Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1989, Blaðsíða 16
mn
B 1 L A R
Skottrýmið er gott hjá Foringjanum.
Toyota 4 Runner - Foringinn.
Morgunblaðið/Bjami
F oringinn frár
stendur undir 1
royota
lafni
Mælaborðið er skýrt og gott og hægt
er að stilla stýrið.
Akstur
Það sem einkennir Foringjann þegar ekið
er af stað er fyrst hversu hljóðlátur bíllinn
er. Teppi í gólfum og góður frágangur virð-
ist einangra vel og heyrist því mjög lítill
hávaði frá vél. Fjöðrunin er mjúk og bíllirin
mylur því nánast átakalaust undir sig möl
og gijót á grófum vegum. Hann leggst einn-
ig allvel í beygur á holóttum malarvegi á
nokkurri ferð en segja má þó að þessi bíll
njóti sín betur á grófum vegum og ósléttum
þar sem reynir fremur á mýkt og afl en
hraðann. Á þannig slóðum fer líka vel um
'farþega sem ökumenn nema hvað lítil loft-
hæð í aftursætum getur orsakað það að
farbefrar reki sirr unn undir
Framboð á hvers kyns
fjórhjóladrifnum bílum
fer stöðugt vaxandi og á
það bæði við um jeppa
og fólksbíla. Frá Toyota
höfum við gegnum árin
kynnst Land Cruiser og
Hilux jeppunum sem hér
hafa verið boðnir í ýmsum gerðum og
henta til ólíkra verkefiia. Nú er kominn
nýr kostur í slaginn, Toyota 4Runner,
sem þeir kjósa að kalla Foringjann. Segja
má áð hann brúi ákveðið bil milli Hilux
sem er jeppi í lægri verðflokki (ef hægt
er að tala um lágt verð þegar jeppar
eiga í hlut) og Land Cruiser sem er í
þeim hærri og sjálfsagt má segja að
Foringinn liggi mitt á milli þeirra hvað
útbúnað snertir. Foringinn er með öðrum
orðum sterklegur jeppi, fimm manna,
með góðu farangursrými, 150 hestafla
vél, mjúkri fjöðrun, ýmsum þægindum
og kostar tæplega 2,2 milljónir króna.
Toyota umboðið P. Samúelsson hefur nú
fengið Foringjann í sölu og hafa margir
beðið hans með óþreyju. Sumir hafa reynd-
Á bílasýningunni í Frankfúrt mátti sjá
framtíðarbíla frá nokkrum framleiðend-
um eða frumgerðir. Þessir bílar eiga
hugsanlega eftir að koma á markað í
svipaðri mynd eða notað verður úr þeim
það sem framleiðendur telja eiga erindi
í Qöldaframleiðslu. Þannig mátti sjá frá
Toyota 4500 GT sportbíl með sex gíra
kassa og kringum 300 km hámarkshraða
sem gefur fjölskyldubílnum alveg nýja
möguleika!
Frá Nissan var sýnd frumgerðin UV-X
ar náð sér í notaðan bíl frá Bandaríkjunum
til að þurfa ekki að bíða. Fulltrúar Toyota
verksmiðjanna segjast hafa hannað Foringj-
ann til að mæta ólíkum þörfum manna fyr-
ir borgarakstur og akstur utan vega í einum
og sama bílnum. Hann eigi að geta gengið
jafnt fyrir ferðir í óperuna sem upp á
Sprengisand. Og víst má taka undir, að sé
það eitthvert atriði fyrir ökumönnum þá
geta þeir sómt sér vel á Toyota Foringja
hvar sem er og hann er líka þægilegur í
meðförum hvort heldur er á borgarmalbiki
eða vegleysu.
Ymis þægindi
Vélin er V6 með tveimur yfirliggjandi
knastásum, 3 1 og 150 hestöfl og er hún
með tölvustýrðri innsprautun. Á hún að
geta komið bílnum í 165 km hámarkshraða.
Bíllinn er búinn gormafjöðrun að aftan með
tvöföldum stífum og jafnvægisstöng og að
framan er sjálfstæð fjöðrun með snúnings-
öxlum og jafnvægisstöng. Foringinn er aft-
urdrifinn og snúast drifskaftið og framdrifs-
hluti millikassans ekki þegar bíllinn er í
sem er all rennilegur bíll eins og sjá má af
myndunum hér. Hann á að geta skilað
mönnum í allt að 210 km hámarkshraða í
fjölskyldubíltúrnum. Vélin er 2 1 og bíllinn
virðist allur rúmgóður og næstum eðlilegur
fimm manna bíll nema hvað hann er þó
með nokkru öðru yfirbragði að utan sem
innan. Við hönnun hans lögðu sérfræðingar
Nissan í Brussel, Englandi og Japan saman
krafta sína og teiknuðu á tölvukerfi sín sem
þeir gátu tengt gegnum gervihnetti.
jt
Mjúk fjöðrun Foringjans kemur vel í
Ijós á grófitm og ósléttum vegarslóðum.
afturdrifi. Tenging framöxla er sjálfvirk
þegar sett er í framdrif og ekki er því þörf
á að opna lokur eða læsa þeim utan frá.
