Lesbók Morgunblaðsins - 13.07.1975, Blaðsíða 2
Karl é Knútsstöðum.
Bjartmar
Guðmundsson
Sandi
VEL
OG
VASKLEGA
GERT
Fáein orð um Karl á Knútsstöðum
FLESTUM mun Karl Sigurðsson
á Knútsstöðum í Aðaldal hafa orð-
ið minnisstæður, er sáu. Og þá
ekki síður sum handarvik hans.
Kempumennið slynga var hann
líka titlaður í sóknarvísu heima í
sveií okkar um 1920, er hann var
um þrítugt.
Bær Karls stóð og stendur á
bakka Laxár, og nær ánni en
nokkur annar bær. Þar átti hann
heima meira en hálfa öld, bjó búi
sinu og tók til höndum all hraust-
lega þegar honum þótti við eiga.
Enginn held ég að vitað hafi afl
hans til fulls. En honum var fleira
vel gefið.
Eir.s og gefur að skilja átti
Knútsstaðabóndi og eigandi þeirr-
ar stóru jarðar mikið vatn í ánni,
sem frægust er af sumarfegurð,
stórlöxum og elskulegu hjali um
máttinn mikla í Laxárvatni öllum
til góðs. Aö sjálfsögöu átti hann
sinn árhelming, er fylgdi hans
bakka. Og að hálfu á í Núpalandi
lengi vel og þar meö þá jörð einn-
ig hálfa.
En þetta átti ekki að vera nein
fasteignaskrá. Því aldrei steig
jarðeignin Knútsstaðabónda til
höfuðs, svo hann yrði drembinn
af eign sinni og draumum um
mikinn pening. Hann var heldur
enginn stangveiðasnillingur á
borð víð þá, sem stundum sjást
prýða Laxárbakka og grynningar
í súld og sudda. Þó segi ég ekki að
dæmalaust hafi verið að Karl
drægi fagra fiska úr bláum
straumi og gráum, fasta á krókn-
um. Um það veit ég sannast að
segja harla lítið. Hann átti nóg
önnur erindi við á sína og sum
harla mikilvæg. Þó þessi indælis á
sé guðdómlega fögur og mikil-
fengleg i sumardýrð að sjá, er
hún að sjálfsögðu allt öðruvísi á
vetrinum. Hún er þá líka stund-
um viðsjál þegar hún á að heita
undir ís. Og eru þess ótal dæmi að
niður um ís hennar hafi fallið
hestar undir mönnum og fyrir
sleðum, hlöðnum heyi og kaup-
staðarmat. Og þá gat komið sér
heldur vel að til væru menn og
nálægir, sem kunnu að kippa
hesti uppúr vök. Einnig gangandi
menn detta stundum ofan í og
getur þeim þá verið bani búinn,
nema eitthvað aðkomið verði
þeim til bjargar. Og fleiri
hrekkjabrögð á hún til, þessi Lax-
á, og má víkja að þeim seinna.
Eg held að „kempumennið
slynga“ hafi haft það nokkuð oft i
hyggju að koma í veg fyrír það að
hans á gerði öðrum óskunda með
einum eða öðrum hætti. Ekki gat
hann þó byrgt brunninn svo ekk-
ert barnið gæti í hann dottið.
Þessi merkilega á er ailtof breyti-
leg i háttum og mislynd til þess að
svo geti til tekist. En það var um
þetta eins og læknana göðu, sem
reyna í lengstu lög með ráðum og
dáð að afstýra því að mannamein
eyðileggi heilsu manns og taka
hann svo á eftir til lækninga ef
hitt hefur mistekist.
Svo fór um mig er ég sá Karl á
Knútsstöðum i fyrsta skipti, 11
ára gamall, að ég festi á honum
traust, sem aldrei hefur við mig
eða hann skilið síðan. Fyrsta sýn
og áhrif áorka stundum ótrúlega
miklu.
Lítið atvik rifjast upp. Atvik er
atvik en ekki atburður nemastórt
sé. En af litlu má manninn marka.
Þrír eða fjórir strákar eru á leið
heim til sín ofan úr Dal niður
fyrir Hraun. Þeir eru ákaflega
heimfúsir eftir vikudvöl á skóla.
Þetta er auðvitað á laugardags-
kvöldi og á útmánuðum. Þeirra
heimfararleið er ekki nema svo
sem fjögurra tíma gangur í sæmi-
legu færi og veðri. En nú er tæp-
ast sæmilegt veður eða færi. Og
hvorugt þö vont. Strákar eru dá-
lítið vanir við að bjarga sér á
eigin spýtur. Og af því þeir eru
þvi ekki alveg óvanir, sýnist þeim
að veðrið geti farið versnandi og
færið um leið. Þá verður óratandi,
hugsa þeir og segja, niður fyrir
hraunið. Náttmyrkur til viðbótar
hríðarmyrkri er að detta á. Þessir
ungu menntamenn eru ekki ragir,
held ég að mér sé óhætt að segja.
