Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1970, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1970, Blaðsíða 9
í r;Vs tímans hefur betta tilkomumikla andlit máðst og brotnað, cn eftir stendur ennþá tilfinn- ingin fyrir hinu dularfulla, seni ekki er þessa heims. fraim og aftur uan vatn- ið . . . “ Kúfu lízt vel á hug- myndina en ákveður að endur- bæta hana: „Láttu færa mér,“ býður hann, „tuttugu árar gjörðar af íbenholti og greypt- ar gulli. Láttu þá færa mér þær tuttugu konur, sem fegurst eru limaðar, fegurst hafa brjóstin og lokkana; láttu loks færa mér tuttugu net og fáðu konunum þau í klæða stað.“ Farið var að skipun konungsins í einu og öllu. Og þær reru fram og aft ur. Og hjarta Faraós kættist, er hann leit þær við róðurinn.“ En þá vildi slysið til. Ein stúlknanna missti skartgrip úr hári sínu og féll hann til botns í vaitiniiimu. Hún hætti þeigar róðrinum og hinar stúlkurnar einnig. Konungur spurðist fyr- ir um ástæðuna og er hann heyrði hana, bauð hann stúlk- unni að gefa henni annan eins skartgrip. Þá svarar hún: „Ég vil fá minn eiginn aftur.“ Nú var ekki gott í efni og Kúfu vissi ekki gjörla hvað gera skyldi, svo hann sendi aftur eftir töframanni sínum Zaza- monkh og spurði hann ráða. Zazamonkh varð ekki mikið um, en framdi þarna sams kon ar kraftaverk og Móses gerði löngu seinna, þótt allt væri þetta í smærri stíl hjá Zaza- monkh. Hann lyfti sprota sín- um, beindi honum út yfir vatn- ið og skildi það í tvennt, beint yfir skartgripnum. Eftir það var auðvelt að ná gripnum og hann var fenginn stúlkunni aft ur. Þá bræddi Zazamonkh vatnið saman aftur svo ekki sást misfella og skemmtuninni var haldið áfram. Þessi ágæta saga varpar niolkikru ljósi á sfcöðu kvæmna með al æðri stéttanna í Egyptalandi til forna. Konungar og háttsett- ir aðalsmenn áttu jafnan nokkrar konur, enda þótt ein væri alltaf yfir hinar hafin og kölluð aðalkona eða þá drottn- ing. Auk þess var fjöldi hjá- kvenna. Konur tóku virkan þátt í samkvæmislífinu eins og séð verður af myndum og skurði í grafhýsum. Þær eru fagurlega búnar, og sitja mönn- um sínum til hliðar í veizlum og hófum, þar sem mikið virðist hafa verið drukkið, Gestirnir sitja við lítil borð og er yfir- leitt verið að bera fyrir þá fuglakjöt, fisk eða aðrar kræs- ingar. Bæði karlar og konur þjóna þeim til borðs. Vínið streymir í _ bikarana stríðum straumum. I Rekmír grafhýs- iiniu í Þehu er 'þetta haift eftir hefðarkonu sinni: „Ég er skrjáf þurr innan um mig. Ég vil drekka mig drukkna.“ Á lág- mynd í öðru grafhýsi sést, þar sem höfðingskona er orðin veik af víni og heldur þjónn stórri skál undir höfði henni. Þetta virðist allt hafa verið tal- ið fullkomlega eðlilegt og til heyrandi. Konur bera langar, liðaðar hárkollur á myndum þessum, klæ'ðasit öklaisiíðiuim, niærskom- um og hálfgagnsæjum kjólum úr hördúk. Dansmeyjar þær, er skemmtu gestunum báru ekki nokkra spjör utan lendadúk og brjóstskraut og það þó alls ekki ævinlega. Egyptum þótti mikil skemmt- un að íþróttum ýmsum á ám og vötnum. Margar myndir sýna fuiglaveiiðiar á papýrusibátuim. Oft stendur aðalsmaðurinn í stafni og kastar spjóti eða skutli að fuglinum, en kona hans eða dóttir heldur um fæt- ur honum, svo hann falli ekki fyrir borð. Á öðrum myndum er verið að skutla fisk eða królkódiíia. Auðvitað voru uppi dýrateg- undir í Egyptalandi fyrir þrjú þúsund árum, sem nú eru löngu útdauðar þar. Má nefna ljón og antílópur, sem reikuðu um eyðimerkurjaðrana, og svo flóð hestana í ánni sjálfri. Sumir að- albornir veiði- og íþróttamenn létu skrá í grafhýsi sín fjölda þeirra veiðidýra, er þeir höfðu lagt að velli um ævina. Hið mikla fljót var ekki að- eins miðstöð dýralífs heldur og frjógjafi og þá jafnframt lífs- uppspretta. Auk þess var það helzta samgönguæðin. Egypta- land var og er enn líkast græn leitri slöngu, sem hlykkjast gegnum sjöhundruð mílna eyði- mörk. Þarna er afar lítil úr- koma, svo að Níl er lang helzti vatnsgjafinn. Þessi mikla renn andi þjóðbraut tengdi rúmlega þrjátíu héruð, sveitir eða nomes (eins og Grikkir nefndu þau). Hvert hérað átti sér eigin höfuðborg með helgum stað á borð við Abydos, Edfú