Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1978, Blaðsíða 6
Steingrímur Sigurðsson ELLEFTA BOÐORÐIÐ Brot úr starfssögu Braga í Eden — Bragi — hvers vegna fórstu ekki á sjóinn eins og aðrir Vestfirðingar? — Af því að ég hafði strax köllun í að vera garðyrkjumaður — vildi ekki annaö, sá ekki annaö. Það er sól í Eden. „Nú er vorið komið" sagði Hafsteinn oddviti, stjórnandi Kjörís, m.m. — einn dag um miðjan apríl, þegar stjórnmálahitinn var að komast í algleym- ing í forkjöri í því umtalaða Hverageröi. Bragi Einarsson er kvaddur til viðræðna upp á kynni gegnum löng ár allar götur frá samverustundum suður á Keflavíkur- velli í svartasta skammdeginu 1953 hjá Metcalf Hamilton Smith Company þegar sá látni svartstakkur Guðmundur Arn- grímsson ex-polizei-offiseri þar réð nokkru um eftirlit með siðferði og vernd þess fornkveðna „með lögum skal land byggja" — það er að segja sem æðsti embættismaður öryggisvaröa í aðalstöð ameríska hersins á íslandi. Þetta var fyrir tuttugu og fimm árum og Bragi í Eden vann þar sem annars staðar hörðum höndum að hverju sem hann gekk í margháttuðum störfum eins og í vest- firzkri Sjósókn, enda sonur bátskapteins aö vestan (frá ísafiröi), því var spurningin í byrjun ekki út í hött. Okkur haföi talazt svo til að hittast í tilefni af tuttugu ára afmælisstöðvarinnar Eden, fjöreggs Braga og sköpunarverks, sem bar upp á sumardaginn fyrsta í ár nákvæmlega... Bragi var að starfi á þeysispretti um stassjónina og svaraði ekki í síma, að nauösynjalausu. Komiö nálægt hádegi. Afríska tröllkonan fyrir miðju, sem nefnist Eva og fyrsta barnið, höggmyndin innan um pálmatrén tvö gein við eins og svart skurðgoð og gaf blæ. Öndvert við hana við skenkinn var konuhöfuð á vissan hátt frítt og ákveðið, eftir Modigliani (Italiano) til þess að rækjurnar að vestan smökkuðust betur. Var dulin listræn hvöt, sem réð þessu eöa bissnessandi. „Life is, business" eða „Business is life“, segir amerískt máltæki og hann Bragi var langtímum í þeirri stóru Amríku til að forframast og bæta við manndóm til þess að geta síðar tekizt meira á við hugsjónir lífs síns ... og nú var ástfóstur hans orðiö, tuttugu vetra og raunar gott betur, því að hugmyndin aö þessum landkynningarstað þarna í Hveragerði fæddist fyrst vestur í Ameríku, þar sem eigandi og forsvari var við framhaldsnám í garöyrkju og kynnti sér amrískt lífs-kerfi og ameríska verald- armennsku og trúlega sitthvað fleira, sem er „í hans deild" eins og sagt er á stundum. Bragi bauð í sitt hús, sem Úlfur Ragnarsson læknir, lét byggja yfir sig í háldgildings bungalow-stíl og minnir einmitt á byggingarstíl venjulegs þokka- legs amerísks einbýlishúss eins og greinarhöfundi kom slíkt fyrir sjónir í heimsóknum til Bandaríkjanna í þrígang á undanförnum árum ... Gengið inn um karldyr gegnum þvotta- hús og beint inn í eldhús og þaðan inn í hall og svo áfram gegnum stássstofu aö vinnuborði og bókaherbergi, sem veit beint að Eden í sud-vest samkvæmt kompás og siglingarfræði. Bækur í hillum ótal, og á veggjum myndlistarverk — málverk — gnægö — og um gjörvallt húsið, hvert sem litið er augum. Var sem mér sýndist — Vífilsfell í allri sinni dýrö, gert af meistara Kjarval 1932, kvað Bragi — fyrna stórt og mikið verk með fantasíu-ívafi og þeirri kyrrlátu spennu, sem einkennir Kjarval í alvöru- myndum hans... ' „Hvílík ósköp áttu af málverkum, Bragi — hvernig ferðu að þessu?