Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1989, Síða 3
TEgRáHT
[m! @ @ 5S ÍM! ® B ® S ® lU S ®
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.:
Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías
Johannessen, Styrmir Gunnarsson. AÖstoð-
arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.:
Gísli.Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns-
son. Ritstjórn: Aöalstræti 6. Sími 691100.
Aðalvík
Aðalvík á Hornströndum er að vísu farin í eyði á
vetrum en á sumrin blómstrar þar fagurt manniíf.
Elísabet Jökulsdóttir skrifar grein um ævintýri tvíbu-
ranna Garps og Jökuls og systkina þeirra nú í sum-
ar þegar dagurinn var alla nóttina.
Ferðablað
Hrönn Sturlaugsdóttir kynnir Tioman, litla, ósnortna
eyju úti fyrir austurströnd Malasíu. Paradís ferða-
manna.
„Haust á Þingvöllum“ gætum við kallað þessa mynd
sem var tekin um síðustu helgi þegar litir á lyngi eru
að syngja sinn kveðjusöng að sinni. Þorkell Þorkels-
son tók myr.dina.
Brauðgerð
hefur tíðkast frá aldaöðli og í grein Hallgerðar Gísla-
dóttur segir frá brauðgerðargamni hér á landi og
annars staðar.
NÍNA BJÖRK ÁRNADÓTTIR
í minningu
Jóns Haraldssonar
arkitekts
Pie Jesu Domine
Dona eis requiem
Það stendur á hafsbakka
svarta tréð
og greinar þess dansa löngum við brimölduna
í óskammfeilnum ofsa
Komirðu nær því
á kyrru kvöldi
heyrirðu sungið þar inni
sorgarljóð
um deyddar borgir
_ Blóm þessa trés eru haustblóm svo hvít svo hvít
í rökkrinu glitrar á þeim birtudögg
Langt fram í nóvember
standa hvítu blómin
Á meðan flýr brimaldan tréð
og söngurinn hljóðnar
Þannig sé ég líf þitt
og heyri þig hvísla
minnstu mín
þegar nóttin fellur á hár þitt.
Höfundur var nýlega tilnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur í eitt ár.
B
B
Það er alkunnugt, hvað við
íslendingar reynumst
miklu merkilegri en ann-
að fólk; þegar merkileik-
inn er einhvern veginn
talinn út og svo reiknaður
í hlutfalli við fólksfjölda.
Það er t.d. afskaplega há
tala að eiga fjögur nóbelsskáld á hveija
milljón íbúa (þ.e.a.s. Halldór Laxness á
þessa kvartmilljón serri við erum); við eigum
ennþá stórmerkilegri fjölda af skákmeistur-
um; Evrópumet af bílum; höggvum víst
nærri heimsmetinu í sykuráti og kaffi-
þambi; og svo mætti lengi telja.
Eitt af þessum hérumbil-heimsmetum var
viðfangsefni mitt í háskóla: flutningar ís-
lendinga til Vesturheims. Vesturfarar frá
íslandi voru afskaplega margir — miðað við
fólksfjölda. Meira en fimmti hluti þjóðarinn-
ar fluttist vestur um haf, og það á aðeins
30-40 árum. Það fór að vísu miklu hærra
hlutfall af írum, og líklega eitthvað hærra
af Norðmönnum líka, en með því að reikna
bara þessa ákveðnu áratugi náum við öðru
sætinu. Þessari merkilegu sérstöðu íslands
hefði ég helst átt að finna einhveija skýr-
ingu á.
En var hún annars svo merkileg? Ef það
er í frásögur færandi að fimmtungur íslend-
inga hafi gerst vesturfarar, er þá ekki miklu
merkilegra að athuga íbúa Norðausturlands
út af fyrir sig, því að þaðan komu — miðað
við fólksfjölda — langtum fleiri vesturfarar
en úr öðrum landshlutum? Eða að skoða
bara Norðmýlinga? Eða allra helst Vopnfirð-
inga eina og sér, þvi að hvergi voru
Heimsmet
eftir höfðatölu
Ameríkuferðir jafnákafar sem úr Vopna-
firði? Með því að skoða íslensku þjóðina sem
eina heild var ég að taka meðaltal, jafna
út, eiginlega að hylja hvað Ameríkuferðir
voru þó miklar, þar sem þær voru á annað
borð miklar.
Sama má enn frekar segja um aðrar þjóð-
ir, fjölmennari og sundurleitari. Við getum
sagt, að miðað við fólksfjöida hafi Ameríku-
ferðir frá íslandi verið álíka miklar og frá
Noregi og 'talsvert meiri' en frá Svíþjóð.
