Lesbók Morgunblaðsins - 13.07.1975, Qupperneq 8
Stórtæk alhliða upp-
bygging á sér nú stað
í þessu víðáttumikla og
frá náttúrunnar hendi
auðuga txmdi, sem innan
skamms getur orðið eitt
afhinum efnahagslegu
risaveldum heimsins.
Mönnum hafa komið mjög á
óvart þær stórstígu framfarir scm
orðið hafa í Brasilfu síðustu fimm
árin. Sagt er, að slfks séu engin
dæini nema ef til vill í Japan.
Brasilíumenn hafa sett sér það
mark að verða efnahagslegt stór-
veldi innan tíðar. Eftir bylting-
una 1964 hafa orðið breytingar til
batnaðar bæði í efnahags- og
félagsmálum og þá einkum hin
síðustu ár. Byrjunarörðugleikar
eru brátt úr sögunni og upp úr
1980 eru allar horfur á að
Brasilíumcnn hafi skipað sér
öruggan sess mcðal iðnvæddra
stórþjóða heims.
A ýmsu hefur gengið i efna-
hagslífi Brasilíu. Þar hafa gengið
yfir góðæri og hallæri á víxl. í
hvert sinn sem verðlag á sykri,
gulli, gúmmíi og kaffi komst i
hámark, varð góðæri, en hallæri
fylgdi i kjölfarið, þegar markaðs-
verðið lækkaði á þessum vöru-
tegundum eða gullnámur tæmd-
ust.
Nú eru forsendur fyrir batn-
andi þjóðarhag byggðar á traust-
ari grundvelli en slíkum verðlags-
sveiflum og áætlanir eru gerðar
langt fram í tímann. Brasilia er
ekki lengur aðeins kennd við
kaffirækt, kjötkveðjuhátíðir og
sykurekrur. Þjóðin hefur sannað,
að hún hefur bæði hæfileika og
vilja til að takast á við stórfram-
kvæmdir sem horfa til framfara á
ölium sviðum þjóðlífsins.
Forsvarsmenn iðnvæðingarinn-
ar í Brasilíu fullyrða, að upp úr
1980 verði Brasilía orðið efna-
hagslegt stórveldi. Þá verði út-
fiutningur á málmi og matvöru
meiri frá Brasiliu en nokkru öðru
landi og auk þess muni út-
flutningur á fullunnum vörum
aukast stórum. 1 dag nemur inn-
flutningurinn til Brasilíu 50
milljörðum dala, en hann eykst
með hverju ári.
VAXANDI
VELMEGUN.
Þeim, sem fylgdust með óförum
landsins meðan Goulartstjórnin
var við völd, finnast þessar breyt-
ingar á högum landsmanna ganga
kraftaverki næst. Velmegun fer
nú ört vaxandi og ekki aðeins hjá
þeim sem bezt eru settir heldur
einnig hjá láglaunafólki — verka-
fólki í sveitum landsins, sem sára-
litið hefur fengið i sinn hlut fram
að þessu. Landið byggja 103
milljónir manna. Enn er það svo
að miðstéttin hefur hagnazt mest
á efnahagsþróuninni. Sá þjóð-
félagshópur kaupir sér nú sjón-
varp, útvarp, ísskáp og ryksugu,
sem allt er innlend framleiðsla og
menn aka i síauknum mæli í
einkabifreiðum, sem sömuleiðis
eru framleiddar i landinu, eftir
nýlögðum vegum.
Talið er að aukningin í bíla-
framleiðslunni muni nema 17% i
ár en bílaútflutningurinn muni
aukast um 30%. Tala framleiddra
bifreiða verður 1 milljón á ári.
Stærstu bilaverksmiðjur heims,
Volkswagen, Ford, Mercedes,
General Motors og Chrysler, reka
eigin verksmiðjur í Brasiliu og
Fiatverksmiðjur eru væntanlegar
á næsta ári.
Stjórnvöld i Brasilíu Ieggja
megináherzlu á að bæta hag
þjóðarbúsins með aukinni fram-
leiðslu innanlands svo hver ein-
stakur megi bera meira úr býtum.
Fram að þessu hafa nær eingöngu
verið framleiddar nauðsynja- og
neyzluvörur, en nú hyggjast
Brasilíumenn snúa sér að þunga-
iðnaði og fullvinnslu hráefna.
Áætlanagerðinni er skipt í þrjá
meginþætti. Efst á blaði er lagn-
ing þjóðbrautar um Amason-
svæðin. I öðru lagi er stefnt að þvi
að gera norð-austurhluta landsins
að þróuðu iðnaðarsvæði. Þar voru
áður helztu sykurræktarhéruðin
en sykurreyrsframleiðslan hefur
farið dvinandi.
í þriðja lagi er áætlunin fólgin í
því að koma upp öruggum
flutningaleiðum fyrir iðnaðar-og
landbúnaðarvörur frá mið- og
suðurhluta landsins til hafna á
austurströndinni. Sá útflutningur
á að tryggja nægan erlendan
gjaldeyri.
Ekki er ólíklegt að þessar
áætlanir verði nokkur verðbólgu-
valdur — og verðbólgu gætir
reyndar nú þegar — en þær eru
líka vottur um bjartsýni og stór-
hug.
AMASONHÉRUÐIN
— NYJAR leiðir.
En það er ekki óþekkt að
Brasilíumenn sýni bjartsýni og
stórhug í verki. Höfuðborg lands-
íns, Brasilia, er ljós vottur þess.
Hún var byggð á árunum
1950—1960 og henni valinn stað-
ur á óbyggðu svæði inni í miðju
landi. Tilgangurinn var að laða
þangað ungt fólk frá strandhéruð-
unum, sem voru orðin of þéttbýl.
