Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1999, Síða 2
MYRKIR MÚSÍKDAGAR
YFIR 60 ÍSLENZK VERK
FRUMFLUTT OG ENDURFLUTT
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Myrkir músíkdagar
hefst í dag og stendur til 25. janúar nk. Tón-
skáldafélag Islands stendur fyrir hátíðinni,
sem er í stærra lagi að þessu sinni, en hún er
helguð Jóni Leifs, þar sem á þessu ári verða
liðin 100 ár frá fæðingu tónskáldsins. Auk
flutnings og frumflutnings á þekktum jafnt
sem minna þekktum verkum Jóns Leifs verð-
ur haldið málþing um hann.
Færeyski kammerhópurinn Aldubáran
leikur á fyrstu tónleikum Myrkra músíkdaga,
sem haldnir verða í Salnum í Tónlistarhúsi
Kópavogs í dag kl. 17.30. Þar verða flutt verk
eftir Kristian Blak, Jón Nordal, Pauli í Sanda-
gerði, Tora Takemitsu, Hafliða Hallgrímsson
og Magnus Lindberg.
Málþing um tónskáldið, baráttu-
manninn og manninn Jón Leifs
Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafé-
lags íslands, segir að meðal þess athyglis-
verðasta af verkum Jóns Leifs, sem framflutt
verða á hátíðinni sé hljómsveitarverkið „Til-
brigði við stef eftir Beeethoven" en í því mæt-
ist tvö tónskáld af miklum krafti. Þá mun
MALÞING UM
JÓN LEIFS
Hamrahlíðarkórinn framflytja ný-
fundna vögguvísu eftir Jón Leifs og
á meðal einsöngslaga sem Finnur
Bjamason og Örn Magnússon flytja
era nokkur sem aldrei hafa heyrst
áður.
Á málþinginu, sem fer fram í
Gerðubergi laugardaginn 16. janúar
kl. 17, verður fjallað um Jón Leifs frá
þremur sjónarhornum; um tónskáldið, bar-
áttumanninn og manninn. Sjónum er beint að
tónlist hans, félagsmálastörfum, hagsmuna-
baráttu og áhrifum hans á íslenska tónlist og
menningu.
Fjöldi íslenskra
verka frumfluttur
Fleira verður á dagskrá Myrkra músíkdaga
en tónlist Jóns Leifs, en alls verða þar frum-
flutt og endurflutt yflr 60 íslensk verk auk
nokkurra erlendra, af flestum stærð-
um og gerðum. Tónleikarnir verða
tólf talsins, flestir í Salnum í Kópa-
vogi, en einnig í Háskólabíói, Gerðu-
bergi, Tjarnarbíói og Seltjarnarnes-
kirkju.
Um frumflutning er að ræða á rúm-
lega þriðjungi verkanna, að sögn
Kgartans. Alls taka yflr hundrað
hljóðfæraleikarar þátt í hátíðinni,
sem spannar nánast allt litróflð; ein-
leikstónleika, einsöngstónleika,
kammertónleika, hljómsveitartón-
leika, kórtónleika og raftónleika. „Það
er auðvitað framlag íslenskra tónlistaiTnanna
til hátíðarinnar sem gerir hana eins glæsilega
og raun ber vitni, því þeir eru firnagóðir,“
segir Kjartan.
Sem fyrr sagði leikur færeyski hópurinn
Aldubáran á fyrstu tónleikunum síðdegis í
dag. Á mánudagskvöld kl. 20.30 er röðin kom-
in að þeim Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara
og Snorra Sigfúsi Birgissyni píanóleikara og
síðan rekur hver tónlistarviðburðurinn annan
næsta hálfa mánuðinn.
Jón
Leifs.
ÞORBJÖRG við verk sitt Röndólf, olíumáiverk frá 1997.
ISLENSKT UOÐ
í ÍTÖLSKU RITI
TESTO a Fronte er ítalskt rit sem
kemur út ársfjórðungslega og er
helgað bókmenntaþýðingum og
umræðum um þær. Auk viðamik-
illa greina um þýðingar og þýð-
ingafræði birtast í ritinu ljóð eftir
skáld frá ýmsum löndum, bæði á
frummáli og í ítölskum þýðingum.
Að þessu sinni er í ritinu (núm-
er 19, 1998) íslenskt ljóð og er það
í fyrsta sinn sem íslenskur skáld-
skapur birtist í því. Ljóðið er Um
landslag eftir Jóhann Hjálmarsson
og birtist það upphaflega í ljóðabók-
inni Athvarf í himingeimnum eftir
Jóhann og hefur verið þýtt á fjölda
tungumála og verið prentað í bókum
og safnritum. Ljóðið nefnist Sul pa-
essaggio í þýðingu Franco Buffonis
sem er þekkt skáld og háskólakennari
og aðalritstjóri Testo a Fronte.
Ritið er gefið út í Mflanó af útgáfu-
fyrirtækinu Marcos y Marcos, en það
gefur einnig út bækur um skáldskap
og fræði og safnrit Ijóðlistar. Ritstjóri
útgáfúnnar er Franco Buffoni.
