Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1998, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1998, Blaðsíða 21
TERJE RISBERG SÝNIR ÆTINGAR ( HAFNARBORG LANDSLAG SKYNJUNARINNAR LANDSLAG skynjunaiinnar er yfir- skrift sýningar á verkum norska myndlistai'mannsins Terje Risbergs, sem hefst í dag, laugardag, kl. 16, í Hafnarborg, menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar. Sendiherra Noregs á íslandi, Knut Taraldset, mun opna eýninguna. Verkin á sýningunni eru hátt í fimmtíu tals- ins, flest stórar ætingar unnar með mezzotintu á sandblásnar koparplötur, en Terje Risberg hefur einmitt valdð mikla athygli fyrir myndir af því tagi og er verk eftir hann að finna í mörgum helstu listasöfnum Noregs og víðar. Um list sína segir hann sjálfur í sýningarskrá: „Ég reyni að miðla þeirri tilfinningu að ég sé hluti náttúru sem speglast í öðrum hluta nátt- úru og þar sem verður nokkurs konar skilning- ur.“ „Við erum hluti of náttúrunni en náttúran kærir sig ekkert um okkur" Vinnustofa listamannsins er við Óslóarfjörð- inn, þar sem síbreytilegt vatnsyfirborðið og sjávamiðurinn auk furðulegra skýjamynda á himni mynda andstæðu við óhagganlega jörð- ina. Hann lýsir verkum sínum sem samtali milli aflanna himins, hafs og jarðar og sér birt- una sem einskonar boðbera milli þeirra, sem hæfi eitt þeirra og endurkasti svo til annars eða hins þriðja. Þetta samspil segir hann ótæmandi uppsprettu hugmynda. Hann segir myndirnar alltaf vera eitthvað sem hann hefur séð í landslaginu og segist reyna að fjarlægja eins mikið og hægt er af óþarfa hlutum úr myndunum, öll spor menningarinnar. Eftir stendur nakin og hrein náttúran. „Við erum hluti af náttúrunni en náttúran kærir sig í raun ekkert um okkur,“ segir hann og veltir fyrir sér vægðarleysi og afskiptaleysi ósnortinnar náttúrunnar gagnvart lífi manneskjunnar og einsemd þeirrar síðamefndu. Terje Risberg kveðst bera mikla virðingu fyrir góðu handverki, sökkvir sér niður í það og hafnar því að velja einföldustu leiðimar að takmarkinu, segir það spumingu um siðfræði. „I dag höfum við svo mikla tækni að allir geta gert allt. En hvað varð af fagkunnáttunni? Ef allir geta allt, verður útkoman óhjákvæmilega ekki annað en meðalmennska. Því það er ekki eins auðvelt og menn halda fram.“ Hingað til lands er sýningin komin frá Oslo Kunstforening og verður hún sett upp í Sta- vanger Kunstforening síðar á þessu ári. Sýn- ingin, sem er í báðum sýningarsölum Hafnar- borgar, aðalsal og Sverrissal, stendur fram til 27. október. I tengslum við sýninguna verður haldið málþing um list og listsköpun Risbergs, fimmtudagskvöldið 15. október kl. 20.30. Morgunblaðið/Ámi Sæberg TERJE Risberg við eitt verka sinna á sýningunni í Hafnarborg LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS BLAND í POKA óra Guðmundsdóttir arkitekt og hótel- stýra á Seyðisfirði hefur tekið að sér umsjón með Listaklúbbi Leikhús- kjallarans í vetur. Listaklúbburinn hóf vetrarstarf sitt sl. mánudagskvöld með upp- lestri leikhópsins Bandamanna úr Rafmagns- manninum, væntanlegri skáldsögu Sveins Einarssonar. Næsta mánudagskvöld verða flutt ljóð og jass, fimm íslensk Ijóðskáld lesa úr verkum sínum og jasstríó leikur á milli. Framundan er fjölbreytt dagskrá, en að sögn Þóru er reynt að skipuleggja hana a.m.k. 6 vikur í senn.“Nú erum við í óða önn að skipu- Ieggja tímann út nóvember og fram undir jól, en við erum einnig farin að hugsa fyrir nýár- inu og hvemig við högum dagkránni í stórum dráttum fram eftir vetri.“ Þóra Guðmundsdóttir er arkitekt og hefur verið búsett á Seyðisfirði í allmörg ár, þar sem hún rekur gistiheimili. „Sigríður Margrét Guðmundsdóttir hefur frá upphafi verið fram- kvæmdastjóri listaklúbbsins og mótað hann í þeirri mynd sem hann er þekktur fyrir. Hún bað mig fyrir klúbbinn með stuttum fyrirvara, þar sem hún hefur tekið að sér umsjón menn- ingarþáttar fyrir Stöð-2. Ég mun því sinna framkvæmdastjóm Listaklúbbsins í vetur. Þóra segir nafn Listaklúbbsins orðið vel þekkt meðal listamanna og menningarunn- enda. „Það er mjög gaman að koma fram fyrir hönd listaklúbbsins því allir vilja honum vel og margir listamenn sem sækjast eftir að koma fram í klúbbnum. Vinnan við að setja saman dagskrána er því ekki bara fólgin í að fá hug- myndir heldur líka vinna úr þeim hugmyndum sem berast jafnt og þétt. Dagskráin í vetur verður með svipuðu sniði og verið hefur, eins konar bland í poka, framsækin list í bland við hefðbundna.leiklist, tónlist, ritlist, kynningar, dagskrár og uppákomur" segir Þóra. Meðal þess sem verður á dagskránni seinna í haust er skemmtidagskrá með Konsertínun- um og fleira fólki. „Konsertínurnar eru tvær ungar leikkonur, Sigrún Sól Ólafsdóttir og Katrín Þorkelsdóttir. Þær fá í lið með sér Auði Haralds rithöfund, Hilmi Snæ Guðnason leikara, Pálma Sigurhjartarson píanóleikara og Ólaf Þórðarsson umboðsmann og tónlistar- mann. Þetta verður á dagskrá þann 19. októ- ber. Leiksýning Þjóðleikhússins Sólveig verð- ur kynnt mánudaginn 26. október fyrstu tvö mánudagskvöldin í nóvember verða helguð franskri menningu með ýmsum hætti. Síðar í nóvember ætlar Guðbergur Bergsson að segja frá bók sinni um spænska málarann Goyja og sýna skyggnur og spjalla við áhorf- endur. Framundir jól munum við svo leggja áherslu á kynningu á jólabókunum með ýms- um hætti.“ Þóra segir að í vetur verði efnt til sam- keppni um eintöl fyrir leikara. „Ég vona að við getum síðan flutt úrval af því besta sem þama kemur fram síðar í vetur. Verðlaun verða nokkuð vegleg en of snemmt er að segja hver þau verða. Það kemur í ljós þegar samkeppnin verður auglýst,“ segir Þóra Guð- mundsdóttir nýráðin framkvæmdastjóri Listaklúbbs Leikhúskjallarans. Morgunblaðið/Golli ÞORA Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Listaklúbbs Leikhúskjaliarans. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. OKTÓBER 1998 21

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.