Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1989, Blaðsíða 15
í
Setið á Dónárbökkum Búda-
megin og liorft yfir til þing-
Iiússins Pest-megin.
vexti en það tekur fimm ár að fá
hana. Við urðum að hægja skyndi-
lega á okkur skammt frá vatninu
og fengum hvítan Volkswagen aft-
an á. Ljósið undir skottinu brotnaði
en annars sást ekkert á bílunum.
Þjóðverjinn borgaði 20 v. þýsk
mörk (um 640 ísl. kr.) og Stefán
var alsæll. Einstaklingar geta að-
eins skipt 20.000 forint í erlendan
gjaldmiðil löglega þriðja hvert ár.
Það er jafngildi mánaðarlauna
leigubílsstjóra. Istuan sagði að
skrifstofufólk hefði um 8.000 forint
á mánuði.
Við litum inn hjá frænku hans
sem ræktar sveppi fyrir matstaði
og virtist hafa það gott. Hún spurði
hvört ég ætti nokkuð bíl sem ég
vildi selja. Hún á 6.000 v. þýsk
mörk (20.000 forint) og vill vest-
ur-þýskan bíl. Stefán tók mig í
stutta skoðunarferð í elstu kirkju
Ungveijalands eftir að við af-
greiddum Zanka og bauð mér enn
út að borða. Ég þurfti að komast
heim og hann var tilbúinn að keyra
mig til Vínar ef með þyrfti. Hann
er fyrrverandi rallkappi, gaf þá íá
„súper trabba". Við fórum . um
þrönga, hlykkjótta vegi sem hann
hafði keppt á. Þar var gefið í svo
ískraði í hjólunum og ég komst á
lestarstöðina í tæka tíð. Næst þeg-
ar ég fer til Ungveijalands ætla '
ég að hafa vegabréfsáritun, frátek-
ið hótelherbergi og aka um með
öryggisbelti.
Glasgow er borg
íslenskra ferðamanna
- segjaSkotar
A eigin vegum:
Leigubílstjórinn tók mig að sér
En á móti kemur að ókunnugt
fólk gengur inn á ykkar heimili,
sefur í ykkar rúmum og fer hönd-
um um ykkar persónulegu muni.
Traust verður að takast á milli
ykkar og skiptifjölskyldunnar. Og
oftast myndast vináttusambönd í
gegnum bréfaskriftir og símtöl.
Samtökin sjá um tryggingar og
útvega meðmæli. Þijár upplýs-
ingabækur eru gefnar út árlega,
með myndum og upplýsingum um
heimilin. Þeir sem hafa áhuga geta
látið skrá sig og sitt heimili. Ár-
legt skráningargjald er 2.800 kr.
Umsjónarmaður samtakanna hér á
landi er Elísa M. Kwaszenko, Ný-
býlavegi 42, 200 Kópavogi. Skrifið
eftir upplýsingum til hennar eða
hringið í síma 694317 eða 44684.
„ íslenskir ferðamenn hafa
alltaf eignað sér Glasgow.
Borgin er tvíniælalaust þeirra
borg,“ segja ferðamálaaðilar
frá Glasgow, sem voru með
ferðakynningu hér í siðustu
viku.
Glasgow hefur alltaf heillað
íslendinga til sín. Kannski af því
að hún er nálægasta stórborgin.
Kannski af því að mörgum finnst
þægilegra að versla þar en t
London. Öll helstu vöruhúsin eru
þar, en allt smærra í sniðum.
Aðeins 15 mínútur frá Prest-
wick-flugvelli í miðbæinn, á móti
45-60 mínútum frá Heathrow-
flugvelli inn í London. Gisting er
líka töluvert ódýrari en í London.
Meðalverð á B&B eða „gistingu
og morgunverði" er um 1.200 kr.
á mann í tveggja manna her-
bergi, getur farið niður í 600 kr.
Meðalverð á leikhúsmiðum er frá
1.000-1.500 kr. á móti 3.000 kr.
í London. Að vísu er ekki hægt
að bera saman fræg leikhúsverk,
sem sýnd eru í London á móti
smærri sýningum í Glasgow.
„Okkur reynist erfitt að fá ís-
lendinga til að gera annað en
stunda verslanir," segir einn
Skotinn. „Við viljum hvetja þá til
að líta á dagskrána okkar fyrir
næsta ár, þegar borgin okkar (og
þeirra) ber hinn eftirsótta titil —
Menningarborg Evrópu. Nýr
Glasgow-bæklingur liggur
frammi á öllum ferðaskrifstofuin
Glasgow, inenningarborg Evr-
ópu 1990.
og flugfélögum. Tveggja tíma
skoðunarferðir um borgina eru á
hvetjum morgni kl. 10 og kosta
290 kr. Þyrluferð yfir Glasgow í
15 mínútur kostar um 1.450 kr.
