Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1994, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1994, Blaðsíða 3
LESBOK Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnars- son. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Rit- stjóm: Kringlunni 1. Sími 691100. Apókrýfu bækurnar voru hluti af Gamla testamentinu, sem Gyðingar vildu ekki viðurkenna og þær hafa ekki verið sem hluti af Biblíunni síðan á síðustu öld. Nú er búið að þýða þessar bækur sem margar geyma vel kunnar sögur og sóttu marg- ir stórmeistarar myndlistarinnar sér myndefni þangað fyrr á öldum. Lille- hammer iðar af lífi á við setningu vetrar-olympíuleikanna í dag og þar er margt að sjá, m.a. glæsilega og listræna sýningu á sögu Noregs. Þar kemur íslehdingur við sögu: Guðmundur Jónsson arki- tekt vann til fyrstu verðlauna í samkeppni um skipulag og tilhögun sýningarinnar og frá lausn hans er lítillega sagt. Róman- tíkin á fyrri hluta síðustu aldar er viðfangsefni Gísla Jónssonar í síðasta hluta greinaflokks hans um trú, upplýsingu og rómantík. Allt í einu varð upplýsing og lærdómsstagl hallærislegt, en sýslumannssonurinn frá Hlíðarenda sá landið sitt í rómantískum hyllingum og orti: Eldgamla ísafold. PÁLL VÍDALÍN Kveðið í Kaupinhöf n 1715 Man ég það illt er að una, órétt bundinn prettum, einn man ég ennþá börnin ung í Víðidalstungu, man eik móins dýnu, mín sæta þá grætur; nú situr auðareyja angruð dagana langa. Man ég það illt er að una oss gi’ét þó með kossi sæt að seinsta móti seims lín ég var heiman; sáu börn sárt vai’ að þreyja sinn vin þar höf stynja; nú situr auðareyja angruð dagana langa. Man ég það illt er að una, Odd íferðar broddi; hér em eg. Hvað er þá meira? Hvað er mark á hans barka? Æðra er ef óframs bíður aftans sök fyrir hans krafti; nú situr auðai’eyja angruð dagana langa. Páll Vídalín (1667-1727) var frá Víðidalstungu í Húnaþingi. Nam við Hafnar- háskóla og varð rektor í Skálholti 1690-’96. Lögmaður sunnan og vestan og vann með Árna Magnússyni í nefnd sem skipuð var til að kanna hagi (slands. Jarðabókin sem við þá er kennd var árangur þeirra rannsókna. Man ég það ill er áð una, auðn lands, þúsund vansa; man ég að allir una ánauð dygða snauðir. Hvað er hinum til ráða? Hve má ég landið flýja? Nú situr auðareyja angruð dagana langa. Man ég það enn skal una, oss og bauga hnossu guð sá, er gæfu ræður, gefur sigur í dyn vigi-a; föðurs börn fyrir mæðu fagna k\nklát gagni; þá lifír auðareyja angurlaus dagana langa. Á ég að gæta bróður míns? Eg kveikti einn morgun í fyrra fyrir hendingu á Aðalstöðinni. Fékk skilaboð frá AJbert Ein- stein þennan morgun um þessa ágætu rás. Aðalstöðin bar ,já- kvæð“ hljóð til mín, milda dúrhljóma og ofurmilda rödd til þeirra sem vilja ekki láta rífa sig upp til tætings- legra frétta — ekkert hrjúft í mín vit fyrr en eftir tebollann og kaffibollann. Fáir eru með viti, eins ruglaður og heim- urinn er orðinn af samgöngum. Samgöngur eru svo miklar að ekkert fólk fær að vera í friði með sinn sannleik, ekki Suður-Afríku- menn, ekki múhameðstrúarmenn, ekki Is- lendingar. En á heila Einsteins, sem geymd- m- er í eter, á honum er mark takandi, þessum fínasta heila í heimi sém vísinda- menn þreytast ekki á að skoða, því heila- frumur í vissum stöðum heilans eru svo mikið tengdar. A heila Einsteins sem breytti heiminum svo svakalega tekur maður mark, mitt í öllu bullflóðinu. Vitnað var á Aðalstöð- inni í orð Einsteins, sem eftir minni voi-u nokkurn veginn svona: Við vitum ekki til hvers við erum hér, nema hvað til ei’u og til verða börn sem maður þarf að ala önn fyrir. I manninum býr hæfileiki til að finna til með öðrum. Eg heyrði óskaplega gott fólk tala um í rabbþætti í sjónvarpi nýlega, að fólk í eymd á götunni í útlöndum snerti mann ekki, en fólkið hér á landi snerti mann því það væri frændur manns, svo kannski mundum