Myndlistar-
sýning í Hall-
grímskirkju
SÝNING á málverkum eftir Þorbjörgu
Höskuldsdóttur verður opnuð í anddyri
Hallgrímskirkju eftir messu sunnudaginn
10. júní kl. 12.15.
Þorbjörg lauk námi frá Listaakademí-
unni í Kaupmannahöfn árið 1972 og hefur
haldið fjölda sýninga bæði hér og erlendis.
Hún vinnur nú að veggmynd fyrir
Grensáskirkju eftir hugmynd sem fram
kom á Kirkjulistahátíö 1997 en þá voru
gerðar tillögur að nýjum myndverkum í
níu nýjustu kirkjurnar í Reykjavíkurpró-
fastsdæmum.
Sýningin stendur til 18. febrúar.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigt úni
Yfírlitss. á verkum Ásmundai' Sveinssonar.
Gallerí Horn
Dæsus. Til 21. jan.
Gerðarsafn
Vestursalur: Nobuyasu Yamagata. Austur-
salur: Haukur Harðarson. Neðri hæð: Sig-
ríður Rut Hreinsdóttir. Til 24. jan.
Menningarmiðstöð Gerðuberg
Alan James. Til 31. jan.
Hallgrímskirkja
Þorbjörg Höskuldsdóttir. Til 18. febr.
Hafnarborg
Kaffe Fasett. Til 8. febr.
Ingólfsstræti 8
Ólafur Elíasson. Til 10. jan.
Kjarvalsstaðir
Austursalur: Jóhannes S. Kjarval. Vestur-
salur: Britt Smelvær. Til 7. mars. Miðrými:
Einar Garibaldi Einarsson. Til 14. mars.
Listasafn ASÍ
Gryfjan: Einar Már Guðvai'ðarson. Ás-
mundarsalur: Helga Egilsdóttir. Ai-instofa:
Ný aðfóng. Til 24. jan.
Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðu-
holti
Opið laugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Islands
80/90. Speglar samtímans. Til 31. jan.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg
Bjarni Jónsson. Til 19. jan.
Nýlistasafnið
Norðurleið - Suðurleið: Ulrich Dúrrenfeld,
Ulrike Geitel, Ralf Werner, Erwin Herbst,
Joachim Fleischér og Dominique Evrard.
Til 31. jan.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til
14. maí.
Ráðhús Reykjavíkur
Tjai'narsalur: Edda Björgvinsdóttir. Til 25.
jan.
SPRON, Mjódd
Jón Axel. Til 19. feb.
TÓNLIST
Laugardagur
Salurinn í Kópavogi: Auður Gunnarsdóttir,
Gunnar Guðbjörnsson, Guðrún Bh'gisdótt-
ir, Martial Nardeau og Cai'l Davis. Kl.
14.30 og 20.30. Færeyski kammerhópurinn
Albubáran. Kl. 17.30.
Laugardalshöll: Vínartónleikai' SÍ. Kl. 17.
Sunnudagur
Salurinn í Kópavog: Kammerkór Suður-
lands. Kl. 17.
íþróttahúsið Egilsstöðum: Vínartónleikar
SÍ. Kl. 16
Menningarmiðstöðin Gerðuberg: Blásai'a-
kvintett Reykjavikur. Kl. 16.
Mánudagur
Salurinn í Kdpavogi: Sigi'ún Eðvaldsdóttir
og Snorri Sigfús Birgisson. Kl. 20.30.
Þriðjudagur
Iðnó: Poulenc-hátíð. Kl. 20.30.
Miðvikudagur
Salurinn í Kópavogi: Finnur Bjarnason og
Örn Magnússon. Kl. 20.30.
Föstudagur
Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit Islands. Kl.
20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Brúðuheimilið, sun. 10., mið. 13. jan.
Tveir tvöfaldir, lau. 9., fím. 14. jan.
Bróðir minn ljónshjarta, sun. 10. jan.
Abel Snorko býr einn, lau. 9., fim. 14. jan.
Maður í mislitum sokkum, sun. 10., fím. 14.,
fös. 15. jan.
Borgarleikhúsið
Pétur Pan, lau. 9., sun. 10. jan.
Búasaga, frums. lau. 9. jan. Fös. 15. jan.
Hafnarljarðarleikhúsið
Víras, lau. 9., fós. 15. jan.
Iðnó
Rommí, sun. 10. jan.
Þjónn í súpunni, lau. 9., fös. 15. jan.
íslenska Operan
Ávaxtakarfan, sun. 10. jan.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Menningarvaka með Ijóðum Mao Zedongs.
Kl. 14.
Málþing um Jón Leifs. Kl. 17.30.
Loftkastalinn
Mýs og menn, frums. fös. 15. jan.
Leikfélag Akureyrar
Pétur Gautur, lau. 9., sun. 10. jan.
Uppiýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að
birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist
bréflega eða á netfangi fynr kl. 16 á miðvikudög-
um merktar: Morgunblaðið, Menningdistir, Kr-
inglunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Net-
fang: menning@mbi.is.
2 1ESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. JANÚAR 1999