“ „Það er saga að segja frá því. Eftir að ég kom hingað suöur, hafði ég þaö fyrir prinsip aö rölta á flestar sýningar eftir málara, þekkta og óþekkta". „Hefurðu þróað hjá þér ákveðinn listsmekk — þetta er spurning?" „Það getur enginn dæmt bækur nema sá, sem hefur lesið margar bækur. Eins er ekki hægt aö dæma málverk öðru vísi en að skoöa mikið af þeim. Hins vegar hvarflaöi aldrei að mér eftir að ég fór að rölta á þessar sýningar, að ég myndi nokkurn tímann hafa efni á að eignast nokkurt málverk. Svo kom að því að ég eignaðist mynd eftir mann, (Braga Ásgeirsson) sem er þekktári fyrip. skrif um myndlist en margt annað sem hann hefur gert; þá mynd held ég mikið uþpá, þó aö hún sé ekki dýrmætasta mynd sem ég hef eignast.“ „Hvernig hefurðu komizt yfir allar þessar myndir?" „Margar þeirra mynda, sem ég á, hef ég keypt á uppboðum. Þaö er eini sanni vettvangurinn, þar sem hægt er að fá myndir á verði, sem er sannvirði myndanna." „Ósammála, en það er annað mál — hvernig ferðu að því að auka á gæði safnsins?" „Meö því að láta myndir í skiptum til aö reyna að eignast myndir smátt og smátt sem ég met meira. Svo við víkjum aftur að málverkauppboöum '— hvað áttu við með þessum „eina sanna vettvangi?“ „Verð það, sem málarar setja á sýningum, er þeirra eigin verðmætamat, sem ekki er í öllum tilfellum í samræmi við verö myndanna til frambúðar. Flestar myndir á uppboðum eru myndir frá heimilum, sem fólk er að selja til að eignast aðra hluti. Á uppboö kemur aö stærsta hluta það fólk, sem lifir og hrærist í myndlist af ýmsum hvötum. Þar gefur enginn meira fyrir hvert verk en hann af frjálsum vilja vill greiöa.“ Heimili Braga Einarssonar að Þela- mörk 64 andar af framtaki. Ein- hverju sinni sagöi húsráöandi í viðurvist vinar að sér þætti vænt um heimili sitt og það væri áhættusamt að ráöa til sín heimilisaðstoð án yfirvegunar og skap- geröarprófs. Kjarval talaði stundum um það, að sumt fólk stæli andrúmslofti. „My home is my castle“, segja Englendirigar. Mærin Olga Björk, heimasætan fjórt- án ára, dóttir Braga og konu hans Dúu Björnsdóttur tróð inn í þessum svifum. Sundpróf í sjöunda bekk grunnskóla var afstaöiö og fram undan var próf í eðlisfræði. Hún er föður sínum til aðstoðar. Þau feögin virðast ekki þurfa að gefa hvort ööru skýringar til að skilja Bragi í Eden. „Lífið hefur ekki alltaf verið einn hvort annaö. Olga var horfin sjónum til aö búa sig undir vorpróf. Talið snerist. „Hefur þú, Bragi, að öllu leyti staðiö einn og óstuddur .. .ég á við uppbygg- ingu Eden?“ „Steingrímur, þú þekkir þetta heimili frá fornu fari. Þú veizt, aö enginn sem á góða konu stendur einn og óstuddur, hvorki í uppbyggingu heimilis né fyrir- tækis. Um langt árabil hefur eiginkona mín Dúa Björnsdóttir staðiö eins og klettur mér við hlið.“ Bragi setur spánska plötu á stereófón- inn: „Heimilið er eins og því er varið í dag er fyrst og fremst hennar verk en að sjálfsögöu bætist við á heimilið í tímans rás...