Lesbók Morgunblaðsins - 13.07.1975, Blaðsíða 7
Lagt á borð og ieikiS sór i dagheimilinu Lyngási.
— I sérkennslumiðstöðinni er
gert ráð fyrir, að starfi sérmennt-
að uppeldisstarfslið, sem gerði
þjálfunaráætlanir í samræmi við
þroska barnsins. Miðað er við, að
þessi þjálfun fari einkum fram í
heimahúsum með ýmiss konar
leiktækjum og námsgögnum, sem
stofnunin lánaði foreldrunum, og
þessu yrði fylgt eftir með stöðugri
aðstoð og ráðgjöf. Þegar barnið
kemst á forskólaaldur er það í
verkahring þessarar stofnunar að
skapa því viðeigandi náms-
aðstæður í forskóla, en ég tel það
skyldu samfélagsins að sjá van-
gefnum börnum á aldrinum
þriggja til sex ára fyrir forskóla-
vist, ef foreldrar þeirra æskja
þess.
— Er nauðsynlegt að hafa sér-
staka forskóla fyrir þessi börn eða
geta þau að einhverju leyti fallið
inn í hið almenna kerfi?
— Það þyrftu að vera til ýmsir
valkostir í samræmi við þroska og
heilsu barnanna. Sum börn má
vista á venjulegum dagvistunar-
stofnunum, og þar er um tvennt
að velja, einstaklingsblöndun eða
hópblöndun. I fyrra tilvikinu er
eitt vangefið barn látið á deild
með heilbrigðum börnum, en i
annan stað væri sérstök deild fyr-
ir þroskaheft börn á venjulegri
dagvistunarstofnun, og þeim van-
heilu blandað saman við heil-
brigðu börnin eftir þvi sem við
yrði komið. Þetta þýddi það að
efla þyrfti starfslið á viðkomandi
stofnunum og gera ýmsar ráðstaf-
anir, því að slíkt fyrirkomulag
hefði i för með sér mjög aukið
vinnuálag. Hins vegar er þetta
mjög heppilegt, þar sem það
stuðlar að auknum samskiptum
ólíkra einstaklinga.
í þriðja lagi má gera ráð fyrir
sérstökum forskóla fyrir vangefin
börn, og slikur skóli er t.d. ráð-
gerður í Lyngási. I fjórða lagi
koma svo sérstakar forskóladeild-
ir í tengslum við skóla, eins og
verð.ur til að mynda við Öskjuhlíð-
arskóla, og fimmta leiðin er loks
einstaklingskennsla á sjúkrahús-
um og í heimahúsum.
Það er mjög mikilvægt, að náið
eftirlit sé haft með því að börnin
hafi jafnan verkefni við sitt hæfi,
og ýtt sé undir þroskann með al-
hliða þjálfun.
— A forskólakennslan kannski
einkum að miða að því, að koma
börnunum inn í hið almenna
skólakerfi?
— Möguleikarnir á því eru
hverfandi litlir. Vitaskuld verður
að gera viðeigandi ráðstafanir
gagnvart þeim börnum, sem horf-
ur eru á að geti aðlagazt samfélag-
inu i heild, en þorri vangefinna
barna hefur ekki tök á því. Þess
vegna hlýtur markmið kennslu
þeirra að vera annað en i hinu
almenna skólakerfi. Hið almenna
markmið kennslunnar er m.a. það
að búa börnin undir líf i sam-
félagi og að aðlaga þau eins stóru
samfélagi og unnt er, heimili,
skóla, vernduðum vinnustað eða
hæli. Örlítið samfélag, eins og t.d.
deild á hæli krefst talsverðrar að-
lögunar, ef vel á að vera. Barnið
þarf að aðlagast öðru vistfólki,
starfsfólki, staðháttum og síðast
en ekki sizt þarf það að aðlagast
sjálfu sér og gera sér grein fyrir
skynjunum sinum og þörfum.
