi.“
Leikrit Þórs fylgir atburðum Kjalnesinga
sögu nokkum veginn. Örlög Búa í fornsög-
unni eru hin sömu og í leikritinu og lýst var
hér að framan en Þór leggur út af sögunni á
annan hátt. í fyrmefndri grein segir Þór:
„Höfundur Kjalnesinga sögu skilur [] sinna-
skiptin eingöngu neikvæðum skilningi. Búi
gengur sínum fyrrum andstæðingum á hönd
og bregst þannig trúnaði sinna raunsönnu
velunnara; fyrst og fremst Fríðar og þeirra
^yætta sem undirheima byggja. Og hér er mik-
ilvægt að árétta að Fríður er ekki bara full-
tníi undirheima (eins og Antígóna). Fríður er
ofjarl Búa í siðferðisefnum og fulltrúi hins
góða í skilningi sögumanns - þ.e. í kristnum
skilningi - enda þótt hún byggi Dofraheima. í
Kjalnesinga sögu er Búi Andríðsson því
raunsannur svikari sem selur sál sína (ekkert
síður en nafni hans Árland). Hann er and-
hetjan sem ofmetnast; veraldargengið stígur
honum til höfuðs."
Þór skilur umskipti Búa hins vegar jákvæð-
um skilningi. Sáttargerðin við raunsæið og
hin veraldlegu viðhorf eru ekki afneitun á
hugsjóninni - þetta eru tvær hliðar á sama
■*tening: „Hinn raunsanni hugsjónamaður er
líka raunsæismaður - og öfugt. Hugsjón og
veruleiki em að sönnu andstæður - eins og
hvítt og svart; óaðskiljanlegar andstæður sem
tjá hvor sína hliðina á sama inntakinu. Itaun-
verulegt inntak sinnaskiptanna í Búa sögu er
Búa saga eftir Þór Rögn-
valdsson hlaut fyrstu verð-
laun í leikritasamkeppni
Leikfélags Reykjavíkur sem
efnt var til í tilefni af eitt
hundrað óra afmæli fé-
lagsins. Verkið er byggt ó
Kjalnesingg sögu og hefur
um leið sterka skírskotun til
Antígónu Sófóklesar og
ekki síður til verka Hall-
dórs Laxness og þýsku
heimspekinganna
Nietzsches og Hegels.
ÞRÖSTUR HELGASON
fylgdist með æfingu ó
verkinu sem verður frum-
sýnt ó litla svið Borgarleik-
hússins í kvöld kl. 20.
ÞORSTEINN
Bachmann í
hlutverki
hugsjóna-
og andófs-
mannsins
Búa And-
ríðssonar
því einfaldlega þetta: Kappinn Búi grætur.
Isklakinn í hjarta hans bráðnar,“ eins og Þór
tekur til orða.
Hamskiptasaga
Þór kallar leikrit sitt hugmyndadans á titil-
blaði enda vindur frásögninni fram í átökum
hugmynda og kenninga um rök mannlegrar
breytni. Þorsteinn Bachmann fer með hlut-
verk Búa í sýningunni og tekur undir það að
verkið sé krefjandi.
„Það tekur vissulega á þegar kafað er ofan í
manninn og hugmyndir hans um sjálfan sig.
Þetta er hamskiptasaga því að hugmyndir
Búa um sjálfan sig og heiminn kollvarpast.
Hann þróast frá einberri dómhörku á heiminn
til þess að taka honum eins og hann er, gerast
sáttargjörðamaður við heiminn og reyna jafn-
vel að mjaka honum eitt hænufet áfram með
því að verða einn af arkitektum hans. Þetta
eru ekki lítil umskipti á einum manni en leik-
ritið gerist á tuttugu og fimm árum. Hann er
ungur og uppreisnargjarn hippi þegar leikrit-
ið hefst, svarinn andstæðingur auðvalds-
hyggjunnar, heiftin er rauðglóandi í honum.
Hann getur ekki sætt sig við það hvernig
HOFVERJAR,
máttarstólpar
samfélags-
ins. Tákn
hins illa og
spillta í huga
Búa.
heimurinn er og er þannig málsvari guðanna
laga sem eru andstæð mannanna lögum. Áður
yfir lýkur sættist hann hins vegar við heiminn
og lög hans. Hann lætur af dómhörkunni, læt-
ur af síngirninni og gerir sátt við heiminn.
Boðskapur verksins er kannski einmitt sá að
fólk þarf að láta af egóismanum."
Þorsteinn segir að það hafí verið skemmti-
legt að glíma við þetta heimspekilega verk.
„Maður hefur þurft að skoða hlutina svolítið
upp á nýtt, snúa veröldinni í nokkra hringi og
sjálfum sér með. Verkið hefur þannig vissu-
lega skírskotun til samtímans en það er líka
tímalaust. Með því að láta verkið gerast á
ákveðnu árabili, frá 1969 til 1994, er höfundur
fyrst og fremst að búa ti! ferðalag úr sögu
Búa - það er auðveldara fyrir fólk að sjá fyrir
sér þróun ef hún gerist í tíma og rúmi. Við
Morgunblaðiö/Ásdís
kynnumst því Búa á þremur tímabilum í ævi
hans. Eg lít hins vegar ekki svo á að þó að
verkið gerist einmitt á þessu árabili þá sé það
fyrst og fremst uppgjör við 68-kynslóðina eða
hugmyndabaráttu kalda stríðsins. Verkið hef-
ur víðari skírskotun en svo, raunar má segja
að það gerist jafnt á hinu andlega,
heimspekilega og pólitíska sviði.
x Aðrir leikendur í sýningunni eru Rósa
Guðný Þórsdóttir, Pétur Einarsson, Valgerð-
ur Dan, Björn Ingi Hilmarsson, Guðlaug
Elísabet Ólafsdóttir, Sóley Elíasdóttir, Árni
Pétur Guðjónsson og Theodór Júlíusson.
Leikstjóri og höfundur leikmyndar er Ey-
vindur Erlendsson. Hljóð annast Baldur Már
Arngrímsson. Tónlist gerir Pétur Grétarsson.
Lýsing er í höndum Kára Gíslasonar og bún-
inga gerði Una Collins.
DOMHA
HUGSJÓ
OG STARl
RAUNS
»
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. JANÚAR 1999