Jeppar hafa löngum verið útbúnir með
lágmarksþægindi og ekki talin þörf á slíku
fyrir torfæruakstur. Það sem er ekki fyrir
hendi bilar ekki og kannski eins gott þegar
um erfiðar fjallaferðir er að ræða. Kannski
er þetta þó allt að breytast á síðustu árum.
Framleiðendur keppast við að bjóða sem
best útbúna jeppa, helst með öllum þægind-
um fólksbíls sem geta að auki dugað í veg-
leysum og ófærð. Foringinn er þar engin
undantekning - þar er nóg af þægindunum.
Þegar sest er upp í bílinn verða fyrir góð
fram- sem aftursæti með hefðbundnum still-
ingum. Lofthæðin mætti þó að skaðlausu
vera meiri fyrir aftursætisfarþega. Speglar,
rúður og læsingar eru rafknúin, mælaborð
er skýrt og greinilegt og í hurðum og á
bökum framsæta eru geymsluhólf af ýmsum
stærðum og sérstakan glasabakka má draga
út fyrir miðju mælaborðsins. Allt eru þetta
hlutir sem telja verður til þæginda en ekki
nauðsynlegir í jeppa eða landbúnaðartæki.
Jeppar í dag eru hins vegar annað og meira
- og kannski miklu fremur sportökutæki eða
stöðutákn.
Skottrými er yfrið nóg í Foringjanum og
það má síðan lengja um allan helming sé
aftursætið lagt fram. Verður það þá 1,68 m
langt. Afturhurðin er í raun einn hleri opnað-
ur á þann veg að fyrst er rúðunni rennt
niður annað hvort með lykli eða með rofa
milli framsæta og síðan er hurðin opnuð
með handfangi innan frá.
Foringinn er 4,47 m langur, 1,69 m breið-
ur og 1,755 m hár. Lengd milli hjóla er
2,625 m og hæð undir lægsta punkt er 21
cm. Þessi hæð ætti að duga í flestum tilfell-
um en segja má að menn þurfi að fara með
gát með afturendann þegar ekið er í vegleys-
um því hann stendur nokkuð langt aftur
fyrir hjólin. Bíllinn er á 15 þumlunga felgum.
Kraftur er með ágætum. Vinnslan er góð
en viðbragðið sjálft er þó ekkert sérstakt
og er hann 19,5 sekúndur að ná 100 km
hraða. Hámarkshraðinn er gefinn upp 165
km á klukkustund eins og fyrr segir og víst
hlýtur það að vera nóg. Gírskiptingu þarf
að venjast nokkuð, að minnsta kosti ef
bílstjórar eru vanir stuttri gírstöng sem lítið
þarf að hreyfa eins og oft er í fólksbílum.
Gírstöngin hjá Foringjanum er nokkuð löng
og langt á milli gíra. Það er í sjálfu sér
ekki galli heldur spurning um það hveiju
ökumenn eru vanir og hversu fljótir þeir eru
að laga sig að þessu.
Foringinn er alllipur til aksturs í borg,
hann er laufléttur í vökvastýrinu og menn
eru fljótir að ná leikni að leggja í þröng
stæðin. Sé bílnum ekið í fjórhjóladrifi finnur
bílstjóri strax ákveðinn mun - allt verður
heldur þyngra í vöfum - en að sumarlagi
vantar snjó og hálku til að geta sannreynt
kosti fjórhjóladrifsins. Ekki var bíllinn iagð-
ur í neina vegleysur og því ekki reynt á
hæfni hann á því sviði en endurtaka má að
hann er mjúkur á grófum vegarslóðum.
Ekki liggur Ijóst fyrir hver eyðslan er. Á
ferð um landið hafa fulltrúar umboðsins
sagt bilinn eyða kringum 14 1 á hundraðið
við venjulegan akstur. Nokkrum lítrum þarf
því að bæta við þá eyðslu í borgarakstri.
Ljóst er því að hér er ekki um neinn spari-
bauk að ræða.
Fjárfesting
Foringinn frá Toyota er vel útbúinn og
vandaður jeppi. Þægindi eru fyrir hendi,
góður kraftur, mýkt og gott rými. Fyrir
þetta þarf að greiða kr. 2.190.000 krónur
og nokkrum tugum þúsunda betur vilji
menn sóllúgu. Með Foringjanum eru menn
ekki að kaupa neinn venjulegan fjöl-
skyldubíl heldur ýmislegt fleira og fjárfest-
ingin eftir því. Til samanburðar má nefna
að Hilux með tvöföldu húsi kostar rúmar
1,5 millj. króna þannig að munurinn er tals-
verður. Hér þurfa kaupendur því að hugsa
sig að minnsta kosti tvisvar um.
jt
Nissan UV-X frumgerð er hraðskreiður fjölskyldubíll framtíðarinnar.
Framtíðarbílar í Frankfurt