Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Blaðsíða 13
Hádegisveröur Cooleys er kjötseyöi og franskar kartöflur. Ennþá er langur dagur fram- undan. Meö rafstraumi kemur Cooley hjarta sjúklings til aö slá á nýj- an leik. Skurölæknirinn er kominn heim á Rollsinum sínum og í glæsivillunni, sem þarna sést í stórum garði, býr hann. hjúkrunarkonur og tæknimenn fyrir hjarta- og lungnavélarnar. Er skemmst frá því aö segja, að fyrir frjáls framlög og hagnað af góðgerðarskemmtunum var reist háhýsi, 27 hæða, sem kallað var „Cooley Tower“. Kl. 6.30 förum við úr bilageymslunni í kjallara þeirrar byggingar í lyftu upp á 3. hæð. Þar eru skurðstofurnar, gjörgæzlu- deildin og skrifstofa yfirskurðlæknisins. Við göngum inn í herbergi, sem í samanburði viö sali þýzkra yfirlækna á sjúkrahúsum, líktist geymsluherbergi, þar sem ríkir ágæt ringulreið. Bæði borðin eru yfirfull af papp- írum, bókum, skjölum, Ijósmyndavélum, linsum og alls konar tækjum og dóti. Og á hillum í kring eru postulínsgripir, indverska grafhýsið Tadsj Mahal úr plasti, fílar úr íbenviði, seglskip úr látúni, tvö strútsegg með áletrun frá Kristjáni Barnard, starfs- bróður frá Höfðaborg, og hjarta úr mer- skúmi. Og alls staöar í herberginu, hvort sem er á veggteppunum, myndunum eða sófapúðunum, er hjarta tromp. Cooley situr við skrifborðið og les fyrir nokkur bróf á segulband. Sum varða lyf fyrir sjúklinga og aöhlynningu, en eitt er til konu vegna fööur hennar, sem hann hafði ekki getaö bjargað. Hann snýr sér við í stólnum: „Þetta er nú meiri skriffinnskan í stað þess að vera að skera." Hann stendur upp og fer í slopp og réttir okkur sinn hvorum: „Ég ætla að líta inn til sjúkl- inganna." Við göngum nokkur skref inn ganginn og erum þá komnir aö gjörgæzludeildinni. Klukkan er 7.00. í hverju hinna tíu her- bergja er rúm viö rúm. Flestir hinna ný- skornu sofa. Þeir eru fölir. Úr munni og nefi liggja slöngur, og við brjóstið er fest raf- skaut til að fylgjast með starfsemi hjartans. Cooley gengur á milli rúmanna og nemur aðeins staðar, þegar læknar eða hjúkrun- arkonur skýra frá einhverjum vandamálum. Þá eru þau rædd og fyrirmæli gefin. í gjör- gæzludeildinni eru 100 sjúkrarúm — óskilj- anlegur fjöldi miðað við það, sem þekkist í Þýzkalandi. Þar bera læknarnir það alltaf fyrir sig, þegar rætt er um hina fáu hjarta- uppskurði á spítölum þeirra, að það þýöi lítið að skera fleiri upp, því aö hvert eigi að fara með sjúklingana á eftir? Þeir hafi í mesta lagi 12 rúm á gjörgæzludeild. Og fyrir marga hjartaskurðlækna er enn ein skýring tiltæk. Þeir, sem starfa á vegum háskóla, telja sig fyrst og fremst eiga að sinna rannsóknum og kennslu stúdenta, en ekki hinum mikla fjölda hjartasjúklinga. Svo heyrist einnig hið sígilda og samróma harmakvein yfir peningaleysi. Menn halda að sér höndum og hugsa eins og mörgum opinberum starfsmönnum er gjarnt: Því sem ég fæ ekki lokið í dag, sný ég mér að á morgun. í Houston er stöðugur straumur sjúkl- inga að skurðstofunum og frá, milli 30 og 40 á dag. Hafi sjúklingnum reitt vel af Hvíld eftir tíu tíma viö skuröarborö- iö. Frá sjúkrahúsinu er fimmtán mínútna akstur heim til hans, en þangaö kemst hann sjaldan fyrir klukkan 10 á kvötdin. Þaö gefast því fáar stundir til lestrar. Hann er nú 61 árs gamall og aöspuröur, hve lengi hann ætli aö leggja svo hart að sér, svarar hann: „Eg hef ekkert hugsað út í þaö ennþá. Þaö eru aö vísu nokkrir góðir menn meö mér á spítalanum, en meðan læknar um heim allan treysta því, að ég geti lagfært hvert hjarta, verö ég að halda áfram enn um hríð. fyrsta hálfan annan daginn, er hann fluttur á venjulega stofu. Kl. 7.40 setur Cooley á sig „skuröhúf- una“ og ennislampa. Með stækkunargler- augu á nefinu heldur hann síðan af skrif- stofu sinni i skurðstofurnar. Þær eru tiu talsins, og þar hefur allt verið í gangi frá kl. 7.00. Sjúklingarnir í fyrstu umferð hafa þegar verið svæfðir á skurðarborðunum. Skurðlæknarnir opna brjóstkassa sjúkl- inganna með rafmagnssögum, svo að hægt sé að komast að hjartanu. í forstofu hefur deyfingarlæknir fest upp á vegg lista yfir verkefni dagsins. Föstudaginn 7. ágúst 1981 er