Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1965, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1965, Blaðsíða 13
Sögur af ÁSA-ÞÓR. Úr Eddu Snorra Sturlusonar — Teiknmqar eftir Harald Guöbergsson ÓK V7)R£> HeiMN flCI LAUSARl O* STENOR BAH í HOFÐl Þ'öfí. OK £1 ÞAT aoeiT TiL VARNANARfíT KASTA HEtN OF C'OLf ÞVERT, t>VÍ AT Þ’fl HRÆRISK HEININ 'l HVfÐl ÞOR. BISMARCK Framihald af bls. 9 Mákvæmum skotum að Ijóskúlunum, svo að Vian datt í hug, að aðmírálnum væri ek'd þægð í áframhaldi á þessari skot- hríð. u, m kl. 3 ákvað Vian að nálgast betur með Cossack og skjóta þessu eina tundurskeyti, sem hann átti eftir. Nú virtist Bismarck komið af stað aftur og halda haagt í norðvesturátt. Vian koms^ kringum það og norður fyrir, nálgaðist eftir því sem hægt var og skaut af um 4000 metra færi. Ekki virt- ist skotið hafa hitt. Eftir þessa árás virðist allt öruggt samband við Bismarck hafa farið út um þúfur, allt til kl. 6 eða skömmu áður. En Vian var þess fulltrúa, að sér mundi takast að finna hann aftur, þar eð nú var tekið að birta af degi. f>að var greini legt, að Bismarok var í bágu ástandi. Hann hafði gengið mjög hægt í stefnu, sem breyttist frá norðvestri til norð- austurs, síðan kl. 23. kvöldinu áður, og það var vafasamt, hvort rétt væri að hætta sér út í skothríðina frá honum, sem var mjög nákvæm. Kl. 5 skipaði Vian Piroun, sem hann vissi, að var orð- ið eldsneytislítið, að snúa til Ply- mouth. Plawski skipherra, sem hafði verið mjög hindraður af regnhryðjun- um, var þá að leita til norðvesturs að Bismarck. Hann hélt því svo áfram í klukkustund enn, en hélt þá heimleið- is og undi sínu hlutskipti hið versta. Ekki náðist beint samband fyrr en Maori sá svarta skuggamynd óvinar- ins kl. 5.50. Armstrong skipherra kom þá auga á hann þar sem hann slagaði hægt í NNV-átt með hér um bil 7 hnúta hraða. Þegar hann hafði fundið skipið, hélt hann í huimátt á eftir því fram f birtu. Hálfri klukkustund síðar kom Sikh auga á það, þegar það kom út úr þéttri regndembu, u.þ.b. hálfa fjórðu milu í burtu. Myrkrið var nú smám saman að víkja fyrir morgunskímunni. Rétt fyrir sólaruppkomu, þegar skyggni var orðið sæmilegt, ákvað Maori að eyða þessum tveim tundurskeytum, sem það átti eftir. Það nálgaðist betur og skaut siðan báðum á 9000 metra færi, rétt fyrir kl. 7. Hvorugt skotið hitti, en enn einu sinni hóf Bismarck skotihríð og skaut nokkrum sinnum ýmist of stutt eða of langt. Þetta voru endalok skot- hríðarinnar, sem hafði dunið á tundur- spillunum alla nóttina. xr egar albjart var orðið skipaði Vi- an tundurspillum sínum niður á fjögur svæði kringum Bismarck og þeir héldu áfram að hafa auga með því. Þetta hafði verið svefnlaus og þreytandi nótt hjá þeim, í hörkuspenningi frá sólarlagi til sólaruppkomu. Hver tundurspillir hafði verið undir nákvæmri skothríð frá stærri og smærri byssum Bismarcks. Allir nema Piroun höfðu gengið gegn- um að minnsta kosti tvær eldraunir og Cossack þó þrjár. Þetta voru veikbyggð skip og bæði yfir- og undirmenn gerðu sér það fullljóst, að ekki þurfti nema eitt markskot úr 15” byssunum á Bis- marck til þess að gera út af við þau. Með tilliti til þess, hve mörg skot höfðu lent ýmist fyrir ofan þau eða ekki náð alla leið, mátti það furðu kalla, að elck- ert þeirra skyldi hafa orðið fyrir skoti. Lítill vafi getur á því leikið, að þessi sambandsslit sem urðu öðru hverju með skipunum orsökuðust mest af nákvæmni skotanna frá Bismarck, sem skotið var með aðstoð radartækja. Iiefði það ekki getað hrakið tundurspillana frá sér og út úr sjónmáli, hefði verið tiltölu- lega auðvelt