Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1998, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 10.10.1998, Blaðsíða 2
KRISTRÚN í HAMRAVÍK Á HUÓÐBÓK 100 ÁRA AFMÆLIS HAGALÍNS MINNST í GUNNARSHÚSI í TILEFNI aldarafmælis Guðmundar Gíslasonar Hagalíns, 10. október, efnir Rithöfundasamband Islands til minning- ardagskrár í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, á morgun, sunnudag, kl. 16. Stefán Júlíusson flytur erindið Kynni mín af Hagalin, Guðrún Helgadóttir rifj- ar upp gamlar minningar, Eyvindur P. Eiríksson spjallar um siglinga- og sjó- mennskulýsingar I bókum Hagalíns og Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir les úr verkum afa síns. HLJÓÐBÓKAKLÚBBURINN vinnur að út- gáfu á Kristrúnu í Hamravík eftir Guðmund Gíslason Hagalín, í tilefni þess að liðin er öld frá fæðingu hans. Höfundur les sjálfur fyrri hlutann og Ámi Tryggvason þann síðari. Guðmundur las fyrri hluta bókarinnar, Fal og Anítu, hjá Ríkisútvarpinu árið 1977. Upptakan var gerð fyrir skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins eða Ríkisútgáfu námsbóka, sem síðar varð Námsgagnastofn- un, og þar var lesturinn gefinn út á hijóðbók. Gisli Helgason hjá Hljóðbókabókaklúbbn- um segir að þegar farið var í gegnum lestur Guðmundar, hafi mjög berlega komið í ljós sérkenni hans sem lesara. Þessi sérstaki vest- firski framburður, að tala um „hardan“ vetur og um hana „Þorgerdi Þórdardóttur. Þá þarf að laga lítillega hljóðritunina, en hún var ekki unnin fyrir útvarp og fella þarf út nokkur mis- mæli, en listrænar ræskingar og mismæli, sem ekki mega missa sín, verða látin halda sér. Árni mun eftir því sem hægt er halda vestfirska framburðinum, en lesa bókina, þ.e. seinni hlutann, á sinn einstæða hátt. Morgunblaðið/Kristinn DANSINN æfður í Borgarleikhúsinu ATTA DANSHOFUNDAR KEPPA ÞRETTÁN umsóknir bárust um þátttöku í danshöfundasamkeppni fslenska dansflokks- ins og valdi samkeppnisnefnd, skipuð Katrínu Hall, listrænum stjórnanda dansflokksins, Lauren Hauser ballettmeistara og Birgittu Heide listdansara, átta af umsækjendunum til þátttöku í keppninni. Það eru þau Guðmundur Helgason, Jóhann Freyr Ingólfsson, Lára Stefánsdóttir, Margrét Gísladóttir, Nadia Banine, Ólöf Ingólfsdóttir, Ragna Sara Jóns- dóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Danshöfundamir átta æfa nú verk sín með dönsurum íslenska dansflokksins og verða þau flutt á stóra sviði Borgarleikhússins 28. október, þar sem dómnefnd, skipuð m.a. Þór- hildi Þorleifsdóttur leikhússtjóra, Steven Sheriff danskennara og Emi Guðmundssyni, skólastjóra Listdansskóla íslands, mun velja 3 beztu verkin. Fyrstu verðlaun era 150.000 kr., önnur verðlaun 100.000 kr. og þriðju verðlaun 50.000 kr. Auk þess fá höfundar verkanna hefðbund- in höfundarlaun ef íslenski dansflokkurinn ákveður að taka eitthvert þeirra til sýningar síðar. Katrín Hall sagði í samtali við Morgunblað- ið, að hún hefði verið hissa og ánægð með, hve margar umsóknir bárast. Tilgangurinn hefði verið að reyna að rækta garðinn hér heima og skapa nýjan vettvang og þáttakan sýndi, að full þörf væri á þessu. Hún sagðist, ef vel gengi, sjá fyrir sér framhald í einhvers konar mynd. SKÖPUNARSAGAN FYRIR BÖRN LEIKHÓPUR á vegum Furðuleikhússins frumsýnir nú á sunnudag leikhúsævintýrið Sköpunarsöguna í Neskirkju kl. 11 árdegis. Leikhópurinn hefur verið að velta fyrir sér spumingunni Hvernig þetta skyldi nú hafa verið þegar Guð skapaði heiminn? og spunn- ið og leikið sér með sköpunarsögu Biblíunn- ar að leiðarljósi. Útkoman var leikhúsævin- týrið, þar sem látbragði, texta og dansi er tvinnað saman. Sagan segir frá sköpun heimsins og mannsins og frá syndafallinu og þar kemur ljósengillinn Lúsífer einnig við sögu. Fjallað er um það hvemig maðurinn missir samband sitt við Guð og hvemig fer þegar Guð er ekki nálægur. Þetta er fjölskylduleikrit en er þó skrifað með það í huga að það höfði til bama sér- staklega. Leikritið verður sýnt í grunnskól- um og í kirkjum landsins, en þetta er farand- sýning svo hægt er að sýna næstum hvar sem er, segir í fréttatilkynningu. Höfundur er Ólöf Sverrisdóttir ásamt leik- hópnum. Leikstjóri er Margrét Pétursdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir sér um hreyfingar, leik- mynd og búninga hannar Áslaug Leifsdóttir. Leikarar eru Olafur Guðmundsson og Ólöf Sverrisdóttir. Morgunblaölð/Kristinn LEIKHÓPURINN veltir fyrir sér sköpunarsögunni. Þau eru Ólafur Guðmundsson, Ólöf Sverris- dóttir, Margrét Pétursdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinss. Fálkahúsið, Hafnarstræti 1 Greipar Ægis: Til áramóta. Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa Helgi Hjaltalín Eyjólfsson. Gallerí Fold, Kringlan Guðbjörg Káradóttir. Gallerí Sævars Karls Haraldar Jónssonar. Til 28. okt. Gallerí Stöðlakot Myndir eftir Nikulás Sigfúss. Til 11. okt. Gerðuberg: Sjónþing Kristins G. Harðar- sonar. Til 24. okt. Hafnarborg Teqe Risbergs. Ætingar í aðal- og Sverrissal. Til 27. okt. Hallgrímskirkja: Benedikt Gunnarsson. Kjarvalsstaðir -30 / 60+, samsýning. Til 25. okt. Listasafn ASÍ Gryfjan: Ólöf Erla Bjarnd. Ásmundarsal- ur: Inga Þórey Jóhannsdóttir. Til 25. okt. Listasafn Einars Júnssonar. Opið laugardaga og sunnudag 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Listasafn Kúpavogs, Gerðarsafn Magdalena Margrét Kjartansdóttir. Ólöf Einarsdóttir. Amælissýning Myndlistar- skóla Kópavogs. Til 25. okt. Listasafn Islands íslensk abstraktlist 1950-60. Til 25. okt. Listaskálinn í Hveragerði: Erotíka: Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Eva Benjamínsd. Gunnar Örn Gunnarsson, Harpa Björnsd., Haukur Dór, Ragnhildur Stefánsd. og Stefán Boulter. Listhús Ófeigs, Skúlavörðustíg Fríða Jónsd. sýnir ljósmyndir. Til 25. okt. Mokkakaffi, Skúlavörðustfg Rannveig Anna Jónsdóttir og Þorvaldur Halldór Gunnarsson. Til 29. okt. Norræna húsið, Hringbraut Erla B. Axelsdóttir. Anddyri: Mynd- skreytingar Kaarina Kaila, við barnabók- ina Læmingjaár á Lágheiði, eftir Jukka Parkkinen. Til 18. okt. Nýlistasafnið Bjarti og svarti salur: Eygló Harðard. Súm-salur: Ásta Ólafsd. Forsalur og gryfja: Þórdís Alda Sigurðard. Til 18. okt. Saifn Ásgrfms Júnss., Bergstaðastræti 74 Sumarsýning á verkum Ásgríms. Sjúminjasafn íslands, Hafnarfírði Sýning á ljósmyndum Helga Arasonar. Stofnun Árna Magnússonar. Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí. SPRON, Mjúdd Harpa Björnsdóttir sýnir til 24. okt. Laugardagur íþrúttahöll Akureurar: Minningatónleik- ar um Jóhann Konráðsson. Kl. 17. Sunnudagur Bústaðakirkja: Camerarctica. Kl. 20.30. Þriðjudagur Langholtskirkja: Afmælistónleikar Jóns Ásgeirssonar. Kl. 20.30. Fimmtudagur Háskúlabfú. SÍ. Einleikari Cristina Ortiz. Stjómandi Petri Sakari. Ki. 20. LEIKLIST Þjúðleikhúsið: Solveig, frums. lau. 10. okt. Fim. 15., fös. 16. okt. Bróðir minn ljónshjarta, sun. 11. okt. Óskastjarnan, sun. 11. okt. Gamansami harmleikurinn, lau. 10., fös. 16. okt. Maður í mislitum sokkum, frums. fös. 16. okt. Borgarlcikhúsið: Grease, lau. 10. okt. Sex í sveit, sun. 11., fös. 16. okt. Ofanljós, sun. 11., fös. 16. okt. íslenski dansflokkurinn: Night, Jorma Uotinen; Stoolgame, Kiri Kylián; La cabina 26, Jochen Ulrich, fim. 15. okt. Iðnú: Dimmalimm, lau. 10. okt. Þjónn í súpunni, lau. 10., fim. 15., fós. 16. okt. Rommí, sun. 11. okt. íslenska úperan: Ávaxtakarfan, sun. 11. okt. Hellisbúinn lau. 10., fim. 15., fós. 16. okt. Loftkastalinn: Bugsy Malone, sun. 11. okt.Fjögur hjörtu, lau. 10. okt. Hafnarfiarðarleikhúsið: Við feðgarnir, lau. 10., fós. 16. okt. Síðasti bærinn í daln- um, sun. 11. okt. Sjúnleikur, Tjarnarbíú: Svartklædda konap, frums. 10. okt. Fim. 15. okt. Kaffileikhúsið: Barbar og úlfar, frums. sun. 11. okt. Svikamylla, fós. 16. okt. Möguleikhúsið: Snuðra og tuðra, lau. 10. okt.Einar Áskell, sun. 11. okt. Gerðuberg: Sögusvuntan, sun. 11. okt. Neskirkja, Furðuleikhúsið: Sköpunar- sagan, frums. sun. 11. okt. Leikfélag Akureyrar: Rummungur ræn- ingi, lau. 10., sun. 11., fim. 15. okt. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. OKTÓBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.