Nær væri að segja að þeir væru
þegar orðnir vitrir af reynslu og
þekktu sin takmörk. Væri nú ekki
réttast að láta vita af sér á Knúts-
stöðum, úr því þeir eru staddir
nærri þeim bæ, áður en þeir
leggja á aðalhraunið? Við svörum
því játandi. Ég er einn þessara
stráka. Bóndinn á bænum stóð úti
þegar við gengum í hlað eins og
hann hefði fengið hugskeyti. Vel
gerið þið að láta vita af ykkur,
sagði hann formálalaust, eins og
hann vissi alla skapaða hluti um
okkar heimför. Ég geng með ykk-
ur, sagði hann líka formálalaust.
Trúlega er nokkuð blindað i
hrauninu núna og getur þó orðið
verra, ef hann brestur á.
Eins og ég sagði festi ég traust á
Karli á þessum bletti og á þessu
útmánaðakvöldi, sem aldrei bilaði
meðan báðir voru ofan moldar og
ekki heldur siðan. Hann fylgdi
okkur svo heim til bæja okkar 7
km leið gegnum eitthvert það
mesta myrkur í Aðaldalshrauni,
sem ég hef þreifað mig gegnum,
og er þá nokkuð sagt. Og það var
einsog hann vissi hvar ófært var
gegnum runnana, sem ekki voru
sýnilegir, hvar ófært var yfir
kamba, fyndi á sér hvar skonsur
Hinn frægi og fagri veiðistaður, Æðarfossar F Laxá eru I
landi KnútsstaSa.
voru og gjár, sem engin leið var
til að koma auga á. Ekkert gerð-
um við annað en feta dyggilega í
fótspor fylgdarmannsins. Og ekki
sleppti hann af okkur fyrr en
hann var búinn að skáka hverjum
og einum inn fyrir hurðir heima i
okkar mömmubæjum. Síðan hélt
hann heimleiðis tafarlaust og
sagði að ekki borgaði sig að biða
eftir þvi að brysti á.
Sumarið 1918 var einstakt gras-
leysissumar vegna kals og neðan-
kulda i jörð, er stafaði af klaka í
mold, sem sumarsólinni gekk illa
að þiða, og frostaveturinn hafði
eftir sig skilið. Karl á Knútsstöð-
um heyjaði mestöll sín hey i
Sandsengi þetta sumar. Og varð
svo að aka þeim heim til sín um
veturinn, mestöllu á einum sleða
milli mála. Ekki var æfinlega gott
að aka og leiðin talsvert löng, eða
svo að ætla má að hver ferð hafi
tekið 6 tíma minnst og stundum
8—10. Síðan hef ég oft hugsað um
það, hvílikt gífurlegt erfiði þetta
hefur verið fyrir mann og hesta
til viðbótar öllu öðru, sem gera
þarf ábæ.
Þetta sumar geymdum við full-
orðið naut í miklu fjárhúsi, ný-
lega byggðu, sem kallað var Hóls-
hús. Boli var nokkuð vondur, svo
á honum voru höfð tvö bönd, þeg-
ar hann var leystur og stundum
fótband að auki. Þarna í Hólshús-
inu átti hann að vera bundinn
rammlega á bás og færðu krakkar
honum tuggu um miðjan daginn
svo hann eirði þolanlega við. Oft-
ast voru allir á engi nema
minnstu krakkar og ein kona i
bænum. Einn daginn var okkur
gert viðvart á engið um að boli
væri laus. Mig minnir að það væri
gert með þeim hætti að breiða á
Hólshússtafninn, sem sneri að
okkur á enginu. Það þýddi að
einhver væri beðinn að koma
heim. Ég fór og fékk að vita að
boli væri laus og bölvaði mikið og
léti öllum illum látum í húsinu.
Ekki var ég viss um að ég væri
nógu mikill fyrir mér til að ráða
einn við nautið, svo ég kallaði til
Karls, sem var að slá skammt úti í
mýri. Rétt á eftir erum við báðir
komnir austur að húsi. Ofur hægt
opnuðum við húsið og gægðumst
inn. Um leið kom boli karl á móti
okkur harla gustmikill og hefur
kannski hugsað gott til að fá að
koma út i sólskinið úr fangelsinu.
Annars ætla ég ekki að reyna að
lýsa sálarlífi þarfanauts eða
neinna annarra. Garðabönd í hús-
inu voru nokkuð brotin og á einni