Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1980, Blaðsíða 6
Chang McCurdy er Bandaríkja-
maöur, upprunninn úr Kóreu. Hann
er afburöa Ijósmyndari og hefur
Almenna bókafélagiö kynnt hann
rækilega meö útgáfu á glæsilegri
myndabók um ísland. Hér eru
nokkVar myndir úr þeirri bók, en í
dag opnar McCurdy Ijósmyndasýn-
ingu aö Kjarvalsstööum; þar sem
hann sýnir Ijósmyndir frá íslandi og
víðar.
Maöur er nefndur John Chang
McCurdy og upprunninn austan
úr Kóreu, en hefur ílengst í
Bandaríkjunum. Varla mun réttu
máli hallað þótt staðhæft sé, aö
hann sé ekki til muna þekktur á
fslandi og hefur hann þó meö
sérstökum hætti haft afskipti af
landinu — og í þá veru aö
þakklætisvert er. McCurdy er
Ijósmyndari, sérkennilegur og
merkur Ijósmyndari; einn fárra,
sem tekst aö nota myndavélina
sem tæki til listrænnar sköpun-
ar. Því til sönnunar er bók, sem
einfaldlega ber heitið ICELAND
og út hefur komiö á vegum
Almenna bókafélagsins. Út af
fyrir sig er þaö ekki nýmæli, aö
Ijósmyndari sendi frá sér
íslandsbók. Landiö okkar er
„ööruvísi" eins og allir vita víst
nú oröið og mikil náma hug-
kvæmum Ijósmyndara. En ís-
landsmyndabækur hafa vel flest-
ar hyllst til að sýna fjallkonuna
með varalit og augnskugga:
Atlavík í sumarblíðu meö slút-
andi birkihríslur, sem sýnast
vera alvöruskógur, ellegar róm-
antísk mótíf og heyra til sögunni:
Sláttumaöur meö orf og Ijá og
vallgróinn torfbær í baksýn.
McCurdy viröist ekki hafa
komiö auga á þau myndefni,
sem prýöa túristabæklinga ööru
fremur. Mér er stórlega til efs aö
túristum sunnan úr löndum geti
litizt vænlega á þaö land, sem
McCurdy kynnir fyrir þeim með
þessari bók. Halldór Laxness
segir í formála, sem hann hefur
ritað í bókina, aö hikandi yröi
hann að ganga inná svið þessara
mynda, ef einhver tjáöi honum
aö þær væru auglýsing á feröa-
mannastöðum.
McCurdy hefur ekki tekiö
mynd af Gullfossi í bjartviðri og
meö hinum skylduga regnboga.
Þar ríkir dumbungur og fölbrúnn
er litur vetrarins á landinu, en
klaki umhverfis fossinn. Tignar-
leg er loftmynd McCurdys af
suöurströnd landsins; silfurlitt
hafið og þessi ægilegi sandur,
— en nokkrir umkomulitlir fuglar
í hópflugi og sýnast vera á leið
innyfir þessa eyðilegu strönd.
Kaldur er bláminn viö jökullóniö
á Breiðamerkursandi í tungls-
Ijósi, — kaldur er hann undir
Eyrarfjalli, þar sem útigangs-
hrossiö krafsar. Viö vitum, aö
©