Vegaáætlunin um Amason-
héruðin er gerð í sama skyni. Hún
á að hvetja fólk til búsetu i strjál-
býlu héruðunum í norð-
vesturhluta landsins til að auka
öruggan þjóðarvöxt.
Löndin meðfram Amason-fljóti
hafa hlotið rhörg ónefni í munni
manna svo sem ,,Iand morgun-
dagsins, þar sem aldrei morgnar"
og „græna helvitið". Menn vissu
þó löngum að landið bjó yfir mikl-
um auðæfum, en þau voru ekki
auðhremmd. Nú hefur birt af
morgni og mannafla er þörf í
Amason-héruðunum. Ekki eru
það þó fjárglæfra- og ævintýra-
menn, sem sigla upp fljótið,
heldur fólk, sem ætlar að setjast
að i þessum landshluta.
Samkvæmt útreikningum er
talið að Amasonhéruðin geti
framfeytt einum milljarði manna
eða 1/3 af íbúum jarðarinnar í
dag — og þar verði hægt að fram-
leiða meiri matvæli en framleidd
eru nú um allan heim. Þessi
héruð eru stærsta samfellda
svæði jarðar, sem enn er lítt
karinað og ónytjað. Menn vita þó
að þau hafa að geyma geysileg
náttúruauðævi.
Marshall hershöfðingi lét sér
einhverju sinni þau orð um munn
fara að sennilega hefðu banda-
menn ekki sigrað í heimsstyrjöld-
inni síðari ef auðævi Amason-
héraðanna hefðu ekki staðið þeim
að baki.
Amason-fljót og þverár þess
renna um þessaf víðáttur, sem
gætu rúmað Evrópu alla innan
sinna marka og upp árnar geta
skip siglt allt að 2 þúsund km leið.
Ösar Amason-fljóts eru tíu sinn-
um breiðari en Ermasund.
VEGAGERÐ.
I efnahags- og félagsmálum
hafa Amason-svæðin löngum ver-
ið sem ónumið land. Svo er eigin-
lega enn í dag. En stjórn landsins
áformar nú stórstígar fram-
kvæmdir við uppbyggingu svæð-
anna, eflingu landbúnaðar og
kvikfjárræktar og vinnslu á
málmum, sem þar finnast í jörðu.
Fyrsta skilyrðið til að hrinda
þessum áætlunum í framkvæmd
er að koma á samgöngum og auð-
velda vöruflutninga. Amason-
fljótið er ekki nægilega góð sam-
gönguleið. Þess vegna hófst
stjórnin handa fyrir fjórum árum
um lagningu akvegar þvert yfir
svæðið. Ætlunin er að opna svo til
ókönnuð frumskógalönd meðfram
fljótinu með tilliti til búsetu og
efnahagslegrar þróunar — og
sameina loks þetta svæði
brasilísku efnahagskerfi i heild.
Akvegurinn á upphaf sitt í
Recife, höfuðborg sambandsríkis-
ins Perambuco og í Joao Pessoa,
sem er hafnarborg á Atlantshafs-
ströndinni. Vegurinn á að liggja
alllangt sunnan við Amasonfljótið
um mestu regnskóga jarðar. Hann
verður um 5000 km að lengd og á
að ná að landamærum Perú. Á
þessu svæði hafa nær eingöngu
búið frumstæðir Indíánaþjóð-
flokkar. Verkið hefur verið falið
einkaaðilum til framkvæmda,
m.a. japönsku fyrirtæki, og talið
er að ekki muni líða á löngu þar
til vegurinn verði fullgerður,
enda þótt brúa þurfi sex stórfljót
álíka breið og Mississippi. Þessi
þjóðbraut um Amason-héruðin
verður loks tengd vegakerfi um
alla Suður-Ameríku.
Fleiri vegaáætlanir eru einnig í
bígerð á þessu svæði. Nefna
mætti vegagerð milli Cuiaba og
Santarem. Sá vegur liggur einnig
um málmauðug svæði, þar sem
skilyrði til kvikfjárræktar, skóg-
ræktar og akuryrkju eru einkar
góð, og mun þeirri vegagerð ljúka
á þessu ári. Sá akvegur liggur í
norður-suður og er 1500 km að
lengd. Hann tengir hin auðugu
vesturhéruð Brasilíu við siglinga-
leiðina miklu um Amasonfljót.
Þjóðbrautin um þvera Brasilíu
er þó hornsteinn uppbyggingar-
innar í Amason-héruðunum. Að
vísu verður þetta þó engin hrað-
braut eins og þær gerast beztar á,
okkar dögum. Vegurinn verður
ekki malbikaður fyrr en síðar og
til hans sparað eins og kostur er,
þó ekki meira en svo að hann
verði vel fær. Flekar verða notað-
ir til að komast yfir stærstu fljót-
in og timburbrýr byggðar yfir þau
minni. Síðar á umferðarþungi á
þessum vegi að ákvarða frekari
frágang.
Landnáminu i Amasonhéruðun-
um á fyrst og fremst að beina að
100 km breiðu svæði beggja
vegna vegarins. Aðsetursstöðvar
vegagerðarmannanna hafa verið
valdar með tilliti til þess að þeir
sem siðar gerast íbúar þarna, geti
notað húsin til bráðabirgða um
leið og hverjum vegarkafla er lok-
ið. Ibúðarhús standa tilbúin með
rafmagni og vatnsleiðslu, skólar
hafa verið byggðir, heilsugæzlu-
stöðvar, kirkjur, bankar og að-
stöðu hefur verið komið upp fyrir
tómstundaiðkanir.
Ibúar þessara stöðva eiga að
vera nokkurskonar framvarða-
sveit i sókninni til landnáms á
þessu ósnortna svæði. Sérhver