Þetta eru sjálfsagðir og eðlilegir
hlutir í augum heilbrigðs fólks,
en það getur kostað mjög mikið
átak af hálfu foreldra og kennara
og ekki sftt barnsins sjálfs að ná
t.d. valdi á undirstöðuatriðum
hreinlætis og hirðu. Kennslan
þarf að vera í samræmi við eðli og
þarfir nemendanna, stuðla að al-
hliða þroska þeirra og veita þeim
hagnýta þekkingu og færni
hverjum eftir sinni getu og hæfi-
leikum. Svo á hún einnig að hafa
sértæk markmið, sem eru eins
fjölþætt og margvisleg og ein-
staklingarnir eru margir, en meg-
inatriðið er að draga úr áhrifum
meðfæddra hamlana á nám og að-
lögun og kqma einstaklingnum til
eins mikils þroska og framast er
unnt.
— Það er sjálfsagt ekki hlaupið
að því að framkvæma þetta.
— Kennsla og þjálfun van-
gefinna er mikið vandaverk og
þarf að vera unnið af sér-
menntuðu fólki, ef vel á að vera.
Þar kreppir skórinn að hjá okkur,
því að hér á landi er slfka sér-
menntun hvergi að fá og allar
leiðir til framhaldsnáms lokaöar
t.d. fyrir fóstrur og þroskaþjálfa,
sem áhuga hefðu. En það er nauð-
synlegt að fara að hefjast handa
um úrbætur í þessu efni og það er
ekki aðeins I þágu hinna van-
gefnu og aðstandenda þeirra,
heldur ekki siður þjóðfélagsins í
heild. Með þvi að fara skynsam-
Iegar leiðir i þessu uppeldisstarfi
sparast mikil verðmæti, og önnur
verðmæti skila sér síðar meir,
þegar vangefið fólk getur í aukn-
um mæli tekið þátt í störfum þjóð-
félagsins. Stór hópur þeirra getur
tekið að sér einföld störf, ef rétt
er á málum haldið.
— En hvernig getur námstil-
högun verið?
— Eins og ég gat um áðan hafa
Svíar markað mjög heppilegar
leiðir varðandi nám vangefinna,
sem ég hygg, að við getum stuðzt
við f öllum aðalatriðum. I for-
skólanámi er gert ráð fyrir fimm
meginþáttum, sem eru tjáskipti,
skynþjálfun, hreyfifærni,
skapandi athafnir og loks svo-
kölluð ADL-þjálfun, en sú
skammstöfun merkir athafnir
daglegs lífs. Við þennan þátt er
stöðugt lögð meiri rækt, en hann
er margslunginn og miðar að því
að gera barnið meðvitað um sjálft
sig, þjálfa færni þess í daglegum
athöfnum, þannig að það verði á
fullorðinsaldri sjálfbjarga á
heimili, í vinnu og við tómstundir.
Þessi þjálfun er stunduð gegnum
allan grunnskólann, eftir þvi sem
við á og svarar til þroska barns-
ins, og það gefur auga leið, að
slík kennsla er hagnýtari en tima-
frek lestrarkennsla, sem er oft
tilgangslítil sóun á orku
nemendanna.
— Er þá ekki gert ráð fyrir
lestrarkennslu i grunnskólanuni
— Jú, að vfsu, en með öðrum
hætti en tiðkazt hefur. Mikil rækt
er lögð við þá þætti móðurmáls-
kennslunnar, er miða að mál-
skilningi og þjálfun i munnlegri
tjáningu. Sjálf lestrarkennslan
fer hins vegar einkum fram með
orðmyndaaðferð, þannig að valin
eru algeng orð, sem hafa hagnýta
þýðingu, svo sem leiðbeiningar-
orð á skiltum o.þ.h. Yfirleitt er
látið hér við sitja og er ástæðan
sú, að venjulegar lestrarkennslu-
aðferðir henta sárafáum vangefn-
um börnum og þótt takast megi að
gera þau stautfær, hafa þau að
jafnaði ekki þroska til að lesa
venjulegan texta með skilningi.
Þau ná einfaldlega færni í að
breyta leturtáknum í hljóðtákn,
en eru að öðru leyti jafnnær. Ekki
hefur heldur þótt hentugt að eyða
iniklum tíma í skriftarkennslu, og
látið er nægja að kenna börnun-
um að skrifa nafnið sitt. í
reikningskennslu er einnig reynt
að miða við það, sem að gagni
getur komið t.d. stærðir, form og
lág talnagildi. Loks er kennd ein-
föld samlagning og frádráttur.
Framhald á bls. 10