og fleiri. Borgir þessar voru einnig verzlunar og viðskipta- miðstöðvar héraðsins umhverf- is, en hins vegar áttu héruðin í mjög litlum viðskiptum sín á milli, þar sem hvert þeirra mátti heita sjálfu sér nægt. Hver konung- og aðalborin fjölskylda hafði sína eigin vef- ara, bruggara, smiði o.s.frv. og bændur ræktuðu sjálfir ofan í sig. f héraðsskipan þessari má sjá uppruna Egyptalands sjálfs, því upphaflega skiptist þetta landssvæði á milli ótal ætt- flokka, sem ekkert tengdi, nema Nílarfljót. Samvinna milli ættflokka þessara hefur líklega hafizt af brýnni nauð- syn; það þurfti mikinn mann- afla til þess að hafa taumhald á flóðunum; það þurfti að byggja stíflur, flóðgarða og áveituskurði og þannig fór, að með tímanum varð allt þetta að einni siðmenningu undir einum konungi, faraóinum. Ættflokka erjur og landvinningar áttu einnig sinn þátt í þróun þess- ari. Um tíma var Egyptaland í tveimur hlutum, efra og neðra Egyptalandi. Var hið efra í suðri, en hið neðra í norðri. Og jafnvel, þegar landið hafði ver ið sameinað í eitt ríki héldust þessi nöfn í titlum konungs, „Konungur efra og neðra Egyptalands," og „Drottinn hinna tveggja landa.“ Bátar þeir og skip, sem sigldu um ána voru af mörgu tagi. Hin minnstu voru smá- fleytur úr papýrusbindinum, er reyrð voru saman; virðast þess- ar fleytur hafa verið hafðar til fiskjar. Þá voru stærri bátar úr stuttum trjám (í Egypta- landi er ekkert um stór tré), og loks haffær skip úr sedrus- viði, sem innfluttur var frá Líbanon. Var þeim bæði róið og siglt og geysistórar árar hafðar fyrir stýri. Fyrir utan kaupskip voru lystisnekkjur undir konunga, prinsa, aðra að- alsmenn og fjölskyldur þeirra. Kojur voru um borð í snekkj- unum og jafnvel káetur, eins og sjá má á haglega gerðum líkönum af snekkjum þessum, sem fundizt hafa í grafhýsum aðalsmanna tólfta konungdæm- isins (um 1800 f.Kr.). Þegar hér er komið sögu er rétt að beina aðeins athyglinni að þessum konungdæmum, sem maður rekst á í öllum bókum um Egyptaland til forna. Hið fyrsta þeirra hófst um árið 3200 f. Kr. oig fram að Alexandríanska konungdæm- inu (332 f.Kr.) stóðu og féllu alls þrjátíu slík. Hvert konung- dæmi byggðist á einni ráðandi ætt, líkt og Stúartættinni í Englandi eða Búrbónunum í Frakklandi og Spáni. En sá var munurinn á að í Egyptalandi gengu erfiðirnar í kvenlegg. Konungdæmunum hefur einnig verið skipað saman í tímabil, sem þekkt eru undir nöfnun- um Gamla konungdæmið, Mið- konungdæmið, Hyksostíminn (innrásartímabil) og loks Nýja konungdæmið. Tímasetning þeirra er nálægt því, sem hér segir: Gamla konungdæmið 2780—21'C'O f. Kr., Miðlkioiniuinig- dæmið 2100—1700, Hyksos- tíminn um það bil 1700—1555 og Nýja konungdæmið frá 1555 —712 f.Kr. Gamla konungdæmið er tal- ið hefjast með hinu fjórða, þ.e. árið 2780 f.Kr. Hið fyrsta hófst árið 3200 f.Kr. Upphafsmaður hins þriðja var Djoser faraó, sem reisti eða lét reisa fyrsta mikilsháttar steinvarða í heim- inum, en það var tröppupýra- mídinn í Sakkara sem síðar var endurreistur. Þessi bygging og bygging- arnar umhverfis hana eru eink ar áhugaverðar fyrir þá sök, að á þeim má sjá úr hverju Egyptar reistu hýbýli sín. Allar byggingar úr leirsteini, timbri og því uim lílku eru ihorfmar fyr- ir árþúsundum utan fáeinar rústir á víð og dreif. En í súl- unum við tröppupýramídann má enn sjá steinlíkingar af piaip'íruisibindlinuim, sem höfð voiru í einhvers konar súlur. Sjálf- ur veggurinn umhverfis pýra- mídann er gerður úr röð þilja með rifjum eða bitum á milli. Þessi tegund byggingarlistar er einkennandi fyrir fyrsta, annað og þriðja konungdæmið. Fyrstu byggingar með þessu lagi hafa líklega verið úr leir- múrsteinum og svo timbri. Stundum voru súlur reistar úr leir eða leirmúrsteinum, eina og veggirnir. Miðað við það stökk sem evrópsik siiðimenning tók á að- eins þúsund árum, virðist sið- menning Egypta hafa verið nokkuð hægfara, þar sem hún náði yfir um þrjú þúsund ár. En raunin varð sú, að lítil þörf var á breytingum eða hraðri þróun, eftir að siðmenn- ing þessi var komin á laggirn- ar í endað fjórða árþúsund 31. miaí 1970 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.