Einnig er hægt að §igla eftir
ánni Clyde í lystibátum eða sitja
að kvöldverði með kertaljósum á
meðan siglt er með gufuknúna
hjólaskipinu Waverley. Hvað
margir Islendingar hafa til dæm-
is heimsótt hið heimsfræga Bur-
rell-safn, þar sem listaverkin eru
undir glerþaki, með há eikar- og
birkitré í bakgrunni“?
Handbók um gististaði í Glasg-
ow og hátíðardagskráin er fáan-
leg hjá: Greater Glasgow Tourist
Board and Convention Bureau,
35 St. Vincent Palce, Glasgow
G1 2ER. Sími:041-227-4880.
O.SV.B.
eftir ÖNNVJ BJARNADÓTTUR
FERÐAVANUR kunningi minn sagði að ég gæti fengið vegabréfsá-
ritun til Ungverjalands á landamærunum eða á flugvellinum í Búda-
pest. Ég hafði því engar áhyggjur og rauk af stað. Hann áttaði sig
ekki á að ég ferðaðist með næturlest frá Ziirich. Skömmu áður en
við komum að landamærunum gekk órakaður austurrískur vörður
um lestina og spurði alla hvort þeir liefðu vegabréfsáritun. Ég kvað
nei við og dró upp myndirnar tvær sem ég vissi að voru nauðsynleg-
ar fyrir áritunina. En þá kom í ljós að lestin stoppar alls ekki við
landamærin heldur fyrir og eftir þau og engin leið að fá áritun nema
í Vín, þar sem það tekur tvo daga, eða taka leigubíl að hraðbrautar-
landamærunum og áfram þaðan að næstu brautarstöð í Ungverja-
landi. Hann sagði að það myndi tefja ferðina um tvo tima og ég
kæmi til Búdapest klukkan hálf fiögur í staðinn fyrir hálf tvö.
Sex aðrir voru í sömu sporum
og ég. Tveir leigubílar stóðu við
lestarstöðina en bílstjórana vant-
aði. Þangað til sá órakaði kom og
settist inn í fremri bílinn og aðstoð-
armaður hans í hinn. Hann ók okk-
ur, Vestur-Þjóðveija á leið á or-
kuráðstefnu, þýskum ferðamanni
frá Kanada og mér, 35 km leið að
hraðbrautinni og ráðlagði körlun-
um að láta taka myndir af sér í
litlum banka á leiðinni. Hann sagði
að sjálfvirka myndavélin við landa-
mærin væri oftast biluð. Þeir fóru
til kunningja hans í bankanum og
fengu rándýrar Polaroid-myndir.
Landamæraleigubílstjórinn sá
um að fá áritanirnar, ók okkur 10
km inn í Ungvetjaland og fékk sína
greiðslu. Lestin lagði af stað á rétt-
um tíma en hélt ekki áætlun. Okk-
ur skildist á ungverskri konu að
brautarteinarnir stystu leiðina
væru ónýtir og lestin þyrfti þess
vegna að fara um mest allt Ung-
verjaland til að komast til Búda-
pest. Við komum þangað klukkan
sex. Ég hafði ekki borðað matar-
bita síðan kvöldið áður en ákvað
að finna hótel eftir að það kom í
ljós að upplýsingaþjónustunni fyrir
fréttamenn hafði verið lokað fyrir
löngu.
Vingjarnlegur 23ja ára leigubíl-
stjóri keyrði mig á miðlungsdýrt
hótel (rúmar 3.000 ísl. kr. nóttin)
í miðbænum en þar var allt fullt.
Ég prófaði þá eitt af dýrustu hótel-
unum (rúmar 7.300 ísl. kr.) en þar
var líka allt fullt. Hótelmiðlunin
sagði að öll hótel í Búdapest væru
full. Svo ég samdi með aðstoð
leigubílstjórans við fullorðna konu
sem var að leita að gestum um að
gista hjá henni. Ég varð að vera í
þrjár nætur og borga 3.000 forint,
sem samsvarar 3.000 ísl. kr., fyrir.
Við eltum hana álíka vegaleng og
úr miðbæ Reykjavíkur vestur á
Bræðraborgarstíg. Hún fór með
mig inn í húsagarð og upp á íjórðu
hæð. Þar var herbergið mitt fyrir
innan baðherbergi í lítilli tveggja
herþergja íbúð.
