Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Blaðsíða 10
4 Ljósmynd: Guðmundur Brynjar Þorsteinsson. ÍSMYNDANIR í Snjóhelli. LÓÐRÉTTUR hraunfossinn í Vatnshelli skilur hér mlllí Ijósmyndarans og Björns Hróarssonar þar sem hann hallar sér upp að vegg langt, langt niðri í undirdjúpunum. Ljósmynd: Guðmundur Brynjar Þorsteinsson. HLUTI af suðurarmi Vatnsheliis. EFTIR BJÖRN HRÓARSSQN OG GUÐMUND ÞORSTEINSSON Sighæðin reyndist hálfur fjórtándi metri og við Dre- menningunum blasti m ikill geimur sem Drengdist eftir dví sem ofar dró og endaði í litlu gati ti yfirborðs sem aðeins er um fermetri að stærð. SUMAEIÐ 1997 rakst Guðmund- ur Brynjar Þorsteinsson á gat í hraunbreiðunni norðvestan Snæ- fellsjökuls. Útbúnaður til niður- göngu var ekki með í för en með því að kasta steini niður taldi Guðmundur gjótuna djúpa en fyrst lenti steinninn á hellisvegg eða syllu á nokkru dýpi en rúllaði síðan niður um langan veg. Annað mánudagskvöld í hverjum mánuði hittast félagar í Hellarannsóknafélagi Islands í risi húss Ferðafélags íslands í Mörkinni. Þar sagði Guðmundur söguna af holunni djúpu norðvestan Snæfellsjökuls og vakti hún verð- skuldaða athygli eins og sögur af einhverju stóru og ókönnuðu gera ávallt í hópi hella- manna. Föstudagskvöldið 14. nóvember síðastliðinn héldu fimm hellamenn á tveim bifreiðum áleið- is í náttstað á Hellnum með sögu Guðmundar í farteskinu, spenninginn fyrir því óþekkta og vonina um eitthvað stórt og merkilegt. Leið- angursmenn voru Aðalbjöm Þórólfsson, Bjöm Hróarsson, Bjöm Símonarson, Guðmundur Löve og Guðmundur Brynjar Þorsteinsson. Allir era þeir í Hellarannsóknafélagi íslands. Norðanátt eða norðnorðaustanátt og stór- hríð tók á móti fimmmenningunum utan nátt- staðar þeirra á Hellnum á laugardagsmorgni. Heldur lægði þegar komið var vesturundir Malarrif og hitastigið steig um nær fimm gráð- ur. Þegar komið var vestur að afleggjaranum að Djúpalónssandi brast stórhríðin á aftur með kulda og trekki. Var því snúið við og holan góða varð að bíða um sinn. Þess í stað var hald- ið í Purkhólahraun en í skjóli Snæfelisjökuls sá hnjúkaþeyrinn fyrir því að þar var mun hlýrra og lygnara en bæði vestanvið og austanvið þótt vissulega rigndi dulítið. Fyrst var farið í Vatnshelli en hann er þrí- arma og suðurarmurinn áhugaverðastur. Þar inni í enda er rúmlega tíu metra hár og lóðrétt- ur hraunfoss. Eftir að hafa lagt línur og spennt á sig sigbeltin vai’ haldið niður fossinn og áfram inn. Nokkra tugi metra frá fossinum endar hellirinn í sérkennilegri sprungu. Landslag er þarna stórbrotið á hellavísu og undir hraunfossinum er lofthæðin um eða yfir 20 metrar og óvíst að hærra sé til lofts í öðrum hraunrásarhelli á íslandi. Eftir þuira og hlýja vera í Vatnshelli var haldið til farskjótanna og aftur stefnt út fyrir jökul til að kanna veðurhæð við holuna góðu. Þar reyndist enn stórhríð sem og víðast hvar á Snæfellsnesinu nema í Purkhólahrauninu sunnan undir jökli. Svo vel vill til að Purkhólahraunið er hella- auðugt og því ekkert annað að gera en drífa sig út í rigninguna enda í mörg hús að venda. Fyrst var tekið hús á Holuborg, hól nokkrum í Purkhólahrauni sem holur er innan. Nálægt neðsta punkti hellisins, ellefu eða tólf metrum neðan hellismunnans, varð vart við nokkurt streymi af köldu lofti inn í hellinn. Hófst nú grjótburður. af harðfylgi og stærri steinum SAXI OG ÖNNUR H( 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR i 7. JANÚAR 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.