við því vera menn til að hjálpa fátæklingum hér á landi. Nei, samgöngur eru svo mikiar og velmegun heimsins orðin slík að hæfileik- inn til að finna til með nær langt út fyrir ættir. Hér þarf að nota hið ágæta orð for- gangsröð: Auðvitað verður að hjálpa þeim sem er í algerri neyð fyrst, hvar sem hann er á jörðinni. Forgangsröð er hjálpræðið. Hvaða menn eru í algjörri neyð? Hvaða dýi' eru í algjörri neyð? Drífum okkur að hjálpa. Eg skammast mín eins og fleiri fyrir hvað við íslendingar hjálpum lítið. Það er meira að segja komið í tísku að hjálpa, svo tískufríkin ættu að geta farið að hjálpa, góðar leikkonur í Hollywrood eru farnar að taka að sér heilu munaðarlausu þorpin, þær borga svo hægt sé að setja í litlu börnin mat, klæða þau í föt, sjá til þess að þau læri í skóla það sem þarf til að geta bjargað sér í sínu landi. Þjóðin okkar var eins og Ugandaþjóð er núna. Náttúran í samfélaginu gerðist hörð á nokkurra áratuga fresti, búpeningm- dó, við áttum ekki mat fyrir börnin, dóum. Nota má blóðtengslin við forfeðurna til að rifja upp algjöra neyð. Stjórnvöld ættu að lina í okkur samviskubitið með því að læra af Svíum, það sem er ódýrt og áhrifaríkt: í Svíþjóð, sagði mágkona mín mér, á hver deild í leikskólum og hver bekkur í bamaskóla munaðai’laust fósturbarn í þriðja heiminum. Mágkona mín býr í Linköbing. Svíar eru víðsýnir eins og sannir Víkingar. Við höfum aftur á móti fylgt menningai'- legi’i einangrunarstefnu. í gamla daga lærðu börn latínu sjö ára gömul. Nú erum við svo hrædd við að vera hluti af heiminum að börn fá ekki að læra ensku fyrr en hæfileik- inn til tungumálanáms er orðinn stórskert- ur, þegar þau eru tólf ára gömul. Við höfum ekkert að óttast, maður týnir ekkert sjálfum sér þó maður opni gluggana. Það kostar „hér á landi á“ 500 til 1.000 krónur á mánuði að bjarga einum munað- ai’leysingja í þriðja heiminum. Það eru 23-45 krónur á barn á mánuði í tuttugu barna skólabekk. Maður fær af böi’nunum mynd, og þau senda bréf. ABC-barnahjálp er í símaskránni. Ég skora á þá sem vinna við að hugsa um skólamál að koma svona stuðn- ingskerfi á strax. Skólabörnin safna krón- um, koma á fóstudögum með nokkrai’ krón- ur. Hægt er að kenna skólabörnum sögu og menningu þess lands sem fóstursystkini þeirra býr í. Án þess að kennarinn þurfi að segja orð fá börnin taugar til heimsins. Hamingjan byggist á samanburði. Börnum okkar líðui- betur ef þau sjá hvað algjör skortur er. Ég man þegar ég var í Mexíkó að kaupa óþarfa í apóteki, og lijá mér stóð indjána- kona með eitt barn bundið undir brjósf og tvö lafandi í pilsunum. Af henni skynjaði ég skelfingu og hún nuddaði einn peso í lófanum, nuddaði hann og nuddaði hann. Ég girti sálina hörkulega saman í huganum, námslánið mitt þurfti að duga, en síðan er mér ekki sama. A eftir hlustaði ég á Kana spila á píanó á bai’. Hann spilaði grát óg ég þjáðist af hvítri sekt. Hann var uppflosn- aður læknanemi, sjúskaðm’ af drykkju, en vann í því að hjálpa innfæddum fátæklingum í borginni. Hafði fyn- um daginn farið til milljónamærings og sagt, „þriggja ára stúlka er með lungnabólgu og enginn pen- ingur til fyi’h’ lyfjum“. En sá ríki var í vondu skapi þann daginn. Karlinn sem ég leigði hjá þetta ár hélt yfir mér lestra um hvað fátæklingarnir þarna í Mexíkó væru mikið pakk, þeh’ ætu kúna í stað þess að bíða eftir kálfinum. Enginn peningur afgangs. Enginn tími afgangs. Maður reynir að fai-a vel með sína, kettina, börnin og blómin, maður reynir að vera þegjandi vænn. Það tekst þegar manni líður sæmilega sjálfum, sem er ekki alltaf. Manni líðm- sæmilega sjálfum ef maðm’ á fyrir reikningunum og er frískm’, og ef maður þarf ekki að hugsa of mikið um sjálf- an sig af því maður þarf að hugsa um aðra. ÞÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12. FEBRÚAR 1994 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.