Leigubílstjórinn, við kynntum
okkur ekki fyrr en á þriðja degi,
en hann heitir Istuan eða Stefán,
beið fyrir utan og var feginn að
heyra að allt væri hreint og snyrti-
legt hjá „Grossmutter". Við ókum
í flóttamannabúðir Austur-Þjóð-
verja og ég forvitnaðist um hagi
íbúa þeirra fyrir Morgunblaðið, en
til þess var ferðin gerð. Að því
loknu var tími til kominn að borða
og ég bað Istuan að finna stað og
borða með mér. Hann var til í það
en heimtaði svo að borga reikning-
inn. Ég lét hann komast upp með
það. Ungverskir karlmenn kunná
líklega ekki að meta að konur bjóði
þeim út. Ég vona að minnsta kosti
að hann hiki ekki við að láta karl-
farþega borga ofan í sig matinn.
Við ákváðuni að hann myndi
skipta svissneskum frönkum fyrir
mig í forint til að borga gisting-
una. En ■ hann hafði ekki næga
peninga á sér og kvaddi án þess
að ég borgaði honum aur. Hann
var mættur á réttum tíma daginn
Margir ferðainenn rölta um á kastalahæðinni í Búda, efLir „Fiski-
niannavirkinu.
eftir og við gerðum upp. „Grossm-
utter“ var þá á leið á lögreglustöð-
ina með passann minn til að fá
einhvern stimpil. Hún sagði að
hann yrði á brauðristirini í eld-
húsinu um kvöldið. Istuan ók með
mig á milli staða og bauð tnér á
MeDonalds í hádeginu. Það er eina
útibú keðjunnar í Austur-Evrópu.
Þar var pakkað út úr dyrum. Ætl-
unin er að opna annað útibú í
bænum Györ innan skamms og
eitt enn í Búdapest á næsta ári.
Istuan vildi bjóða mér „út að
drekka“ um kvöldið með kunningj-
um sínum en ég missti því miður
af því. Hann kvaddi um fimm til
að fara í líkamsrækt og ég tók
annan leigubíl heim í herbergið
mitt seinna um kvöldið. Sá bílstjóri
var aldeilis bíræfinn. Hann sagði
að gjaldmælirinn væri bilaður og
ferðin myndi kosta 200 forint. Ég
vissi að þetta væri helmingi of
mikið en lét mig hafa það. Hann
sagði að keyrslan í miðbæinn væri
odýrari.
Á brauðristinni var enginn passi
og ég fékk sjokk. Ég sá kerlinguna
fyrir mér að selja hann einhvetjum
Rúmena. Ég bankaði upp á í hinu
herberginu, þar sem þriggja manna
fjölskylda frá ísrael var að reyna
að sofna, og spurði hvort frúin
hefði látið hana fá vegabréfið. En
svo var ekki. Ég fór inn í herberg-
ið mitt til að jafna mig og hugsa
málið. Ég hefði betur gert það áður
en ég truflaði hiria gestina. Þar lá
blái passinn og beið tnín á koddan-
um.
Istuan var mættur með konu og
barn í bítið morguninn eftir. Hann
ætlaði að keyra þær mæðgur til
fjölskyldunnar við Balatonvatn og
skreppa með mig í flóttamannabúð-
irnar í Zanka í leiðinni. Sex ára
gömul Ladan, sem hann keypti
fyrir 350.000 forint á svörtum fyr-
ir hálfu ári, átti ekki erfitt með að
sigra Trabantana, Wartbúrgana,
pólsku Fíatana og Skódurnar á leið-
inni. Ný Lada kostar 230.000 plús
Alþj óðasamtök
heimilisskipta
I hverju felast þau?
-INTERVAC- varð til. Samtökin
starfa í 31 landi og bjóða yfir
7.000 skiptiheimili árlega. Sam-
tökin voru lengi bundin við
kennarastéttina, en fólk úr öll-
um starfsstéttum býður núna
fram heimili sín í skiptum.
Vissulega felast bæði kostir og
gallar í því að lána sitt heimili og
ganga inn á annars. Hægt er að
losna við bæði gisti- og bílaleigu-
kostnað, ef þið skiptist á bílum líká.
Þið kynnist betur því þjóðlandi,
sem þið dveljið í, með því að ganga
inn á heimili. Losnið við þreytandi
fólksfjölda á ferðamannastöðum.
Allt er til staðar á heimilinu: Tótn-
stundaiðja í bókum, leikjum og
sjónvarpi. Og ákveðið öryggi felst
í því að ykkar hús stendur ekki
autt á meðan þið eruð íjarverandi.
Árið 1953 komu tveir kennar-
ar sér saman um að ferðamenn
ættu að skiptast á heiinilum til
að komast í ódýrt sumarfrí. Al-
þjóðasamtök heimilisskipta
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. SEPTEMBER 1989 15