Samt er hægt að finna, bæði í Noregi og
Svíþjóð, héruð eða landshluta, jafnvel fjöl-
mennari en ísland, þar sem meira var um
vesturfarir en nér. Ef við teflum fram Norð-
ur-Múlasýslu á móti, þá má líka finna ein-
stök byggðarlög í Noregi og Svíþjóð með
geysimiklar Ameríkuferðir, jafnvel einn
hrepp í Svíþjóð sem jafna má við Vopnafjörð.
Okkur finnst samt alltaf eðlilegast að
bera saman lönd eða þjóðir, bera okkur
saman við heilar þjóðir í útlöndum frekar
en íbúa einhverra héraða. Þetta er eðlilegt,
enda handhægast, því að hvert land sér um
að safna sínum skýrslum, og þess vegna
eru tölur um flesta hluti aðgengilegastar
fyrir heil lönd. Engu að síður er alltaf á
vissan hátt villandi og bera saman misstór-
ar einingar, bera t.d. íslendinga eða Færey-
inga saman við milljónaþjóðir.
Tökum dæmi af einhveiju heimsmetinu
okkar, svo sem bókaeign. Það er víst ábyggi-
lega heimsmet hvað Islendingar eiga að
jafnaði stór heimilisbókasöfn, sérstaklega
ef við teljum aðeins innbundnar bækur.
Hugsum okkar Islandi svo skipt í tvennt,
t.d. Faxaflóasvæðið og Iandsbyggðina, og
sé könnuð bókaeign fólks í hvorum lands-
helmingi fyrir sig. Þá væri hún örugglega
eitthvað misjöfn, þannig að annar hvor hluti
landsins — ekkert veit ég hvor — slægi
heimsmetið. Ef við liðum þennan bókríkari
landshelming niður í sýslur og kaupstaði,
þá væri það mikil tilviljun ef bókaeignin
reyndist ekki eitthvað misjöfn, og þá sums
staðar jafnvel meiri — miðað við fólksfjölda
— en hið nýja heimsmet.
Svona er þetta í flestum greinum. Hæstu
tölurnar — miðað við fólksfjölda — fást með
því að skoða nógu litlar einingar. Sé hins
vegar litið á stærri einingar er í rauninni
verið að taka meðaltal af mörgum litlum,
og þá jafnast tölurnar út. Þess vegna er
erfitt fyrir stórþjóð að gera, vera eða eiga
mjög mikið af nokkrum sköpuðum hlut —
miðað við fólksfjölda. Stórþjóðin er samsett
af svo mörgum ólíkum hlutum, og alltaf eru
einhveijir þeirra öðru vísi en hinir og draga
meðaltalið niður. Þegar borin eru saman
lönd og þjóðir heims og alls konar hlutir
reiknaðir í hlutfalli við fólksfjölda, þá má
vænta þess að hæstu tölurnar — og þær
lægstu — falli oftar en ekki á smáþjóðir.
Eg er, satt að segja, mest hissa á því
hvað sjaldan ég hef séð getið um heimsmet
— miðað við fólksfjölda — Grænlendinga,
Færeyinga, Lichénstein-manna, Andorru-
búa, San Marino-skeggja, og Mónakó-veija.
Ætli þesar þjóðir séu svona miklu meiri
meðalmenn en við? Eða þykja okkur heims-
met þeirra alls ekki fréttnæm af því að þær
eru fámennari en við? Þar við bætist raun-
ar, að þessum smáþjóðum er að meira og
minna leyti sleppt í ýmsum þeim handbókum
sem handhægastar eru til tölfræðilegs sam-
anburðar þjóða og landa.
Þegar við hugsum um sjálf okkur í sam-
anburði við aðrar þjóðir, þá koma okkur
víst helst í hug þjóðir eins og Danir, Þjóð-
veijar, Grikkir, Hollendingar, Bandaríkja-
menn ... Fyrrnefnar smáþjóðir held ég að
við teljum varla með, eins og þær séu í ein-
hveijum skilningi ekki fullgildar, ekki „al-
vöruþjóðir". Eannski vantar á að þær hafi
fullt sjálfstæði, eða sérstaka menningu, eða
sérstakt hagkerfi. Þó er ég hræddur um að
það sé í og með fámennið sem veldur, að
við tökum þær ekki fyllilega til greina. Líkt
og sumir fáfróðir útlendingar leyfa sér að
einfalda heimsmyndina með því að gleyma
okkur, þegar svo stendur á. En þá verðum
við móðguðust í heimi — miðað við fólks-
íjölda. Helgi Skúli Kjartansson
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. SEPTEMBER 1989 3