“ Bragi í Eden er 48 ára gamall, fæddur á ísafirði og alinn þar upp(„í fjörunnivið pollinn meö þeim Arngrímsbræðrum og ýmsu öðru ísfirzku ungviði“). Þaö voru einkum tvær fjörur á ísafirði notaðar til leikja sú innan verða við Tangann en hin norðan megin. Þar voru Bragi og co. upp á vestfirzkan stíl í leik. Lengst af bjó fjölskylda Braga í húsi við Fjaröarstræti 27 beint á móti lögreglustöðinni. Þetta var lítiö hús, uppbyggt úr gömlu húsi, einu elzta á ísafirði, sem áður var prestsetur. Það var rjómagult bárujárnshús með rúst- rauðu þaki og smágeröum gluggum. Foreldrar Braga eru Sigríður Valdimars- dóttir, sem lézt 1965, þá 65 ára sem var fædd og uppalin á ísafiröi og átti ættir sínar þar og í Súgandafirði. Hún var góö kona. Faðirinn Einar Kr. Þorbergs kom ungur aö árum úr Inn-Djúpinu, fæddur á Bakkaseli, sem nú er löngu í eyöi. Framan af ævi var hann lengst af við sjósókn, á þeim árum, sem Bragi var innan við fermingu. Átti Einar sér trillu og skúr á kambinum og reri .í Djúpið. Einar veröur áttatíu og átta ára nú í sumar. Hann er ern og gengur oft að störfum í Eden hjá syni sínum, einkum þegar vora tekur og vinnur stundum allt sumarið fram að veturnóttum. Hann hefur föst skapgerðareinkenni og sér- kenni. „Á þessum árum var ísafjöröur mið- punktur alheimsins og heimsins bezti staður í augum mínum og jafnaldra minna. Þó fór svo, aö mjög fáir okkar vildu una aila ævi á eyrinni undir Gleiða Hjalla. Kannski hefur sjóndeildarhringur- inn verið of þröngur. Eftir þrjátíu ára samfelldur rósagarður.“ fjarveru aö heiman á ísafjöröur þó sterkari ítök í mér en nokkur annar staöur." Bragi hleypir heimadraganum fimmtán ára. Hann ræður sig sem aðstoðarmann í gróöurhús hjá Stefáni Árnasyni aö Syöri-Reykjum í Biskupstungum, þá staðráðinn í að gera garðyrkju að lífsstarfi sínu. Hann er þar tvö sumur, og starfaði í bókabúð Jónasar Tómassonar heima á ísafirði. í apríl 1948 hefur hann nám í Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi og lýkur þaðan prófi tveim árum seinna. Þá er hann orðinn tuttugu og eins árs. Hann stendur þá á vegamótum. Hann ræðst samt í það að starfa í Reykjavík við standsetningu lóða með hóp manna í þjónustu sinni. Hann starfar við þetta tvö ár samfleytt. Um áramót 1952 tekur Bragi á leigu gróðurhús nokkur í Reykjakoti í Ölfusi, sem voru í umsjá Pálma heitins rektors Menntaskólans. Var þar einn að mestu allt árið. Þar hafði hann minnsta fjármuni undir höndum og lifði á næsta litlu, aö því er hann segir sjálfur. Stundum var litlu ööru að renna niður nema munnvatninu og guðsblessun. Þetta var reynsluár, „Þá varð ég fullorðinn“, segir hann., Á útmánuðum 1953 skýtur Braga upp á Keflavíkurflugvelli, ræðst í vinnu hjá Sameinuöum Verktökum hjá vjnnuflokki, sem tekur aö sér í ákvæðisvinnu byggingu íbúöarhúsa í Seaweedhverfinu því fræga ( þarSecurity hið alræmda undir stjórn Mr. Hall, Scobies og G. Arn.) Þar er hann sumarlangt, en um haustið sama ár fer hann að keyra tíu hjóla Mack-trukka fyrir Hamiltonfélagið dag og nótt. Bragi segir svo frá: „Það er á þeim tíma, sem ég sé fyrst framan í Steingrím Sigurðsson, hafði þó heyrt um hann talaö og ekki bara gott. Einn nöturlegan sunnudagsmorgun að áliönu hausti er verið að keyra efni í sprengigeymslu hersins upp í heiði. Þar í litlum skúrkumbalda (shack á amerísku) sprettur upp maður í hvert skipti sem trukkarnir fara um, ekki of vel á sig kominn, næstum gegnsær af næturlöng- um skytningi. Hann á aðeins eina ósk, sem hann ber upp viö alla bílstjóra, sem um veginn fara. „Færið mér eitthvað að drekka. Ég lifi ekki af næsta klukkutíma". Enginn trukkeklanna virtist hafa sam- kennd meö pílagrímnum utan ég, sem í einni ferðinni skaut að honum nokkrum bjórum. Eftir það leit hann á mig sem sinn Salvator og hefur gert jafnan síðan . . .“ ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.