gert ráð fyrir 35 uppskurðum. Cooley lítur á dagskrána og ákveður að byrja í stofu 8, þar sem er 41 árs gömul kona með þrengsli fyrir hjartaloku. Hann sker hjartað upp, losar um þrengslin á lokubörmunum og saumar hjartað saman aftur. Hann innir aöeins af höndum sjálfa „viðgerðina". Hún tekur tíu mínútur. Að- stoðarlæknar sjá um að opna og loka brjóstkössunum. Eftir síðasta saumsporið tekur Cooley ennislampann úr sambandi og fer yfir í stofu 1. Nýr sloppur, nýir hanzkar. Hér á að losa um samvöxt i hjartaloku. Þaö er þegar búið að opna brjóstkassa sjö ára drengs, en hjarta- og lungnavélin hefur þó ekki verið tengd við hann. Hún sér um blóðrásina, meöan kyrrt hjartað er skorið upp. Cooley gengur að skurðarboröinu og undirbýr tengingu vélarinnar. Þegar dælan er komin í gang, opnar hann hjartað og síöan hina samgrónu lungnaæðarloku. Eftir 20 mínút- ur er aðgerðinni lokið. Ennislampinn er tekinn úr sambandi og Cooley hverfur í stofu 3. Klukkan er 8.30. I stofu 3 liggur 53ja ára gamall ung- verskur læknir á skurðarborðinu. Hann býr í Mexíkóborg. Hann er meö hjartakveisu (angina pectoris) og á aö fá fjórar hliðar- æðar (bypass).* Þær eiga að liggja framhjá þrengslunum í kransæðum hjartans. Áður en Cooley hefst handa, heilsar hann mexík- önskum starfsbróður, sem fylgdi vini sínum hingað. Skurðlæknirinn biður um, að ný snælda sé sett á með balletttónlist. Dælan er komin i gang. Hjúkrunarkona réttir fram æðar, sem búið er að skera úr fótum sjúkl- ingsins. Cooley sker fjórar hliðaræðar úr þeim. Þær líta út eins og ánamaðkar. Eftir hálftíma eru þær allar komnar á sinn staö. Hjartasérfræðingurinn frá Mexíkó hvíslar að mér: „Ég hef séð marga skurðlækna að starfi, en þessi er engum líkur. Engin hreyf- ing til ónýtis, ekkert augnablik til spillis. Hver skurður, hvert saumspor, hver hnútur eins og hann ætlaöist til.“ Allt fer rólega fram, leikandi létt að sjá. Ekki sést svita- dropi á enni skurðlæknisins. Kennari hans, Blalock, spurði Cooley eitt sinn mörgum árum eftir að leiðir þeirra skildu: „Hvernig er það, Denton, geturðu enn hnýtt hnúta í eldspýtnastokki?“ Hann svaraði: „Með annarri hendi, hægri eða vinstri, hvort sem þú vilt.“ Áður en Cooley fer úr skurðstofunni, áritar hann fyrir hinn mexíkanska starfs- bróöur sinn bókina „Cooley“ eftir brezka rithöfundinn Harry Minetree, en hann var sjálfur sjúklingur þarna í Houston. Gengi þessa sjúkrahúss byggist ekki einvörðungu á höndum eins manns. Það er hin vel smurða vél, hin hárnákvæma færi- bandavinna alls starfsfólksins, sem skapar öryggið og styttir tímann, sem aðgerðirnar taka. Til þess að verksmiðjan gæti gengið með fullum afköstum, þurfti fjármagn til aö kaupa nauösynlegan tæknibúnað og ráða nægilegt starfslið. Stofnféð lögðu nokkrir olíumilljónamæringar fram. Málverk af stórtækum gefendum hanga í anddyri sjúkrahússins. Sá sem kostaði lyftu ti! dæmis, fékk minningartöflu um sig yfir dyr- um lyftunnar. Frá sjúklingunum kemur fé til að standa straum af rekstri sjúkrahússins og all- nokkru betur. Sjúklingarnir eru allir á eigin vegum. Hver sem ætlar að gangast undir uppskurð í Houston, verður fyrst að telja fram 7000 dollara við afgreiðsluborðið við skráningu — hvort sem hann er Banda- ríkjamaður, Þjóðverji, itali eöa Mexíkóbúi. Skráningargjaldiö er fyrirframgreiösla upp í dvölina á sjúkrahúsinu og fyrir fyrstu rannsóknirnar. Allir læknar með sérgrein, sem meðhöndla sjúklinginn, senda reikn- ing fyrir verk, hjartasérfræðingurinn t.d. fyrir nákvæma rannsókn í upphafi 750 doll- ara og Cooley um 3000 dollara fyrir upp- skuröinn. Hver sprauta, hver tafla og hver gerviloka er reiknuð sér. Klukkan 9.50 byrjar Cooley á fjóröa upp- skurðinum. Sjúklingurinn er 63 ára gamall, og í hjarta hans saumar skurðlæknirinn skeifulaga hlut til stuðnings hjartaloku. Auk þess kemur hann fyrir þremur „hliðaræð- um“, teknum úr fæti sjúklingsins. Klukkutíma siðar stendur hann aftur viö * Margir íslendingar hafa gengist undir þessa aógerö í London og var því lýst í Morgunblaöinu skömmu eftir áramótin. Þær aögeröir hafa yfirleitt heppnast mjög vel.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.