að hafa stöðugt auga á þvi, hefðu þeir lagt sig fram um það. En þetta vandamál eltingaleiksins, sem var fullflókið fyrir, varð ennþá erfið- ara vegna þess, að tundurspillarnir lögðu sig ekki alla fram við það. Sú ákvörðun að ráðast að með tundurskeyt- um hlaut að hafa óheppileg áhrif á hitt, að hafa óvininn vrndir stöðugri athug- un. Ef elta skal með góðum árangri, verður að forðast slys og skaða og gæta þess vel að halda sig á heppilegum stöðum. Aftur á móti kosta árásir með- vitaða slysahættu og snöggar hreyf- ingar til þess að komast í aðstöðu til að skjóta tundurskeytum, og verður þá ekki um annað hugsað á meðan. Tund- urspillir, sem er að elta, en snýst þá til árásar, kann að koma fram — ef hann þá kemur yfirleitt fram — fimm til tíu mílum frá stað sínum í eltingaleikn- xim; og þegar, eins og hér átti sér stað, árásirnar eru gerðar smátt og smátt og hver fyrir sig, hlýtur eltingaskipulagið að fara út um þúfur, og jafnvel komast í rugling. Elting og árás eru verk, sem eru langt frá því að geta samrýmzt. í hafi hitt. Það er mjög erfitt fyrir tund- urspilla, sem gera árás að næturlagi, að vita fyrir vist, hvort tundurskeyti þeirra hafa hitt eða ekki. Vatnssúlan, sem seg- ir til um þetta og gýs upp við hið skotna skip, er ekki vel sýnileg í myrkri og drunurnar í skotihríð sjálfs skipsins, sem skotið er á, þegar það skýtur á árásarskipið, geta hæglega verið tekn- ar fyrir sprengingu í tundurskeyti. Og óskhyggjan er sterkur þáttur í málinu, þegar svona stendur á. Yfir- og imdir- menn á árásarskipinu vilja sjá og heyra tundurskeyti hitta í mark, og geta raun- verulega sannfært sig um, að svo hafi verið, þótt skotið hafi alls ekki hitt Ekki sízt þegar þeir hafa verið í hætt- um og erfiði við að fremja árásina. ft þessu tilviki virðist ekki fram- k\ræmd aukaverkefnisins — árásarinnar — hafa getað bætt upp vanrækslu að- alverkefnisins — eltingarinnar. Satt er það að vísu, að talið var, að nokkur tundurskeytanna hafi hitt í mank. En samkvæmt þýzkum skýrslum, útgefn- um af brezka flotamálaráðuneytinu, hitti ekkert skotið í mark. Vitanlega getur þessi þýzka skýrsla verið ósönn. Hinsvegar hefðu allir um borð í skip- inu, sem fyrir skotinu varð, vitað um það, og ekki virðast Þjóðverjar hafa haft neina ástæðu til að leyna þeirri staðreynd, væri hún fyrir hendi. Öðru nær, og hafi þeir enga ástæðu haft til að skýra svona frá, gæti skýrsla Þjóðverjanna, að ekkert skot hafi hitt, verið trúlegri en sú trú Breta, að tvö lér við bætist, að skilyrðin við framkvæmd þessara árása voru án alls vaxa mjög ólíkleg til árangurs. Eitt ein- stakt orustuskip er slæmt skotmark fyr- ir tundurspilla að næturlagi.. Og enn óheppilegra, þegar þeir ráða til atlögu hver fyrir sig en ekki allir saman. Að visu var þarna það hagræði, að Bis- marck var á svo lítilli ferð og gat ekki brugðið skjótt við. En hinsvegar var hið langa færi, sem tundurskeytunum var skotið úr. Til þess að hafa góða að- stöðu til að skjóta tundurskeyti á ein- stakt skip, er venjulega nauðsynlegt að komast í um 2000 metra færi áður en skotið er. En þessa nótt var engu ein- asta tundurskeyti skotið á svo stuttu færi. Þrem var skotið á 4000 metrurn, fjórum á 5000, þrem á 6000, fjórum á 7000 og tveim á 9000 metra færi. En tundurspillarnir þurftu um fleira að hugsa en skjóta á óvininn.. Næsta dag yrði það þeim mikið verkefni að hlífa orustuskipunum við kafbátaárás- um, og þá yrði að taka hættuna af kaf- bátunum alvarlega. Og raunar var það vegna þess arna, að tundurspillarnir 20. tbl. 1965 -LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.